Morgunblaðið - 07.09.1980, Side 1
80 SÍÐUR
202. tbl. 68. árg.
SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Undirróður
í Af ganistan
Tókýó. Londun. 6. septembur. — AP.
BLEÐLINGI hefur verið dreift
meðal tikraínskra hermanna í her-
liði Sovétríkjanna í Aft;anistan.
þar sem hermennirnir eru hvattir
til þess að leKgja niður vopn.
Sovézk yfirvöld eru sökuð um
innrás. og hermennirnir eru
minntir á. að „Rússar réðust inn í
Úkraínu fyrir 60 árum or að
marnir Ukrainumenn voru þá
myrtir“.
Hermt er að Sjálfstæðishreyfing
Úkraínu hafi dreift bleðlingnum
meðal hermannanna. Á baksíðu
bæklingsins er mynd sem sýnir hóp
Úkraínumanna traðka á sovézka
fánanum. Sagt er að hermenn frá
Úkraínu hafi verið sendir á vígvöll-
inn í Afganistan gegn vilja Afgana
og gegn vilja hermannanna sjálfra.
Með þátttöku sinni eru þeir sagðir
þjóna heimsvaldastefnu Brezhnevs
forseta. „Berjumst fyrir sjálfstæði
Úkraínu, knésetjum heimsvalda-
sinnana í Moskvu," segir í lokaorð-
um bæklingsins.
Að mati diplómata og hernaðar-
sérfræðinga er að svo komnu máli
engin von um að Rússar vinni sigur
í Áfganistan, og ekki virðast þeir
heldur ætla að bíða ósigur í viður-
eign sinni við þjóðfrelsisöflin.
Marina vill
opna gröf
Oswalds
Fort Worth. 6. septembrr. — AP.
MARINA Oswald Porter hef-
ur farið þess á leit við dóm-
stóla. að gröf fyrrverandi eig-
inmanns hennar, Lee Harvey
Oswald, verði opnuð, þar sem
„mjög vont fólk“ kunni að
hafa fjarlægt líkið ...
„Ég hef nýlega heyrt þann
orðróm, að líkið sé ekki lengur
í gröfinni," sagði hún fyrir
rétti.
„Ég hef sterka trú á því, að
líkið sé ekki lengur í gröfinni,"
sagði hún í vitnaleiðslum
vegna beiðni mágs hennar,
Robert Oswalds, um að að
hafnað verði beiðni brezka
rithöfundarins Michael
Eddowes um að líkið verði
grafið upp. Eddowes telur, að
Oswald hvíli ekki í gröfinni,
heldur sovézki útsendarinn Al-
ex James Hidell.
Framseldur
Marseilles, 6. september. AP.
ÍTALSKI hægriöfgamaðurinn
Marco Affatigato, eftirlýstur vegna
sprengingarinnar í járnbrautarstöð-
inni í Bologna í síðasta mánuði, var í
dag fluttur flugleiðis til Ítalíu þegar
franski dómsmálaráðherrann hafði
samþykkt framsal hans.
Affatigato var handtekinn í Nice
6. ágúst. Hann var ákærður fyrir að
falsa opinber skjöl, hjálpa hryðju-
verkamönnum og skipuleggja sam-
tök hryðjuverkamanna.
Á síld vid Eyjar
VESTMANNAEYJABÁTAR fengu í vikunni góðan síldarafla í lagnet uppi í Ilarðalandi við Heimaey.
Sildin þótti yfirleitt mjög góð og var söltuð, fryst eða verkuð á annan hátt hjá vinnslustöðvunum í
Eyjum. beir á ófeigi III voru fyrstir til að leggja lagnet og fengu yfir 200 tunnur einn daginn, en
Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari, var þá um borð og tók meðfylgjandi mynd.
Eftirmaður Giereks
vekur ekki lmfnineu
Varsjá. 6. september. — AP.
HUNDRUÐ Pólverja stilltu sér í
röð snemma í morgun til að kaupa
morgunblöðin með tilkynning-
unni i nótt um að Stanislaw Kania
hefði verið skipaður leiðtogi
kommúnistaflokksins í stað
Hækka
1
skatt
Stokkhólmi. 6. septembor. — AP.
SÆNSKA þingið samþykkti i
nótt á aukafundi að hækka virðis-
aukaskatt um 2,35% i 23.46%,
þannig að hann verður ha*sti
skattur sinnar tegundar í Evr-
ópu. Hækkunin var samþykkt
með 173 atkvæðum gegn 172.
Edvard Giereks, en virtust lítt
hrifnir.
„Breytingin hefur ekkert að
segja, því að Kania er bara kerfis-
karl,“ sagði kona nokkur í biðröð-
inni. „Landið okkar er í miklum
vanda statt og það eina sem við
fáum er sama gamla súpan."
