Morgunblaðið - 02.08.1980, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 02.08.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1980 3 Farafononv á sam- ráðsfundi með ís- lenskum diplómötum GEORGÍ Farafonov, fyrrum sendiherra Sovétríkjanna á fs- landi ok nú yfirmaður Skandi- navíudeildar sovéska utanrík- isráðuneytisins í Moskvu er væntanlegur hingað til lands í næstu viku. Mun hann eiga viðræður við íslenska dipló- Síbrotamað- ur í gæzlu- varðhald RÚMLEGA tvítuKur maður. sem mjög oft hefur komizt í kast við lögin, hefur verið úrskurðaður i 89 daf;a Kæzluvarðhald i sakadómi Reykjavikur. Maður þessi er viðriðinn fjársvika- mál, sem er til rannsóknar hjá RLR. Maðurinn slapp undan lögrefilunni til Kaupmannahafnar en var hand- tekinn þar og sendur heim til Islands. Þá hlaut maðurinn mjög nýlega tvo fangelsisdóma í saka- dómi Reykjavíkur vegna afbrota sem hann hafði framið, samtals 6 mánaða fangelsi. mata dagana 7. til 8. ágúst. að því er Ilörður Ilelgason ráðu- neytisstjóri utanríkisráðuneyt- isins sagði í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins i gær. Tilefni komu Farafonovs hingaö til lands að þessu sinni, sagði Hörður vera venju sem komin væri á, um að íslenskir og sovéskir diplómatar héidu samráðsfundi fyrir Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Að þessu sinni yrði skipst á skoðunum um Allsherjarþingið, og einnig um Madridráðstefnuna sem fjalla mun um Helsinkisamkomulagið og þróun mála síðan það var undirritað. Um Madridfundinn mun Níels P. Sigurðsson sendiherra ræða við Farafonov, en þeir Hannes Haf- stein, Ólafur Egilsson og fleiri um Allsherjarþingið. Að sögn Harðar Helgasonar, er þetta í fyrsta skipti sem Fara- fonov kemur hingað til lands þessara erinda, í fyrra hefði hann ekki verið búinn að taka við stöðu sinni sem yfirmaður skandinav- ísku deildarinnar, og þá hefði fyrirrennari hans komið. Frá Hrafnseyri. Hrafnseyrarhátíð HRAFNSEYRARHÁTÍÐ verfk ur haldin 3. ágúst n.k. i tilefni af 100 ára ártið Jóns Sigurðs- sonar. Gestir Ilrafnseyrarhátið- ar munu fara frá Reykjavik til Ilrafnseyrar með varðskipinu Ægi laugardaginn 2. ágúst kl. 20.30 og er mælst til að þeir séu mættir um borð kl. 20.00. Farið verður i land á Ilrafnseyri kl. 9 á sunnudagsmorgun. Safn Jóns Sigurðssonar og kapellan verð- ur skoðuð en siðan verður ekið inn að Dynjanda. Ilrafnseyrar- nefnd heídur hádegisverðarboð kl. 12.00 fyrir gesti sína. Hátíðin verður sett kl. 14.00 af formanni Hrafnseyrarnefndar, Þórhalli Ásgeirssyni. Þá mun forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, flytja minni Jóns Sigurðssonar og er þetta fyrsta embættisverk hennar. Guð- mundur Ingi Kristjánsson mun flytja „Hrafnseyrarkvæði" sem er ort í tilefni af hátíðinni og loks mun Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, flytja ávarp. Á milli atriða munu karlakór- inn Ægir frá Bolungarvík og karlakór Þingeyrar syngja. Hannibal Valdimarsson stjórnar útisamkomunni. Að útisamkomunni lokinni mun biskupinn, herra Sigur- björn Einarsson, vígja kapell- una. Honum til aðstoðar verður séra Lárus