Morgunblaðið - 16.08.1980, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1980
Arás inn
í Líbanon
Dauðadómur í
mútuhneyksli í
Sovétríkjunum
Fangar teknir af
lífi í E1 Salvador
Bandariski ofurhuRÍnn Robinson sést hér stökkva út úr turni i
Toronto, sem er einhver sá hæsti i heiminum. Hann lét sig falla
um nærri 200 m áður en kaðall, sem hann var festur við, tók af
honum fallið.
Tel Aviv, 15. áfnÍBt. AP.
ÍSRAELSKAR strand-
höggsveitir réðust í dag á
nokkrar stöðvar Palest-
ínumanna norðan við hafn-
arborgirnar Sidon og Tyros
i Suður-Libanon, 24 km frá
israelsku landamærunum.
Minnst þrír palestínskir skæru-
liðar voru felldir, herflutninga-
bifreið var sprengd í loft upp og
sprengjum var varpað á byggingu
sem skæruliðar nota fyrir bæki-
stöð norðan við Tyros. Engan
Israelsmann sakaði.
Hermennirnir réðust á skot-
mörk sem voru minnst hálfan
kílómetra norðan við Sidon og
einbeittu sér að umferð skæruliða
á þjóðveginum meðfram strönd-
inni. Þetta var fyrsta árás Israels-
manna inn i Suður-Líbanon í tvo
mánuði.
San Salvador, E1 Salvador,
15. ágúst. AP.
MANNRÉTTINDANEFND-
IN í E1 Salvador fullyrti í
dag að herir stjórnarinnar
lífláti nú fólk sem handtekið
ParamaHbo, Surinam, 15. ágÚKt. AP.
HERMENN i Suður-Amerikurik-
inu Surinam hafa gert stjórnbylt-
ingu i annað sinn, fellt stjórn-
arskrá landsins úr gildi, lýst yfir
neyðarástandi og tekið upp her-
lög.
Þeir tilkynntu í dag að byltingin
væri til þess ætluð að halda
hefur verið í verkföllum
vinstrisinna í vikunni.
í tilkynningu nefndarinn-
ar, sem fylgir leiðsögn al-
þjóðamannréttindahópa.
kommúnisma að kúbanskri fyrir-
mynd í burtu frá ríkinu, en þar
búa um fjögur hundruð þúsund
ibúar. Ekki mun hafa komið til
átaka við valdatöku hermann-
anna, en sex menn hafa verið
handteknir að sögn embættis-
manna.
sagði að lík fanga hefðu
fundizt vitt og breitt um
höfuðborgina á síðustu dög-
um.
Verkfallsaðgerðir í höfuðborg-
inni hafa þó ekki tekizt betur en
svo að um áttatíu af hundraði
allra viðskiptafyrirtækja hafa
opnað að nýju. Um helmingur
borgarinnar er án ljóss og raforku
eftir að skæruliðar sprengdu upp
dælustöð og þrjá rafturna.
Margir fréttaskýrendur hafa
látið svo um mælt að lítill almenn-
ur stuðningur við verkfallsbrýn-
ingu vinstrimanna, sé áfall fyrir
tilraunir þeirra til að steypa
herstjórn landsins.
Moskva. 15. áKÚKt. AP.
HÁTTSETTUR embættismaður i
sovézku borginni Tbilisi hefur
verið dæmdur til dauða út af
Enn flugrán
yfir Florida
San Juan, Puerto Rico,
15. áKÚHt. AP.
ÞRIÐJA flugvélin, sem rænt
er yfir Flórida og snúið til
Kúbu, lenti i San Juan á
Puerto Rico snemma 1 dag. Að
sögn farþega voru ræningj-
arnir tveir Kúhumenn sem
vildu komast heim aftur.
Um borð í flugvélinni var 12
manna áhöfn og 211 farþegar
og að þeirra sögn sögðust
ræningjarnir vera Kúbumenn
sem vildu komast aftur til
fjölskyldna sinna. Annar
mannanna hélt bensínflösku á
lofti og hótaði því að kveikja í
henni ef ekki yrði orðið við
körfum þeirra. Yfirvöld á
Kúbu hafa skýrt frá því að
flugræningjarnir hafi verið
teknir í hennar vörslu.
