Morgunblaðið - 30.08.1980, Page 1
44 SÍÐUR OG LESBÓK
195. tbl. 68. árg. LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980_____________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Misjafnt mat á
hafréttarfundi
Genf. 29. ágúst. AP.
HLE var gert á Hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í Genf i dag og
mönnum bar ekki saman um hve
langur timi mundi líða þar til
endanlegur samningur lægi fyrir.
Tíundi fundur ráðstefnunnar verð-
ur haldinn i marz eða apríl.
Um það er ekki deilt að ráðstefnan
hefur færzt nær settu marki. Banda-
ríski aðalfulltrúinn, Elliot L. Rich-
ardson, sagði að samningaviðræð-
urnar í ár hefðu borið svo mikinn
árangur, að líklega mundu sagnfræð-
ingar telja þær „mikilvægasta at-
burðinn í sögu friðsamlegrar sam-
vinnu og þjóðarréttar síðan Samein-
uðu þjóðirnar voru settar á fót.“
Aðrir fulltrúar voru varkárari.
Kanadíski aðalfulltrúinn, J. Alan
Beesley, var sammála því að ráð-
stefnan væri nær lokasamningi, en
sagði að „óútkljáð mál gætu gert
ráðstefnuna að engu ...“ Hann hefur
áður sagt, að texti samningsdrag-
anna virðist miðast of mikið við hag
þróunarríkja og hætt sé við að hann
verði dauður bókstafur.
Herbert Dreher, aðalfulltrúi
Vestur-Þjóðverja, sagði um nýjan
texta, sem var birtur í dag, að ekki
væri hægt að kalla hann óformlegt
samningsuppkast eins og gert væri,
því að hann ætti slíkt heiti ekki skilið
þótt talsverður árangur hefði náðst.
Meðal óleystra mála eru skipun
nefndar til að ákveða reglur um
vinnslu málma á hafgbotni, landhelg-
isdeilur og hugsanleg aðild samtaka
eins og Efnahagsbandalagsins og
Frelsissamtaka Palestínu (PLO) að
hafréttarsáttmála.
Sjá einnig bls. 3.
Rússar dæma
andófskonuna
Moskvu. 29. ágúst. AP.
SOVÉZKA andófskonan Tatyana
Velikanova var í dag dæmd í
fjögurra ára fangelsi og fimm ára
útlegð á afskekktum stað að sögn
Tass.
Áhorfcndur í réttarsalnum hróp-
uðu: „Ekki nóg, ckki nóg,“ þegar
dómurinn var lesinn. Flestum
stuðningsmönnum frú Velikanova
var meinað að fylgjast með réttar-
höldunum.
Annar kunnur andófsmaður,
presturinn Gleb Yakunin, var í gær
dæmdur í fimm ára nauðungarvinnu
og fimm ára útlegð. Þetta eru fyrstu
meiriháttar réttarhöld gegn andófs-
mönnum eftir Ólympíuleikana.
Um 20 stuðningsmenn frú Veli-
kanovu hrópuðu nafn hennar þegar
henni var ekið á brott eftir réttar-
höldin. Hún tók lítinn þátt í réttar-
höldunum og neitaði að undirrita
yfirlýsingar áður en þau hófust. Þó
sagði hún fyrir rétti í gær: „Skrípa-
leiknum er lokið." Hún fékk ná-
kvæmlega þann dóm sem sækjandi
krafðist.
Tass segir að frú Velikanova hafi
tekið þátt í and-sovézkum áróðri
1909—79, skrifað rógsgreinar, dreift
þeim innanlands og sent þær úr
landi. Hún og Yakunin voru handtek-
in 1. nóvember sl.
Sólin í öskunni
» Aska og mistur skyggja á sólina
þegar hún hnígur til viðar. Myndin
var tekin um níuleytið í fyrrakvöld á
Seltjarnarnesi.
Ljósm. Mbl. ÓI.K.M.
Ný verkföll í Póllandi
- viðræður í ógöngum
Varsjá, 29. ágúst. AP.
NÝ VERKFÖLL brutust út víða í Póllandi í dag þrátt
fyrir áskoranir frá stjórnvöldum, kaþólsku kirkjunni
og jafnvel verkfallsleiðtogunum sjálfum, að þess verði
gætt að ástandið versni ekki.
í Washington var sagt, að Jimmy Carter forseti hefði
beðið Helmut Schmidt, kanzlara Vestur-Þjóðverja. í
bréfi, að gera allt sem í hans valdi stæði til að hjálpa
verkfallsmönnum í Póllandi. Sagt var, að bréfið væri
fremur ábending en nýtt frumkvæði frá forsetanum.
Tatyana Velikanova
Sovézkt skip
á suðurleið
Washington, 29. ágúst. AP.
SOVÉZKA flugvélamóðurskip-
ið „Minsk“ siglir nú suður á
bóginn frá Kyrrahafsborginni
Vladivostok 1 fyrsta skipti i
rúmt ár og er sennilega á leið
til Indlandshafs, samkvæmt
handarískum leyniþjónustu-
heimildum i dag.
