Morgunblaðið - 30.08.1980, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980
TUTTUGASTI og fyrsti úrslita-
leikur í bikarkeppni KSI fer fram
á Lautíardalsvellinum annað kvöld
og hefst hann klukkan 14.00. Þar
eigast við bikarmeistarar síðasta
keppnistímabils, Fram, og Is-
landsmeistarar síðasta sumars,
ÍBV, sem sagt stórleikur. IBV
hefur ekki sigrað í keppni þessari
síðan 1972 og reyndar aðeins
Fram og ÍBV mætast í 21.
úrslitaleik bikarkeppni KSÍ
TBV
þrívegis leikið til úrslita síðan
1968. 1970 vildi svo sérkennilega
til að þá mætti liðið einnig Fram.
Sigraði Fram, 2—1. Frömurum
hefur gengið betur í keppni þess-
ari, en eins og áður sagði varð liðið
bikarmeistari í fyrra, sigraði þá
Val, 1—0, í úrslitaleik. Alls hefur
Fram leikið sex sinnum til úrslita
og unnið tvívegis, ÍBV, 2—1, 1970
eins og áður sagði, síðan ÍBK,
2—1, árið 1973.
Það má að sjálfsögðu búast við
miklum baráttuleik og á ýmsu
hefur gengið í leikjum Frarrí og
IBV í sumar. Fram hefur unnið
báða deildarleikina, samtals 3—0,
en IBV kom fram hefndum í
meistarakeppninni, sigraði þá eft-
ir framlengingu og vítaspyrnu-
keppni. Þótti sá leikur mjög opinn
og fjörugur. Hvernig fer á morgun
skal hér engu spáð um. Þess má
geta, að Tómas Árnason ráðherra
verður heiðursgestur og mun af-
henda sigurlaun í leikslok.
- KK-
„Við höfum vel til unnið“
- segir nestorinn Páll Pálmason
• Sighvatur í þann mund að slá
á fingur sinn. Ljórnn. SinurKeir.
„Fram
er
ÞAÐ LÁ vel á Páli Pálmasyni á
fimmtudagsmorgninum þegar
við Mbl.menn sóttum hann heim
á vinnustað hans i Fiskimjols-
verksm. í Vestmannaeyjum þar
sem hann starfar sem verkstjóri.
Páll og félagar hans í ÍBV-liðinu
hofðu kvoldinu áður unnið góðan
sigur á Víkingi og því var gott
hljóð í monnum i Eyjum þennan
ágústmorgun. Við báðum Pál um
smáspjall vegna úrslitaleiksins í
Bikarkeppninni á sunnudaginn
og var það auðsótt mál.
Þetta verður ekki í fyrsta skipt-
ið sem Páll leikur í úrslitum
Bikarkeppninnar því á sunnudag-
inn leikur hann sinn fjórða
úrslitaleik. „Já þetta verður fjórði
leikurinn," sagði Páll, „fyrst var
það 1968 þegar við unnum KR b,
2—1, síðan kom tapleikur við
Fram 1970, 2—0, og síðan unnum
við FH 1972, 2—0. Allar þessir
leikir voru á gamla „góða“ Mela-
vellinum og fóru fram við hörmu-
legar aðstæður, í kulda og trekk í
vetrarbyrjun. Þegar við lékum við
FH var þriggja stiga frost og í
leiknum við Fram 1970 kom snjó-
bylur í miðjum leik. Að leika nú er
ekki saman að jafna við það sem
áður var, nú eru bikarúrslitin
orðin að viðburði og fólk kemur að
horfa á góða leiki við góðar
aðstæður."
Um leiki ÍBV á leiðinni í úrslitin
og keppnistímabilið hjá ÍBV hafði
Páll Pálmason m.a. þetta að segja:
„Við höfum náð upp góðum leikj-
um í Bikarkeppninni í sumar og
unnið góða sigra á þremur öðrum
1. deildarliðum, KR, ÍBK og
Breiðablik, og tvö þessara liða
lögðum við á útivelli. Við höfum
því vel til unnið að komast í
úrslitin. í 1. deildinni hefur fá-
dæma mótlæti elt okkur allt frá
byrjun. Við höfum tapað ekki
færri en fimm stigum á síðustu
mín. leikja sem við vorum komnir
með unna stöðu í. Þá hafði meiðsli
og leikbönn leikið okkur grátt og
þegar verst lét vorum við komnir
með sjö menn á sjúkralista. Þegar
þetta allt saman bætist við það að
við misstum frá okkur þrjá topp-
menn fyrir mótið, þá skal engan
undra að eitthvað láti undan."