Kirkjan er líka full efasemda í
garð mannaskiptanna og telur
engra breytinga að vænta gagnvart
kirkjunni í bráð. Kania er kunnur
innan kirkjunnar, þar sem hann
fór með málefni hennar í fram-
kvæmdastjórn kommúnistaflokks-
Venjulega koma morgunblöðin á
blaðsölustaði klukkan sjö á morgn-
anna, en þeim seinkaði vegna
tilkynningarinnar klukkan hálf tvö
í nótt um hina skyndilegu breyt-
ingu. Takmarkað upplag er til sölu
og tugir manna stóðu enn í röðum
við blaðsölustaðina á hádegi til að
ná sér í eintak.
„Ég er hissa á því að Gierek skuli
vera hættur. Enginn trúir því, að
hann hafi verið leystur frá störfum
af heilsufarsástæðum eins og til-
kynnt var í nótt,“ sagði einn þeirra
sem biðu.
Heimildir í Gdansk herma, að
leiðtogar nýju verkalýðshreyf-
ingarinnar láti sér á sama standa
að Gierek hafi verið settur af og
Kania skipaður í hans stað. „Þessi
maður er ekki mjög kunnur hérna,“
sagði pólskur blaðamaður í
Gdansk. „Verkamennirnir segja að
þeir hafi ekki ýkja mikinn áhuga á
pólitískum breytingum eða sam-
skiptum.“
Kania hefur í níu ár verið ritari í
miðstjórninni með hermál og ör-
yggismál sem sérsvið að sögn og er
lítt kunnur almenningi. Hann hef-
ur ýmist verið talinn traustur
stuðningsmaður Giereks eða sterk-
ur leiðtogi að tjaldabaki.
22 drukknuðu í
kjölfestutönkum
Santo DominKo. 6. septembor. — AP.
ÆÐISGENGIN barsmíð á veggi
kjölfestutanka flutningaskips
Frakkar taka austur-
þýzkan hershöfðingja
Paris, 6. september. — AP.
FYRRVERANDI herráðsfor-
seti austur-þýzka flughersins.
Heinz Bernhart Zorn hershöfð-
ingi, var handtekinn i borginni
Lille í Norður-Frakklandi i síð-
asta mánuði og hefur verið
ákærður fyrir njósnir að sögn
franskra embættismanna i dag.
Þegar starfsmenn frönsku
gagnnjósnaþjónustunnar hand-
tóku Zorn hershöfðingja 19.
ágúst sl. fundu þeir hernaðar-
legar upplýsingar í fórum hans,
einkum viðvíkjandi skriðdrekum
og gagnskriðdrekavopnum að
sögn talsmanns franska innan-
ríkisráðuneytisins.
Embættismenn sögðu, að Zorn
hefði komið til Frakklands einn
síns liðs sem skemmtiferðamað-
ur í ágústbyrjun og verið strax
settur undir eftirlit. Hann var
handtekinn á götu í Lille og í ljós
kom að hann hafði hernaðarleg
skjöl undir höndum. Frá því var
ekki skýrt hvar hann fékk skjöl-
in eða hvort aðrir útlendingar
eða Frakkar væru viðriðnir mál-
ið.
Zorn var þegar í stað fluttur
til Parisar á vegum frönsku
gagnnjósnaþjónustunnar og sex
dögum siðar var hann leiddur
fyrir rétt og ákærður fyrir
njósnir samkvæmt heimildun-
um. Nú er hann í haldi í Fleury
Merogis fangelsinu í úthverfum
Parísar.
Zorn er 68 ára, var foringi í
þýzka flughernum í heimsstyrj-
öldinni, hélt ferli sínum áfram í
austur-þýzka flughernum eftir
stríð og varð að lokum forseti
flugráðsins. Hann settist í helg-
an stein fyrir þremur árum og
hóf störf fyrir austur-þýzku ör-
yggisþjónustuna að sögn
franskra embættismanna.
frá Panama vakti athygli skip-
verja. og er björgunarmenn
komu á vettvang. náðu þeir að
bjarga 12 mönnum, en 22
drukknuðu i tönkunum er sjó var
dælt í þá skömmu áður en skipið
átti að halda frá Dóminikanska
lýðveldinu til Miami á föstudag.
Mennirnir 34 ætluðu augsýni-
lega að laumast með skipinu til
Bandarikjanna. Þeir komust óséð-
ir um borð á fimmtudagskvöldi
eða föstudagsmorgni og földu sig í
tómum kjölfestutönkum skipsins.
En þegar „gert var klárt" fyrir
áætlunarferðina til Miami var
tönkunum lokað og sjó dælt í þá.
Hófst þá barsmíði laumufarþeg-
anna.
Laumufarþegarnir voru frá fá-
tækrasvæðinu í norðurhluta Dóm-
iníkanska lýðveldisins. Við fyrstu
sýn bendir ekkert til þess að um
skipulega smyglstarfsemi hafi
verið að ræða, og hermt er að
tiltölulega öflugt eftirlit sé með
því, að laumufarþegar felist ekki
um borð í fragtskipum sem sigla
til Bandaríkjanna.