Morgunblaðið - 13.07.1980, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ1980
33
Níræður í dag:
Sveinbjörn Péturs-
son frá Svefneyjum
í dag, sunnudaginn 13. júlí 1980,
verður Sveinbjörn Pétursson, frá
Svefneyjum á Breiðafirði, níræð-
ur.
Sveinbjörn er af eyjakyni í
báðar ættir. Móðir hans var
Sveinsína Sveinsdóttir, f. 26.10.
1851, d. 28.6. 1928; hún var dóttir
Sveins smiðs í Flatey, Einarssonar
og k.h. Kristbjargar Jónsdóttur.
Faðir hans var Pétur Hafliðason,
f. 4.6 1856, drukknaði við Haga á
Barðaströnd 26. eða 29.9. 1910.
Pétur var af hinni svonefndu
Svefneyjaætt, sem bjó í Svefneyj-
um á Breiðafirði frá því á ofan-
verðri 18. öld til 1894, er Hafliði
Eyjólfsson, afi Sveinbjarnar, lézt.
Sveinbjörn getur rakið ætt sína í
beinan karllegg til Björns Þor-
leifssonar, riddara og hirðstjóra á
Skarði, sem veginn var í Rifi 1467.
Svo að honum standa sterkir
ættstofnar, sem um langan aldur
hafa búið í eða við Breiðafjörð.
Sveinbjörn hefur fetað í fótspor
forfeðra sinna, þótt ekki hafi hann
haft mikið umleikis. Hann hefur
ætíð átt heima í Flateyjarhreppi. í
Svefneyjum fæddist hann fyrir
níutíu árum, þar sem hann sleit
barnsskónum hjá foreldrum sín-
um. Ungur að árum gerðist hann
háseti á skútum, sem gerðar voru
út frá Flatey. Hefur Sveinbjörn
verið samtals 30 vertíðir til sjós —
fyrst á skútum, sem áður segir,
síðan réðst hann sem háseti til
mágs síns, Guðmundar Jónssonar,
skipstjóra á „Skalla" eða á Kveld-
úlfstogaranum „Skallagrími", en
þar var hann lengst. Síðast var
hann háseti á „b/v Reykjaborgu",
sem Guðmundur átti og gerði út.
Þrátt fyrir langar fjarvistir átti
Sveinbjörn ætíð lögheimili sitt í
Flateyjarhreppi, sem áður segir.
Hinn 12. júní 1920 gekk hann að
eiga Önnu, f. 4.7.1894, Björnsdótt-
ur bónda að Hólum í Reykhóla-
sveit, af Hlíðarætt þar í sveit. Eru
þau hjón því búin að vera gift í sex
áratugi. Bú sitt stofnuðu þau í
Skáleyjum, þar sem þau áttu
heima til ársins 1946, en þá fluttu
þau í Svefneyjar. Þaðan fluttu þau
í Flatey árið 1966, er þau keyptu
sér þar snoturt lítið hús, Vina-
minni. Þar hafa þau búið sér
fallegt og vinalegt heimili. Þar
vilja þau búa, hvergi annars stað-
ar.
Þau Sveinbjörn og Anna eignuð-
ust ekki börn, en þau tóku tvö
börn í fóstur: Arna B. Þórðarson,
f. 8.9.1919, sem lengi hefur starfað
hjá O. Johnson & Kaaber; kona
hans er Katrín Guðgeirsdóttir,
þau hafa eignast þrjú börn, og
Ólöfu Hannesdóttur, f. 21.9. 1922,
gift Þórhalli Sigjónssyni, þeirra
börn eru einnig þrjú að tölu.
Fyrir hartnær fjörutíu árum
missti Sveinbjörn heyrn á báðum
eyrum, sem að sjálfsögðu hefur
háð honum bæði í starfi sem og í
samskiptum við fólk. Þrátt fyrir
þessa fötlun unir hann glaður við
sitt og talar kjarngott og ósvikið
eyjamál, þar sem ekki er klippt
utan af þvi, sem máli skiptir.