— Og svo er það leikurinn á
sunnudaginn Páll, hverja telur þú
vera möguleika ÍBV? „Við eigum
góða möguleika á að vinna Fram-
arana á sunnudaginn en þá verð-
um við líka á ná upp góðri baráttu
og vinna vel saman eins og við
höfum gert í fyrri bikarleikjum
okkar. Ef við náum upp góðri
baráttu þá er ég ekki í nokkrum
vafa um að við vinnum leikinn.
Þetta verður fjórða viðureign
okkar við Fram í sumar og við
eigum nú harma að hefna á þeim.
Þeir unnu okkur, 1—0, í báðum
• Páil mundar sleggju.
deildarleikjunum og voru þar
þrælheppnir, en við náðum að
vinna þá í Meistarakeppninni eftir
vítaspyrnukeppni. Bikararnir
vilja til okkar Eyjamanna! Við
Eyjamenn stefnum ákveðið að því
að vinna Bikarinn á sunnudaginn.
Ljóst er þó að leikurinn verður
erfiður og mikil pressa verður á
mannskapnum, en ég er mjög
bjartsýnn. Verð að vera það svona
á gamalsaldrinum!" — hkj.
sannkallað
varnarlið“
MIKIÐ (tg stórt skarð var hoggv-
ið í varnarvegg ÍBV þcgar liðið
varð að sjá á eftir þeim Erni
Óskarssyni og Valþóri Sigurðs-
syni. miðvorðunum sterku. yfir í
önnur lið. En máltækið segir að
maður komi í manns stað og það
hafa þeir Eyjamenn sannreynt i
sumar. Gústaf Baldvinsson og
Sighvatur Bjarnason hafa staðið
sig mjog vel í sínum nýju stöðum.
Mhl.menn kíktu inn í Frystihús
FIVE á fimmtudaginn og raddu
stuttlega við hinn 18 ára miðvörð
ÍBV, Sighvat Bjarnason. í tilefni
úrslitaleiks Bikarkeppninnar.
Sighvatur stundaði í vetur nám
við Verslunarskólann í Reykjavík
og átti því ekki létt með að æfa
með liði sínu í vetur og vor.
„Eg kom ekki heim til Eyja fyrr
en um miðjan maí og hélt satt að
segja að ég ætti ekki mikla
möguleika að komast í liðið fyrr
en þá þegar líða tæki á sumarið.
En 4. júní lék ég minn fyrsta
deildarleik og hefi verið í liðinu
síðan. Það eru gífurleg viðbrigði
að leika í 1. deildinni frá því að
leika í 2. flokki, meiri alvara og
harka. Það hefur verið gaman að
takast á við þetta í sumar og
maður öðlast aukna reynslu með
hverjum leik. Toppurinn yrði svo
að sjálfsögðu ef við vinnum Fram
á sunnudaginn. Þetta hefur nokk-
uð skipst í tvö horn hjá okkur í
sumar. Við höfum fundið okkur
vel í bikarleikjunum en illa haldið
takti í deildinni. Annars höfum
við held ég aldrei verið með okkar
sterkasta lið í sumar, alltaf hafa
einhverjir verið meiddir eða þá í
leikbanni."
Sighvatur stendur nú frammi
fyrir því á sínu fyrsta ári í mfl.
ÍBV að hljóta Bikarmeistaratitil,
takist honum og félögum hans að
bera sigurorð af Fram á sunnu-
daginn. Hvað heldur hann sjálfur
um möguleika ÍBV?
„Við eigum alla vega jafna
möguleika og þeir að vinna leik-
inn. Þetta verður örugglega
hörkuleikur og mikil barátta því
til mikils er jú að vinna. Ég gæti
trúað að það liðið sem verður
fyrra til að skora mark vinni
leikinn. Fram er sannkallað varn-
arlið og það verður því erfitt verk
hjá sóknarmönnum okkar að
vinna á þessum varnarmúr þeirra,
en strákarnir frammi hafa skorað
átta mörk í Bikarkeppninni í
sumar og þeir eiga örugglega eftir
að skora í úrslitaleiknum. Við sem
skipum heimavarnarliðið undir
forystu Páls Pálmasonar munum
svo leggja okkur alla fram um að
koma í veg fyrir að Framarar
skori í leiknum. Við ætlum okkur
sigur á sunnudaginn og vilji svo
illa til að við töpum, verður það
ekki vegna skorts á vilja hjá okkur
leikmönnunum," sagði hinn korn-
ungi en sterklegi miðvörður ÍBV,
Sighvatur Bjarnason, og er hann
greinilega tilbúinn í slaginn á
sunnudaginn. — hkj.
