Morgunblaðið - 17.05.1980, Síða 30
30
Tékkneskir
kvikm yndadagar
í Háskólabíói hefjast i dag
tékkneskir kvikmyndadagar á
vegum tékkneska sendiráðsins.
Tékknesk-íslenska menninKaríé-
lagsins og Iláskólabfós. í dag kl.
16 verður sýnd myndin „Skug>?ar
sumarsins“ eftir Fratisék Vláéil.
kl. 16 „Stefnumót í júlí“ eftir
Karel Kachyiia ojí kl. 21 „Adela
er svönj;“ eftir Oldrich Lopský.
' Á morgun, kl. 15 hefst sýning á
myndinni „Krabat" eftir 0.
Preussler kl. 17 verður aftur sýnd
myndin „Adela er svöng en kl. 19
„Haltu honum hræddum“ eftir
Ladislav Rychman. „Skuggar
sumarsins“ verður svo sýnd aftur
kl. 21.
Tékkneskum kvikmyndadögum
lýkur 22. maí.
Kvikmyndafjelagið
í Regnboganum
Kvikmyndafjelagið sýnir tvær
myndir í Regnboganum um helg-
ina. Á laugardag kl. 19.10 verður
sýnd kvikmyndin ,,Rashomon“ eft-
ir Kuro Sawa. Á undan verður
sýnd stutt ballettmynd, „Pas de
Deux“. Á sunnudag kl. 19.10 hefst
sýning myndarinnar „Moment of
Truth“, leikstjóri er Frasesco
Rosi.
Atriði úr „Skuggar sumarsins“ sem sýnd verður á tékkneskum
kvikmyndadögum.
Skólahljómsveit Tónlistarskóla Njarðvíkur.
Landsmót skólahljómsveita
Landsmót skólahljómsveita
verður haldið í dag, laugardag í
Njarðvík. Á mótinu, sem haldið er
í boði skólahljómsveitar Tónlist-
arskóla Njarðvíkur verða saman
komnar 19 lúðrasveitir og er fjöldi
hljóðfæraleikara um 600. Á mót-
inu mun hver sveit leika tvö lög og
að lokum spila allar sveitirnar
saman. Mótið verður sett kl. 16 í
íþróttahúsinu og er öllum heimill
ókeypis aðgangur.
Prófessor Páll Skúlason.
Bylting og
brœðralag
Fyrirlestur á vegum Félags
áhugamanna um heimspeki verð-
ur haldinn á morgun, sunnudag
18. maí kl. 14.30. Prófessor Páli
Skúlason flytur erindi til minn-
ingar um Jean Paul Sartre er
hann nefnir „Bylting og bræðra-
lag.“
Leikstjóri og leikendur i „Hart í bak“.
Litli leikklúbburinn
sýnir Jlart í bak “
LITLI leikklúbburinn á ísafirði
sýnir „Hart í bak“ eftir Jökul
Jakobsson í Félagsheimilinu á
Patreksfirði í dag kl. 21 og á
morgun kl. 15. Leikstjóri er
Margrét Óskarsdóttir en leik-
mynd er eftir Steinþór Sigurðs-
son. Helstu leikendur eru:
Kristján Finnbogason. Guðrún
Eyþórsdóttir, Reynir Sigurðs-
son, Elísabet Þorgeirsdóttir,
Július H. Kristjánsson og Jök-
ull Veigar Kjartansson.
Litli leikklúbburinn frum-
sýndi „Hart í bak“ á ísafirði s.l.
sunnudag, 11. maí og hefur sýnt
verkið þar fjórum sinnum.
Áformaðar eru fleiri sýningar á
ísafirði.
Litli leikklúbburinn á 15 ára
afmæli í ár og hefur af því tilefni
gefið út afmælisrit, í ritnefnd
eru Anna Lóa Guðmundsdóttir,
Halla Sigurðardóttir, Jón Bald-
vin Hannibalsson, Trausti Her-
mannsson og Hafsteinn Vil-
' iálmsson. Leikklúbburinn hef-
sett upp 32 verk á þessum 15
árum og sagði Hafsteinn Vil-
hjálmsson í samtali við Mbl. að
sýningarnar hefðu verið vel sótt-
ar.
„Um 60 virkir félagar eru nú í
klúbbnum og þótt stundum sé
erfitt að finna fólk í hlutverk þá
er þetta áhugasamur hópur sem
hefur staðið sig mjög vel,“ sagði
Hafsteinn. Á s.l. ári fór Litli
leikklúbburinn með Fjalla-Ey-
vind til Seltjarnarness og sýndi
þar tvisvar fyrir fullu húsi við
góðar móttökur.
Leika d víólu
og píanó
HELGA Þórarinsdóttir víólu-
leikari og Anne Taffel píanóleik-
ari halda tónleika í Norræna
húsinu á morgun, sunnudaginn
18. maí og hefjast þeir kl. 20.30.
Þær spila þar sónötu i g-moll
eftir Bach, Marchenbilder eftir
Schumann, Vocalise eftir Rach-
maninoff og sónötu i f-moll eftir
Brahms.
Helga stundaði nám í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík en fór
síðan til Englands og nam við
Northern College of Music í
Manchester. Á undanförnum ár-
um hefur hún verið í framhalds-
námi í Bandaríkjunum, fyrst hjá
Peter Mark í Santa Barbara í
Kaliforníu og síðan hjá George
Neikrug í Boston.
Anne Taffel er ungur amerískur
píanóleikari. Hún hefur mikið
spilað með öðrum tónlistar-
mönnum í Boston og New York og
í mars sl. lék hún í píanókvartett í
Carnegie Recital Hall.
Helga Þórarinsdóttir, víóluleik-
ari.
Sýningu Jakobs Hafstein að Ijúka
JAKOB Hafstein heldur um þess-
ar mundir málverkasýningu i
félagsheimilinu Festi í Grinda-
vík. Sýningu Jakobs lýkur annað
kvöld.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir
sýning á verkum Péturs Friðriks
og í austursalnum er þýsk grafík-
sýning. Á göngum hússins er
sýning á teikningum frá Reykja-
víkurborg.
I Norræna húsinu er sýning á
verkum ungversk-sænska nútíma-
málarans Entre Nemes. .
Jakob Hafstein og Pétur Friðrik
sýna verk sin um helgina.