Morgunblaðið - 17.08.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
45
Verið að ljúka við að slá upp fyrir síðustu hæðinni í Húsi verzlunarinnar:
Glæsilegt útsýni
yfir alla borgina
HÚS verzlunarinnar, við
Kringlumýrarbraut, hef-
ur sífellt verið að hækka
í sumar og eru sumir
farnir að velta því fyrir
sér hversu margar haeðir
húsið eigi að vera. Flogið
hefur fyrir að ekki verði
hætt fyrr en húsið trónar
upp í ský — en það þótti
okkur á Morgunblaðinu
ekki trúleg saga. Blaða-
maður og ljósmyndari
voru því sendir út af
örkinni til að fá fram það
sanna í málinu.
Við hittum Pál Trausta
Jörundsson, verkstjóra,
þar sem hann var að
vinna á þriðju hæð húss-
ins. „Við erum að slá upp
fyrir þrettándu og síðustu
hæð hússins núna,“ sagði
Páll er hann var spurður
hversu húsið yrði hátt,
„ofan á hana kemur svo
stálgrindarhús fyrir þá
sem vilja njóta útsýnisins
þarna uppi. Fullbyggt
verður húsið 47 m á hæð
en undir því er svo
tveggja hæða kjallari til
viðbótar, — það er þannig
stærsta íveruhús á ís-
landi. Við erum komnir
það hátt að við verðum að
hafa ljós á byggingar
krananum vegna flugvél-
anna. — Það var hafist
handa við þessa byggingu
1975 að því er mig minnir
og lokið við kjallarann
1976. Svo lá vinna niðri í
tvö ár en við byrjuðum að
steypa upp húsið 1978.
Þetta hús er að mestu
leyti ætlað undir skrif-
stofustarfsemi en einnig
verða hér fundarsalir og
fleira. Planið hérna fyrir
framan á að verða eins
konar torg og verður
byggt yfir það að hluta í
framtíðinni," sagði Páll
að lokum.
Kjallarinn undir Húsi
verzlunarinnar, sem er
tvær hæðir, er geysiflókið
völundarhús. Þar eru
meðal annars eldtraustar
og allrammlegar geymsl-
ur þar sem varðveitt
verða skjöl og peningar í
framtíðinni.
Kristinn Sveins, bygg-
ingarmeistari, hefur ann-
ast framkvæmdirnar við
Hús verzlunarinnar og
Eiríkur Jónsson verið
múrarameistari. í samtali
við Morgunblaðið sagði
Kristinn að verkinu hefði
miðað vel og hefði það
farið eftir áætlun bæði
hvað tíma og kostnað
varðaði.
Espijíorðisblokkirnar Knæfa við himin.
•v... , ■•*#!!!."""‘Vf
Séð yíir Smáibúðahverfið og upp i Breið-
holtshverfi. Ljósm. Emilia
Hlíðarnar og örfirisey.
Séð út yfir Sundin.