Morgunblaðið - 09.09.1980, Page 1

Morgunblaðið - 09.09.1980, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 202. tbl. 68. árg. ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Helmut Schmidt kanzlari Vestur-Þýzkalands flytur ávarp á útifundi i Dortmund á laugardag í upphafi kosningabaráttu Sósialdemókrata vegna þingkosninganna í október. Schmidt hefur hér tyllt sér upp á tóman bjórkassa. simamynd. - ap. Pólland: Yeigamiklar breytingar á stjórnun efnahagsmála? Varsjá, 8. sept. AP. HENRYK Kisiel varaforsætisráó- herra Póllands skýrði i dag frá veigamiklum breytingum er gerðar hafa verið á stjórnun efnahagsmála i Póllandi á sama tíma og þaðan berast fregnir af nýjum verkfollum. Þá fór Stanis- law Kania, nýkjörinn leiðtogi pólska kommúnistaflokksins, óvænt og skyndilega i ferð til nokkurra Eystrasaltsborga, þar sem verkföllin voru hvað mögn- uðust, og átti hann m.a. viðræðu- fundi við flokksleiðtoga i Gdynia og Gdansk. Kania fer að öllum likindum til Katowice, fyrrum heimabæjar Giereks fyrrum flokksleiðtoga, á morgun, sömu erinda. Kisiel skýrði frá því að nýskip- an efnahagsmálanna væri fyrst og fremst fólgin í dreifingu valdsins, ákvarðanatakan í ýmsum málum yrði færð út í héruðin og verk- smiðjurnar. Um væri að ræða aðgerðir í húsnæðismálum, vega- gerð, innanríkisverzlun og í ýms- um þjónustugreinum. Forstöðu- mönnum verksmiðja væri jafn- framt gefnar frjálsari hendur með stjórnun þeirra. Þá hefði verið sett á laggirnar 20 manna ráð er Kisiel veitti forystu, og er því ætlað að gera tillögur um enn frekari endurbætur á stjórnun efnahagslífsins heima fyrir. Á blaðamannafundi, sem Kisiel hélt í dag, kom fram, að beint framleiðslutap vegna verkfall- anna hefði numið um einum millj- arði Bandaríkjadala. Hann sagði að launahækkanir, fjölskyldubæt- ur og aðrar úrbætur, er pólskir verkamenn náðu fram með verk- föllunum, hefðu í för með sér tæplega fjögurra milljarða dollara útgjaldaaukningu fyrir ríkissjóð, Starfsmenn Mielec-samgöngu- tækjaverksmiðjunnar í suðaustur- hluta Póllands mættu ekki til- vinnu fjórða daginn í röð í mót- mælaskyni við tilraunir flokks- leiðtoga til að koma í veg fyrir myndun frjáls verkalýðsfélags í verksmiðjunum. Verkamennirnir hafa lagt fram lista með kröfum sínum, og er ein þeirra á þá lund að flokksleiðtoginn verði settur af. Þá staðfesti pólska fréttastofan PAP, að verkföll væru enn í Stanislaw Kania verksmiðjum í borginni Bialystok við sovézku landamærin í Elk og Kamienna Gora, og meðal starfs- fólks við almenningssamgöngur í borginni Tarnow við tékknesku landamærin. Svartir gengu berserksgang Pretoríu. 8. september. AP. UM 1.500 þeldökkir námsmenn gengu i dag berserksgang i hverfi hvitra i demantsvinnslu- borginni Kimberley. brutust inn i hús og unnu spjöll á mannvirkj- um. Handteknir voru 19 náms- menn er til átaka kom milli þeirra og lögreglu. Allt frá því í marzmánuði síð- astliðnum hafa námsmenn í skól- um þeldökkra og kynblendinga mótmælt kennslukerfi S-Afríku, og er aðgerðirnar mögnuðust, greip stjórn landsins til þess ráðs að loka skólum viðkomandi í Kimberley. Námsmennirnir létu fyrst til skarar skríða er Ferdie Hartzen- berg menntamálaráðherra bjóst til að ávarpa foreldra þeldökkra námsmanna á útifundi, og skýra þeim sjónarmið stjórnarinnar varðandi lokun skólanna. Brenndu þeir bækur sínar í mótmælaskyni við aðgerðir stjórnarinnar. Er lögregla bað námsmennina að hverfa af vettvangi, gripu þeir til grjótkasts, sem lögreglan svaraði með því að varpa táragassprengj- um í hópinn. Breytingar hjá Suarez Madrid. 