Morgunblaðið - 17.05.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1980
W>i
me* fjafSt
sambajidj^
ANMW
TYRKLAND
Natostöö meö
. millísamband
ifrá þotonni tit
Washington.
KASPIAHAF
v. J8J-3.18 Árekstur Vnilli
þotu og flugvélar. >KI. 4
O síöasta flugvéltn yfirgefur
Desert t Allar þyrlur sklld-
✓ areftlr.
'r (7J-2.30 Skipun
gefin um aö
hœtta vkS.
(6J-KI. 2 hmn 25. Rugvél-
arnar sex og þotu:nar sex
.—— lenda á Desert I Þriöja
þotan bílar.
Leynibœkistöö Bandá-
>. rrkjamanna í fjöllununta
K„ Desert II. “
paouL
SYRLAND
KUROttílAN
KYPUI
)a*Haf
fiHGöAD
(5J-Þota b«ar og snýr viö t|
sj<ipsins.
IRAN
jordanía
EGYPTALAND,
KOWtii'
(4FEln þota bitar og
'^^nauölendir. Áhöfnln'takin
upp í aðra.
Flugvél, sem mllli
flytur um radio.
i.ouQsor
Göm?
D'OMAN
ARABISKU
^URSTADÆMIN
OMAN ?
SAUDI ARABÍA
Masirah-eyja
(2}-Rugvélamar sex
ienda og taka ekis-
neytl, 3 flytja 90 menn.
aörar beratín.
(3) — Kl. 20.30:
þyriur leggja upp frá
inu Nlmltx. 23.30: 8 f
tom-þotur fara upp
til vemdar.
Bolng þotan f jaörl
radars frá Aden,
/Eþyópíu og íran.
SOUDAN
INDLANDSHAF
YEMEN
)U NORD
.UitllíuÍillÚÍii
Áður en herskipið Nimitz sendi
upp þyrlurnar átta, tókst því skv.
upplýsingum í Washington Post
að stinga með snarræði sovézkt
njósnaskip af, sem þeir höfðu
orðið varir við nokkrum dögum
áður. En hvernig er hægt að vita
hvort óvenjuleg umferð um flug-
vellina í Incirlik og Quena, sem
vakið hefur athygli hversdagslegs
blaðamanns frá Israel, hefur farið
framhjá hinni öflugu upplýsinga-
þjónustu Sovétmanna, sem hefur
(skv. hinu virta blaði Aviation
Week og Space Technology) yfir-
burði í rafeindatækjum til gagn-
aðgerða og gagn-gagnaðgerða?
Nokkrum klukkustundum eftir til-
kynninguna um ófarir björgunar-
leiðangursins, hikuðu brezkir sér-
fræðingar ekki við að fullyrða, að
ástæðan væri sambandstruflanir
hjá Bandaríkjamönnum, sem
Rússar hefðu valdið. Því var að
vísu neitað opinberlega í Pentag-
on, en á móti því mæla aftur á
móti vissar samræður milli Wash-
ington og leiðangursstjórnarinn-
ar, sem Miki Gurdus, sérfræðing-
ur Express á þessu sviði, hefur
fangað í ísrael. Og Express segir
að einn liðurinn í ákvörðun Jimmy
Carters hafi líklega stafað af
óvenjulegum umsvifum á sovésk-
um flugvöllum í birtingu föstu-
dagsmorguninn. Það gætT verið
skýringin á því hvers vegna Carter
varð að tilkynna með tilþrifum, að
liðinu hefði verið snúið við, meðan
tvær síðustu Herkúles-vélarnar
voru enn ókomnar út úr lofthelgi
íran og Phantom-þoturnar í há-
loftunum voru enn að svipast um
eftir tveimur öðrum, sem virtust
hafa horfið yfir Bahrein.
• Astand
Bandaríkjahers
Bilanirnar í þyrlunum segja
mikla sögu um hvernig ástandið er
orðið í bandaríska hernum, segir
Express. Og bendir á að 3 af 8
vélum séu 40%. Þarna sé um að
ræða vélar, sem hafi verið taldar
mjög öruggar, geti borið 37 manns
á 315 km hraða meira en þúsund
km leið. Þyrlurnar, sem notaðar
voru í íran, voru 7 ára gamlar, en
bilanatíðni þessara véla á ekki að
vera yfir 5%. Þessi hræðilega
veðrátta við Persaflóa með næst-
um 100% raka í aprílmánuði gæti
þó verið nokkur skýring. Einnig
Einn af flugmönnunum
fjórum, sem hlutu alvarleg
brunasár þegar Herkules-
vélin brann og 8 félagar
þeirra fórust.
sandstormur í eyðimörkinni yfir
íran. En 3 þyrlur af 8 úr leik og
árekstur milli Herkúles-vélar og
Siko-þyrlu er all hraustlega í lagt.
Hinn mikli bandaríski her er
sjúkur síðan stríðinu í Vietnam
lauk. Alvarlega veikur.