Guðmundsson, próf- astur í Holti, Önundarfirði. Kirkjukór Þingeyrar, undir stjórn Marie Mercer, syngur. Síðan verður Safn Jóns Sigurðs- sonar opnað. Gert er ráð fyrir að farið verði frá Hrafnseyri kl. 18.00 á sunnu- dag og komið til Reykjavíkur á mánudagsmorgun. Fargjald hjá SVR hækkar í 260 kr. FARGJÖLD strætisvagna Reykjavíkur hakka frá og með deginum í dag. cftir að rikis- stjórnin heimilaði 9% hækkun á þjónustu fyrirtækisins. Almenn fargjöld hækka því úr 230 krón- um í 260 krónur. hvert einstakt fargjald. Stór farmiðaspjöld með 26 mið- um kosta nú 5000 krónur, en áður fengust 28 miðar fyrir sömu upp- hæð. Þá fást nú 9 miðar fyrir 2000 krónur, en voru 10 áður, og 26 miðar fást nú í stað 28 áður á 2500 krónur á sérstöku verði til aldr- aðra. Einstök fargjöld til barna verða óbreytt, og kostar miðinn þar áfram 50 krónur. Kærufrest- ur 30 dagar ÁLAGNINGU opinberra gjalda er nú lokió á alla þá er skatt- skyldir eru hér á landi, nema born sem sértaklega eru skatt- lögð, segir m.a. í frétt frá skatt- stjóranum í Reykjavik. Þar segir ennfremur að álagn- ingarseðlar hafi þegar verið póst- lagðir. Kærur vegna allra álagðra opin- berra gjalda sem þessum aðilum hefur verið kynnt með álagningar- seðli, þurfa að hafa borizt skatt- stjóra innan 30 daga frá og með deginum í dag að telja. Luxemborgarar kippa ef- laust að sér höndunum - ef við verðum látnir greiða lendingargjöldin hér, segir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða Tilbúnar í útiloguna. moð svoínpoka. tjald «g oldunar- ahöld. l.jiiMn.: Kmilía HjórnKdóltir „MÁLIÐ cr allt hið einkennilegasta, því fyrri ríkisstjórn var búin að taka af skarið með, að fella niður öll lendingar- gjöld af Norður-Atlants- hafsfluginu,“ sagði Sig- urður Helgason, forstjóri Flugleiða, í samtali við Mbl„ er hann var inntur álits á þeim orðum fjár- málaráðherra, að Flugleið- um væri aðeins veittur greiðslufrestur á lend- ingargjöldum fram til 20. nóvember. „Samhliða ákváðu Luxem- borgarar að fella niður öll lendingargjöld fyrir árið 1979 og 1980, auk þess sem fyrirheit Bæjarráð Keflavíkur og Njarðvíkur: Ekki verði hvikað frá um um framkvæmdir í BÆJARRÁÐ Keflavikur og bæj- arráð Njarðvikur héldu sameigin- legan fund i fyrradag, þar sem ræddar voru fyrirhugaðar fram- kvæmdir vegna aðstóðu til upp- skipunar og geymslu eldsneytis i Helguvik. Meðfylgjandi ályktun var samþykkt og send utanrikis- ráðherra: Sameiginlegur fundur bæjarráða Keflavíkur og Njarðvíkur haldinn fimmtudaginn 31. júlí, fagnar þeirri ákvörðun utanríkisráðherra að hefja undirbúning að framkvæmd- um við olíuuppskipunarhöfn í Helguvík. Jafnframt lýsir fundur- inn yfir ánægju sinni með mikil og góð störf nefndarinnar sem vann að undirbúningi málsins. Bæjarráðin benda á að tillögur nefndarinnar eru í meginatriðum í samræmi við óskir og ályktanir bæjarfélaganna sem árum saman hafa farið fram á úrbætur í þessum málum og bendir í því sambandi á eftirfarandi samþykkt bæjarráð- anna frá 20. marz 1978: „Á undan- förnum árum hafa farið fram um- ræður og kannanir á milli Keflavík- urbæjar, Njarðvíkurbæjar og