Morgunblaðið - 02.08.1980, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 02.08.1980, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1980 BRETLAND Stórar plötur 1 1 THEGAME ....................... Queen 2 2 EMOTIONAL RESCUE ........ Rolling Stones 3 7 XANADU ............ Olivia Newton John & Electric Light Orchestra 4 3 DEEPEST PURPLE ........... Deep Purple 5 4 FLESH & BLOOD ............. Roxy Music 6 - SEARCHING FOR THE YOUNG REBELS .... Dexy’s Midnigt Runners 7 - GIVE ME THE NIGHT ....... George Benson 8 6 UPRISING ....... Bob Marley & The Wailers 9 — OF THE WALL ............ Michael Jackson 10 9 ME MYSELF I .......... Joan Armatrading Litlar plötur 1 2 USE IT UP AND WEAR IT OUT ...... Odyssey 2 1 XANADU ............. Olivia Newton John & Electric Light Orchestra 3 10 MORE THAN I CAN SAY ........... Leo Sayer 4 3 JUMP TO THE BEAT .......... Stacy Lattisaw 5 5 COULD YOU BE LOVED ........ Bob Marley & The Wailers 6 4 CUPID/I’VE LOVED YOU FOR A LONG TIME ............. Detroit Spinners 7 7 BABOOSKHA .................... Kate Bush 8 - UPSIDE DOWN ................... Diana Ross 9 - EMOTIONAL RESCUE ........... Rolling Stones 10 6 MY WAY OF THINKING/ I THINK IT’S GOING TO RAIN ....... UB40 BANDARÍKIN Stórar plötur 1 1 EMOTIONAL RESCUE ......... Rolling Stones 2 3 GLASS HOUSES .................. Billy Joel 3 9 HOLD OUT ............... Jackson Browne 4 4 THE EMPIRE STRIKES BACK Kvikmyndatónlist 5 8 URBAN COWBOY ........ Kvikmyndatónlist 6 - THEGAME ........................ Queen 7 5 EMPTY GLASS ............ Pete Townshend 8 7 HEROES ..................... Commodores 9 — DIANA ...................... Diana Ross 10 10 McCARTNEY II ........... Paul McCartney Litlar plötur 1 2 MAGIC ................ Olivia Newton John 2 1 IT’S STILL ROCK N ROLL TO ME .... Billy Joel 3 3 LITTLE JEANNIE ............. Elton John 4 4 CUPID/I’VE LOVED YOU FOR A LONG TIME .............. Spinners 5 5 SHINING STAR ............... Manhattans 6 9 TAKE YOUR TIME ............. S.O.S. Band 7 6 COMING UP (Live in Glasgow) . Paul McCartney & Wings 8 8 TIRED OF TOEING THE LINE . Rocky Burnette 9 - EMOTIONAL RESCUE .......... Rolling Stones 10 — SAILING ................ Christopher Cross Jazz piötur 1 2 RHAPSODY & BLUES ............ Crusaders 2 1 THIS TIME ................... Al Jarreau 3 3 H ........................... BobJames 4 4 CATCHING THE SUN ............ Spyro Gyra 5 5 WIZARD ISLAND ......... Jeff Lorber Fusion 6 7 HIDEAWAY ................. David Sanborn 7 6 ROCK PEBBLES & SAND ...... Stanley Clarke 8 10 SPLENDIDO HOTEL ............ Al DeMeola 9 9 MONSTER ................. Herbie Hancock 10 8 A BRAZILIAN LOVE AFFAIR ... George Duke „KVEOJUSTUND" Upplyfting (SG hljómplötur SG 132) 1980 Flytjendur: Upplyfting: Magnús Stefáns- son: Songur og bassagítar/ Sig- urður V. Dagbjartsson: Gitar, söngur, hijómborð og bazouki/ Ingimar Jónsson: Trommur/ Kristján B. Snorrason: Söngur og hljómborð/ Birgir S. Jóhanns- son: Gitar./ Auk þessu eru: Hauk- ur Ingibergsson: Söngur, gitar pianó og raddir/ Kristján Oskarsson: Hljómborð/ Magnús Baldursson: Alt saxófón/ Láren- tinus Kristjánsson: Trompet/ Ingibjörg Vagnsdóttir: Kven- raddir/ Gústaf Guðmundsson: Synth trommur. Stjórn upptöku: Jóhann G. Jó- hannsson. Tæknimaður: Sigurður Árna- son (Tóntækni). - O - Það er staðreynd að erfitt hefur verið fyrir óþekkta tónlistarmenn að komast á plötu. Bæði það að markaðurinn hérlendis virðist mettur af þeim sem þegar hafa komist á plötu og plötur yfirleitt ekki gefnar út nema með þeim sem hafa gert það gott. Undanfar- ið hefur verið reynt að berjast gegn þessari þróun og má þar nefna plötu Bubba Morthens, Tív- olí og svo nú Upplyftingu. Upp- lyfting fyllir þó ekki upp í neitt tómarúm hvað tónlistina snertir heldur bætast við í hóp þeirra sem hafa ráðið stefnu í íslenskri tón- list. Jóhann G. Jóhannsson á til dæmis afar mikið anda plötunnar, hans lög eru fjögur á plötunni og flutt í hans stíl, það er lag í stíl Björgvins og Brimklóar, Spilverks þjóðanna og Ljósanna í bænum svo nokkuð sé nefnt. En þeir gera þetta vel og platan kemur vel út í heildina og er nokkuð áheyrileg. Söngur þeirra Sigurðar, Snorra og Kristjáns er á við það besta sem heyrst hefur á plötum hér og Haukur Ingibergsson, sem syngur tvö laganna, syngur með sínum sérstaka stíl. Hljóðfæraleikur er allur eins og hann á að vera, og jafnvel fjöl- breyttari en gengur og gerist. Gítarleikur Sigurðar er sérstak- lega skemmtilegur. Þess má geta að síðasta lagið, „Angan vor- draumsins", er samið af Sigurði, en það minnir óneitanlega mjög mikið á Santana, og er nokkuð fallegt. Lög Jóhanns eru öll í hans þekkta stíl, en tvö laganna eru líklega þau bestu á plötu, allavega til vinsælda. Það eru lögin „Finn- urðu hamingju" og „Traustur vin- ur“. Magnús syngur bæði lögin, en þó með rödd Jóhanns, lögin þannig að þau rugla nokkuð ímynd hljóm- sveitarinnr og setja stíl hennar ekki skýr mörk. Upplyfting er hljómsveit sem spilar á dansleikjum og þar af leiðandi eiga að vera á plötunni nokkur hress og lífleg danslög. Þeir bregðast ekki því hlutverki því á plötunni eru 4 lög sem geta flokkast undir lífleg danslög, „Mótorhjól" og „Dansað við mána- skin“ sem eru í diskóstíl, bæði eftir Sigurð (auk annarra) og svo eru lög Hauks Ingibergssonar, „Langsigling" og „Upplyfting", en það eru lögin sem Haukur syngur sjálfur. Falleg róleg lög eru „Kveðju- stund“, „Vor í lofti“ og „Útrás". Þessi lög hafa öll sínar sterku hliðar. „Vor í lofti“ minnir nokkuð á lög og söng Sigurðar Bjólu Garðarssonar í Spilverki þjóð- anna. „Útrás“ minnir aftur á móti á Björgvin Halldórsson. Þrátt fyrir allar samlíkingar er hér á ferðinni ágætisplata sem stendur fyrir sínu. Tónlistin er fjölbreytt, vel flutt, og síðast en ekki síst, Jóhanni hefur tekist ágætlega upp í stöðu upptökustjóra því margar af hugmyndum hans falla hér vel inn í heildina. HIA. „ME MYSELF lu Joan