Morgunblaðið - 13.07.1980, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1980
Áttræður:
Sigurður Árna-
son Sámsstöðum
Sigurður bóndi Árnason á
Sámsstöðum í Fljótshlíð verður
áttræður mánudaginn 14. júlí.
Þessa merkisatburðar i lífi Sig-
urðar ætla vinir hans og ættingjar
að minnast með því að vera með
honum daglangt á afmælisdegin-
um í Þórsmörk, því þar er að finna
þann glæstasta hátíðasal, sem
hæfir þessu samkvæmi.
Afmælisgreinar o.þ.h. skrif eru
án efa einhver lágvaxnasti gróður-
inn í skrúðgarði andans um þessar
mundir. Sigurður á það ekki skilið
að fá slíka meðferð, en í trausti
þess, að þetta sé ekki beinlínis
lífshættulegt í andlegri merkingu,
eins og t.d. dagskráin í sjónvarp-
inu, þá veit ég að hann, af sínu
snotra hjartalagi, fyrirgefur mér
tiltækið.
Foreldrar Sigurðar voru hjónin
Þórunn Jónsdóttir og Árni Árna-
son frá Kirkjulæk í Fljótshlíð,
sem bjuggu nær alla sína tíð á
Sámsstöðum, eða frá 1898. Árni
var afburða hagur, bæði á tré og
járn, en að auki góður bóndi og
ræktunarmaður mikill. Um Árna
var ort:
Árni prýðir allt hjá sór
er fá lýðir metið.
Fatturt smiðar, hauður sker.
hans er víða xetið.
Hagleiknin virðist ganga í erfð-
ir, því synir Árna voru flestir
smiðir góðir og Árni, sonur Sig-
urðar, hreinn völundur, og er hans
víða getið. Börn Árna og Þórunnar
voru Arnheiður og Tryggvi, sem
eru látin, Sara Þorbjörg, Jón,
Sigurður og Árni. Öll urðu börnin
dugnaðar- og atorkufólk, svo sem
þau áttu kyn til.
Þegar Sigurður lítur yfir farinn
veg hefur hann verið gæfumaður
um flest. Sjálfsagt hefur honum
og þessum heimi komið misjafn-
lega saman um dagana, en engu að
síður getur hann, eins og hann
reyndar gerir oft, tekið sér í munn
orð Arnar Arnar „samt er gaman
að hafa lifað svo langan dag“.
Hildur, síðar Árnason, kom aðeins
19 ára út hingað frá Danmörku og
varð á vegi þessa rauðbirkna
víkings. Hún sneri ekki aftur,
enda varð gæfa hennar meiri en
Gunnars forðum. Hún kaus sér
það hlutskipti, að deila kjörum
með Sigurði hér á mörkum hins
byggilega heims, og þau giftu sig
7. júlí 1934. Börn Hildar og
Sigurðar eru sjö: Unnur, Valborg,
Sara Hjördís, Árni Þorsteinn,
Þórunn Björg, Hrafnhildur Inga
og Þórdís Alda.
Ærið hefur verið að starfa hjá
húsfreyjunni ungu, sem þar að
auki þurfti að semja sig að nýjum
siðum í harðbýlu landi. Sara systir
Sigurðar, er lengst af bjó á heimili
þeirra, var Hildi slík hjálparhella,
að einsdæmi hlýtur að vera. Enda
nýtur Sara nú í ellinni ástar og
virðingar allrar fjölskyldunnar.
Þau Sigurður og Hildur fluttu í
nýtt, stórt og glæsilegt hús á
Sámsstöðum árið 1950, og vissu-
lega hefur Hildi þótt það góð
umbun fyrir allt hennar starf. Slík
húsasmíði, þar sem ekki færri en
tíu herbergi eru innan veggja, er
kapítuli útaf fyrir sig, en greini-
lega í takt við lífsviðhorf Sigurðar,
sem er stórhuga maður og forkur
duglegur.
Börnin, sjö að tölu, luku öll
námi í Skógaskóla á meðan þau
voru í foreldrahúsum og öll
slepptu þau fyrsta bekknum, því
fyrir hann fengu þau tilsögn
heima. Þrátt fyrir takmörkuð ver-
aldleg efni hefur þeim hjónunum
verið þetta slíkt metnaðarmál, að
ekkert kom í veg fyrir að það gæti
orðið.
Samkvæmt eðli málsins hélst
Sigurði illa á jafn föngulegum
varaWuta
tequnöa
Teqund is'andar!l!
tadalSW.’L
UðaSotwt 76
\/\A/ 1200 76 76
AustvnWWn.1000
j Skoda A.fn'ð®
i RenauU\ll
\
13 oaidatsu '40
l
v&fSNfölfi
um
'W,
llllll
Framrúða,
'Hurðarlæsing,
- Stefnuljósapungur,
‘Kúplingsdiskur,
■ Frambretti,
Dempari
Spindilkúla,
Bremsuklossar.
Aðalljós,
Samkvæmt könnun í timaritinu Samúel á verðmismun á
varahlutum í bíla var LADA 1500 í 1. sæti og LADA sport
í 2. sæti.
Rétt erað geta þess að flestir varahlutireru þeirsömu i allar
• gerðir af LADA.
LADA hefur sannað kosti sína hér á landi með því að vera
sóluhæsti billinn ár eftir ár og er það bæði af sparneytni og
hve ódýrir þeir eru i rekstri.
(Viðhald og varahlutir).