Fort Worth, Texas 15. ágúst. AP.
DÓMARI kom i veg fyrir það i
dag, að lík Lee Harvey Oswalds
yrði tekið úr gröf sinni eftir að
bróðir Oswalds hafði höfðað mál
gegn breska rithöfundinum
Eddows, sem hefur krafist þess að
lik Oswalds verði tekið til rann-
sóknar.
Bróðir Oswalds, Robert, segir að
meiriháttar mútuhneyksli, er
valdið hefur almennri reiði i
kjölfar sjónvarpssendinga af
réttarhöldum yfir honum þar i
borg.
Samkvæmt frásögn fréttablaðs-
ins Zarya Vostoka í Tbilisi og
embættismanna í Georgíu var
kveðinn upp dauðadómur yfir
Yuda Kobakhidze þann 29. júlí
síðastliðinn. Kobakhidze var
framkvæmdastjóri svæðisstjórnar
í einum borgarhluta Tbilisi með
um hundrað og þrjátíu þúsund
íbúa, en Tbilisi, sem er höfuðborg
lýðveldisins Georgíu hefur alls um
eina milljón íbúa.
Að sögn fréttablaðsins snérist
Kobakhidze-hneykslið um tuttugu
og þrjú mútutilfelli þar sem um
hundrað sjötíu og tvö þúsund
rúblur komu við sögu í heild. í
bréfi ergilegs málmiðjuverka-
manns, er birtist í blaðinu, segir
að embættismaðurinn hafi þegið
mútumar af þegnum í leit að
nýjum leiguíbúðum stjórnarinnar.
Leiga á íbúðum mun í flestum
tilvikum ódýr í Sovétríkjunum, en
óbreyttir borgarar eiga oft í brös-
um með að verða sér úti um
húsnæði vegna framboðsskorts.
það muni aðeins auka „þjáningar"
hans ef líkið verði grafið upp og
hótar því að krefjast 100.000 dala í
skaðabætur frá þeim, sem fyrir
uppgreftrinum standa. Hann held-
ur því fram, að fyrir Eddows vaki
ekkert annað en að vekja athygli á
bók, sem hann hefur skrifað um
morðið á Kennedy Bandaríkjafor-
seta.
Stjórnbylting
Lík Oswalds er
ennþá í gröf inni
Carter og Kennedy hylltir
á landsþingi demókrata
Kastað fyrlr fisk — Jimmy Carter Bandarfkjaforseti reynir hér fyrir
sér með flugu daginn áður en hann hélt til New York á flokksþing
demókrata þar sem hann var útnefndur forsetaefni flokksins í
forsetakosningunum i haust.
Frá önnu Bjarnadóttur
í New York í gær
FULLTRÚAR demókrata
hylltu Jimmy Carter, Walter
Mondale og Edward Kennedy á
siðasta degi landsþings flokks-
ins i New York á fimmtudags-
kvöld. Carter og Mondale fluttu
þakkarræður sínar fyrir for-
seta og varaforsetaútnefningu
flokksins og demókratar
reyndu að láta sem samkomu-
lag hefði aldrei verið betra i
flokknum.
Carter og Mondale gagn-
rýndu báðir stefnu Repúblik-
anaflokksins og frambjóðanda
hans. Carter sagði að hann væri
stoltur af frjálslyndri stefnu
flokksins, að hann og Mondale
myndu heyja málefnalega bar-
áttu og þeir ætluðu að „baka~
repúblikana i nóvember. Hann
fjallaði um stefnu flokksins við
góðar undirtektir áheyrenda en
þegar hann nefndi viðbrögð sin
við innrás Sovétrikjanna og
skrásetningu ungra manna til
herkvaðningar, andmælti þing-
ið með óánægjuhrópum.
Hörð barátta Carters og
Kennedys í forkosningunum olli
verulegum klofningi í flokknum.
