Morgunblaðið - 11.09.1980, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1980
„Danir eru eng-
in dekurbörn“
— segir Anker Jörg-
ensen, vegna ummæla
um, að Danir geti
ekki staðið við skuld-
bindingar sínar
Frá Ib Björnbak. fréttaritara Mbl.
í Kaupmannahofn. 10. september.
Anker Joriíensen, íorsætisráð-
herra Danmerkur. hafnaði því
alfarið á fundi með frétta-
mönnum. að Danir hefðu ekki
holmagn til þess að standa við
skuldbindinKar sinar erlendis,
þrátt fyrir erfiðleika í efna-
haKslífi Danmerkur. Sú staðhæf-
injí hefur birst í erlendum blöð-
um, m.a. í The New York Times,
að Danir jja-tu ekki staðið við
skuldhindinKar sínar erlendis,
(>K hefur ákvörðun Dana um að
auka ekki fé til landvarna um
Anker Jörvcensen.
herra Dana.
forsætisráð-
3%, eins ok samkomulaK varð
um í NATO, verið kölluð „Dan-
merkursering.“
Greind mæld með
rafmagnsbylgjum
Montreal, 10. september. — AP.
GREIND manna er hæjjt að mæla af meiri nákvæmni með
rafmaKnshylKjum. sem sendar eru í heilann, en hinum hefðbundnu
Kreindarprófum. Munurinn er enn sem komið er ekki mlkill — en
meiri nákva mni fæst með rafmaKnsbylKjum. Þessi staðha;finK kom
fram hjá brezka sálfræðinKnum Hans Eysenck, en hann er einn 13
þúsund fulltrúa á þinKÍ amerískra sálfræðinKa, scm nú er haldið í
Montreal, Kanada.
í erindi sem hann flutti sagði
hann, að hin hefðbundnu greind-
arpróf mæli aðeins greind að
hluta til, — inní fléttast menntun
einstaklingsins og einnig menn-
ing. Hins vegar staðhæfir hann,
að greindarmæling með raf-
magnsbylgjum mæli einungis
greind einstaklingsins. Raf-
magnsbylgjurnar nema viðbrögð
heilans undir álagi, svo sem
hávaða, eða ljósgeisla. Viðbrögðin
eru skráð á sírita og af honum má
mæla greind viðkomandi. „Hinn
prófaði þarf ekki að hugsa um
neitt sérstakt — hann einfaldlega
situr og nemur utanaðkomandi
áhrif," sagði Hans Eysenck.
Hann sagði að þó viðkomandi
væri mældur á nýjan leik, þá
hlyti hann ekki hærri greindar-
tölu.
Mæling greindar með raf-
magnsbylgjum var fundin upp
fyrir aldarfjórðungi. Að sögn
Eysenck, þá er greinilegt, að
heilabylgjur eru erfðar að mikl-
um hluta. „Því er haldið fram, að
erfðir hafi ekkert að segja. En ég
held því fram, að erfðir séu
mikilvægur þáttur í ákvörðun
greindar, — jafnvel tvöfalt á við
umhverfi i ákvörðun greindar."
Að sögn Eysenck er síriti greinds
barns mjög flókinn en meðal
vangefinna er síritinn nánast
bein lína.
Helstu ríki Atlantshafsbanda-
lagsins samþykktu að auka hern-
aðarútgjöld um 3%. Danska
stjórnin hins vegar hefur ekki
viljað fallast á aukningu hernað-
arútgjalda, umfram það sem nem-
ur aukningu kaupgjaldsvisitölu.
Danir verja í ár 7,3 milljörðum
danskra króna til hernaðarút-
gjaida en hyggjast auka það í 8,1
milljarða.
