Morgunblaðið - 13.07.1980, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1980
35
Augnlinsur sem
bera má allan
sólarhringinn
Senn munu koma á markað-
inn augnlinsur. sem hafa má í
sér i mánuð í senn, án þess að
taka þær úr á nóttunni. Mat-
væla- og lyfjaeftirlit Bandaríkj-
anna hefur hingað til hafnað
nær öllum tilraunalinsum af
þessu tagi en framleiðendur eru
nú vongóðir um að ný tegund
sem framleidd er úr sílíkóni.
verði talin hæf til almennings-
nota.
Það sem vafist hefur fyrir
linsur úr plast- og sílíkónblöndu
sem gera töluvert loftstreymi
mögulegt. þessar linsur eru hins-
vegar mjög dýrar og aðeins
notaðar af fólki með mjög alvar-
legar augntruflanir.
Flestar linsutegundir, sem nú
eru á markaðnum verður að taka
úr sér á nóttunni. Engin af
áðurnefndum te^undum getur
séð augasteininum fyrir nægu
súrefni.
Tilraunir til að gera linsur
rannsóknarmönnum hingað til
er að tryggja það að augað fái
nóg súrefni, þótt linsan hylji
augasteininn. Augasteinninn
fær allt sitt súrefni beint úr
andrúmsloftinu en linsan kemur
í veg fyrir eðlilegt loftstreymi til
hans.
„Hörðu" linsurnar, sem
hannaðar voru á fimmta ára-
tugnum, er hægt að gera svo
þunnar, að súrefnið komist í
gegn, en þær þykja svo óþægi-
legar, að ekkert vinnist með því
að fá að sofa með þær líka.
„Linu“ linsurnar hafa hingað til
þurft að vera þykkari en svo að
nægilegt loftstreymi geti átt sér
stað.
Til þess að leysa þetta vanda-
mál hefur ýmislegt verið reynt:
— Hönnuð hefur verið linsa, sem
dregur í sig vatn, þannig að
augað fær súrefni með vatninu.
Slík linsa lítur út eins og skorpin
kornflaga þegar hún er ekki í
notkun, en þegar hún blotnar
eykst rúmmál hennar um 45—
55%.
— Gerð hefur verið linsa, sem
er aðeins hálf hársbreidd að
þykkt og hleypir tvöfalt meira
súrefni í gegnum sig en aðrar
linsur.
— Einnig hafa verið búnar til
þannig úr garði að hægt sé að
bera þær allan sólarhringinn
hafa gengið fremur hægt. Á
tímabili þótti ein tegund lofa
góðu, en þar var gert ráð fyrir að
80% af rúmmáli linsunnar væri
vatn. Síðar kom í ljós að prótein
úr augnvökva augans settist inn
á linsuna og spillti útsýn.
í Ástralíu og Kanada komu
upp nokkur blindutilfelli vegna
samfelldrar notkunar linsna en
engin leið er að komast að því
hver súrefnisþörf hvers auga er
og ekki er nóg að miða við
meðaltalsþörf. Ef súrefnisþörfin
er meiri en linsan gerir ráð fyrir,
getur það valdið sýkingu í horn-
himnunni.
Að vonum eru menn því for-
vitnir um þessa nýju linsu en
hún er framleidd úr hreinu
sílíkóni. Mólíkúlbygging þess
gerir súrefninu kleift að smjúga
nær óhindrað til augans. Fundin
hefur verið upp mjög ódýr aðferð
til að búa þessa linsu til og nú
þarf hún ekki nauðsynlega að
vera örþunn, vegna þessara eig-
inleika sílíkónsins. Sérfræðingar
telja þess jafnvel ekki langt að
bíða að svokallaðar „eilífðar-
linsur" komi á markaðinn en
þær þarf ekki að taka úr sér alla
ævi.
(Úr The Economi(t)
Utankjörstaðaatkvæði komu of seint:
Hæstiréttur úrskurðar
hvort þau verða talin
KOMIÐ hafa fram mistök í
einni kjördeild i Kópavogi við
forsetakosningarnar. en 205
utankjörstaöaatkvæði uröu
þar eftir og voru ekki talin
með þegar talning atkva‘ða
fór fram. Komu þau ekki i
Ijós fyrr en talningu var lokiö
og tilkynnt höfðu verið úrslit
kosninganna.