LADA
eródýr
er sparneytin
______. ______ ___ ódýrir varahtutir
er mest sekti billinrí’ hátt endursöluverö
BIFREIÐAR & LANDBUNADARVELAR
Suðurlandsbraut 14, sími 38600
Söludeild simi 312 36
Varahlutaverslun sími 3 92 30
dætrum í föðurgarði. Verðandi
tengdasynir komu hvaðanæva að
og gerðu hosur sínar grænar fyrir
heimasætunum. Áður en varði var
allur þessi fríði flokkur á braut
frá Sámsstöðum. Þegar undirrit-
aður kom þangað frá Snæfellsnesi
í fyrrgreindum erindum upplýsti
bóndi piltinn um, að séra Árni
Þórarinsson hafi sagt að þegar
menn hafi dáið þar fyrir austan,
hafi þeir farið rakleiðis til guðs.
En allt var þetta öðruvísi á
Snæfellsnesi, sagði Sigurður mér
að sr. Árni hafi sagt, og er ég
einlægt minntur á þessar stað-
reyndir siðan.
Barnabörnin eru orðin 15 tals-
ins, en í þessum efnum, sem
öðrum, erum við tengdasynir Sig-
urðar fjarri því að vera jafnokar
hans, en höfum það þó með okkur
að ekki er öll nótt úti enn.
Ég veit að Sigurði er ekkert um,
að mikið stáss sé gert með hann
áttræðan, en hins vegar finnst
okkur hinum maðurinn bæði sér-
stæður og skemmtilegur, enda
hafa spunnist um hann þjóðsögur
þegar í lifanda lífi. Ekki fyrir
margt löngu hitti ég afmælisbarn-
ið við smíðar. Þar eð mér þótti
þegar nægilega hýst á Sámsstöð-
um, hafði ég orð á því. Sigurður
kvaðst ekki mundu treysta því að
það yrði smíðað mikið hinum
megin og því vildi hann nota
tímann vel á meðan tækifæri
gæfist hérna megin. Víða sjást
þess merki á Sámsstöðum að þar
hefur verið tekið til hendi.
En Sigurður er ekki aðeins iðinn
við trésmíðar og þessháttar, því
hann er einnig góður vísnasmiður
og ljóðelskur mjög. Á góðri stundu
fer hann með ljóð höfuðskáldanna
og kennir þar ýmissa grasa. Það
Sámsstaða-fólk er söngvið og er
Sigurður ágætur bassi og lagsæll.
Hér á árunum áður, þegar fjöl-
skyldan kom saman, settist Hildur
við slaghörpuna og var jafnan
tekið lagið.
Þá er þess að geta að hestar eru
Sigurði mikið augnagaman. Eru
ekki liðin nema örfá ár síðan
Sigurður sundreið helstu fljót
þeirra Sunnlendinga, í trausti
þess, að fákur hans myndi ein-
hverju landi ná. Á meðan þessu
fór fram riðu minni spámenn og
skutilsveinar Sigurðar yfir brýr
og fóru þröngt. Hrossin frá Sáms-
stöðum eru úrtöku góð og hafa
niðjar Sigurðar fengið að njóta
þeirra ríkulega og margur orðið
hesteigandi fyrir lítið. Nú á tím-
um meðalmennskunnar kemst
maður ekki hjá því að taka eftir
manni eins og Sigurði á Sámsstöð-
um. Það er næstum nauðsynlegt
hverjum ungum manni að kynnast
slíkum einstaklingi mitt á meðal
þeirra hópsálna, sem við umgöng-
umst daglega. Sigurður hefur ekki
fallið í þá freistni að leggjast í
ferðalög. En engu að síður sigldu
þau hjónin tvisvar fyrir nokkrum
árum og sóttu heim skyldmenni
Hildar í Danaveldi og Unni dóttur
sína í Þýskalandi. Þrátt fyrir
landkosti þar ytra er þar ekki að
finna Hlíðina, Eyjafjallajökul né
Þórsmörk. Því myndi Sigurður
aldrei una sér þar til lengdar.
En þegar að því kemur, að
Sigurður leggur upp í sína lengstu
för, munu þeir Pétur ugglaust
gera hvor öðrum kosti. Ekki skal
getum að því leitt hverjar mein-
ingar Péturs verða. En um hitt er
ég viss, að Sigurði bónda mun
þykja vistin daufleg ef hann
verður að herbergjast þar með illa
lyktandi góðtemplurum og fram-
sóknarmönnum einum saman.
Með kærri kveðju og hamingju-
óskum í tilefni dagsins. Lifðu
heill!
Árni M. Emilsson
I
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
Látið JOKI vinna verkió
með nákvæmni og hagkvæmni
Joki færibandamótorar eru í stöðugri
notkun um allan heim, allt frá demanta-
námum í Ghana til fiskvinnslustöðva á
Grænlandi. Alls staðar vinna þeir verk sín
aföryggi. Joki færibandamótorar eru
lokaðir með IP. 66 þéttingu. Þeir
eru olíukældir og sjálfsmyrjandi og útiloka þannig að raki og
óhreinindi komist inn í mótorinn. Afleiðingin er fyllsta öryggi,
lítið viðhald og auðveld hreinsun.
Joki eru fáanlegir með stiglausri hraðastillingu.
Leitið upplýsinga í söludeild okkar um þann Joki mótor sem
hentar starfsemi ykkar.
= HÉÐINN
VÉLAVERZLUN SELJAVEGI 2 SfMI 24260
REYKJAVfK