Morgunblaðið - 11.09.1980, Qupperneq 11
ÞURF/D ÞER HIBYLI
★ Nýbýlavegur
2]a herb. íbúð með bílskúr. Sér
þvottahús auk herb. á jarðhæð.
★ Gamli bærinn
2ja herb. toppíbúö. Stórar sval-
ir.
★ Dyngjuvegur
4ra herb. risíbúö (timburhús).
★ Bollagaröar
Raðhús í smíöum með inn-
byggðum bílskúr. Húsiö er til-
búiö til afhendingar.
★ Vesturborgin
3ja herb. íbúð á 4. hæð. Fallegt
útsýni.
★ Ásgaröur ^
5 herb. íbúð ca. 130 ferm. á 2.
hæð. íbúöin er 2 stofur, 3
svefnherb., eldhús, bað auk
stórs herb. í kjallara. Bílskúr.
Fallegt útsýni.
★ Seljahverfi
Ný 3ja herb. sérhæð ca. 115
ferm. í tvíbýlishúsi (jaröhæö).
Sér inngangur, sér hiti. íbúöin
er ekki fullfrágengin.
★ Seltjarnarnes
4ra herb. íbúö á jarðhæö.
★ Breiðholt
Raöhús á einni hæð, ca. 135
ferm. Húsiö er 1 stofa, 4
svefnherb., skáli, eldhús, baö.
Bílskúrsréttur. Húsiö er laust.
★ Bárugata
4ra herb. íbúð á 2. hæö, ca. 133
ferm. íbúöin er 2 stofur, hús-
bóndaherb., svefnherb., eldhús,
baö. Góö íbúö.
★ Kaplaskjólsvegur
4ra herb. íbúö á 1. hæö. Skipti
á 3ja—4ra herb. íbúö í Selja-
hverfi kemur til greina.
★ Hef fjársterka kaup-
endur aö öllum stærö-
um íbúöa. Veröleggjum
samdægurs.
HÍBÝU & SKIP
Garöastræti 38. Sími 26277
Grsli Ólafsson sími 20178
Málflutningsskrifstofa
Jón Ólafsson hrl. Skúli Pálsson hrl.
i Kaupmannahöf n
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1980
11
Otsölustaðir: Karnabær Laugavegi 66 — Karnabær Glæsibæ — Eplið Akranesi — Eplið ísafirði
Álfhóll Siglufirði — Cesar Akureyri — Hornabær Hornafirði — Eyjabær Vestmannaeyjum
Bestu kaupin hvernig sem á er litið
SG-330 g*pss
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR MAGNARI 2x20
WOTT R.M.S. ÚTVARP: 4 LTVARPSBYLGJUR. FM
FW, STERIO LW, MW, SW.
PLÖTUSPILARI: HÁLF- ___
SJÁLFVIRKUR, S-ARM-
UR. MAGNETIC PICKUP.
SEGULBAND: MEÐ
*** SJÁLFLEITARA
HÁTALARAR: 2 STK. 40
WÖTT.
VERÐ MEÐ
HÁTÖLURUM:
kr. 469.000
M^KJADEIUj
IWHTTTTá
LAUGAVEG 66 SIMI 25999
Sykur-
sjúk
börn
í sumar-
búðum
í SUMAR starfræktu Samtök
sykursjúkra sumarbúðir fyrir
sykursjúk börn ok unglinKa. Er
það nýlunda hér á landi en
slikar búðir hafa gefið góða
raun erlendis.
Dvalið var að Stóru-Tjörnum
í Fnjóskadal. Suður-Þingeyjar-
sýslu. vikuna 7. til 14. júni.
Þátttakendur voru 15 börn á
aldrinum 6—15 ára. Með hópn-
um var Steinunn Þorsteinsdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur og
henni til aðstoðar faðir eins
barnsins.
Steinunn sagði í samtali við
Mbl., að öll aðstaða að Stóru-
Tjörnum væri heppileg til slíks
sumarbúðahalds. Þar væri úti-
sundlaug góð og íþróttasalur, auk
þess sem umhverfið byði upp á
fjölbreyttar gönguferðir og nátt-
úruskoðanir.
„Við vorum heppin mjög með
veður,“ sagði Steinunn, „glamp-
andi sól allan tímann og góðviðri.
Dagskrá var skipulögð dagana
alla, það var m.a. farið í Vagla-
skóg, svínabú skoðað, farið á
hestbak og ekið til Húsavíkur og
að Ásbyrgi. Ennfremur voru
frjálsir tímar að Stóru-Tjörnum.
Þá héldum við fræðslufundi um
sykursýki, og voru börnin ófeimin
að tala um sjúkdóm sinn og lærðu
margt hvort af öðru þegar þau
báru saman bækur sínar.
Börnin aðlöguðust ágætlega
hina nýja umhverfi og veittu
hvort öðru mikinn stuðning.
Mér finnst mikil framför að
þessu sumarbúðahaldi. Mörg
börnin, sem haldin eru sykursýki,
eru oft feimin að láta aðra vita
um sjúkdóminn, og oft smeyk við
að fara í ferðalög og á staði þar
sem er fjölmenni, því þau verða að
framfylgja ákveðnum reglum, í
sambandi við mataræði, hreyf-
ingu, sprautugjafir, þvagathugan-
ir og annað sem lýtur að því að
halda þessum sjúkdómi í skefjum.
Já, við stefnum að því að halda
þessu áfram og starfrækja
sumarbúðir aftur næsta sumar.
Þetta er svo mikils virði fyrir
börnin,“ sagði Steinunn að lokum.
Steinunn og börnin 15.