Á þessum merkisdegi sitja þau
Anna og Sveinbjörn á friðarstóli á
heimili sínu í Vinaminni í Flatey.
Frændgarður þeirra er stór og
mörgum verður eflaust hugsað til
þeirra með hlýjum hug í dag.
Ég minnist þess, sem lítill
drengur í Reykjavík, að þá var
glaðværð og hátíð í bæ, er Svein-
björn kom í heimsókn á heimili
foreldra minna, því með honum
barst ferskur en um leið fjarrænn
blær, sem ég þekkti ekki en þótti
samt notalegur. Þá færði hann
mér útskornar dýramyndir, sem
hann hafði teglt. Þessar dýra-
myndir voru mér afar kærar og
sumar þeirra á ég enn í dag. I
síðasta mánuði komst ég í Flatey,
þar hitti ég þau Önnu og Svein-
björn hress og kát að vanda. Að
skilnaði færði Sveinbjörn mér
fallegar gjafir — m.a. útskornar
dýramyndir, sem vöktu hjá mér
ljúfar endurminningar.
Færi ég þeim hjónum mínar
bestu þakkir fyrir allt gamalt og
gott með von um að þau megi
njóta dvalar sinnar sem lengst í
sínu fallega Vinaminni.
Ólafur II. óskarsson
Býður
nokkur betur?
Málning — Hraunmálning — Þakmálning —
;’ Fúavarnarefni — allar málningavörur.
Afsláttur
Kaupir þú fvrir 30—50 þúsund veitum viö 10% afslátt
Kaupir þú umfram 50 þúsund veitum við 15% afslátt
Veggfóður — veggdúkar 51 cm breiður
—Afsláttur-----------------------
Kauþir þú 3—5 rúllur veitum viö 10% afslátt
Kaupir þú umfram 5 rúllur veitum viö 15% afslátt
Sannkallaö Litaverskjörverö
~ Ertu aö byggja, viltu breyta, þarftu aö bœta
Líttu viö í Litaver, því það hefur ávallt borgað sig
, Grensasvegi, Hreyfilshusinu Sími 82444.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
B.A. ROBERTSON
Heildsöludreifing
(tninorhf
s. 85742, 85055.
I
HLJON ^ Laugavegi 66 1DEILD XRNABÆR . $. 28155. Glæsibæ s. 81915. Austurstrcti 22. S 28155.
Hefurðu áhuga á góöri tónlist, góöri kímni
og pottþéttri stuöplötu? Ef svo er skaltu lesa
aðeins áfram því aö B. A. Robertson er
tónlistarmaðurinn sem þú hefur verið aö leita
að og platan hans Initial Success er
einmitt platan sem þig vantar. Ef þú kannast
við lögin Bang Bang, Koll in the Kaftan,
Knocked it off og To Be or Not to Be, veistu
hvernig tóniist B. A. Robertson semur og
leikur.
Þetta eru 4 af 14 iögum plötunnar
Initial Success og það er enginn svikinn at
hinum létta húmor og þessum grípandi
lögum sem eru á Initial Success.
FRÍSKANDI LITIR
FALLEGRA HÁR
Hægt or aö hrovta hárinu ótrúloga moð litun. Ekki nauðsynloga moð því að
hreyta alvog um lit. holdur órlítil litaskorpun. som drogur hotur fram þinn
eðlilega háralit.
Hægt or að fá varanlegan lit. skammtímalitun. jurtalitun og strípur. Loitið
til okkar domur og horrar og hrossið upp á útlitið. Þið som gráu háriðhafið.
munið að úr því or auðvolt að hæta.
HÁRSKERINN
Skulagötu 54, sími 28141
RAKARASTOFAN
Dalbraut 1, sími 86312
HÁRSNYRTISTOFAN PAPILLA
Laugavegi 24. Sími 17144.