Að sögn Guðjóns Steingríms-
sonar formanns yfirkjörstjórnar
Reykjaneskjördæmis ákvað kjör-
stjórnin að láta ekki telja atkvæð-
in, þau væru það fá að þau gætu
ekki haft áhrif á úrslit kosn-
inganna, enda mætti í raun heldur
ekki telja atkvæði sem bærust
þannig eftir að talning væri hafin.
Fulltrúi eins frambjóðandans
hefði borið fram ósk um að þau
yrðu talin, en hún hlaut ekki
samþykki. Kvað Guðjón þetta
mjög leiðinleg mistök og sagði
hann greinargerð um mál þetta
hafa verið senda hæstarétti, sem
tæki endanlega afstöðu til þess
h?að gera skyldi. Sagði hann
atkvæðin vissulega hafa verið
talin ef fjöldi þeirra hefði verið
slíkur að hann gæti hafa haft
áhrif á úrslit, en það væri ekki í
þessu tilviki og því teldi yfirkjör-
stjórn ekki ástæðu til þess.
Finnskur stúlknakór í heimsókn
Finnski stúlknakórinn „Putaan
nuorisokuoro" kom hingað til
lands 4. júlí sl. frá bamum Tornio í
Finnlandi. Kórinn er að endur-
gjalda heimsókn Grindavíkur til
Tornio á sl ári og búa kórfélagar á
heimilum í Grindavík.
Þær hafa farið víða á vinnustaði
og stofnanir og m.a. tekið lagið við
góðar undirtektir. En skipulagt
tónleikahald er fyrirhugað víða um
landið. Kórinn kom í heimsókn á
Mbl. á föstudaginn ásamt nokkrum
aðstandendum og Eyjólfi Ólafssyni
skólastjóra tónlistarskólans í
Grindavík. Blm. spjölluðu við Eyj-
ólf og þau Leenu Tuomi eiginkonu
stjórnandans og fararstjórann,
Eino Punki og stúlkurnar tóku lagið
fyrir Morgunblaðsfólk, við góðar
undirtektir. Sungu þær m.a. eitt lag
á islensku og fórst það einkar vel. I
Putaan-kórnum eru alls um 60
félagar, en hér eru 20 stúlkur ásamt
aðstandendum kórsins.
Kórinn tók þátt í kóramóti í
Hollandi árið 1979 og lenti í þriðja
sæti, en þátttakendur voru frá 40
löndum. Þá hefur kórinn sent frá
sér tvær hljómplötur. Auk þeirra
sem upp hafa verið taldir, eru með í
ferðinni Eino Tuppurainen rektor,
Sanna Tuomi dóttir stjórnandans
og frú Maija Kumpulainen, frá
Norræna félaginu í Tornio. En
norrænu félagsdeildirnar hér á
landi eiga auk hinna ýmsu kóra,
hvað mestan þátt í undirbúningi
ferða og tónleikahalds kórsins um
landið. Þau Leena Tuomi og Eino
Punkki, en hann er fréttamaður
finnsku ríkisfjölmiðlanna auk þess,
sem hann starfar sem kennari, luku
.iklu lofsorði á allar móttökur hér,
það sem af væri ferðarinnar, en hér
verður hópurinn til 28. þ.m.
Kórinn mun halda eftirfarandi
söngskemmtanir:
15. júlí: Grindavík. í „Kvennó" kl 17
og 21.
16. júlí: Keflavíkurkirkju kl. 21.
19. júlí: Norræna húsinu, Reykjavík
kl 16 og á Selfossi kl. 21.
20. júlí: Félagsheimilinu Þorláks-
höfn kl. 21.
21. júlí: Akranesi kl. 21.
22. júlí: Siglufirði kl. 21.
23. júlí: Dalvík kl. 21.
24. júlí: Skjólbrekku kl. 21.
26. júlí: ÚT.Iþróttahöllinni á Akurey
kl. 21.
27. júlí: Blönduóskirkju kl. 21.
Þá mun kórinn einnig syngja á
útihátíð bindindismanna dagana
26. og 27. júlí.
Max sportfatnaður
fyrir alla fjölskylduna
Klæðir alla aldursflokka. Til í öllum stærðum
og mörgum litum.
Léttur — fyrirferðalítill — fallegur.
ARMULA 5 — SIMAR 86020 OG 82833