Morgunblaðið - 05.09.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1980
Áttræður íslandsvinur:
Regine Dinse
Afmæliskveðja
Það finnst víst flestum ótrúlegt,
sem eitthvað þekkja til hinnar
síungu Regínu, að hún standi nú á
áttræðu. En staðreyndir tala þar
sínu máli, hún fæddist 5. sept.
1900
En lífdagar mælast ekki ein-
göngu í ártölum, þar er þyngra á
metunum, hvernig fólkið hefir
varið lífi sínu, hverju það hefir
fengið áorkað og hver uppskeran
hefir orðið.
um, kenndi hún húsfreyju að
rækta grænmeti. En það var ekki
nóg að rækta grænmeti, það þurfti
líka að kenna fólkinu að borða
grænmeti. Þetta var lítt þekkt á
Islandi á þeim árum og mun fólkið
í sveitinni hafa talað um, að
húsfreyjan á Breiðabólsstað gæfi
hjúum sínum gras að borða. Mun
undrun Regínu yfir grænmetis-
leysinu og áhugaleysinu gagnvart
því, hafa verið jafn mikil. En hún
naut þessa brautryðjandastarfs.
Betsý Jóns-
dóttir sextug
Regine Dinse var og er enn
mikil mannkostakona. Fyrir ná-
lægt 55 árum lá leið hennar til
Islands, kannské fyrir tilviljun
eða glettni örlaganna. Mér hefir
verið tjáð, að hún hafi lesið
auglýsingu í þýzku dagblaði, þar
sem auglýst var eftir stúlku, sem
vildi koma til íslands á prestsset-
ur og kenna dætrum prestsins
þýzka tungu og orgelleik. Þessi
auglýsing vakti athygli hennar og
áhuga, en faðir hennar, sem var
prófessor við háskólann í Kiel, var
þessu mjög mótfallinn. Latti hann
dóttur sína fararinnar og færði
m.a. þau rök, að ekki gæti hún
tekið að sér slík störf, þar sem hún
kynni ekki orgelleik sjálf. „Ég get
lært það,“ svaraði hún. Síðan
skrifaði hún og sótti um starfið og
tók tíma í orgelleik á meðan hún
beið eftir svari. Regina er músík-
ölsk og mun hafa kunnað eitthvað
fyrir sér í að leika á önnur
hljóðfæri. Á sama tíma átti hún
þess einnig kost að fara til Suður-
Ameríku. Er svarið barst frá
íslandi, mun það hafa ráðið úrslit-
um um í hvora áttina hún færi og
hefir það orðið fjölmörgum ís-
lendingum til góðs, að svo varð. Sá
sem auglýsti var séra Jón Norð-
fjörð Jóhannessen á Breiðabóls-
stað á Skógarströnd. Faðir Regínu
las bréfið, sem séra Jón ritaði og
dáðist mjög að stíl þess, fagurri
rithönd og ekki síður hversu vel
það var skrfiað á þýzka tungu og
kvaðst ekki finna í því nokkra
ritvillu. Var hann mun sáttari við
þann ráðahag, að dóttirin færi til
Islands. Á íslandi var hún í 2 ár
samfleytt, lengst af á Breiðabóls-
stað. Auk þess að kenna dætrun-
Regína hefir alltaf notið þess að
miðla öðrum, kenna fólki að meta
hlutina, og hafa gagn og gaman af
því, sem það tekur sér fyrir
hendur. Góðvild og nægjusemi eru
meðal hennar kosta. Sjálf átti hún
gott með að læra, enda lærði hún
að tala og skrifa íslenzku ótrúlega
vel og gerir hvort tveggja enn.
Regína ferðaðist töluvert um
Island með prestsdætrunum og
gekk þá á sauðskinnsskóm eins og
þær. Éitthvað fannst henni skórn-
ir duga illa í Öræfunum, enda ekki
eins greiðfært þá og nú er orðið.
