Morgunblaðið - 10.09.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.09.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1980 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1980 17 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280 kr. eintakiö. Aðför Alþýðubandalags- ins að Flugleiðum Alþýðubandalagið hefur hafið aðför að Flugleiðum. Mark- miðið er að koma fyrirtækinu á kné, þjóðnýta það og tryggja þar með ríkisrekstur á flugsamgöngum. Þær aðferðir, sem Alþýðubandalagið beitir í þessari þokkalegu iðju eru þessar: í fyrsta lagi er aðstöðu flokksins í ríkisstjórn beitt til þess að valda fyrirtækinu erfiðleikum á sama tíma og ráðherrar og aðr- ir talsmenn Alþýðubandalagsins þykjast vilja gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til þess að tryggja afkomu þess fólks, sem nú er að missa atvinnu sína vegna samdráttar í flugrekstri okkar íslendinga. í öðru lagi eru orðhákar Alþýðubandalagsins, Ólafur Ragnar Grímsson og Baldur Óskarsson, notaðir til þess að skapa tor- tryggni og grunsemdir í garð fyrirtækisins hjá almenningi vegna þeirra erfiðleika, sem félagið á við að stríða. Þá hefur fréttastofa útvarpsins misfarið þannig með staðreyndir að al- þýðubandalagsmenn geta vel við unað. Varð það m.a. til þess, að fréttatími um helgina fór nánast í vaskinn vegna deilna um grundvallaratriðin, en slíkt orðaskak í „fréttatíma" er líklega einsdæmi. En allir eiga leiðréttingu orða sinna og í Mbl. í dag biðjast fréttamenn afsökunar á mistökum sínum. Ráðherrar Alþýðubandalagsins hafa komið í veg fyrir, að sú tillaga Stein- gríms Hermannssonar, að lendingargjöld yrðu felld niður, næði fram'að ganga. Þeir hafa einungis viljað fallast á frestun á þessum greiðslum og raunar fékk félagið hótunarbréf í sumar með kröfu um greiðslu þegar í stað. Ráðherrar Alþýðubanda- lagsins hafa átt hlut að því ásamt öðrum ráðherrum, að Flugleiðir hafa ekki fengið nauðsynlegar leiðréttingar á far- gjöldum innanlands með þeim afleiðingum, að verulegt tap hef- ur verið á innanlandsflugi. Svokallaður eftirlitsmaður fjár- málaráðherra með rekstri Flugleiða, Baldur Óskarsson, hefur í raun starfað sem pólitískur fulltrúi Alþýðubandalagsins að því að grafa undan fyrirtækinu á allan hátt. Hann hefur brotið af sér í starfi með þeim hætti, að hann er ekki lengur hæfur til að gegna því hlutverki að hafa af hálfu ríkissjóðs eftirlit með rekstri fyrirtækisins vegna ríkisábyrgða. Baldur Óskarsson hefur brotið af sér með því að fjalla í viðtali við Þjóðviljann um málefni Flugleiða á þann hátt, sem ekki hæfir manni í hans starfi. í þessu viðtali kemur fram dulbúin hótun um, að fjármálaráðherra Alþýðubandalagsins muni neita að sam- þykkja sölu á Boeing-þotum Flugleiða, sem fyrirhuguð hefur verið. Slík neitun mundi enn auka á erfiðleika félagsins og stofna atvinnu þeirra starfsmanna, sem eftir eru, í hættu. Málflutningur Baldurs Óskarssonar í fréttatíma útvarps í gær var með þeim hætti, að hinn eftirlitsmaður ríkisins, Birgir Guðjónsson, birti athugasemd, þar sem hann tók fram, að eftirlitsmennirnir mundu skila tveimur greinargerðum og ekki bæri að líta á skoðanir Baldurs Óskarssonar sem skoðanir eftirlitsmanna sem slíkra. Orðhákarnir, Baldur Óskarsson og Ólafur Ragnar Grímsson, vinna að því með margvíslegum hætti að skapa tortryggni í garð Flugleiða. Viðtal við Baldur Óskarsson í útvarpinu í gær var fullt af hálfkveðnum vísum og dylgjum. Ólafur Ragnar Gríms- son hringir í síðdegisblöð og