Morgunblaðið - 10.07.1980, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1980
35
Franskt lið
á eftir
Sigurlási
FRANSKT 2. deildar lið Le
Havre hefur sett sig í samband
við Sigurlás Þorleifsson leik-
mann ÍBV og hefur áhuga á að fá
hann i sinar raðir. Mál þetta er
enn á byrjunarstigi. Sigurlás
hefur fengið skeyti frá liðinu og
annaðhvort mun hann fara utan
til þess að kanna aðstæður eða að
forráðamenn Havre koma til ís-
lands. Sigurlás hefur fengið leyfi
hjá félagi sinu ÍBV til þess að
eiga i samningaviðræðum á með-
an á keppnistimabili stendur.
hkj/þr
Sigurlás Þorleifsson
Meistarakeppnin
„Þettaer
ekki allir
í GÆRDAG var dregið í Evrópu-
keppnunum i knattspyrnu. ís-
landsmeistarar ÍBV fengu Banik
Ostrava frá Tékkóslóvakíu og á
ÍBV fyrri leikinn hér heima. Gert
er ráð fyrir því að fyrri leikurinn
fari fram 17. sept og siðari
leikurinn 1. okt. Bikarmeistarar
happdrætti, það fá
stóra vinninginn“
Fram drógust á móti danska
liðinu Hvidovre og á danska liðið
fyrri leik á heimavelli sinum. Lið
ÍA tekur þátt i UEFA-keppninni
og þeir voru heppnir, fengu
vestur-þýska liðið F.C. Köln og
leika fyrri leikinn á útivelli. Lið
ÍA hefur áður leikið á móti F.C.
Köln, var það árið 1978.
í spjalli við Mbl. sagði einn
knattspyrnuráðsmaður IBV að
þeir væru ekki ánægðir með drátt-
inn. „Þetta hefði getað verið betra.
Við vorum hinsvegar undir það
búnir að fá lið frá járntjaldslönd-
unum. Þetta er happdrætti og það
fá ekki allir stóra vinninginn."
Gunnar Sigurðsson formaður
knattspyrnuráðs ÍA sagðist vera
mjög ánægður með að dragast á
móti F.C. Köln. Þetta væri frá-
bært lið með frábæra knatt-
spyrnumenn í öllum stöðum.
Vestur-þýska knattspyrnan er sú
besta í heiminum í dag og því
ánægjulegt að fá þýskt lið í
heimsókn. Knattspyrnuunnendur
fá tækifæri á að sjá góðan leik.
Lúðvík Halldórsson formaður
knattspyrnudeildar Fram var ekki
beint ánægður en sagðist vera
sannfærður um að Fram myndi
vinna danska liðið og komast
áfram í keppninni, annað kæmi
ekki til greina.
- þr.
ENSKU meistararnir Liverpool
fengu iétta mótherja í fyrstu
umferð Evrópukeppni meistara-
liða. Drógust meistararnir gegn
finnska liðinu Oulon Balousora
og leika fyrri leikinn á heima-
veili. Evrópumeistararnir Nott-
ingham Forest fengu snöggtum
erfiðari mótherja, rúmenska liðið
CSKA Sofía. Það er í raun og
veru lítið um verulega áhuga-
verða leiki í fyrstu umferðinni,
en ÍBV kom upp úr hattinum með
tékkneska liðinu Banik Ostrava,
eins og fram kemur annars stað-
ar á siðunni. Eftirtaldir leikir
fara fram í fyrstu umferð:
Linfield — Nantes
Aberdeen — Austria Vienna
ÍBV — Banik Ostrava
Dinamo Tirana — Ajax
FC Brugge — FC Basel
CSKA Sofia — Nott. Forest
Liverpool — Oulon Balousora
01. Pireus — Bayern
Viking — Rauða Stjarnan
Real Madrid — Limerick Utd.
Halmstad — Esbjerg
Sporting Lisbon — Honved
Trabzonspor — Szombierki
Jeunesse Esch — Sparta Moskva
Din. Berlin — Apoel Nikósía
Inter Mílanó — Uni Craiova.
