Morgunblaðið - 01.06.1980, Blaðsíða 22
70
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1980
Til sölu Mercedes Benz 250 árgerö 1976. Ekinn
60.000 km. sjálfsk. meö vökvastýri og aflbremsum,
útvarp, segulband, ný sumardekk.
Glæsilegur einkabíll til sýnis hjá
Bílasölunni Skeifunni,
símar 84848 og 35035.
Kassettur
beztu kaup landsins
(ONCE RIONI
1 spóla 5 spólur
60 mínútur kr. 900 kr. 4000
90 mínútur kr. 1100 kr. 5000
Heildsölu
birgöir
Reiðhjóla-
skoðun
Lögreglan í Reykjavík og Umferöarnefnd Reykjavíkur
efna til reiöhjólaskoöunar fyrir börn á aldrinum
7—14 ára. Þau börn sem hafa reiöhjól sín í lagi fá
viöurkenningu frá Umferöarráöi fyrir árið 1980.
Skoðaö veröur viö grunnskóla borgarinnar sem hér
segir:
Mánudaginn 2. júní
Þriöjudaginn 3. júní
Miðvikudaginn 4. júní
Fimmtudaginn 5. júní
Hlíöaskóli kl. 09.30
Vogaskóli kl 1.11.00
Breiöholtsskóli kl. 13.30.
Álftamýrarskóli kl. 15.00.
Árbæjarskóli kl. 09.30
Fellaskóli kl. 11.00
Melaskóli kl. 13.30.
Laugarnesskóli kl. 15.00.
Hvassaleitisskóli kl. 09.30.
Ölduselsskóli kl. 11.00.
Fossvogsskóli kl. 13.30.
Langholtsskóli kl. 15.00.
Hólabrekkuskóli kl. 09.30
Austurbæjarskóli kl. 11.00.
Seljaskóli kl. 13.30.
Breiöagerðisskóli kl. 15.00.
Börnin mæti viö þá skóla sem næst eru heimili þeirra.
Lögreglan í Reykjavík
Umferöarnefnd Reykjavíkur.
Sjötugur á morgun:
Gestur Gamalielsson
kirkjugarðsvörður
Enda þótt vinur minn Gestur
Gamalielsson hafi nokkuð látið á
sjá hin allra síðustu ár vegna
þungbærra veikinda, sem nú eru
vonandi á undanhaldi, þá hygg ég
að ýmsir reki upp stór augu þegar
þeir sjá þessar línur, því að svo
sannarlega bendir útlit hans ekki
til þess að á morgun, mánudaginn
2. júní fylli Gestur 7. áratuginn.
Kirkjubækur Villingaholtssóknar
greina þó frá því að Gamalieí
Gestssyni bónda á Forsæti og
Helgu Vigfúsdóttur hafi hinn 2.
júní árið 1910 fæðst sonur. Reynd-
ar sagði Gestur mér einhverju
sinni að hans hefði verið vænst
nokkrum dögum fyrr, en vegna
óvenju erfiðrar fæðingar hefði
hann verið nær dauða en lífi,
þegar hann kom í þennan heim.
Gestur sleit barnsskónum á
Forsæti, en þegar hann var 11 ára
gamall árið 1921, brugðu foreldrar
hans búi og fluttu hingað til
Hafnarfjarðar. Vegna sívaxandi
útgerðar og annarra umsvifa var
mikið aðstreymi fólks til Hafnar-
fjarðar á þessum árum. Þannig
mun hafa fjölgað í bænum um
nálega 500 manns á 3ja ára
tímabili á árunum 1919—1922 og
segir það sína sögu um atvinnulíf-
ið í kaupstaðnum um þetta leyti.
Eftir að skólagöngu lauk, hóf
Gestur þegar þátttöku í atvinnu-
lífinu. Réðst hann aðeins 15 ára
gamall til hinna kunnu verkstjóra
Jóns og Gísla og starfaði hjá þeim
um hríð. Einnig vann hann um
tíma á fiskverkunarstöð Ólafs
Böðvarssonar.
Árið 1929, þá 19 ára gamall
hófst hið eiginlega lífsstarf Gests,
en það ár hóf hann nám í
húsasmíði hjá Bjarna Erlendssyni
og Hauki Jónssyni, þekktum iðn-
aðarmönnum hér í Hafnarfirði.
Að námi loknu vann Gestur við
smíðar, lengst af hér í Hafnar-
firði, en einnig nokkuð úti á landi.
Til gamans má geta þess að
Gestur vann töluvert við smíðar á
æskuslóðum sínum, svo sem við
stækkun Tryggvaskála og íbúð-
arhúsabyggingum í Birtingaholti
og víðar um héraðið.
Á árinu 1955 má segja að
þáttaskil verði í lífi Gests. Það ár
ræðst hann að kirkjugarðinum í
Hafnarfirði, sem kirkjugarðsvörð-
ur. Fyrirrennari hans í starfinu,
Jón heitinn Þorleifsson, lézt árið
1921. Fyrstu árin eftir að Gestur
varð kirkjugarðsvörður, vann
hann áfram við smíðar, eftir því
sem tími vannst til, en því lengra
sem leið, varð það æ erfiðara fyrir
hann að samræma húsasmíðarnar
við starf sitt sem kirkjugarðsvörð-
ur. Upp úr 1960 tók líka bæjar-
búum að fjölga ört og hafði það að
sjálfsögðu þau áhrif á starf Gests
við kirkjugarðinn að það var gert
að fullu starfi. Lauk þar með þeim
þætti í ævistarfi Gests, sem hófst
er hann var 19 ára gamall.
Hinn 17. október árið 1942
kvæntist Gestur Jónu Guðmunds-
dóttur frá Hrauni. Jóna er fædd
suður í Sjólyst í Garði en fluttist
til Hafnarfjarðar, er hún missti
móður sína, þá aðeins 9 ára gömul.
Ólst hún eftir það upp hjá móður-
AHUGAFOLK
UM ÆTTFRÆÐI
Út er komin í Ijósritaöri útgáfu ÆTTARSKRÁ
Séra Bjarna Þorsteinssonar prests í Siglufiröi.
Takmarkaö upplag. Einnig er fyrirliggjandi,
NIÐJATAL Þorvalds Böövarssonar prests á
Holti undir Eyjafjöllum og Björns Jónssonar
prests í Bólstaöarhlíö.
Sendum í póstkröfu.
Ármúla 27
S: 39330.
Glæsileg mahogny boröstofu-
húsgögn í fjölbreyttu úrvali