Morgunblaðið - 01.06.1980, Page 29

Morgunblaðið - 01.06.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1980 77 kallast, ég nenni ekki að finna því nafn. • I smærri stíl En það er fleira notað, þótt það sé ekki eins stórt í sniðum. Eg hitti til dæmis um daginn gamlan sveitunga. Hann hafði átt heima í Reykjavík í fjögur ár og önnur þrjú á Seltjarnarnesi. En bíllinn hans bar einkennisstaf gamla byggðarlagsins. Jú, hann lét skrá hann á nafn föður síns, því það var þó nokkur munur á tryggingar- gjaldi. Hvort honum fyndist þetta sæmandi? Jú, því ekki það, hvers vegna að borga meira fyrst hægt væri að komast hjá því með þessu móti. Þá hef ég séð bíl vel merktan sendibílastöð hér í borginni með utanbæjarnúmeri. Mér er tjáð að eigandinn hafi stundað þá atvinnu í nokkur ár og borgi mun minni tryggingargjöld en vinnufélagar hans, af bílum með R-númer. Aðfluttur Reykvíkingur.“ • Aðgerðir á Lækjartorgi Þá er hér bréf frá „Miðborgar- unnanda“, sem lýsir atviki er gerðist á Lækjartorgi: „Kæri Velvakandi, það er heldur leiðinleg sjón, sem alþýðu manna var boðið upp á í göngugötunni niðri við Útvegs- banka síðastliðinn fimmtudag í góða veðrinu. Hópur ungmenna hafði safnast þarna saman að njóta góða veð- ursins og stemmningar miðborg- arinnar. 4—5 einkennisklæddir lögregluþjónar voru að fjarlægja ölvaða einstaklinga, sem þarna voru. Þá bar að ungan mann, óölvað- an, sem þóttu aðfarir lögreglunn- ar hálf neikvæðar. Þarna upphófst orðasenna, sem endaði með því að sá orðhvati var fjarlægður með fantatökum burt af vettvanginum. Á móts við klukkuna á Lækjar- torgi kom til einhvers mótþróa og það næsta, sem bar fyrir sjónir var að 3 lögreglumenn lögðu manninn á jörðina og einn emb- ættismannanna sté á höfuð hans. Það kann að vera að lögum samkvæmt hafi lögreglan gert sína skyldu. Ölvun á almannafæri er hvergi til sóma og bægja á öllu slíku frá. Spurningin er hins vegar sú hvort ekki er orðið tímabært að lögreglan fari að leggja niður þessi frumstæðu vinnubrögð og tileinki sér aðferðir, sem byggja á dýpri þekkingu á mannlegum samskiptum. Þeim, sem gerst þekkja framgang lögreglunnar þarna niðri í miðborginni, finnst aðstaða hennar heldur klaufaleg. Með þökk fyrir birtinguna Miðborgarunnandi“ • Dómharka Velvakandi hefur oft orðið var við mikla dómhörku um lög- regluna, þegar hún hefur verið að fást við drukkna menn. Án efa eru lögregluþjónar misjafnir eins og annað fólk og gengur misjafnlega vel að tjónka við drukkið fólk. Það er ekki vandalaust starf, sérstak- lega þegar kraftarnir eru. eina málið, sem „viðskiptavinurinn" skilur. Vissulega væri æskilegast að „djúp þekking á mannlegum samskiptum" nægði. Og að sjálf- sögðu hlýtur það að vera aðall hvers góðs lögreglumanns að reyna að beita sálfræðinni í fyrstu viðskiptum sínum við hvern sem er. Hitt vekur aftur á móti furðu að „óölvaður" aðkomumaður skyldi valda lögreglunni mestum vanda í umræddu tilviki. Hans þekking á mannlegum samskiptum ristir ekki djúpt, hafi ætlun hans verið að aðstoða hina drukknu menn. Þessir hringdu • Flokkun í hverfi Kona hringdi og kvaðst ekki geta sætt sig: við að nú ætti að fara að ráðstafa milljónum eða millj- örðum króna í „verkamanna- bústaði". Allir töluðu nú um jafn- rétti, en hvaða réttlæti væri það eða jafnrétti að ætla að flokka fólk niður í hverfi eftir atvinnu- stétt. Það yrði aðeins til þess að auka á stéttamismuninn. „Verka- mannabústöðum" ætti ekki að hrúga á einn stað. Hún kvað sjálfsagt að láglaunahópum yrði veitt öll sú aðstoð sem hægt væri til þess að eignast þak yfir höfuðið en á annan hátt en hér væri gert ráð fyrir. Það væri t.d. hægt með SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu í Lone Pine í Kaliforníu- í vor kom þessi staða upp í skák Bandaríkjamann- anna Bisguier og Kaplan, sem hafði svart og átti leik. því að tryggja fólki hagkvæm lán og svo gæti það byggt eða keypt þar sem það kysi helst. Þá sagði konan að sjálfstæðir byggingaraðilar ættu að hafa miklu greðari aðgang að lánum en nú er. Þá myndi skapast meiri samkeppni á milli þeirra og íbúða- verð lækka. • „Vinstri-sinnar“ Þá hringdi maður, sem sagði að „vinstri-sinnarnir" í umferð- inni væru farnir að fara mjög í taugarnar á honum. Hann sagði að það væri alveg gefið mál, þegar ekið væri eftir götu með tveimur akreinum, að einhver silakeppur- inn sniglaðist áfram á vinstri akrein og tefði umferð óhóflega. Hann kvaðst furða sig á því hve erfiðlega gengi að koma þeim mönnum í skilning um að þeir ættu að nota hægri akreinina. Þar gætu þeir ástundað „öruggan“ akstur með því að fara fetið og enginn gæti neitt við því sagt. HÖGNI HREKKVÍSI NYTT SIMANUMER FRÁ 1. JÚNÍ 83222 GUÐMUNDUR JÓNASSON H/F. Ferðaskrifstofa Sérleyfis-og hópferðir Borgartúni 34 — Reykjavík. Odýrar Noróurlandaferðir Þrándheimur — Osló 17. júní 13 dagar Verð frá kr.: 168.000.00 Innifalið: Flugferðir , gisting í 2 nætur í Þrándheimi og lestarferð til Osló, (Flogið heim frá Osló). Gautaborg 21. júní — 9 dagar Verð frá kr: 198.000.00 Innifalið: Flugferðir og ódýr gisting í Gautaborg. Allar nánari upplýsingar veita Feröaskrifstofan ÚTSÝN \ FERDASKRIFSTOFAN j URVAL ^jUÍF f Sími 26900 1 Austurstræti 17 Sími 26611 31.... dxe3, 32. Rd3 (Ef 32. Dxb6 þá Hd2 og hvítur er óverjandi mát) IIxd3, 33. Dxd3 — e2+, og hvítur gafst upp, enda stutt í mátið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.