Morgunblaðið - 14.08.1980, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.08.1980, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980 Breytingar á kaupliðum aðalkjarasamnings BSRB Ilér íara á eftir megin- atriði breytinga á kauplið- um, sem felast í þeim drögum aö nýjum aðal- kjarasamningi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Hver launaflokkur skiptist í þrjú launaþrep. 1. þrep er byrjunarlaun án starfsaldurs- hækkana skv. samningi þess- um. 2. þrep er laun eftir eins árs starfsaldur. 3. þrep er laun eftir 5 ára starfsaldur, var 6 ára eða þegar starfsmaður hefur náð 32 ára aldri. Starfsaldur telst sá tími, sem starfsmaður hefur unnið hjá ríki, sveitarféiögum og stofnunum, sem styrktar eru af almannafé (t.d. heilbrigðis- og menntastofnanir) og tekið laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Sé um starf í sömu starfsgrein að ræða, skal einnig telja til starfsaldurs tíma, sem unninn hefur verið hjá þessum aðil- um, þó laun hafi ekki verið samkvæmt launakerfi opin- berra starfsmanna. Á sama hátt skulu störf, sem innt eru af hendi erlendis, metin að fullu til starfsaldurs. (Hér er sú breyting, að í aðalkjarasamningnum frá 1977 segir aðeins að starfsald- ur teljist sá tími, sem starfs- maður hafi unnið hjá ríkinu. Við ákvörðun starfsaldurs sé heimilt að taka til greina starfstíma hjá öðrum vinnu- veitanda en því opinbera, en aðeins til hálfs og að slíkur starfsaldur geti mest orðið 6 ár.) Með starfsaldri er átt við samfelldan starfstíma í a.m.k. hálfu starfi, í tvo mánuði eða lengur, (í stað þriggja mánaða eða lengur). Eigi skal starfsmaður í þremur iægstu launaflokkun- um vera lengur en eitt ár samkvæmt launakerfi opin- berra starfsmanna í hverjum þessara flokka, (í stað tveggja lægstu flokkanna). Starfsmaður skal á sama hátt eigi vera lengur en tvö starfsár í 4. eða 5. launa- flokki, (í stað 3. eða 4. launa- flokks). Að lokinni tilskilinni veru í ofangreindum launaflokkum skal hann hækka um einn launaflokk og í það launaþrep, sem starfsaldur eða lífaldur segja til um á hverjum tíma. Starfsmaður sem gegnir starfi sem grunnraðað er í 6,—10. launaflokk, skal hækka um einn launaflokk eftir 4ra ára starfsaldur. Hækkun þessi gildir þó ekki um þá starfs- menn sem njóta hagstæðari hækkunarreglna fyrir starfs- aldur eða stigagjöf í sérkjara- samningum aðildarfélaga BSRB. Starfsaldurshækkanir sem óhagstæðari eru falla niður, en þessi regla kemur í staðinn. (Þessar flokkatilfærslur segir Kristján Thorlacius að BSRB meti þannig, að þær gefi með launahækkunum flokk- anna allt að 7—8% launa- hækkun). Eftir 8 ára starf (í stað 10 ára starfsaldurs) skal starfs- maður í fullu starfi fá greidda persónuuppbót sem nemur 24% af desemberlaunum í 3. þrepi 11. lfl. Fullt vaktaálag Tímakaup á útkallsvakt (gæzluvakt) er vaktaálag. Vinnutími starfsmanna skal vera samfelldur eftir því sem við verður komið. Greitt skal fyrir eyður í vinnutíma með vaktaálagi. Greiðsla fyrir eyð- ur og útkallsvakt á dagvinnu- tímabili er 33,33% vaktaálag, (í samningnum frá 1977 er alls staðar í þessum tilfellum kveðið á um hlutfall af vakta- álagi.) Verðlagsbætur Launaupphæðir þær sem í samningi þessum greinir gilda fyrir tímabilið frá 1. ágúst 1980 til 31. ágúst 1981 án frekari verðbóta. Á launaupphæðir þær sem í samningi þessum greinir, greiðast frá og með 1. sept- ember 1980 verðbætur sam- kvæmt ákvæðum laga nr. 13/ 1979, sbr. 48.