Morgunblaðið - 13.07.1980, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1980
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13—14
FRÁ MÁNUDEGI
j^ijjansQí’a a'u if
Þarna er sennilega komin skýr-
ingin á því að allar eiginkonur
neyðast til að vinna utan heimilis,
jafnvel frá smábörnum. Nú verður
blaðinu snúið við. Olíukynding
verður væntanlega tekin upp að
nýju á höfuðborgarsvæðinu, öllum
til mikillar ánægju. Það er ekki
bara að olían er ódýr og fer
sílækkandi í verði, heldur verður
það einkar skemmtilegt að geta
notað smávegis af okkar digra
gjaldeyrissjóði til meiri olíukaupa
og kúfinn af hinum kúffulla ríkis-
sjóði í aukinn olíustyrk. Ekki má
heldur gleyma hinum unaðslega
svartolíureyk, sem brátt mun
leika um þorgina okkar. Það er
blátt áfram ófyrirgefanlegt að
borgin okkar Reykjavík hefur ver-
ið nær reyklaus undanfarin ár.
Framsýn
ríkisstjórn
Við Reykvíkingar megum
aldrei gleyma hverjum við eigum
þessar væntanlegu breytingar að
þakka. Það er okkar framsýna
ríkisstjórn, sem hér hefur gripið í
taumana og bannað hitaveitu
Reykjavíkur að hækka gjald-
skrána og þar með stöðvað út-
þenslu hennar. Við megum heldur
ekki gleyma því að forðum daga
þegar okkar núverandi stórglæsi-
legi forsætisráðherra var borgar-
stjóri okkar, sá hann til þess að
hitaveitan var ekki með neina
útþenslupólitík. Ef skyldan hefði
ekki kallað hann til mikilvægari
starfa, (príls upp og niður met-
orðastigann) hefði honum jafnvel
auðnast að leggja Hitaveituna
alveg niður. Því miður brást
eftirmaður hans í borgarstjóra-
embættinu algerlega. Hann hafði
þvert á móti forustu um útþenslu
Hitaveitunnar. Það verður þonum
aldrei fyrirgefið. Þó öll önnur
glæsistörf okkar stórkostlega for-
sætisráðherra og meðreiðarsveina
hans falli í gleymsku, þá mun
minningin um þessa frábæru
„hitaveituútþensluheftistefnu"
þeirra lifa á meðan íslensk tunga
er töluð.
Virðingarfyllst,
Dr. Mörður Hrappsson
(913-369)
Vísitölu- og millifærsluhag-
ræðingarráðunautur,
Svikaskjóli 22.
• Norskur barna-
kór þakkar
góðar móttökur
Heiðraði Velvakandi.
Eins og þú máske veist — og
hefur jafnvel heyrt og séð — hefur
norski barnakórinn Assiden frá
Drammen, verið á ferð í Reykjavík
og um Suðvesturland, allt austur
að Flúðum í Hrunamannahreppi,
dagana 29.6.—7.7. 8.1.
Var sungið í kirkjum, félags-
heimilum, elliheimilum og víðar.
Mest var um að vera í Stykkis-
hólmi, vinabæ Drammen á ís-
landi, en vináttusamband þessara
tveggja bæja mun vera aðalástæð-
an fyrir komu kórsins hingað.
Aðalfararstjóri var Sigríður G.
Wilhelmsen, _en söngstjóri kórsins
er Thode Fagelund, skólastjóri
tónlistarskólans í Drammen. Und-
irbúning að komu kórsins önnuð-
ust Þórólfur Friðgeirsson, yfir-
kennari í Kópavogsskóla og kona
hans Kristín Halldórsdóttir. En í
Stykkishólmi voru það Árni
Helgason símstjóri og Ingibjörg
kona hans sem önnuðust undir-
búning. Söngför þessi tókst með
ágætum og auk fjögurra stærri
hljómleika, söng kórinn á tolf
stöðum. A lokafundi kórsins í
Stykkishólmi mælti fararstjóri
m.a. á þessa leið: „Við viljum ná til
allra, sem svo elskulega tóku á
móti okkur. Þakka alla fyrir-
greiðslu og ágæta viðkynningu,
gestrisni og greiðvikni. — Við
þökkum gleði og gaman og munum
bera það heim til Noregs í hjört-
um okkar."
Guðmundur Bernharðsson
Þessir hringdu
þeirri akrein þ.e. í vestur, stöðvast
á ljósunum ofar á Miklubrautinni
og má þá sæta lagi að komast yfir,
en þegar að hinni akreininni er
komið þ.e. þar sem umferðin
liggur úr vestri til austurs,
vandast málið. Þar er nær órofa
straumur af bílum, enda ekkert til
að rjúfa hann. Þarna er sannkall-
að glæfrafyrirtæki að freista þess
að komast yfir Miklubrautina og
held ég að gatnamálastjóri eða
aðrir aðilar sem hlut eiga að máli
ættu að gera gangskör að því hið
bráðasta að þarna verði gerð
gangbraut.
Helgi hringdi.
Við Miklubrautina, við mitt
Klambratúnið til móts við Engi-
hlíð, er strætisvagnabiðstöð. Þar
vantar tilfinnanlega gangbraut
fyrir gangandi vegfarendur, því
það nálg'ast það að vera lífshættu-
legt fyrirtæki að hætta sér yfir
götuna. Klambratúnsmegin er
hættan minni, því umferðin eftir
SKAK
Umsjón: Margeir Pétursson
í sovézku deildarkeppninni eða
Spartakiödunni í fyrra kom þessi
staða upp í skák þeirra Temkin,
Leningrad, sem hafði hvítt og átti
leik, og Glizer, Úkraínu.
HÖGNI HREKKVÍSI
1 — ■ /1
F-
LfvFBu riEC AJ5 ♦ÆifJG-JA 'i LX& *
“f&CÞltJQ HiaJaj..'Q5 HEF &.'»r*A ^vi
S2P S\G£A V/öGA fi ‘í/LVtWN
Sandspyrna
veröur aö Hrauni í Ölfusi sunnudaginn 13. júlí kl.
1.30. Komið og sjáiö bestu spyrnutækin.
Kvartmíluklúbburinn.
Rafsuðuvélaúrvalið
er í Dynjanda
Special Mig 120
Special Mig 250
1 eöa 3 fasa 220/308V 3. fasa 220/380V
Straumnotkun 9A 5A Straumnotkun 30 A 17A
Spennistærð 2.8 KW Spennistærð 12 KW
Fasvik cos 0.8 Fasvík cos 0.8
Spennustilling 6 stig Spennustilling 12 stig
Suðustyrkur 25-200A Suöustyrkur 25-360A
T ómgangsspenna 34.5V T ómgangsspenna 60v
Einangrun Classi H Einangrun Classi H
HSB ED 60% 120A HSB ED 60% 250A
HSB ED 35% 160A HSB ED 35% 330A
HSB ED 100% 100A HSB ED 100% 200A
Suöurvír 0.6—0.8 Suöuvír 0.6—1.6
Þyngd 55 KG Þyngd 130 KG
Hagstætt verö og greiösluskilmálar, viðgeröa og
varahlutaþjónusta.
VELSMIÐJAN
Símar 82670 og 82671.
32. Bxg6! — hxg6? (Svartur hefði
átt að sætta sig við peðstap og
leika 32.... h6) 33. IIh8+ - Kg7,
34. g5! (Nákvæmast) og svartur
gafst upp, því að eftir 34.... Bxg5,
35. Hlh7+ - Kf6, 36. Hf8+ - er
hann mát í næsta leik.