„Minsk", 40.000 lestir, er
eina flugvélamóðurskip Rússa í
Austurlöndum fjær. Rússar hafa
26 herskip á Indlandshafi, en
ekkert flugvélamóðurskip.
„Minsk" var í tvo mánuði í fyrra
á Indlandshafi.
Bandaríski sjóherinn hefur
tvö flugvélamóðurskip á svæð-
inu, „Eisenhower", 95.000 lestir
og „Midway", 64.000 lestir. Alls
eru 35 bandarísk herskip á
þessum slóðum, en sjö þeirra eru
birgðaskip á eynni Diego Garcia.
I Lenin-skipasmíðastöðinni í
Gdansk frestuðu fulltrúar ríkis-
stjórnarinnar nýjum fundi, á sama
tíma og sagt var að verkamenn í
kola- og stáliðnaðinum hefðu hótað
að leggja niður vinnu ef engin
lausn fyndist.
Pólska sjónvarpið sagði, að
„ástandið hefði ekki breytzt og
raunar breytzt til hins verra“.
Fréttaskýrandi sjónvarpsins sagði,
að ný verkföll flutningaverka-
manna hefðu hafizt í Lodz, annarri
stærstu borg Póllands, Wroclaw og
á kolanámusvæðinu Walbrzych,
nálægt landamærum Tékkósló-
vakíu.
Útvarpsfréttir hermdu, að vinna
hefði einnig verið lögð niður í
héruðunum Torun, Bydgoszcz og
Wloclowek vestan við Varsjá og
kröfur verið settar fram. En sagt
var, að vinna hefði hafizt aftur í
einni verksmiðju í suðvesturhérað-
inu Legniza og í tveimur verk-
smiðjum í Bydgoszcz og vinna
hæfist á ný á þriðja staðnum á
morgun.
Útvarpið í Wroclaw sagði, að
borgarbúar væru „rólegir þrátt
fyrir erfiðleika. Ekkert bendir til
reiði eða of mikils nöldurs. Viss
taugaóstyrkur, sem greinilega hef-
ur gætt í verzlunum að undan-
förnu, er jafnvel horfinn.“
Verkfallsmenn segja, að 300.000
verkamenn í 627 fyrirtækjum á
Gdansk — Gdynia — Sopot-svæð-
inu hafi lagt niður vinnu og
hundruð þúsunda annarra verka-
manna virðast vera í verkfalli á
öðrum stöðum.
Gdansk-útvarpið segir, að 47
skip pólska úthafsskipafélagsins —
þriðjungur alls flota fyrirtækisins
— bíði löndunar í Eystrasaltshöfn-
um. Von er á fleiri skipum á næstu
dögum og viðkvæmur varningur
getur farið forgörðum.
Frá Szczecin á Eystrasalts-
ströndinni berast fréttir um alvar-
legan matvælaskort og svarta-
markaðsbrask vegna ástandsins.
Kazimiercz Barcikowski varafor-
sætisráðherra segir, að samkomu-
lag hafi tekizt í viðræðum í Gdansk
í 27 atriðum, en sex séu óleyst,
bæði varðandi laun og skipulag
verkalýðsfélaga. Staðfest var í
Varsjá, að viðræður hæfust aftur
kl. 8 að staðartíma á laugardag. •
Talsmaður verkfallsmanna
sagði, að rammi samkomulags um
verkalýðsfélög samræmdist óskum
þeirra í aðalatriðum. Verkfalls-
menn hafa sakað samninganefnd
Miecyzslaw Jagielski, fyrsta vara-
forsætisráðherra, um þóf í viðræð-
unum.
KGB þjarmar að
sendimanni Kína
PekinK. 29. ágúst. AP.
KlNVERJAR sökuðu Rússa í
dag um að hóta einum sendi-
ráðsmanna sinna í Moskvu líf-
láti og reyna að fá hann til að
strjúka. Harðorð mótmæli voru
send sovézka sendiráðinu í Pek-
ing og ráðstafana krafizt til að
tryggja öryggi sendiráðs-
mannsins.
Atburðurinn gerðist í Minsk 17.
ágúst, þegar sendiráðsstarfsmað-
urinn Wang Haiyan kom þangað á
leið til Moskvu ásamt öðrum
Kínverja frá Vestur-Þýzkalandi,
þar sem þeir höfðu verið í opinber-
um erindagerðum. Þeim var sagt í
hóteli í borginni að aðeins ein-
staklingsherbergi væru laus.
Um miðnætti ruddust tveir
Rússar inn í herbergið, kynntu sig
sem starfsmenn KGB og reyndu
að fá Kínverjana til samstarfs við
sig samkvæmt mótmælunum. Þeg-
ar Wang neitaði, reyndu Rússarn-
ir að beita þrýstingi með upplogn-
um ásökunum og sögðu að Wang
hefði safnað leynilegum upplýs-
ingum í Sovétríkjunum.
Einnig hótuðu Rússarnir því
samkvæmt mótmælunum að setja
á svið umferðarslys til að koma
Kínverjunum fyrir kattarnef á
leið þeirra til Moskvu, ef þeir
neituðu að fallast á kröfurnar.