Morgunblaðið - 02.08.1980, Síða 26

Morgunblaðið - 02.08.1980, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1980 Niels P. Sigurðsson sendiherra skrifar um öryggismál Evrópu Aðdragandi og eftirleikur ráðstefnunnar í Helsinki Innrásin í Tékkóslóvakíu kom mönnum í opna skjöldu, kommúnistaflokk- ar Vestur-Evrópu höföu á fundi í Vínarborg í ársbyrjun 1967 lýst yfir stuöningi viö Búkarest-yfirlýsinguna frá ár- inu áöur og í april 1967 lagði fundur flestra kommúnista- flokka frá Vestur- og Austur- Evrópu í Karlovy Vary blessun sína yfir yfirlýsinguna. Á fund- inum í Karlovy Vary var einnig samþykkt áskorun um, að geröur yröi Evrópusamningur um bann við valdbeitingu og aö friðarsinnar allra Evrópu- landa ættu aö sameinast í því efni. í Karlovy Vary sagöi Brexhnev m.a.: .Þegar dregur úr spennu í alþjoðamálum leitar nálin á pólitisku loftvog- inni til vinstri." Þessu slökun- artímabili lauk svo meö inn- rásinni í Tékkóslólvakíu í ágúst 1968. Innrásin í Tékkóslóvakíu var réttlætt meö svonefndri „Breshnev-kenningu" um tak- markaö sjálfsforræöi sósíal- ískra ríkja í Austur-Evrópu. Breshnev sagöi í nóvember 1968 í ræðu á fimmtu ráö- stefnu kommúnistaflokks Pól- lands eitthvaö á þessa leiö: „Þegar innlend og erlend öfl, sem óvinveitt eru sósíalisma, reyna aö snúa þróun sósíal- ísks ríkis í áttina aö endur- vakningu hins kapítalíska kerfis og þegar sosíalískri stefnu þess lands er ógnaö er um ógnun viö allt hiö sósíal- íska samveldi aö ræöa og vandamáliö veröur þá ekki w.igöngu vandamál þeirrar þjóöar einnar, heldur varöar þaö öll sósíalísk ríki." Af hálfu NATO var innrás- inni í Tékkóslóvakíu mótmælt sem ólögmætum afskiptum af innanríkismálum annars ríkis. Vekti hún einnig ótta um valdbeitingu í öörum tilfellum. Eftir innrásina breyttist tónn- inn í yfirlýsingum Sovétmanna og Varsjárbandalagsins um hugsanlega ráöstefnu um ör- yggi og samvinnu í Evrópu. Foröast var nú aö endurtaka fyrri árásir á stefnu Bandaríkj- anna og Sambandslýöveldis- ins Þýskalands. Fundur æöstu manna Varsjár- bandalagsins í Budapest í mars 1969 lagði til, aö ráö- stefnan um öryggismál yröi NIELS P. Sigurðsson, sendi- herra, hefur tekift saman yfirlit yfir þróun öryggismála Evrópu fró stríöslokum fram til þess, aó lokasamþykkt Öryggis- ráöstefnu Evrópu var undirrit- uó í Helsinki fyrir réttum 5 árum, jafnframt fjallar hann um framvindu mála innan ramma ráóstefnunnar síóan 1975 og fyrirhugaöan fram- haldsfund hennar í Madrid í haust. Niels fer nú meó mál Evrópuráösins í utanríkis- ráóuneytínu og annast undir- búning á þess vegum undir Madrid-fundinn. Morgunblaðió birtir yfirlit hans í þremur hlutum. 3. grein haldin sem fyrst og undirbún- ingsfundur yröi ákveðinn. Segja má, aö þarna hafi slökunarstefnan hafið innreiö sína á ný. í mörgum ylirlýsing- um Nato og Varsjárbanda- lagsins á næstu árum kom greinilega fram vilji til þess aö stuöla aö því, aö ráöstefna um öryggi og samvinnu í Evrópu yröi haldin. Einnig hófust á árinu 1969 viöræöur milji Bandaríkjanna og Sov- étríkjanna um takmörkun ger- eyöingarvopna. Viöræöur þessar, sem haldnar voru til skiptis í Vín og Helsinki, leiddu til þess, aö svonefndur