Keppni bikarhafa
NOKKRIR athyglisverðir ieikir
eru á dagskrá i fyrstu umferð
Evrópukeppni bikarhafa, en
dregið var í Sviss í gær. Bikar-
hafarnir, vestur-þýska liðið For-
tuna Dússeldorf, drógust gegn
austurriska liðinu Austria Salz-
burg.
íslensku bikarmeistararnir
Fram drógust gegn danska liðinu
Hvidovre, og verður að segjast
eins og er, að þar eru vissir
möguleikar á sigri. Pétur Péturs-
son og félagar hans hjá Feyenoord
hrepptu óþekkt lið að nafni Ilves
Tampere, og ensku meistararnir
West Ham fengu spænska liðið FC
Castilla, b-lið Real Madrid sem
kom feikilega á óvart á síðasta
vetri. Annars drógust eftirtalin lið
saman:
Partizan Tirana — Malmö FF
For. Dusseldorf — Austr.Salzburg
Valencia — AS Monaco
Castilla — West Ham
Celtic — Polit. Timosaura
AS Roma — CZ Jena
FC Sion — Haugar Haugasund
Kastoria — Din. Tiblisi
Sporta Lux. — Sparta Prag
Hibernian (Möltu) — Waterford
Hvidovre — Fram
Omonia Nikosia — Waterschei
Din. Zagreb — Benfica
Slavia Sofia — Legia Varsjá
Ilves Tampere — Feyenoord
Newport — Crusaders.
UEFA keppnin
Margir merkilegir leikir eru á
dagskrá í fyrstu umferð UEFA
— keppninnar, en það er mál
margra, að þar sé á ferðinni
erfiðasta keppnin af þeim þrem-
ur sem fara jafnan fram. Full-
trúar íslands, Skagamenn, dróg-
ust gegn vestur-þýska liðinu FC
Köln. IA lék gegn Köln í meist-
arakeppninni fyrir tveimur árum
og vakti verðskuldaða athygli
fyrir góða leiki. Náðu Skaga-
menn m. a. jafntefli gegn Köln á
Laugardalsvellinum, 1 — 1. Fleiri
leikir teljast merkilegir, t.d. við-
ureign Manchester Utd og pólska
liðsins Widzew Lodz. Af öðrum
stórleikjum má nefna viðureign
Kaiserslautern og Anderlecht.
En svona lítur drátturinn út.
Molenbeek — Torino
Hamborg — Sarajevo
R. Sociedad — Ujpest Dozsa
Zbrojovka Brno — Voest Linz
Grasshoppers — KB Köben
AZ Alkmaar - Red Boys
Gijon — Bohemians Prag
FC Porto — Dundalk
Juventus — Panathinaikos
Barcelona — Sliema Wand.
Din. Dresden — FK Napredak
Vasas — Boavista
Tvente — Gautaborg
FC Köln — Akranes
FC Souchaux — Servette
Manchester Utd — Widzew Lodz
Lokeren — Din. Moskva
PSV Eindhoven — Wolves
Slask Wroclaw — Dundee Utd
Magdeburg — Moss
Kaiserslautern — Anderlecht
St. Etienne — Kups Koupio
Balleymena — Vorwarts Oder
Elfsborg — St. Mirren
Stuttgart — Larnaka Kýpur
Din. Kiev — Spartak Sofia
Steua Búkarest — Standard Liege
Ipswich — Aris Salonika
Shaktor Donetzk — Eintr. Frankfurt
Fenerbache — Beroe Zagora
Arges Pitesti — FC Utrecht
Lask Linz — Radnicki Nus
Bonanza, Laugavegi ZO.
Karnabær. Laugavegi 66.
Karnabær, Glæsibæ.
Karnabær, Austurstræti.
Bakhúsiö, Hatnarfiröi.
Fataval. Keflavik.
Eyjabær, Vestmannaeyjum.
Lindin, Selfossi.
Hornabær, Höfn Hornafiröi.
Austurbær, Reyöarfiröi.
Ram, Húsavík.
Cesar, Akureyri.
Álfhóll, Siglufiröi.
Sparta, Sauöárkróki.
Epliö, ísafiröi.
Þórshamar, Stykkishólmi.
ísbjörninn, Borgarnesi.
Óóinn, Akranesi.
Verzl. Skógar, Egilsstööum.
Kaupfél. Rangæinga, Hvolsvylli.