býður fram þær skoðanir sínar, að greinargerð Flugleiða um fjárhagsstöðu fyrirtækisins sé aug- lýsingaplagg byggt á fölsunum. Það er vissulega orðið umhugs- unarefni fyrir dagblöð, hvort þau eigi að láta þessa málaliða kommúnista komast upp með að nota sig með þessum hætti. íslenzkur flugrekstur hefur frá upphafi verið byggður upp af einstaklingum, sem fremur hafa verið hugsjónamenn en fjár- aflamenn. Þessir hugsjónamenn og brautryðjendur eru enn í forystu Flugleiða, menn eins og Örn Johnson og Alfreð Elías- son. Framtak þessara einstaklinga og samstarfsmanna þeirra hefur skapað það ævintýri, sem íslenzkur flugrekstur hefur verið. Neikvæðir stjórnmálamenn og orðhákar hafa ekki komið þar við sögu. Nú ætla þeir á einhverjum mestu erfiðleikatímum, sem yfir íslenzkan flugrekstur hafa gengið, að nota tækifærið til þess að koma höggi á þetta einkafyrirtæki og leggja í rúst starf þess mikla fjölda fólks, sem byggt hefur upp flugrekstur- inn á Isiandi. Hvaða skoðanir, sem menn kunna að hafa á þeim tíðindum, sem borizt hafa undanfarnar vikur frá Flugleiðum og hver svo sem staða manna er í deilum innan félagsins, eiga allir þeir, sem hafa átt hlut að uppbyggingu flugsins á undanförnum áratugum, svo og allir þeir fjölmörgu Islendingar, sem hafa dáðst að þessu framtaki og notið góðs af því, að geta sameinazt um það að snúa bökum saman, snúa vörn í sókn og taka upp harða baráttu gegn tilraunum niðurrifsmanna í Alþýðubandal- aginu til þess að koma Flugleiðum á kné og þjóðnýta fyrirtækið. Asakanimar eru hrein markleysa og bábiljur - segir Örn O. Johnson, stjórnarfor- maður Flugleiða, um þær ásakanir Baldurs Óskarssonar, eftirlits- manns, og Ólafs Ragnars Grímsson- ar, að skýrsla félagsins um fjár- I hagslega stöðu og rekstraráætlun sé fölsk og ómerkileg Örn O. Johnson, stjórnarformaður Flugleiða. „SATT að segja komu um- mæli þessara manna mér ekkert á óvart. Við höfum haft af því fregnir, að það væri stefna Alþýðubanda- lagsins, eða a.m.k. aðila innan þess flokks, að reyna að koma fyrirtæk- inu á kné og í kjölfar þess krefjast þess, að flugið verði þjóðnýtt, og ég tel, að atburðir síðustu daga renni fyllilega stoðum undir þessar fréttir,“ sagði Örn 0. Johnson, stjórnarformaður Flug- leiða, í samtali við Mbl., er hann var inntur álits á ummælum þeirra Baldurs óskarssonar, annars eftir- litsmanns ríkisins með fjárhagslegum skuldbind- ingum Flugleiða, og ólafs Ragnars Grímssonar, al- þingismanns, í fjölmiðlum undanfarna daga, þar sem því hefur meðal annars verið haldið fram, að skýrsla Flugleiða um f jár- hagslega stöðu fyrirtækis- ins og rekstraráætlun á komandi ári, sé fölsk og ómerkileg. Geysist fram á ritvöllinn „Það vekur fyrst athygli, að Baldur Óskarsson, annar eftirlits- maður ríkisins með fjárhagslegum skuldbindingum Flugleiða, en hann er jafnframt trúnaðarmaður fjármálaráðherra, geysist fram á ritvöllinn í viðtali við Þjóðviljann sl. laugardag. Hann ræðir þar, gagnrýnir og dæmir ýmsar að- gerðir Flugleiða að undanförnu. Þrátt fyrir þær fregnir, sem ég sagði, að við hefðum fengið um stefnu Alþýðubandalagsins í þessu máli, þ.e. að koma félaginu á kné og þjóðnýta síðan flugið, verð ég að viðurkenna, að þessi skrif trúnaðarmanns fjármálaráðherra komu mér á óvart, sé það haft í huga, að skýrslan um fjárhagslega stöðu félagsins var rétt ókomin. Okkar skilningur hefur verið sá, að hann væri í þessu starfi til að gefa sínar upplýsingar til ráð- herra, en ekki til fjölmiðla. Félagið