Morgunblaðið - 13.07.1980, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1980
Hvaða bækur ættum við að
lesa í sumarleyfinu?
eftir JÓHÖNNU
KRISTJÓNSDÓTTUR
Förförarens
nya dagbok
er nýjasta bók sænska rithöf-
undarins Ake Leijonhufvud og
kom út núna í vor. Fyrir nokkur
var rithöfundurinn hér á ferð á
vegum Norræna hússins og
kynnt var í Mbl. bók hans „Anna
& Christian" sem kom út í fyrra
og vakti feikna athygli.
Förförarens nya dagbok er
afar glæsileg bók, vel gerð. Hún
fjallar um Inga Klein, sem er
dósent í stærðfræði maður á
fimmtugsaidri, myndarmaður í
hvívetna og konur renna til hans
hýru auga. Hann er giftur Gunn-
el, sem er lektor í bókmenntum
og eiga tvö börn, búa í raðhúsi;
þeim líður mæta vel. Eða hvað?
Reyndar líður Inga Klein ekki
vel. Hann reykir of mikið, hann
fær martröð hverja nótt, hann
er óöruggur og hann er aldrei
glaður. Hann kynnist ungri
danskri stúlku Marie og eftir
miki! umbrot á heimilinu flytur
hann með henni í kommúnu á
Sjálandi. Þau eru ósköp ánægð
með lífið, martraðirnar hætta og
allt fær á sig annan svip. Og þó.
Hann er upptættur tilfinninga-
lega, eftir hverja heimsókn til
konu sinnar og barna og hann á
erfitt með að slíta sig lausan,
einkum leita hugsanir um börn-
in mjög á hann. Ung dóttir hans
veikist, hún fær heilaæxli og
deyr og það verður honum meira
áfall en svo að hann fái undir því
risið. Marie á ekki þátt í þeirri
Forförarcns
nya
dagbok
sorg og getur ekki deilt henni
með honum. Þau virðast elskast
enn, en einhvern veginn er það
svo að sambandi þeirra lýkur á
þeim punkti, í raun gegn beggja
vilja og kannski það eina í
bókinni sem mér fannst höfundi
ekki takast að koma nægilega
sannfærandi til lesandans. Það
sem hann vill bersýnilega sagt
hafa er að nýr lífsmáti er ekki
einhlítur til frelsunar og láns og
lukku. Það er hæpið, að Ingi
Klein fari nokkurn tíma aftur
heim til konu sinnar, hann
reynir væntanlega að sætta sig
við dótturmissinn og byggja upp
nýtt líf. Lesandinn veit ekki
hvort honum muni takast það og
endir bókarinnar er verulega
áhrifamikill.
So Long as You
Both Shall Live
eftir Ed McBain, sem mun vera
höfundarnafn Evans Hunters.
Ed McBain er vel þekktur saka-
málasagnahöfundur, en þetta er
fyrsta bók, sem ég hef lesið eftir
hann og er harla skemmtileg.
Þar er sagt frá löreglumannin-
um Kling og sagan hefst á
brúðkaupsdegi hans og Augustu,
undurfagrar ljósmyndafyrir-
sætu.þau eru komin upp á hótel-
herbergið, brúðkaupsnpttin blas-
ir við, björt og spennandi og
Kling ætlar rétt að bregða sér í
sturtu. Þegar hann kemur aftur
fram er brúðurin horfin. A
einhvern óskiljanlegan hátt
virðist henni hafa verið rænt á
þessum fáu mínútum, sem brúð-
guminn var að snurfussa sig á
baðinu. Síðan gengur söguþráð-
urinn út á að lýsa leit lögregl-
unnar að ræningjanum og er
stígandi og spenna sögunnar rétt
eins og bezt gerist í góðum
sakamálasögum.
Mommie Dearest
eftir Christinu Crawford kom út
fyrir tæpum tveimur árum og
vakti firna mikla athygli. Bókina
skrifar kjördóttir leikkonunnar
frægu Joan Crawford, og segir
dóttirin ófagrar sögur af æskui
og uppvaxtarárum sínum undir
handarjaðri móðurinnar. Joan
Crawford tók fjögur kjörbörn og
voru þau í bernsku einhver
þekktustu börn kvikmyndaborg-
arinnar Hollywood, Joan var
óspör á að leyfa ljósmyndurum
að mynda þauí bak og fyrir,
ásamt ástríkri móður. Hún hik-
aði almennt ekki við að auglýsa
börnin, þegar hún taldi það
verða sjálfri sér til framdráttar.
í fyrra skrifaði ég um bók sem
Bob Thomas ritaði um ævi Joan
Crawford sjálfrar. Þar kom
fram, þótt hógvært væri frá
sagt, að vinir hennar og margir
sem þekktu vel til, voru á
stundum þrumu lostnir yfir
þeirri hörkulegu meðferð sem
börn hennar fengu, þegar ljós-
myndarar voru hvergi nærri.
Einkum bitnaði skapofsi hennar
og geðsveiflur mjög á Christinu
og bróður hennar, Christopher.
Við hann hafði Joan reyndar
ekkert samband síðustu tuttugu
árin sem hún lifði.
Christina er ekki að skafa
utan af neinu í bók sinni.
