Morgunblaðið - 24.08.1980, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.08.1980, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1980 55 fflf 1980 v DEMOCRATIC §f WATIOKAL m COWVEKTION MadisonSguare Garden NewYorkCity August 11-14 'iWZ' JohnWhite, *>•* ehairman NEWS PERIMETER 002966 Klapp, hopp og hí er partur af landsþingum bandarísku stjórnmálaflokkanna. Repú- blikanar tóku þátt í því af einlægri innlifun og ætluðu allt að æra, en eitthvað vantaði allan tímann upp á galsa Demókrata. Flokkurinn var klofinn milli Carters og Kenn- edys, það er rétt, en Kennedy dró framboð sitt til baka og lýsti yfir stuðningi við Carter á þinginu, og stuðningsmenn Carters voru í meirihluta. Fögnuðurinn yfir sigri hans hefði því átt að vera mikill og einlægur. En það var ekki, fyrr en Kennedy birtist alvarlegur í bragði við hlið Carters í skamma stund við lok þingsins að fagnaðarlætin náðu hámarki og virtust veruleg. Þau þögnuðu þegar hann fór niður af pallin- um aftur, þótt frambjóðandi flokksins stæði eftir og héldi GATE SECTION ROW SEAT A 25 15 13 yChairman, CjÆS' Repubíican Nationai Contmittei Mortday, July 14th First Sesss'on 1I;00 o.m. PRESS JULY1980 Detroit • Michigan áfram að veifa þingfulltrúum. Ronald Reagan var sigurveg- ari í Detroit, en erfitt er að kalla Jimmy Carter sigurveg- ara í New York. Kennedy segist ætla að hjálpa honum í barátt- unni. En óvíst er, hversu mikla vinnu „the Fat Kid from Massachusetts", eins og starfs- menn Carters kalla hann, mun leggja í baráttuna fyrir endur- kjöri Carters, sem hann kallaði afsprengi Reagans í forkosn- ingabaráttunni. Carter sagði í þakkarræðu sinni, að flokkur- inn þyrfti á stuðningi Kennedys að halda, til að sigra Repúblik- ana. Ef einhver vafi lék á því fyrir landsþingið, er það aug- ljóst að því loknu. Jimmy Cart- er hlaut forsetaútnefningu Demókrata, en Edward Kenn- edy stóð með pálmann í hönd- unum að þingi þeirra loknu. ab. „20 ára kenningin“ rif juð upp Forsetakosningarnar í Banda- ríkjunum 1980 færast óðum nær. Það minnir á hina hryllilegu „20 ára kenningu", sem fæstir vilja taka alvarlega, en vekur þó ugg í brjósti margra. Kenningin segir, að Banda- ríkjaforsetar, sem kjörnir eru á 20 ára fresti eftir 1860, láti lífið í embætti. Hún hlaut fyrst hljómgrunn, eftir að McKinley, sem var kjörinn árið 1900, lézt á fyrsta kjörtímabili sínu í emb- ætti. Saga „20 ára“ forsetanna eftir 1360 er þessi: 1860: Abraham Lincoln kjör- inn í fyrsta sinn. Hann var skotinn 1865 í Ford leikhúsinu í Washington DC. John W. Booth leikari framdi ódæðið. 1880: James Garfield kjörinn forseti. Hann var myrtur 1881 á lestarstöðinni í Washington. Charles J. Guiteau, sem var veill á geðsmunum, skaut hann. 1900: William McKinley kjör- inn forseti. Stjórnleysingi skaut hann í Buffalo, New York 1901. 1920: Warren Harding kjör- inn forseti. Hann lézt af völdum lungnabólgu á leið frá Alaska 1923. 1940: Franklin D. Roosewelt kjörinn forseti í annað sinn. Hann lézt af völdum veikinda í Warm Springs, Georgia, 1945. 1960: John F. Kennedy kjör- inn forseti. Hann var myrtur í Dallas, Texas, 1963. Enn er deilt um sekt Lee Harwey Oswalds. Von manna er, að kenningin hafi aðeins gilt í eina öld. ab. -------------------------------------^ Vantar ykkur skólaúlpur eöa hlýjan galla á börnin fyrir veturinn? Komið í Lillý, Laugavegi 62, og skoðið úrvalið Tökum upp á morgun geysi fallegt úrval af úlpum og göllum. Gott verö! Barnafataverslunin Lillý, Laugavegi 62. W% FLATASKÚLI Skólinn tekur til starfa 1. september. Árganga- og skipulagsfundir veröa 1. 2. og 3. september. Almennur kennarafundur veröur mánudaginn 1. september kl. 9.00 árdegis. Nemendur komi í skólann fimmtudaginn 4. septem- ber, sem hér segir: Flataskóli 6. bekkur kl. 9.00 3. og 2. bekkur kl. 13.00 5. bekkur kl. 10.00 1. bekkur kl. 14.00 4. bekkur kl. 11.00 6 ára bekkur kl. 10.30 Hofstaóaskóli 6 ára bekkir kl. 11.00 1. og 2. bekkir kl. 13.00 3. bekkur kl. 14.00 Ath. Innritun nýrra nemenda fer fram í Flataskóla daglega frá kl. 10—12 og kl. 13—15. Sími 42756. Nemendur, sem flytja, tilkynni brottflutning sinn nú þegar. Nýir nemendur hafi meö sér skilríki frá nörum skólum. Skólastjóri. Innlent. 1906 Sæsímasamband við útlönd opnað — 1794 d. Björn Halldórsson prófastur — 1841 d. Bjarni Thorarensen — 1754 f. Stefán Þórarinsson amt- maður — 1647 Kæra Þórðar sýsl. Henrikssonar um verzlun- arhætti í Hólminum — 1714 Oddur Sigurðsson bjargast við Látrabjarg — 1878d. Gísli Magnússon kennari — 1885 Jón Ólafsson segir af sér þing- mennsku — 1899 Alþingi styður stofnun hlutafélagsbanka — 1942 Árás á togarann „Vörð“ — 1960 Bæjarstjóranum á Akra- nesi vikið úr starfi. — 1967 Norræna húsið vígt — 1978 Vinstri viðræður út um þúfur — 1892 f. Björn K. Þórólfsson — 1896 f. Jón Kaldal - 1959 d. Kristín Jónsdóttir listmálari. Orð dagsins: Sárara öllu er að eiga vanþakklátt barn — Shake- speare. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.