Morgunblaðið - 01.06.1980, Síða 21

Morgunblaðið - 01.06.1980, Síða 21
MirtÉi MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1980 69 drægi. Hver senvværi á svæðinu, hvort sem hann væri slasaður eða að reyna að bjarga öðrum, myndi á skömmum tíma verða fyrir ban- vænni geislun. Aðrir óbeinir þættir eru einnig hluti af heildarmyndinni. Skepnur sem eiga heimkynni sín niðri í jörðinni, t.d. rottur, hefðu í byrjun betri möguleika á að lifa af, skor- kvikindi og sýklar hefðu vegna erfðaþátta sinna talsvert betri möguleika á að lifa af. Þær aöstæð- ur sem valda dauða mikils mann- fjölda og koma í veg fyrir neyðar- og hjálparstarf bjóöa upp á nær kjörið ástand fyrir útbreiöslu sjúk- dóma. Þeir sem slyppu meö brunasár sem ekki drægju þá til dauöa og heföu ekki oröiö fyrir banvænni geislun væru mjög næmir fyrir sýkingu, þar sem þeir hefðu misst eðlilega ónæmi fyrir sjúkdómum. Ef aöstæöur eru metnar út frá afleiöingum einnar sprengju (eða mesta slysi sem raunhæft er að gera ráð fyrir í tengslum við einn kjarnakljúf eins og breska ráðið um varnir gegn geislavirkni hefur gert) er hægt að reikna með að fyrir hendi sé þjónusta á öörum stöðum og að hægt yrði að flytja fólk frá hættusvæðinu og sinna þeim sem lifðu af. En hve langan tíma tæki það í raun og veru ef enginn getur verið á ferli á svæöinu áhættulaust í alit aö hálfan mánuð og ef engin þjónusta er fyrir hendi og allt heilbrigöiskerfið er horfiö? Hugsaðu stundarkorn um þessa brennandi eyðimörk og þá sem þar væru enn á lífi. Faröu inn í þessa eyðimörk, inn í skrifstofurnar, versl- anirnar og skólana þar sem fáeinir samanhnipraöir vesalingar eru enn á lífi ofurseldir geislun og brennandi hita. Það er lítið hægt að gera, jafnvel í svona einstöku tilviki, þótt viö gerum ekki ráö fyrir keðjuverkun sem líkleg væri ef til kjarnorkustríðs kæmi. Líttu aftur á kortið þitt og legðu saman tvöföldu hringina sem yröu til við tíu 20 megatonna sprengjur á umhverfi þinnar borgar. Hugleiddu svo geislavirka skýiö og hvernig önnur geislavirk ský frá öðrum svæðum sem einnig heföu orðið fyrir svipaðri árás næðu til þín. Reyndu að meta hvaöa læknis- þjónusta og önnur neyðarþjónusta yrði eftir og hvers konar heimur biöi þeirra sem skriðu úr þyrgjum sínum á útjöðrum svæöanna inn í geisla- virkan öskumökkinn. Bandaríski hópurinn vill fá al- menning til að beita ímyndunarafl- inu á þennan hátt. Ekki er ólíklegt aö breski hópurinn sem skipulagt hefur samkomu til að endurvekja áhuga fólks á þessum málum hafi eitthvað svipað í hyggju. Það sem hafa ber í huga, er aö þeir sem segja að afleiöingar af beitingu þessara vopna séu slíkar aö engin heilbrigöisþjónusta eöa almanna- varnir geti ráöið við þær, eru reyndir kunnáttumenn á heilbrigð- issviðinu sem þekkja og skilja þau vandamál sem eru samfara neyðar- ástandi og því að halda uppi nauösynlegustu þjónustu við slíkar aðstæður. Hins vegar eru þeir sem í hernaö- arlegum tilgangi draga upp sams konar hringi og borgaraleg yfirvöld verða að hugsa sér um okkar borgir, en þeir draga sína hringi um „óvinaskotmörk og erlendar borg- ir“. Brjálæðið sem menn sáu og skildu og sýndu fram á á sjötta áratugnum er enn fyrir hendi. Við þurfum aftur að fá almenning til að beita ímyndunaraflinu til aö halda brjálæðinu í skefjum, því hver sem dregur hringinn þá erum við öll innan hans. Veiðileyfi í Soginu Nokkrar ósóttar stangir fyrir landi Alviðru verða seldar á morgun og þriöjudag. Upplýsingar í síma 27711 frá 1—5 e.h. SIEMENS — vegna gædanna Stillanlegur sogkrattúr, 1000 watta mótor, sjálfinndregin snúra. frábærir fylgihlutir. Siemens -SUPER — öflug og fjölhæf. SMITH & NORLAND HF., Nóatúní 4, sími 28300. Vinyl-varin lyftingatæki og handlóö til heimilisnota POSTVERZLUNIN HEIMAVAL P0NTUNARSIMI 44440 BOX 39 KÓPAVOGI Hvers vegna er bensínið svona dýrt? Innkaupsverð (sif):......139.02 kr. Opinber gjöld:...........247.42 kr. Álagning/dreifing:........25.50 kr. Verðjöfnunargjald:.........3.87 kr. Sölulaun:.................14.28 kr. Á öld sífelldra verðhækkana er nauðsynlegt að velja bíl sem sam- einar sparneytni og lítinn viðhalds- kostnað. Frammistaða Volvo í sparakstri hefur sitt að segja, en það er ekki síður nauðsynlegt að bílinn þinn geti sameinað sparneytni, gæði og öryggi. Þar hefur Volvo yfirburði, sem varla er hægt að líta framhjá! Líttu á bensínverðið - og talaðu svo við sölumennina í Volvosalnum. VELTIR Hr. Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.