Lýsingar hennar á misþyrming-
um, andlegum sem líkamlegum,
sem börnin sættu, eru verulega
óhugnanlegar og vonandi dálítið
ýktar. Samt virðist ganga eins
og rauður þráður í gegnum
bókina, löngun stúlkunnar til að
gera móður sinni til geðs og ná
hylli hennar, og raunar á hún
engan að í heiminum nema
„mommie dearest" og til hennar
leitar hún æ ofan í æ, þrátt fyrir
allt. Það efar sjálfsagt enginn að
Joan Crawford hafi að sínu leyti
verið góður kvikmyndaleikari,
en sem móðir og uppalandi sýndi
hún óvenjulega grimmd. Bók
Christinu er ágætlega læsileg og
virðist ekki rituð í neinum telj-
andi æsingartóni. Hvers vegna
hún fann hjá sér hvöt til þess að
opinbera þessi ósköp er svo aftur
önnur saga. En auðvitað varð
stúlkan að afla fjár á einhvern
hátt, því að móðirin gerði hana
og Christopher bæði arflaus „af
ástæðum sem þeim eru kunnar",
eins og segir í erfðaskrá og eru
lokaorð þessarar bókar.
Rúnar Bjarna-
son — Minning
Fa'ddur 1. febrúar 1958.
Dáinn 5. júlí 1980.
Góður drengur er fallinn frá.
Rúnar Bjarnason lézt af slysför-
um laugardaginn 5. júlí er við
vorum nokkrir félagar að æfa
svifdrekaflug. Sá harmur sem við
höfum orðið fyrir við fráfall hans
mun seint jafna sig. Mikil eftirsjá
er að þessum góða dreng og
enginn kemur til með að taka sæti
hans meðal okkar í Eyjum.
Það er undarleg tilfinning að
vera viðstaddur þegar góður félagi
er kallaður burt og erfitt að átta
sig á því að Rúnar skuli ekki vera
áfram á meðal okkar. Það er sama
hvernig við veltum því fyrir okkur
hvernig fór og við hvern er að
sakast, það gefur okkur Rúnar
ekki aftur. Hann hefur nú orðið
einn af þeim sem ganga í gegn um
það sem fyrir okkur öllum liggur,
að verða kallaður burtu héðan.
Við kynntumst Rúnari gegn um
sameiginlegt áhugamál. Hann var
traustur félagi okkar allra og
oftast ráðgjafi. Hann var fyrstur
hér í Eyjum til þess að eignast
CITROEN
Citroén Visa Ciub 1979
Citroén GS Club station 1980
Af sérstökum ástæöum eigum viö þessa tvo Citroén bíla fyrirliggjandi.
Hafiö samband viö sölumenn okkar.
1
( L jriUUUof .AGMULI 5. SIMIÖ1555 r
J
flugdreka og einnig var hann
flugmaður og átti litla flugvél með
föður sínum sem er brautryðjandi
í sögu flugs í Eyjum.
Um leið og við kveðjum Rúnar,
sem við eigum svo erfitt með að
sætta okkur við að er horfinn
sjónum okkar að sinni, þá þökkum
við fyrir að hafa fengið að kynnast
honum og eiga að félaga. Það var
mannbætandi og við munum
geyma minninguna um hann eins
og hann var, skapgóður, en fyrst
og fremst traustur félagi.
Fjölskyldu hans og vinum send-
um við okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Úlfar og Stjáni.
Rúnar Bjarnason frá Vest-
mannaeyjum var með sjálfstæðari
ungum mönnum og upplag hans
og eðli var svo heilsteypt að það er
óttalegt til þess að hugsa að tæki
sem hann treysti á, dauður málm-
ur, skuli 'hafa brostið á flugi hans
í svifdreka og fellt þennan unga
sómadreng í valinn.
Það er margt í náttúru Eyjanna
sem kallar fram ævintýri hjá því
unga fólki sem elst þar upp og það
kallar ekki sizt á áræði og snerpu,
björgin, hafið, og síkvik náttúra,
fuglar svo milljónum skiptir. Rún-
ar var dæmigerður fyrir þá sem
ríma á móti þessum ævintýrum,
ganga á vit þeirra og vaxa og
þroskast í skjóli þeirra.
Það fór aldrei hávaði með Rún-
ari, hvorki á undan honum né
eftir, hann var sívinnandi, með
bjart skap góðviðrisdagsins, en þó
bjó hann yfir skapi Stórhöfða-
vindsins ef því var að skipta í leik
og starfi, en ávallt með rökum.
Sumir sneiða hjá öllum tilþrif-
um í lífi sínu og reyna sjaldan á
þrekið. Skap Rúnars kallaði á
tilþrif, kallaði á átök við það sem
var framundan. Það var sama
hvort maður hitti Rúnar í leik eða
starfi, hann var alltaf í fremstu
röð og hafði lagt niður fyrir sér
það sem gera ætti, gætinn en
áræðinn, en í því tafli má oft litlu
muna.
Flugið átti hug Rúnars, hann
hafði menntað sig á þeim vett-
vangi og svo kom flugdrekasvifið
til sögunnar. Hann var einn af
þeim sem sýndi þessa hættulegu
list á þjóðhátíð Vestmannaeyja,
einn af þeim sem gerði sitt til þess
að gera tilveruna eftirminnilega.
Ovænt hrap situr í huga manns
og maður reynir frá öllum áttum
að finna skýringu. Þótt hrap taki
fljótt af þá tekur það ævina alla
fyrir ástvini að reyna að skilja
það. Megi góður Guð styrkja
eftirlifandi.
Gott er að muna góðu dagana,
hinir gleymast. Rúnar er einn af
þeim sem maður man, vegna þess
að hann bjó yfir eigin stíl, glæsi-
legum stíl hins unga þrekmikla
manns.
Arni Johnsen
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960