SALT I samningur var undir- ritaður í Moskvu í maí 1972 af Nixon og Breshnev í sam- bandi viö heimsókn Nixons forseta til Sovétríkjanna. SALT II samningurinn, sem geröur var 1979, hefur ekki veriö staöfestur. Viöræður um gagnkvæma fækkun í herliöi NATO og Varsjárbandalagsins, svo- nefndar MBFR-viöræöur, þ.e. viöræöur um jafnan og gagn- kvæman samdrátt herafla í Miö-Evrópu, hófust þó ekki um leiö og SALT-viöræöurn- ar. Höfnuöu Rússar tilboöi NATO-ríkja áriö 1971 um, aö Brosio, sem þá haföi látiö af störfum sem framkvæmda- stjóri NATO, færi til Moskvu til þess aö kanna grundvöll fyrir slíkar viðræöur. Þaö var ekki fyrr en dr. Kissinger fór til Moskvu í september 1972, aö Sovétmenn féllust á MBFR-viöræöur og um leiö var gengiö frá því, aö undir- búningsviöræöur aö ráö- stefnu um örygai og samvinnu í Evrópu —CSCE— skyldu byrja. Þær hófust svo í Hels- inki 22. nóvember 1972 og enduöu hinn 8. júní 1973 meö samkomulagi um aö halda ráöstefnu um öryggi og sam- vinnu í Evrópu. Var þar meö lagöur grundvöllurinn aö viö- ræöum milli austurs og vest- urs um þessi mál og lauk þeim áfanga meö undirritun lokasamþykktarinnar í Hels- inki sumariö 1975. Undirbúningsfundir aö viö- ræöunum um gagnkvæman niöurskurö herafla, MBFR, hófust í Vínarborg í lok janúar 1973 og lauk í juní sama ár. Raunverulegar samningaviö- ræöur hófust síöan í október 1973 og standa þær viðræður enn. Samningar um MBFR eru mjög flóknir og erfiöir, m.a. þar sem Varsjarbanda- lagiö hefur fjölmennara herliö en NATO í Evrópu og er auk þess landfræðilega betur sett, því Sovétríkin þurfa einungis aö flytja liösauka stutta vega- lengd til þess að staðsetja slíkt lið í hjarta Evrópu, en Bandaríkjamenn þurfa aö flytja liösauka um 5 þúsund kilometra yfir opiö haf til Evrópu. Auk þess hefur Varsjárbandalagiö yfir aö ráöa miklu fleiri skriðdrekum en NATO. Vilja NATO-ríkin því, aö Varsjárbandaiagiö fækki um fleiri hermenn og skriðdreka en NATO og vröi miðað viö aö hvort banda- lagið hafi um 700 þúsund manns undir vopnum í Evr- ópu. Ekkert samkomulag hef- Islande ur enn náöst um þessi mál í Vínarborg. í bígerö eru nú viöræður milli risaveldanna um takmörkun á meðaldræg- um eldflaugum í Evrópu. Tak- ist samkomulag um þaö efni —SALT III— mun þaö mjög geta stuðlaö aö bættri sam- búö milli austurs og vesturs. Þegar litiö er til baka verö- ur ekki hjá því komist aö meta aö verðleikum þann árangur, sem náöist í Helsinki hinn 1. ágúst 1975 meö undirritun lokasamþykktarinnar. Þar voru einnig geröar ákveðnar ráöstafanir til þess, aö þátt- tökuríkin gætu fylgst meö framkvæmd lokasamþykktar- innar í hinum ýmsu aöildar- ríkjum. Ákveðið var aö skipu- leggja og haldaT þessu skyni fundi til umræöna um fram- kvæmd ákvæöa lokasam- þykktarinnar og lausn þeirra verkefna, sem skilgreind voru í Helsinki-samþykktinni. Fyrsti fundurinn um fram- kvæmd Helsinki-samþykktar- innar var haldinn í Belgrad frá 4. október 1977 til 9. mars 1978. Aöalatriöiö var, aö þátttökuríkin frá Helsingfors komu saman og ræddu um framkvæmd lokasamþykktar- innar og nýr framhaldsfundur var ákveöinn, og veröur haldinn í Madrid í nóvember 1980. Litill raunhæfur árangur