• Marteinn vill fjórða
launapeninginn.
verð-
menn, þeir berjast til síðasta
blóðdropa,“ sagði Marteinn
Geirsson, fyrirliði Fram, er
Morgunblaðið innti hann eftir
möguleikum Fram á að hreppa
bikarinn eftirsótta. Eins og lesa
má. er Marteinn hóflega bjart-
sýnn. Mbl. spurði Martein því
na*st hvort leikmenn liðsins væru
undir álagi vegna þess að liðið
berst til sigurs á tveimur víg-
stöðvum.
„Það er búið að vera t.öluvert
álag, sérstaklega um tíma, er
Víkingarnir voru jafnir okkur að
stigum og Valsmenn á undan. Þau
lið £átu þá einbeitt sér algerlega
að Islandsmótinu, en við áttum þá
eftir að mæta FH í undanúrslitum
og standa síðan í málaferlunum
sem í kjölfarið kornu," sagði Mar-
teinn. Mbl. spurði Martein um hæl
hvernig stæði á sveiflunum í
„Eyjamenn verða
mjög erfiðir"
hafa gengið til hinna ýmsu leikja.
Áhugi fyrir sumum leikjum hefur
verið í lágmarki og slíkt kallar
fram hugarfarsbreytingu."
En hvernig verður liðið á morg-
un? „Það er ekki búið að velja það.
Þrír okkar eiga við meiðsl að
stríða og þjálfarinn getur ekki
valið endanlegt lið fyrr en sýnt
verður með okkur Trausta og Jón
Pétursson. Trausti fékk slæmt
spark gegn FH og var mjög
bólginn um tíma. Það var þó
eitthvað að lagast. Svo tóku sig
upp gömul meiðsl hjá Jóni og ég
veit ekki hvernig honum reiðir af.
Sjálfur er ég mun betri, þó ekki
alheill."
Marteinn er reynd kempa í
úrslitaleikjum, hann leikur á
morgun til úrslita um bikarinn í
fjórða skiptið. Alltaf hefur hann
verið í sigurliði. „Já, það er rétt, og
ég er bjartsýnn á að framhald
verði á þeirri velgengni. Þó þori ég
engu að spá um leikinn, þ.e.a.s.
umfram það að Fram vinnur leik
þennan," sagði Marteinn að lok-
„Ég tel möguleika okkar þó
nokkra. en Eyjamenn verða erfið-
ir, Eyjamenn eru jú alltaf Eyja-
leikjum F'ram. „Það er fyrst og
fremst fólgið í því hvernig hugar-
fari ýmsir af leikmönnum liðsins
„Þeir verða dýrvitlausir"
• Pétur ætlar að skora tvívegis.
„Þetta verður örugglega
hörkuleikur og ekkert gefið eftir.
ekki þumlungur" sagði Pétur
Ormslev í stuttu spjalli við Mbl..
en Pétur fær ásamt öðrum það
hlutverk að skora markið eða
mörkin sem færa Frömurum bik-
arinn. Pétur er sem stendur einn
markahæsti ieikmaður 1. deildar
og Eyjamenn mega alls ekki líta
af honum ef þeir ætla ekki að
hljóta af skaða. Morgunblaðið
spurði Pétur því næst hvernig
leikurinn legðist i hann.
„Hann leggst mjög vel í mig,
enda tel ég Fram vera mun
sigurstranglegra lið. Við erum
með betri markvörð, betri vörn og
yfir höfuð betri einstaklinga. En
þetta verður engu að síður erfiður
leikur, Eyjamenn verða dýrvit-
lausir og gefa okkur engan frið.
Þeir standa sig oft best þegar
mest á reynir, en ég tel engu að
síður að Fram hreppi bikarinn."
En finnst þér erfiðara að leika
gegn ÍBV heldur en gengur og
gerist með 1. deildar varnir? „Já,
ég er ekki frá því. Baráttan í
liðinu er svo rosaleg, þeir sparka
og berjast villt og galið, ætla ekki
að sleppa einu eða neinu fram hjá
sér, þeir eru erfiðir mótherjar."
Mbl. spurði næst um sveiflu-
kennda leiki Fram í sumar og '
hvort það væri vegna „pressu“ yfir
að vera með járn í eldinurn á
tveimur stöðum, þ.e.a.s. með í
baráttunni bæði um deild og
bikar. „Ég hef ekki orðið var við
neitt sérstakt álag vegna stöðu
liðsins. Hins vegar hafa svona
sveifluleikir alltaf verið viðloð-
andi Fram—liðið. Ég held samt að
við sýnum ekki okkar verri hlið í
úrslitaieiknum, menn gera sér
nefnilega góða grein fyrir mikil-
vægi leiksins." Mbl. bað Pétur að
lokum að spá um úrslit leiksins.
„Já, ég vil mjög gjarnan spá, við
vinnum 3—1 og ætla ég að skora
tvö mörk,“ svaraði Pétur hógværð-
in uppmáluð.