-52. gr. þeirra laga með eftirfarandi breyt- ingum: Bókun frá fjármálaráðherra í gagntilboði ríkis- stjórnarinnar til BSRB 10. júní sl. var lagt til að ákveðnar yrðu lágmarks- og hámarksverðbætur á laun. Samkvæmt þessari tillögu áttu launamenn að fá að lágmarki sömu verð- bætur í krúnutölu cg greiddar eru á 345.000 kr. mánaðarlaun en hámarks- verðbætur áttu að miðast við 560.000 kr. mánaðar- laun. Hins vegar hefur samninganefnd BSRB hafnað þvi að verðhætur á laun verði bundnar ákveðnu hámarki. Fjármálaráðherra tekur það fram við undirskrift þessa samnings að óhjá- kvæmilegt er, að sam- ræmdar reglur gildi um greiðslu verðbóta á laun hjá opinberum aðilum og á aímennum vinnumarkaði, sbr. 1. nr. 13/1979, VIII. kafla um verðbætur á laun. Verði samið um lág- marksverðbætur á laun í samningum annarra sam- taka launafólks munu sam- svarandi reglur taka gildi fyrir félagsmenn BSRB. Félagsmálapakkinn: Lögbinding samnings- tímans felld niður „Bandalag starfsmanna ríkis og haja og ríkisstjórnin gera með sér eftirfarandi samkomulag um málefni opinberra starfsmanna: 1. Fellt verði úr lögum nr. 29/1976 ákvæði um tveggja ára lágmarks- samningstímabil. Lengd samn- ingstímabils verði framvegis samningsatriði. Gildistími aðal- kjarasamnings þess sem sam- komulagið er tengt, verði frá 1. ágúst 1980 til 31. ágúst 1981. 2. Lög nr. 29/1976 nái til: 2.1 SjaFfseignastofnana sem starfa í almannaþágu samkvæmt lögum. 2.2 Stofnana sem eru i fjárlögum eða njóta fjárframlaga til launa- greiðslu úr ríkissjóði eða af dag- gjöldum. 2.3 Sameignarstofnana ríkis og sveitarfélaga. Ákvæði um þetta verði sett með lögum eða reglugerð eftir því sem þörf krefur, enda komi til sam- þykki viðkomandi stofnana. Atvinnuleysisbætur 3. Ríkið ábyrgist með lagasetn- ingu, að þeir félagar BSRB, sem ekki njóta ákvæða 14. gr. laga nr. 38/1954, njóti atvinnuleysisbóta sambærilegra við annað launa- fólk, í samræmi við gildandi lög og framkvæmd þeirra á hverjum tíma. Bótaréttur yrði m.a. háður því skilyrði, að atvinnulaus starfs- maður hefði sannanlega ekki neit- að annarri vinnu, sem boðist hefði, sbr. 16. gr. laga um atvinnuleysis- tryggingar og túlkun hennar á liðnum árum. Ekki er stefnt að myndun sjóðs eða greiðslum í sjóð í þessu skyni. Sérstök nefnd ákveði atvinnuleysisbætur og úr- skurði annan ágreining, sem upp kann að koma. Nefndin sé skipuð tveim full- trúum BSRB, einum frá fjármála- ráðuneyti, einum frá Sambandi ísl. sveitarfélaga og einum frá Hæstarétti. Starfsmenntunar- sjóður 4. Stofnaður verði starfsmenntun- arsjóður fyrir starfsmenn ríkisins innan BSRB og greiði ríkissjóður sem svarar 0,15% af föstum mán- aðarlaunum félagsmanna í sjóð- inn. Hiutfail þetta verði endur- skoðað árlega miðað við þarfir sjóðsins. Sjóðnum, sem starfi samkvæmt reglugerð staðfestri af stjórnvöld- um, ber að tryggja fjárhagslegan grundvöll símenntunar og endur- hæfingarnáms opinberra starfs- manna í tengslum við störf þeirra. Markmið sjóðsins eru: 4.1 Að starfsmenn beri ekki kostn- að af né verði fyrir tekjutapi af námi, sem beinlínis er við það miðað, að þeir geti tileinkað sér framfarir og tæknibreytingar á sinu sérsviði. 4.2 Að starfsmenn eigi, án veru- legs kostnaðar, kost á námskeið- um, sem geri þeim mögulegt að taka að sér vandasamari störf en þeir gegna. 