Stuðningsmenn beggja, Carters
þó sérstaklega, gera nú sitt bezta
til að græða sárin. Carter sagði í
ræðu sinni: „Ég vil segja nokkur
orð til Kennedy öldungadeildar-
þingmanns ... ræða þín hér á
þinginu fjallaði á frábæran hátt
um það sem flokkur demókrata
hefur þýtt fyrir bandarísku
þjóðina — og hvers vegna sigur
flokksins er svo mikilvægur í
nóvember.
Ég rétti fram hönd mína til
þín og stuðningsmanna þinna
scm studdu þig svo dyggilega í
baráttunni í kvöld. Ted, flokkur
þinn þarfnast þín — og ég
þarfnast hugsjónaeldmóðs og
ósérplægni ykkar í baráttunni.
Kennedy lýsti stuðningi sínum
við Carter með nokkrum orðum í
skriflegri yfirlýsingu, sem lesin
var á landsþinginu eftir að
Carter hafði hlotið útnefningu
flokksins á miðvikudagskvöld.
Ræða hans á þriðjudagskvöld
var bezta ræða sem hann hefur
flutt lengi ef ekki nokkru sinni.
Hann minnti mjög á bræður sína
og það var auðskiljanlegt hvers
vegna Kennedyarnir njóta virð-
ingar og aðdáunar svo margra í
Bandaríkjunum. Ræðu hans
mun væntanlega verða minnst
lengur en þakkarræðu forsetans.
Þegar Carter hafði lokið ræðu
sinni stigu fjölskyldur hans og
Mondale og fjöldi framámanna í
flokknum í ræðustól og veifuðu
þingfulltrúum við hlið hans.
Kennedu steig síðastur fram
en þá var fulltrúunum farið að
leiðast þófið og farnir að kalla
nafn hans. Kennedy var heldur
kuldalegur en Carter faðmaði
hann að sér . Fagnaðarlæti
fulltrúanna voru gífurleg, en
rauðar, hvítar og bláar blöðrur
sem áttu að svífa yfir höfuð
þingfulltrúanna sátu fastar í
netum sínum uppi undir lofti
salarins.
Carter kallaði Mondale bezta
félaga sem nokkur forseti hefur
haft og þakkaði þinginu fyrir að
útnefna hann varaforsetaefni að
nýju. Annar en Walter Mondale
kom aldrei til greina sem vara-
forsetaefni Carters. Mondale
hefur þjónað mikilvægu hlut-
verki í stjórn Carters til þessa,
sem er óvenjulegt. Mondale tók
virkan þátt í baráttunni gegn
Kennedy og mun halda upptekn-
um hætti i baráttunni gegn
Reagan. Hann er helzti tengilið-
ur Carters við frjálslyndari arm
demókrataflokksins. Hann hefur
sérstaklega góð sambönd við
verkalýðsleiðtoga og starfsmenn
Carters vona að það komi þeim
að góðum notum í baráttunni,
því Carter mun þurfa á atkvæð-
um verkamanna að halda ef
hann ætlar að sigra Reagan svo
rækilega sem hann sagði í ræðu
sinni.
Mondale mun eiga kappræður
við George Bush varaforsetaefni
repúblikana fyrir kosningarnar.
Þeir þykja nokkuð líkir, eru á
svipuðum aldri, búa yfir svipaðri
reynslu og eru vel menntaðir —
en Cartersmenn telja Mondale
geta kveðið Bush auðveldlega í
kútinn.
Ræða hans í kvöld var nokkuð
löng en hann var einn fárra
ræðumanna sem sýndu að full-
trúarnir hlusta stundum á ræð-
urnar sem eru fluttar á þinginu.
Hann nefndi nokkur atriði úr
stefnu repúblikana og spurði
hvort þau hljómuðu vel. Þing-
heimur svaraði hárri raustu —
nei, nei, nei —.
Sættir hafa kannski aðeins
náðst á yfirborði Demókrata-
flokksins en fulltrúar á lands-
þingi hans voru auðheyrilega
sammála um að Ronald Reagan
mætti ekki taka við stjórn lands-
ins í janúar.