hefur áður búið við að ríkisstjórn hafi skipað sérstakan eftirlitsmann með fjárhagslegum rekstri félagsins. Það var fyrir nokkrum árum, þegar við fengum ríkisábyrgðir vegna kaupa á DC-8 vélum okkar, svo og vegna rekstr- arlána. Þeir menn skiluðu sínum skýrslum til viðkomandi ráðherra, ólíkt því, sem nú gerist hjá öðrum eftirlitsmanninum. Þessi sami maður heldur síðan iðju sinni áfram í ríkisútvarpinu í dag. Þar koma reyndar fram mjög svipaðar ályktanir og felast í ásökunum og dylgjum, sem fram koma hjá Ólafi Ragnari Grímssyni í viðtölum við síðdegisblöðin, Dagblaðið og Vísi í dag. Þar segir Olafur m.a., að skýrsla okkar sé „falskt og ómerkilegt auglýsingaplagg", og hún sé „auglýsingabrella byggð á fölsunum". Missagnir og ósannindi í þessu sambandi vaknar óneit- anlega sú spurning, hvernig í ósköpunum Ólafur Ragnar Grímsson geti fjallað um skýrslu Flugleiða við dagblöðin í morgun, þegar það er haft í huga, að skýrslan var ekki send frá félag- inu fyrr en séinni partinn í gær og þá aðeins til ráðherra og eftirlits- mannanna. Annars er fréttaflutn- ingur ríkisútvarpsins það, sem hefur komið mér mest á óvart í þessari umfjöllun allri. Þar hefur vísvitandi mistúlkun átt sér stað. Maður hefur verið alinn upp í þeirri góðu trú, að sá fjölmiðill ætti helzt allra að gæta hlutleysis, en þær missagnir og ósannindi, sem þar hafa komið fram að undanförnu, sýna svo ekki verður um villzt, hverjir ráða þar ríkj- um,“ sagði Örn. Nákvæmar forsendur Hvað viltu þá segja um þá gagnrýni þeirra féiaga Baldurs og Olafs, að mat eigna félagsins í skýrslunni sé alrangt og rekstr- aráætlunin standist engan veg- inn? „Ég tel þessar ásakanir hreina markleysu og bábyljur. Það er að sjálfsögðu svo, að mat á eignum og áætlun um rekstur getur ætíð orkað tvímælis, en ég fullyrði að í skýrslunni er farið eftir því sem bezt er vitað. Ég vil sérstaklega í sambandi við yfirlýsingar Ólafs, að skýrslan sé „falskt og ómerki- legt auglýsingaplagg", taka fram, að í skýrslunni er greint mjög nákvæmlega frá forsendum fyrir öllu eignamati og rekstraráætlun- um. Ég get auðvitað ekki fullyrt, að rekstraráætlun félagsins standist í öllum atriðum, en ég fullyrði að hún er byggð á eðli- legum forsendum miðað við það sem við þekkjum bezt í dag, t.d. er ekki gert ráð fyrir neinni aukn- ingu á farþegaflutningum innan- lands né flutningum farþega milli íslands og annarra Evrópulanda miðað við áætlun þessa árs. Allar forsendur varðandi hækkun rekstrarþátta eru tilgreindar í þessari skýrslu, en auðvitað er ekki hægt að fullyrða, að ekki verði þar um nein frávik að ræða, miðað við það verðbólgu- og óvissuástand, sem við búum við í dag. Ekki sambærileg við gamlar vélar Hvað snertir mat á eignum félagsins, þá skal tekið fram, að aðeins helztu eignir, s.s. flugvélar og fasteignir eru endurmetnar til áætlaðs markaðsverðs í dag, en hins vegar er fjöldi annarra já- kvæðra atriða ótilgreindur, t.d. að sum af lánum félagsins eru á hagkvæmari kjörum en fást myndu í dag. Hvað markaðsverð flugvélanna áhrærir, telja fram- angreindir menn, að við höfum skotið yfir markið í mati okkar á DC-8 vélum félagsins, en þær eru metnar á 12 milljónir dollara, þar sem okkur hefur ekki tekizt að selja eina vélina, sem verið hefur á söluskrá nokkurn tíma. Það er staðreynd, að upp á síðkastið hefur gengið erfiðlega að selja DC-8 þotur, en hins vegar var síðasta DC-8 vél, sem við vitum um, seld fyrir rúmlega 13 milljón- ir dollara. Um of hátt matsverð á