Eftir að Regína kom aftur til
Þýzkalands, réðst húní það að
byggja hús í þorpinu St. Peter við
Norðursjóinn og var hugmyndin
að koma þar upp aðstöðu til að
mennta stúlkur, kenna þeim
tungumál, hannyrðir, vefnað o.fl.
Svo miklu ástfóstri hafði hún
tekið við ísland, að hún skírði
húsið sitt íslandshús (Islandhaus).
Hafði hún mikinn áhuga fyrir að
hjálpa íslenzkum stúlkum til að
kynnast öðrum þjóðum og vildi
skapa þeim aðstöðu til þess. í
kringum 1930 munu margar stúlk-
ur hafa verið þar á hennar vegum
og útvegaði hún þeim ýmsa vinnu.
Regína hefir alltaf verið mjög
dugleg að ferðast og vildi hún
einnig stuðla að því að íslenzkar
stúlkur fengju tækifæri til að
ferðast. Einn af þeim, sem komst í
kynni við Regínu, var Þorsteinn
heitinn Jósefsson, blaðamaður.
Slóst hann í för með Regínu og níu
íslenzkum stúlkum frá Hamborg
til Sviss og segir hann frá þeirri
ferð í bók sinni „Ævintýri föru-
sveins" útg. 1935.
Regína hefur kunnað þá list, að
haga seglum eftir vindi. Eftir þær
breytingar, sem heimsstyrjöldin
hafði í för með sér, hóf hún störf
að nýju í húsi sínu og rak þar
barnaheimiii, ásamt vinkonu
sinni, Lotte Gramlow.
Þangað komu börn í hópum til
dvalar um nokkurra vikna skeið,
hver hópur. Voru þetta börn, sem
send voru til hressingar í sjávar-
loftinu. Fyrir hvern hóp var hald-
inn Islandsdagur. Börnunum var
sagt frá Islandi, þeim var kennt að
syngja íslenzk lög og þegar mikið
var um að vera fór Regína í
íslenzku peysufötin sín. Islend-
ingar hfa alltaf verið aufúsugestir
hjá Regínu og dró hún íslenzka
fánann að húni til að fagna góðum
gestum.
Seinna hafði hún milligöngu um
að íslenzkar stúlkur fengju fría
skólavist á heimavistarskóla í
Lunden í Holstein hjá þeim ágætu
Oldings rektorshjónum.
Regína hefir oft komið til ís-
lands. Síðast var hún hér fyrir 10
árum og var þá haldið upp á
afmæli hennar á Hótel Loftleið-
um. Kom þá mjög eftirminnilega
fram, hve samhuga allir voru, sem
þekkja Regínu, að gera henni
daginn ánægjulegan. Ég veit að
henni fannst þetta góður dagur, en
það fannst okkur líka öllum, sem
þar vorum með henni. Einmitt
þannig er Regína, hún vill að allir
njóti með sér. Nú er það ósk okkar
og von, að Regína megi enn njóta
góðra daga og að við eigum enn
eftir að njóta þess, að fá að sjá
hana á íslandi.
Heill þér, góða kona, sem vilt
veg Islands svo góðan.
Dóra G. Jónsdóttir.
Félagi okkar, Betsý Jónsdóttir
er sextug í dag. Af þvi tilefni
langar okkur að senda henni og
fjölskyldu hennar okkar bestu
kveðjur og þakkir fyrir gott sam-
starf.
Betsý hefur frá unga aldri
starfað sem hermaður Krists í
Hjálpræðishernum. Hún er alin
upp á kristnu heimili og hlaut þar
það veganesti sem mikilvægast er
í lífinu, að treysta og trúa á Jesúm
Krist. Hún tók snemma við
Drottni sem sínum frelsara og lét
vígjast til starfa fyrir Guð í
Hjálpræðishernum. Hún hefur
ávallt staðið fyrir sínu í stríðinu
gegnum súrt og sætt.
Ung að árum tók Betsý virkan
þátt í æskulýðsstarfi Hjálpræðis-
hersins í Reykjavík og lék í
lúðrasveitinni í fjöldamörg ár.