8. september. AP. TILKYNNT var um það opinber- lega í kvöld. að Adolfo Suarez, forsætisráðherra hefði gert margar og óvæntar breytingar á stjórn sinni, og að Juan Carlos konungur hefði lagt blessun sina yfir ákvarðanir Suarezar. Jafn- framt var frá þvi skýrt, að ný stjórn mundi sverja embættiseiða á morgun, þriðjudag. Kunnugir segja, að með breyt- ingunum sé Suarez fyrst og fremst að reyna að lækka í þeim sem hvað óánægðastir eru með stjórn- ina, en hann hefur legið undir þungri gagnrýni upp á síðkastið vegna verðbólgu, atvinnuleysis og hryðjuverka á Spáni. Sérstaklega kom á óvart, að Suarez skildi láta Marcelino Oreja víkja úr embætti utanríkisráð- herra, með tilliti til þess að á morgun hefst í Madríd undirbún- ingsfundur Öryggisráðstefnu Evr- ópu, en Oreja átti að opna fund- inn. Við embætti Oreja tekur Jose Pedro Perez Llorca er farið hefur með málefni þjóðarbrota er hlotið hafa sjálfsforræði. Oreja hefur verið ákafur talsmaður þess, að Spánverjar gangi í NATO, en formælendur utanríkisráðuneytis- ins sögðu í dag, að breytingin hefði í raun og veru engin áhrif á utanríkisstefnu Spánar. Framsókn í Afganistan Nýju Dflhl, Moskvu. 8. urptember. AP. SOVÉZKAR hersveitir, sem sér- staklega hafa verið þjálfaðar til viðureignar við skæruliða. hafa sótt yfir 30 kilómetra inn i Panjshir-dalinn, sem afganskir skæruliðar hafa haft algjörlega á sinu valdi siðustu mánuði. Fregn- ir frá Afganistan herma, að siðustu daga hafi komið til hörð- ustu bardaga i striðinu i Afgan- istan til þessa, og að eyðilegging hafi verið mikil. Sovézku herirnir hafi notið tilstyrks afganskra leiguliða i viðureigninni um Panjshir-dalinn. sem er hernað- arlega mikilvægur. Heimildir, er hingað til hafa reynzt áreiðanlegar, hermdu, að komið hefði til blóðugra bardaga og að mannfall hafi verið mikið í röðum beggja. Þriðjungur allra mannvirkja hafi verið lagður í rúst í loftárásum Rússa, sem verið hafi geysimiklar. Sókn Rússa hef- ur verið þyngri en nokkru sinni fyrr, sögðu heimildirnar, og hafa þeir lagað heri sína betur að baráttu við skæruliða. Þeir hefðu orðið sér út um 500 leiguliða úr röðum innfæddra í Paktia-héraði í suðausturhluta Afganistans, en heimildir herma, að leiguliðarnir hafi flestir fallið á fyrstu dögum sóknarinnar miklu í Panjshir-dal, sem hófst fyrir rúmri viku. Nefnd háttsettra hernaðarsér- fræðinga var í dag send til Kabúl til að leggja mat á frammistöðu Rauða hersins í Afganistan, að sögn vestrænna diplómata. Vangaveltur voru um það, að þeir myndu leggja til breyttar bar- dagaaðferðir, einkum að sérstakar og mjög hreyfanlegar víkinga- sveitir kæmu meira til skjalanna í viðureigninni við þjóðfrelsisöflin, en slíkum sveitum hefur orðið vel ágengt í Afganistan að undan- förnu, samkvæmt fregnum þaðan. Ó1 heilbrigðan son meðvitundarlaus Tel Aviv, 8. september. AP. RÚMLEGA þritug kona, sem missti meðvitund í bilslysi fyrir fimm mánuðum og hefur ekki vaknað úr dái síðan. ól i dag ellefu marka son, er tekinn var með keisaraskurði. Drengurinn. sem var alheili, var til að byrja með látinn i öndunarvél, en var tekinn úr henni eftir nokkrar klukkustundir. þar sem hennar gerðist ekki þörf. Læknar ákváðu strax eftir slysið að binda ekki endi á þungun konunnar, sem þá var komin fjóra mánuði á leið, en vegna höfuðmeiðsla, er konan hlaut í slysinu, urðu þeir að gera sérstakar skurðaðgerðir til að létta þrýstingi af heila hennar og lungum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.