Það hefur ekki farið á milli
mála að á hernum sér. Enda
dregið úr fjárveitingum. Og það
fer ekki leynt í lýðræðisríki, þar
sem allt er opinbert. Benda má á
skýrslu Haywards aðmíráls til
varnarmálaráðherrans áður en
lokið var fjárlagagerð fyrir 1981,
þar sem hann lýsir því hve her og
floti séu illa búnir, m.a. vegna
skorts á hæfum mönnum. Bæði
hvað gæði og fjölda snerti hafi
heraflanum farið aftur. Vandinn
hefur hlaðizt upp við að minni-
hlutahópar streyma í herinn.
Svertingjar og spænskættaðir eru
orðnir um 40% í hernum og 26% í
landgönguliði flotans. Og af ótta
við að vera sakaðir um kynþátta-
mismunun segir að miklu minni
kröfur séu gerðar til þeirra hvað
aga snertir. Kvenliðþjálfar i land-
gönguliði flotans láti jafnvel birta
myndir af sér í Playboy, og Carter
hafi sjálfur leyft bjórnotkun um
helgar um borð í herskipum á
Indlandshafi svo dæmi séu nefnd,
þótt þessi fyrrverandi kafbáta-
maður hefði átt að þekkja hið
gamla máltæki sjóhersins: „Það er
léttara að koma skipi inn í flösku,
en fá flösku um borð í skip.“
Fyrir allt slíkt hefur Jimmy
Carter nú fengið að borga, ennþá
dýrara verði en fyrir ófarir björg-
unarleiðangursins, sem meirihluti
kjósenda ásakar hann ekki fyrir
að hafa haft hugrekki til að reyna.
Enginn af mótframbjóðendum
hans í forsetakosningunum sýndi
þá ósvífni að gagnrýna hann
opinberlega. En uppsögn utanrík-
isráðherrans Cyrusar Vance var
fyrsta áfallið. Slíkt hafði ekki
komið fyrir í Bandaríkjunum síð-
an 1915. Nýi utanríkisráðherrann
Edmund Muskie, hinn 66 ára
gamli öldungadeildarþingmaður
frá Maine, er góður ræðumaður,
en hefur litla reynslu á alþjóða-
vettvangi. Gæti svo farið að
Bandaríkjamenn sem hafa orðið
að upplifa martröðina af óförum
björgunarleiðangursins, og hryllir
við hinni óhugnanlegu sýningu á
brenndum líkum bandarísku flug-
mannanna — hallist nú að gamla
kúrekanum Reagan frá Kaliforn-
íu, sem e.t.v. kann betur en
babtistinn Carter að reiða langa
stafinn yfir óvinum Bandaríkj-
anna. Líka gegn bandamönnunum
svokölluðu í Evrópu, sem virðast
telja eftir að hjálpa, jafnvel í
orðum, þeim sem tvisvar sinnum
hafa komið þeim til bjargar yfir
Atlantshafið.
• Arabar varkárir
Sjálfsagt er ekki miklu hægt að
bjarga við Persaflóa. Saudi Arab-
ar höfðu fyrirfram neitað að leyfa
flug yfir sitt svæði, jafnvel fyrir
björgunarleiðangur, og neyddu
þar með Bandaríkjamenn til að
lengja flug Herkúles-vélanna með
björgunarliðið. Það varð að
krækja fyrir Arabíuskaga og
fljúga utan í radarsvæði Sovét-
manna. Arabísku blöðin voru
felmtri slegin daginn eftir ófar-
irnar á Tabas flugvelli. I Riyad,
Kowait og furstadæmunum mátti
sjá ásakanir, en siguröskur hinna
máttugustu byltingarmanna —
eins og Khomeinis, sem sá í þessu
guðlega forsjá gegn íhlutun Sat-
ans — „glumdu við: Eru prinsarn-
ir og emírarnir í Arabaheiminum
þá allt í einu orðnir andsnúnir
Bandaríkjunum? Fjarri því. En
þeir eru orðnir varkárir. Þeir
trúðu því að Bandaríkjamenn
væru ósæranlegir, afl þeirra gífur-
legt og hermenn þeirra ósigrandi.
En þeir hafa nú horft upp á
keisarann felldan úr sessi, án þess
að þora að gefa íranska hernum
grænt ljós og gamla einvaldinn
hrakinn, fárveikan, land úr landi
eins og pestarrollu. Þeir hafa í
sjónvarpinu séð sendiráðsmenn-
ina niðurlægða í gíslingunni. Þeir
vonuðust í laumi eftir skyndiárás,
að Zorro kæmi með glæsibrag. En
í blöðum sínum og sjónvarpi séð
skelfilega sýn, óðan ayatollah
veifandi brenndum handlegg. Og
brunna beinagrind af fallegum
flugtækjum á borð við þau, sem
þeir hafa sjálfir verið að kaupa í
stórum stíl. Yfirkomnir og óróleg-
ir telja hinir hægfara öruggara að
byrja að líta í hina áttina.