Boeing 727-200 vél félagsins, sem við höfum metið á 15,5 milljónir dollara og gagnrýnendur hafa sagt vera a.m.k. 2 milljónum dollara of hátt, er til að taka, að þetta verð er kaupverð vélarinnar frá verksmiðju, en við fengum hana afhenta fyrir um þremur mánuðum. Þessar vélar eru ennþá í framleiðslu og verða fyrirsjáan- lega næstu misseri og þær hækka að meðaltali um 1% á mánuði. Þá er engan veginn hægt að bera þessa vél okkar saman við gamlar vélar, sem eru til sölu um þessar mundir, þær eru bæði eldri og svo eru þær ekki búnar þeim full- komnu úthafstækjum, sem okkar vél er búin. Þannig mætti lengi halda áfram, en ég tel eins og ég sagði áður, að meginatriðið sé, að við höfum skilmerkilega greint frá öllum forsendum fyrir áætlun okkar um eignafjárstöðu og vænt- anlegan rekstur félagsins. Það er því brýn nauðsyn fyrir ríkisstjórn Islands ef hún vill meta skýrsluna, að hún velji til þess menn, sem eitthvað vit hafa á þessum málum, en þó framar öllu, að það séu menn óvilhallir og hafi ekki í hyggju að nýta stöðuna sér og sínum pólitíska flokki til fram- dráttar," sagði Örn 0. Johnson, stjórnarformaður Flugleiða að síðustu. I fréttum ríkisútvarpsins um helgina og í viðtölum við síðdegis- blöðin, Dagblaðið og Vísi, hafa þeir Baldur Óskarsson, annar eft- irlitsmanna ríkisins með fjár- hagslegum skuldbindingum Flug- leiða, og Ólafur Ragnar Grímsson, alþingismaður, lýst því yfir, að skýrsla félagsins um fjárhagslega stöðu fyrirtækisins og rekstrar- áætlun á komandi ári, sé fölsk og ómerkileg. Ólafur segir m.a. í Dagblaðinu í gær, að fjárhags- skýrsla Flugleiða sé í eðli stnu ómerkilegt upplýsingaplagg frá mönnum sem blekkt hafa þjóðina í 3 ár og ætli að gera það áfram. Hann segir að eignir félagsins séu ranglega metnar og í sama streng tók Baldur Óskarsson í viðtali við ríkisútvarpið. Þeir segja rekstrar- áætlun og spá um fjármagnsstöðu næstu 12 mánaða byggja á alger- lega óraunsærri farþegaáætlun. Frá blaðamannafundi fjár- málaráðherra: (f.v.) Þorsteinn Geirsson skrifstofustjóri, Ragn- ar Arnalds og Ilöskuldur Jóns- son ráðuneytisstjóri. Ljósm. Mbl. Kristján. breytingar aðrar sem gerðar verða varðandi lífeyrismál ríkisstarfs- manna og eru þær í samræmi við samkomulag ríkisins og BSRB um sama efni. Aldursmark til inngöngu í lífeyrissjóð starfsmana ríkisins verður lækkað úr 20 árum í 16 ár. Gjaldskylda breytist úr 30 árum í 32 ár og ávinnast 2% fyrir hvert ár. Ellilífeyrir er miðaður við laun þann veg að fjármálaráðherra skipi 3 stjórnarmenn, stjórn BSRB skipti 2 stjórnarmenn og stjórn BHM skipi 1 stjórnarmann. Þá mun fjármálaráðuneytið fara þess á leit við stjórn lífeyrissjóðsins að biðtími eftir lánum verði styttur fyrir þá sjóðfélaga sem hefja störf 25 ára og eldri. I framhaldi af gerð aðalkjara- samnings fjármálaráðherra f.h. rík- issjóðs og BSRB hefur BHM krafist endurskoðunar á aðalkjarasamningi sínum. í því sambandi hefur fjár- málaráðherra ítrekað þá afstöðu ríkisstjórnarinnar að áhersla verði nú lögð á lægri launin og launa- hækkanir gangi ekki upp allan launastigann. Því sé það ljóst að nýgerðir samningar við BSRB gefi ekki tilefni til annarra breytinga á launastiga BHM en að laun í neðstu Dregið úr verðtryggingu ríkissjóðs á lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins FJÁRMÁLARÁÐHERRA, Ragnar Arnalds. gerði á hlaðamannafundi i gær grein fyrir samkomulagi ríkis- stjórnarinnar og Bandalags há- skólamanna um félagsleg málefni rikisstarfsmanna innan vébanda