4.3 Ef störf eru lögð niður vegna tækni eða skipulagsbreytinga, eiga starfsmenn, án tilkostnaðar, kost á endurhæfingarmenntun, sem geri þeim mögulegt að taka að sér önnur störf með óbreyttum tekjumöguleikum. Sérstök nefnd skipuð tveim full- trúum frá hvorum aðila skipuleggi námskeiðshald og annist ráðstöf- un fjárins. Starfsmannaráð 5. í þeim ríkisstofnunum þar sem vinna 15 manns eða fleiri, verði komið á fót starfsmannaráðum, sem fjalli um starfstilhögun og fleiri mál, er varða starfsmennina. Sett verði reglugerð um skipun og verkefni starfsmannaráða, sem unnin er af nefnd skipaðri full- trúum beggja samningsaðila. Hlutastörf eftirlaunafólks 6. Sett verði nefnd til að gera tillögu um skipan málefna eftir- launafólks og öryrkja, sem feli í sér rýmri heimildir til handa starfsmönnum að halda störfum að hluta eftir að hámarksaldri er náð. í því sambandi verði m.a. höfð hliðsjón af tillögum nefndar, sem fjallað hefur um endurskoðun á reglum um aldurshámark starfsmanna Reykjavíkurborgar. Aðalstarf Fjármálaráðuneytið mun senda BSRB bréf þess efnis, að framveg- is verði aðalstarf, sbr. 1. gr. laga nr. 29/1976 túlkað á þann veg, að undir það falli hlutastörf, jafnvel þótt þau nái ekki hálfsdags starfi, enda stundi starfsmaður fast sam- fellt starf og hafi ekki á hendi annað aðalstarf í þjónustu ríkis- ins. Undanþegið þessari túlkun er sumarvinnufólk eða aðrir í tíma- bundnum afleysingum. Ábyrgð ríkissjóðs á lífeyrisgreiðslum 8. Vísað er til samkomulags BSRB og ríkisins frá 1. apríl 1976 um að jafnframt því sem lífeyrissjóðirn- ir verði skyldaðir til að ávaxta 30% af heildarútlánum sinum í verðtryggðum skuldabréfum ríkis- sjóðs, verði miðað við, að ríkis- sjóður ábyrgist og greiði einungis þann hluta lífeyrisins, sem lífeyr- issjóðirnir geta ekki risið undir með tekjum sínum af vöxtum og verðbótum af þessum 30% af heildarútlánum (verðtryggðum). Viðræður um aðrar breytingar á ábyrgð ríkissjóðs á lífeyrisgreiðsl- um verði teknar upp, þegar fyrir liggja niðurstöður á úttekt á stöðu lífeyrissjóða ríkisstarfsmanna, sem tryggingafræðingur vinnur nú að. Um lífeyrissjóðsmál 9.1 Ríkisstjórnin fellst á, að starfsmenn ríkisins 16 ára og eldri, sem laun taka samkvæmt kjarasamningum BSRB og aðild- arfélaga þess, fái aðild að Lífeyr- issjóði starfsmanna ríkisins, enda sé ekki um að ræða sumarvinnu- fólk eða aðra í tímabundnum afleysingum. 9.2 Gjaldskylda í 32 ár veiti 2% lífeyrisréttindi fyrir hvert þeirra ára. Eftir að iðgjaldagreiðslu lýkur ávinnst 1 % fyrir hvert starfsár til 65 ára aldurs og 2% eftir það til 70 ára aldurs. 9.3 Upphæð ellilífeyris er hundr- aðshluti af launum þeim er á hverjum tíma fylgja starfi því sem sjóðfélaginn gegndi síðast. Hafi sjóðfélagi gegnt hærra launuðu starfi eða störfum í að minnsta kosti 10 ár fyrr á sjóðfé- lagstíma sinum skal miða lífeyr- inn við hæstlaunaða starfið enda hafi hann gegnt því í að minnsta kosti 10 ár, ella skal miða við það hæstlaunaða starf sem hann að viðbættum enn hærra launuðum störfum gegndi í að minnsta kosti 10 ár. 9.4 Fellt verði úr lífeyrissjóðslög- um ákvæði um mismunandi ið- gjald. Iðgjald starfsmanna verði framvegis 4% á móti 6% frá vinnuveitanda. Jafnframt verði felld úr lögum skipting eftirlauna í 21 flokk frá 1,6—2,0% fyrir ár. í staðinn verði 2% fyrir ár hjá öllum. 9.5 Sambúðarfólk hafi sama rétt og hjón, sbr. 1. grein laga nr. 15/1980, sbr. einnig 12. gr. 4 mgr. frumvarps til Söfnunarsjóðs líf- eyrisréttinda. 9.6 Vaktavinnufólk, það er þeir sjóðfélagar sem hafa vinnutíma sem hreyfist með reglubundnum hætti, skai fá rétt til sérstaks viðbótarlífeyris úr Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins enda sé þeim skylt að greiða iðgjald af vakta- álagsgreiðslum til sjóðsins. 9.6.1 Sama gildi um næturverði og það starfsfólk sem hefur vinnu- skyldu eingöngu á næturnar, það er á tímabilinu frá kl. 22:00—09.00 og skal þá álagsgreiðslan verða grundvöllur iðgjalda og lífeyris- réttinda. 9.6.2 Sjóðfélagi greiði 4% af

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.