11
• Á leið til
oliunnar
í hvaða átt þá? Til Sovétríkj-
anna, sem ráðizt hafa inn í
Afganistan, malað 5 herdeildir í
Kákasíu á landamærum írans og
Azerbeidjan og 3 aðrar í Herat við
landamæri írans. Til Sovétríkj-
anna sem í hægðum sinuni safna
öllum góðu spilunum. Þessi litil-
fjörlega björgunarárás Banda-
ríkjamanna hefur næstum si yggt
á hina grimmilegn og umfangs-
miklu innrás í Afganistan. Banda-
ríkjamenn hugsa ekki um annað
en gíslana sína 50, meðan Moskva
lætur fara lítið fyrir sér, og
forðast allar ógnanir. En Sovét-
ríkin hafa flugvélar staðsettar í
Suður-Afganistan, í 40 mínútna
flugfjarlægð frá Persaflóa og lið-
sveitir í hálfs dags fjarlægð frá
Teheran og eru ekki alllangt frá
Ormutz-flóa. Þeir geta beðið
næsta tækifæris til að senda
dátana sína inn í þau héruð, sem
eru í upplausn.
Tímamörkin eru nokkuð þekkt,
1984. Samkvæmt CIA munu Sov-
étríkin skorta olíu til heimanota
og fyrir gervihnetti sína eftir
fjögur ár og þetta staðfesta upp-
lýsingamiðstöðvar allra Vestur-
landa. Fyrir þann tíma munu
Sovétríkin reyna að ná valdi á
olíulindunum við Persaflóa. Inn-
rásin í Afganistan var auðvitað
ekki nema fyrsta skrefið, sem
Evrópumenn í eigingirni sinni
látast ekki sjá og almenningsálitið
í Bandaríkjunum sér ekki vegna
sársaukans út af gíslunum í sendi-
ráðinu. Rússar eiga þarna góðan
leik. Samningurinn frá 1921, sem
heimilar Sovétríkjunum að blanda
sér einhliða í málefni írana, ef
lífshagsmunum þeirra er ógnað,
hefur aldrei verið felldur úr gildi.
Khomeini hefur aðeins einu sinni
lýst fyrirætlun sinni um að aflýsa
honum, en ræða hans hefur ekkert
lagalegt gildi. Samningurinn er
enn í fullu gildi.
Ástandið í Iran hefur aldrei
verið eins spennt og ringulreiðin
meiri síðan keisarinn fór í útlegð.
Fögnuðurinn við fréttirnar um
ófarir Bandaríkjamanna, ræður
Khomeinis, niðurlægjandi sýning-
in á flugmönnunum getur ekki
dulið það sem máli skiptir: Iran
siglir sífellt hraðari byr í að liðast
í sundur. I blóði sínu. Og samtímis
brennur Kurdistan. Daglega falla
hundruðir, þúsundir eru særðar af
loftárásum írana, og umheimur-
inn lætur sig það engu varða.
Sunnar herjar her Iraka á þús-
undir iranskra þjóðernissinna og
nota ringulreiðina til að ráðast á
hinn veikburða og uppleysta ír-
anska her.
Frábær aðstaða fyrir ósveigjan-
lega og þolinmóða menn, eins og
þá sem búa í Kreml, þar sem
Sovétsérfræðingar segjast telja að
hernaðarsinnar hafi getað nýtt
sér bága heilsu Leonids Brésnjefs
og orðið ofan á. Bandaríkin hafa
fengið líkingu af pappírstígris-
dýri. Beztu vinir þeirra eru hugs-
andi. Anwar Sadat, hugrakki mað-
urinn sem lagði á sögulegan hátt
land undir fót til Jerusalem og
veitti keisaranum skjól, er enn
einangraðri en fyrr í Arabaheim-
inum. Talsmenn hans reyndu af
veikum mætti að neita því að
bandarísku vélarnar hefðu komið
við í Suður-Egyptalandi, en höfð-
inginn tottaði hinn rólegasti
pipuna sína og staðfesti í raun:
„Eg hefi lofað bandarísku þjóðinni
að liðka fyrir frelsun gíslanna og
koma til hjálpar öllum löndum við
Persaflóa." Sá furðulegi Sadat. En
hve lengi getur hann enn haldið
þetta út, með Bandaríkjamenn
síflæktari í málinu og Evrópu
fýlandi grön?
Frá Persaflóa til Egyptalands,
frá svörtu Afríku til Spitzbergen
bíða Rússar eftir að hirða afrakst-
urinn. Eftir mánuð eða ár. Mörg-
um stjórnmálamönnum og frétta-
skýrendum verður hugsað til
Sarajevo, eða áranna fyrir seinni
heimsstyrjöldina. Níu söfnuðust
saman í Luxemburg til að tala um
stríð. En það er rollustríð, segir í
lokaorðum greinarinnar í Express.
(Tekið saman og þýtt af E. Pá.)