Varnamálanefndar um möguleika á að eldsneytisleiðslur varnarliðsins frá Keflavíkurhöfn að Keflavíkur- flugvelli verði fluttar með tilliti til þess að leiðslurnar standa i vegi fyrir skipulagi hafnarsvæðisins í Keflavík og íbúðasvæðis í Njarðvík. Á siðastliðnu ári skemmdist olíu- skipunarbryggja í Keflavíkurhöfn í óveðri og í framhaldi af því var óskað eftir því af stjórn Landshafn- ar Keflavíkur og Njarðvíkur, að ákvörðun yrði tekin um framhald uppskipunar á eldsneyti í höfninni. Bæjarráð Keflavíkur og Njarðvíkur hafa leitað umsagnar nokkurra rík- isstofnana um málið. Fram kemur í áliti þeirra að nauðsynlegt sé að kanna aðrar leiðir til uppskipunar á eldsneyti og er bent á tvo valkosti, Helguvík og Innri-Njarðvík. Bæj- arráðin eru sammála um að leggja til við samstarfsnefnd um skipu- lagsmál, að hún láti gera ítarlega könnun á því hvort að fært sé að gera í Helguvík uppskipunarhöfn fyrir eldsneyti og að upp af víkinni á „Berginu" verði útbúið tankasvæði fyrir allt eldsneyti sem um er rætt. Nefndinni verði falið að flýta þessu verkefni og taka það sérstaklega til meðferðar, svo að unnt verði að taka sem fyrst ákvörðun um framtíðar- stað fyrir uppskipun og geymslu eldsneytis á svæðinu" (tilvitnun lýkur). Bæjarráð Keflavíkur og Njarðvík- ur ítreka fyrri samþykktir sínar í ráðagerð- Helguvík þessu máli og benda jafnframt á þá miklu mengunarhættu sem vatns- bólum bæjanna stafar af núverandi olíugeymum sem eru orðnir gamlir og hættulega nálægt byggð, en í fjölda mörg ár hafa bæjaryfirvöld bent á þessa hættu og krafist úrbóta. Mörg undanfarin ár hefur öllu eldsneyti sem notað er vegna far- þegaflugs frá Keflavíkurflugvelli, verið ekið um Reykjanesbraut frá Reykjavík og Hafnarfirði. Akstur þessi hefur valdið miklu sliti á Reykjanesbraut og skapar mikla slysahættu á þjóðveginum. Bæjarráðin leggja áherslu á að öll framangreind atriði séu höfð í huga við endanlegar ákvarðanir og skorar á stjórnvöld að kvika ekki frá ráðgerðum framkvæmdum í Helgu- vík. var gefið um, að ekki yrðu innheimt nein gjöld á næsta ári. Þeir reyndar endurgreiddu okkur þær fjárhæðir, sem við höfðum greitt inn fyrir lend- ingar á árinu 1979,“ sagði Sigurður ennfremur. Sigurður sagði að lend- ingargjöld Flugleiða á Kefla- víkurflugvelli á árinu 1979 hafi numið um 300 milljónum króna og að lendingargjöldin í Lux- emborg væru ívið hærri. „Það er viðbúið að Luxem- borgarar kippi alveg að sér hendinni í þessu máli og krefji okkur jafnvel um greiðslu á þeim fjármunum, sem þeir hafa endurgreitt okkur, ef kemur til þess að við verðum krafðir um þessi lendingargjöld hér heima,“ sagði Sigurður Helga- son að siðustu. 60% félaga í Sæfara eru með réttindi JÓNAS Eyjólfsson formaður Sæfara, félags sportbátaeigenda á ísafirði sagði í samtali við Mbl að um 60% félaga í Sæfara hefðu réttindi til að sigla bátum sínum. —Við höfum staðið fyrir nám- skeiðum fyrir félagsmenn og hefur þátttaka verið mjög góð. Rúmlega 100 félagar eru í Sæfara og um 60% þeirra hafa þegar fengið réttindi á bátana, sagði Jónas.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.