handalagsins. Helztu atriði sam- komulagsins eru eftirfarandi: Fjármálaráðherra mun skipa nefnd þriggja lögfræðinga til að gera úttekt á lögum nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. f framhaldi af þeirri úttekt er gert ráð fyrir að sett verði á fót nefnd til að endurskoða efnisatriði laganna. Ríkið ábyrgist með lagasetningu að félagsmenn BHM í þjónustu ríkisins njóti atvinnuleysisbóta sam- bærilegra við annað launafólk í samræmi við gildandi lög um at- vinnuleysistryggingar og fram- kvæmd þeirra á hverjum tíma. Ekki er stefnt að myndun sjóðs eða greiðslum í sjóð í þessu skyni. Stofnaður verði starfsmenntun- arsjóður fyrir starfsmenn ríkisins innan BHM og greiði ríkissjóður sem svarar 0,15% af föstum mánaðar- launum félagsmanna í sjóðinn. Komið verði á fót starfsmanna- ráðum í þeim stofnunum þar sem starfa 15 manns eða fleiri. Sett verði nefnd til að gera tillögur um skipan málefna eftir- launafólks og öryrkja, sem feli í sér rýmri heimildir til handa starfs- mönnum að halda störfum að hluta til eftir að hámarksaldri er náð. Framvegis verður hugtakið aðal- starf sbr. 1. gr. laga nr. 46/1973 túlkað á þann veg að undir það geti fallið hlutastörf sem ekki ná hálfs- dagsstarfi enda stundi starfsmaður fast samfellt starf og hafi ekki á hendi annað aðalstarf í þjónustu ríkisins. Þetta nýmæli nær ekki til sumarvinnufólks eða fólks í tíma- bundnum afleysingum. Dregið verður úr verðtryggingu ríkissjóðs á lífeyrissjóði starfs- manna ríkisins á þann veg að lífeyrissjóðurinn verði skyldaður til að ávaxta a.m.k. 30% af heildarút- lánum sínum í verðtryggðum skuldabréfum ríkissjóðs og verði vöxtum og verðbótum af þessum 30% af heildarlánum sjóðsins varið til að greiða verðbætur á lífeyri úr sjóðnum og minnka greiðslur ríkis- sjóðs að sama skapi. Viðræður um aðrar breytingar á ábyrgð ríkissjóðs á lífeyrisgreiðslum verði teknar upp, þegar fyrir liggja niðurstöður á úttekt á stöðu lífeyrissjóðs ríkis- starfsmanna sem tryggingarfræð- ingur vinnur nú að. Lækkað aldursmark Samkomulag náðist um ýmsar þau sem fylgja starfi því er sjóðfé- laginn gegndi síðast. Hafi sjóðfélagi gegnt hærra launuðu starfi í a.m.k. 10 ár fyrr á starfsferli sínum skal þó miða lífeyrinn við það starf. Iðgjald starfsrianna verður fram- vegis 4% í stað 4 25%. Sambúðarfólk öðlast sama rétt og hjón. Vakta- vinnufólk fær rétt til að greiða iðgjald af vaktaálagi í lífeyrissjóð- inn og öðlast þá rétt til viðbótarlíf- eyris. Tekin verður upp sú regla að þegar sjóðfélagi hefur náð því að saman- lagður lífaldur og þjónustualdur hans er 95 ár, hann orðinn 60 ára og lætur af störfum, eigi hann rétt á lífeyri úr sjóðnum, enda greiði hann iðgjöld í sjóðinn þar til 95 ára markinu er náð. Þá náðist samkomulag við stjórnir BHM og BSRB um að frá og með næstu áramótum verði stjórn lifeyr- issjóðs starfsmanna ríkisins breytt á launaflokkum BHM verði samræmd launum í sambærilegum launaflokk- um samkvæmt launastiga BSRB. Hvorum aðila um sig er heimilt að vísa endurskoðunarmálinu til kjara- dóms. Á fundinum lýstu formælendur fjármálaráðuneytisins því yfir, að samninganefnd BHM hefði ekki lagt fram formlegar launakröfur í samn- ingaviðræðum, en látið í ljósi, að þeir ætluðust til að fá sömu hlut- fallslegu hækkanir og BSRB náði fram í nýgerðum samningum. Því hefði verið hafnað strax af hálfu ráðuneytisins, og kvað fjármálaráð- herra það mat sitt, að BHM-menn fái vart fram launahækkanir fyrir kjaradómi. Hátt í 700 