varö í Belgrad, en fundurinn var þó langt frá því aö vera gagnslaus. Er þaö von þátt- tökuríkja, aö þróunin muni þokast í rétta átt og aö smám saman komist öll ákvæöi Gcir Ilallgrímsson undirritar lokasam- þykktina á ráðstefn- unni í Hclsinki 1975. Helsingfors-samþykktarinnar í framkvæmd i reynd. Aö- stæöur til samvinnu og sam- komulags um framkvæmd samþykktarinnar frá Helsing- fors þurfa aö reynast hag- stæöari í Madrid en í Belgrad. Til þess þarf stórt átak og fjölda undirbúningsviöræöna milli austurs og vesturs. Margar tvíhliöa viöræöur eiga sér staö og haldnir hafa veriö sérfræöingafundir í Bonn um vísindamálefni, í Montreux um friösamlega lausn deilu- mála og í Valetta um málefni Miöjaröarhafslandanna. A vísindaráðstefnunni í Ham- borg í síðari hluta febrúar þessa árs báru vísindamenn frá vestri og austri saman bækur sínar um fjölda mál- efna. Þróun málefna um öryggi- og samvinnu í Evrópu er á ýmsan hátt í samræmi viö lokasamþykktina, en margt fer þó enn úrskeiðis. Viö íslendingar reynum aö leggja af mörkum eins og viö getum og aöstæöur leyfa. Náin sam- vinna er milli Noröurlandanna um þessi mál. Einnig tökum viö þátt í fundum í Evrópuráö- inu og NATO, sem miöa aö því að samræma stefnu aöildarríkja í CSCE-málefn- um. Ástand ogþróun alþjóöa- mála næstu manuöi mun hafa úrslitaáhrif á þaö, hvort vænta megi raunhæfs árang- urs í Madrid. Þegar þetta er ritað stend- ur ^yfir hernaöaraögerö Sov- étrikjanna í Afganistan. Ekki er enn vitaö til fulls, hvers konar áhrif slík hernaöaríhlut- un getur haft á gang öryggis- mála í Evrópu og andrúmsloft Madrid-fundarins. Ljóst er hins vepar, aö mikil spenna er nú á ny ríkjandi milli Moskvu og Washington. Má jafna þessari spennu aö nokkru leyti viö ástand mála meðan á Kubu-deilunni sfoö. Menn velta því fyrir ser, hvaö endanlega vaki fyrir Sovét- mönnum í Afganistan, en von- andi veröur ihlutun þeirra þar ekki langvarandi, þar sem slíkt mundi tvímælalaust hafa mjög óheppileg áhrif á fram- tíðarþróun öryggismálanna. Auk þess hefur Allsherjarþing Sameinuöu þjóöanna meö miklum meirihluta atkvæöa skoraö á Sovétríkin aö draga her sinn án tafar skilyröislaust frá Afganistan. Viö Persaflóa og í Mið-Austurlöndum eru miklir hagsmunir Vesturlanda yfir- leitt í veöi. Getur svo fariö, aö hernaöaríhlutun Sovétmanna í Afganistan veröi afdrifaríkari en innrás þeirra í Tékkósló- vakíu á sínum tíma, aö því er varöar öryggi og samvinnu í Evrópu. Þó er ekki ástæöa til svartsýni heldur ber aö vona að úr rætist og ríki, sem stóöu aö lokasamþykktinni í Hels- inki, vilji öll stuöla aö því, aö þeim markmiöum, sem þar voru sett, veröi smám saman náö. Varanlegur friöur og öryggi er ekki einungis þatttökuríkjunum mikils viröi, heldur hefur þróun viöskipta- og alþjóöamala ásamt gangi heimsviöburöa gert friðinn eftirsóknarveröari fyrir allar þjóðir heims. Á Madrid-fund- inum mun koma í Ijós hvort og á hvern hátt verður á næstu árum haldiö áfram viðleitninni til aö draga úr spennu, bæta öryggi og þróa samvinnu milli austurs og vesturs. í Madrid er því mikið í húfi. Reykjavík, 1. ágúst 1980. Níels P. Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.