Ekki er hægt að minnast á störf
Betsýar í Hjálpræðishernum án
þess að minnst sé á það ómetan-
lega starf sem hún hefur unnið
fyrir Heimilasambandið. Hún hef-
ur ætíð verið boðin og búin til
starfa í þess þágu. Fyrir nokkrum
árum tók hún við stöðu ritara
sambandsins en því starfi gegndi
móðir hennar, Agnethe Jónsson,
meðan hún lifði.
En það er ekki aðeins í gegnum
störf innan Hjálpræðishersins að
Betsý vitnar um kærleika Jesú
Krists. Hvenær sem einhver
þarfnast hjálpar er Betsý tilbúin
og alltaf hefur hún tíma til að
heimsækja og gleðja þá sem eru
einmana og minna mega sín.
SÍÐAR í þessari viku verður
leiktjöldunum að Stundarfriði
Guðmundar Steinssonar pakkað
niður og þau send áleiðis til
Júgóslavíu. Þar hefur Þjóðleikhús-
inu verið boðið að sýna leikritið á
hinni frægu alþjóðlegu leiklistar-
Betsý var rúmlega tvítug er hún
giftist Sigurði Sigurðssyni og áttu
þau 4 syni, Jón Skúla, Bent,
Harald og Agnar. Sigurður lést af
slysförum árið 1960. Var það
mikið áfall fyrir fjölskylduna.
Nokkrum árum síðar giftist
Betsý Kára Helgasyni og hafa þau
búið sér yndislegt og hamingjun'kt
heimili. Við þökkum þeim fyrir
allar þær góðu stundir sem við
höfum átt með þeim á Freyjugöt-
unni og biðjum Guð að blessa þau
og fjölskyldu þeirra um ókomin
ár.
Ilermenn í
Reykjavíkurflokki
Hjálpræðishersins
hátíð, BITEF, í Belgrad um miðj-
an mánuðinn. Ætlunin er að reyna
að sýna leikritið í þrem Norður-
landanna á heimleiðinni, þ.e. í
Finnlandi, Svíþjóð og Noregi.
(fréttatilkynning).
Stundarfriður Guðmund-
ar Steinssonar á alþjóð-
legri leiklistarhátíð
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
tilkynningar
Byggingarstarfsmenn
Atkvæöagreiðsla um aöalkjarasamning
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar fer
fram að Grettisgötu 89, 3. hæö, í dag
föstudaginn 5. september kl. 10—19.
Kjörstjórn.
húsnæöi óskast
Iðnaðarhúsnæði
lönaöarhúsnæöi óskast í Reykjavík. /Eskileg
stærö 3—400 ferm á jaröhæð. Upplýsingar
sendist til Mbl. merkt: „R — 588“.
Alþingismaður
óskar aö taka á leigu gott íbúöarhúsnæði,
helst með húsgögnum, í vesturborginni eöa
öðrum sambærilegum staö í Reykjavík.
Upplýsingar eru gefnar í skrifstofu Alþingis,
símar 11560 og 16560.
Skrifstofa Alþingis.
tilboö — útboö
(H ÚTBOÐ
Til sölu
Tilboö óskast í húsið Vesturgata 18, húsiö
verður til sýnis laugardaginn 6. september kl.
13.00—16.00 og þriðjudaginn 9. september
á sama tíma.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri aö
Fríkirkjuvegi 3, og ennfremur á Vesturgötu
18, á auglýstum sýningartíma.
Tilboö berist Innkaupastofnunni fyrir þriöju-
daginn 16. september kl. 11 f.h.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
________Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
120—250 tonna bátar
Hef fjársterkan kaupanda að tveimur 120—
250 tonna fiskibátum.
Arnar G. Hinriksson hdl.
Aðalstræti 13, isafiröi.
Sími 94-3214.
Til sölu dráttarbílar
Volvo N 88 með 13 metra vagni.
Volvo F 88 meö 11 metra vagni.
Bílar og vagn í góðu lagi.
Uppl. í síma 95-4694 á kvöldin.