ríkisstarfs- menn er væru innan vébanda BHM myndu þó njóta lítillegra hækkana vegna samræmingar neðstu launa- flokka BHM við sambærilega launa- flokka samkvæmt launastiga BSRB. DC-10-þotur kosta 55—60 milljónir dollara frá verksmiðju í dag: Flugleiðaþotan kostar 40 milljónir dollara - þar af greiðast 13 milljónir á leigutímanum, sem er 7 ár „OKKAR samningur um DC-10- þotuna er leigusamningur með kauparétti og við höfum því fullan rétt til að kaupa vélina i iok þessa leigusamnings, sem eru sjö ár. Að minu mati eru það aðeins hártoganir að segja ein- hvern mun á svokailaðri „opara- tion“-leigu eða svokallaðri „cap- ital“-leigu. Á þessu tvennu er aðeins tæknilegur munur, en eðlismunur er enginn, því það „Jafnvel þótt sameiginleg álits- gerð lægi fy rir, þá er kynning á henni ekki hlutverk okkar eftir- litsmannanna. Við erum skipaðir af tveimur ráðherrum, ég af sam- gönguráðherra og Baldur af fjár- málaráðherra, til þess að gefa þeim síðan skýrslu um málið. Það hlýtur því að vera ráðherranna, að vega það og meta hverju sinni að eru sömu kaupaheimildirnar i báðum tilfellum,“ sagði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða. i samtali við Mbl., þegar hann var inntur eftir því hvers vegna bandariskir endurskoðendur Flugieiða viðurkendu ekki fulla eign félagsins á DC-10-þotunni. Samkvæmt upplýsingum Sig- urðar er heildarverð DC-10-þot- unnar 40 milljónir dollara, en upp í þá upphæð greiða Flugleiðir 13 hve miklu leyti okkar greinargerð- ir eru gerðar opinberar í fjölmiðl- um. Þetta er grundvallarskoðun mín í þessu máli og þannig verða embættismenn að vinna verk sín,“ sagði Birgir ennfremur. „Baldur hlýtur því að vega það og meta hvernig hann hagar samskiptum sínum við fjölmiðla öðru vísi,“ sagði Birgir að síðustu. milljónir dollara á þeim sjö árum, sem þotan er í leigu, en geta síðan greitt þær 27 milljónir dollara, sem á vantar til þess að eignast vélina að fullu í lok leigutímabils- ins. Verð véla af þessari gerð frá Douglas-verksmiðjunum í dag er á bilinu 55—60 milljónir dollara, eftir útbúnaði og á þeim tíma sem Flugleiðir geta keypt vélina, þ.e. eftir sjö ár verður söluverð þeirra orðið mun hærra ef að líkum lætur. Hafa sumir spáð því, að það verði á bilinu 80—90 milljónir dollara. Flugleiðavélin er keypt á föstu verði. Funda með ráðherrum ÖRN O. Johnson. stjórnarfor- maður Flugieiða. og Sigurður Ilelgason, forstjóri áttu í gær- dag fund með forsætisráð- herra. Sigurður sagði í sam- tali við Mbl., að þeir Örn hefðu aðeins kynnt forsætis- ráðherra mál Flugleiða. og annað væri ekki af fundinum að segja. Sigurður sagði ennfremur, að þeir hefðu verið boðaðir til fundar með forsætisráðherra, samgönguráðherra og félags- málaráðherra í dag, þar sem málefni Flugleiða yrðu rædd. Skipaðir af ráðherrum og eigum því að gefa þeim skýrslu um málið „VIÐ, ÞESSIR tveir eftirlitsmenn, höfum ekki lokið við neina sameiginlega greinargerð um fjárhag Flugleiða. Þess vegna verður að lita á það sem Baldur Óskarsson segir, sem hans skoðanir og sjónarmið, en ekki sameiginlegt álit okkar,“ sagði Birgir Guðjónsson, annar eftirlitsmaður með fjárhagslegum skuldbindingum Flugleiða. skipaður af samgönguráðherra, er Mbl. innti hann eftir þvi hvort hann væri sammála þeim yfiriýsingum Baldurs óskarssonar í fjölmiðlum undanfarna daga. að skýrsla Flugleiða um fjárhagslega stöðu fyrirtækisins og rekstraráætlun á komandi ári væri fölsk og ómerkileg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.