Armatrading (A&M) Joan Armatrading hefur hald- ið vinsældum I Bretlandi um nokkurra ára skeið og nýjasta plata hennar, „Me Myself I“, virðist ætla að verða sú vinsæl- asta. Joan syngur um ástir sínar og Hfsreynslu og skoðanir á daglegum hlutum á afskaplega einfaldan og venjulegan hátt sem virðist falla i góðan jarðveg. Hún hefur nokkuð karlmannalega rödd af kvenmanni að vera, en notar hana nokkuð vel. Aðeins fjórar plötur eru komnar á und- an þessari, “Whatever’s for Ús“, „Back to the Night“, „Joan Armatrading“ og „Back to Zero“. Tónlist hennar hefur fram að þessu verið að mestu órafmögn- uð, það er lágvær og gerð fyrir ljúft undirspil. En á þessari plötu kemur rokkið upp á yfirborðið. Bestu lögin á þessari plötu eru t.d. nokkuð rokkuð, „Me Myself I“, „Me Ma Beach“ og „All the Way from America". Armatrading hefur löngum átt fylgi hljóðfæraleikara að fagna og verið eftirlæti þeirra, enda lítil vandræði verið hjá henni að fá hæfa hljóðfæraleikara. Á „Me Myself 1“ leika t.d. Chris Spedding (gtr), Will Lee (bs), Danny Federici (orgel), Clarence Clemons (sx) og frábær trommu- leikari Anton Fig. Auk rokksins sem er áberandi á plötunni eru reggae taktar í nokkrum laganna, og tekst vel í laginu „Feeling in My Heart for You“. Platan hefur verið á „fóninum" undanfarnar tvær vikur.e n hvort hún er það meistaraverk sem aðrir telja hana þori ég ekki að fullyrða, en þægileg og veldur ekki neinni truflun! HIA. „SÖNN ÁST“ Björgvin Halldórsson & fl. (Steinar plat 502) 1980 Flytjendur: Björgvin Halldórsson: Söng- ur/Gunnar Þórðarson: Gítar/ Magnús Eiríksson: Gitar/Pálmi Gunnarsson: Bassagítar/Sigurð- ur Karlsson: Trommur/Heigi Guðmundsson: Munnharpa. „Sönn ást“ er eitt af fallegri lögum Magnúsar Eiríkssonar og sungið af fagmanni og spilað og útsett á góðan hátt. Þar fyrir utan er Magnús orðinn einn skemmti- legasti textasmiður okkar og tekst mjög vel í þessum texta. Af einfaldari lögum Magnúsar er lagið í flokki með „Ég er á leiðinni" nema hvað þetta lag hefur meira að bera en það. Gítarleikurinn í laginu er líka stílhreinn og fagmannlegur. „Sönn ást“ er þegar orðið vin- sælt, og á vinsældirnar skilið. Stefin á bakhliðinni sem eru eftir Gunnar Þórðarson eru eins og heitin benda til (Reykjavíkurstef og Sveitastef) lagstúfar. Þau eru einföld og fyrst og fremst gerð sem bakgrunnstónlist í kvikmynd. Seinna stefið er þó mun áheyri- legra eitt sér, en það heitir Sveitastef. Minnir það nokkuð á tónlist þá sem Bob Dylan gerði fyrir kvikmyndina „Pat Garrett & Billy The Kid“. HIA. ROXY MUSIC + FLESH & BLOOD + (Polydor) ÞAÐ hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan fyrsta plata Roxy Music gerði hálfgerða byltingu i tónlÍHtarheiminum, fyrir ná- kvæmlega átta árum. Lögin, flutningurinn og söng- ur Bryan Ferrys þótti mjög framandi en um leið mjög heill- andi og framkoma hljómsveitar- innar vakti afar mikla athygli á sinum tima.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.