„Danir eru engin dekurbörn,"
sagði Anker Jörgensen í viðtali við
fréttaritara Mbl. í Kaupmanna-
höfn. „En sé svo, þá gildir hið
sama um önnur ríki á vesturlönd-
um. Við stöndum við skuldbind-
ingar okkar erlendis en verðum
jafnframt að horfast í augu við
efnahagsvanda þann, sem nú hrjá-
ir okkur. Við stöndum við skuld-
bindingar okkar hvort heldur hjá
EBE eða NATO. Þar að auki
verjum við meira fé samanborið
við mörg önnur ríki til þróunar-
landa. Orkukreppan og sá aftur-
kippur sem hefur orðið í efna-
hagslífi iðnríkja hefur komið
harðar niður á Dönum en mörgum
öðrum þjóðum, vegna þess, að hér
i landi finnast ekki orkulindir, né
heidur málmar. Því verða Danir
að herða sultarólina. Rauntekjur
minnka almennt en við vonumst
til að takist að halda kaupmætti
lægstu launa," sagði Anker Jörg-
ensen ennfremur.
Harold Brown, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hefur sent
Poul Soegard, varnarmálaráð-
herra Dana, bréf, þar sem látin
eru í ljós vonbrigði með að Danir
skuli ekki ætla að hækka útgjöld
sín til varnarmála í samræmi við
ákvörðun NATO-ríkjanna stórú.
„Harold Brown leggur þunga
áherslu á aukningu varna okkar,
en hefur ekki í hótunum," sagði
Anker Jörgensen í samtali við
fréttaritara Mbl. Eru Danir reiðu-
búnir að heimila staðsetningu
hergagna hér í landi, svipað og
Norðmenn? „Ákvörðun þar að
lútandi hefur ekki verið tekin.
Sjálfur er ég ekki andvígur stað-
setningu hergagna á danskri
grund. Þau yrðu nokkurs konar
öryggisventill, ef sú staða kæmi
upp, að við þörfnuðumst aðstoð-
ar,“ svaraði Ánker Jörgensen.
Khomeini
skuldar
húsaleigu
Beirút, 10. september. AP.
AYATOLLAII Khomeini trú-
arleiðtoga i íran hefur verið
stefnt fyrir rétt í Najaí-héraði
i írak. Húseigandi þar i landi
kærði Khomeini á þeim for-
sendum. að hann skuldaði sér
enn húsaleigu frá þvi að hann
dvaldi þar i útlegð frá íran.
í kærunni segir húseigand-
inn, að Khomeini skuldi sér
jafnvirði 3.500 Bandaríkjadala,
eða um tvær milljónir króna,
fyrir húsaleigu, vatnsskatt,
rafmagn og síma. Khomeini
bjó í Najaf-héraði á árunum
1963 til 1978 er hann hvarf til
Parísar, en þaðan stjórnaði
hann baráttunni gegn keisar-
anum. í Najaf-héraði er graf-
hýsi Imams Ali, stofnanda
trúarhreyfingar Shiite múha-
meðstrúarmanna.
Libby
látinn
Loh Angeles, 10. september. AP.
Nóbelsverðlaunahafinn Will-
ard F. Libby lézt í fyrradag, 71
árs að aldri, að því er tilkynnt
var i dag.
Libby átti þátt í smíði kjarn-
orkusprengjunnar í síðari heims-
styrjöldinni og tók þátt í áætlun
um friðsamlega nýtingu hennar
einum áratug síðar. Hann hlaut
Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir
aldursákvörðunaraðferð með
geislavirku kolefni, sem er ómiss-
andi fornleifafræðingum. Með
þessari aðferð er hægt að aldurs-
ákvarða allt að\50.000 ára hluti.
Á fimmtíu árá ferli sem vís-
indamaður og kennari tók Libby
þátt í könnun geimsins, sólkerfis-
ins og tunglsins og rannsóknum á
veðurfarsbreytingum og á sviðum
umhverfisvísinda, almannavarna,
varna gegn jarðskjálftum og
mengunareftirlits.
Karl á
kvennafari
NÝJASTA ástin hans Karls
Bretaprins er lafði Diana Spencer,
„yndisleg ensk rós“ og jarlsdóttir
að auki. Hún er 19 ára að aldri.
Þessar fréttir birtust í blaðinu
The Tabloid Sun í dag.
Karl prins, sem er 31 árs
gamall, hefur oft verið kallaður
„heimsins eigulegasti pipar-
sveinn", og hefur verið orðaður við
ýmsar fagrar konur. Þau Diana
eyddu helginni saman í Balmoral
þar sem þau vörðu tímanum til
útreiða, að því er segir í Tbe
Tabloid Sun.
Fagna nor-
rænni tillögu
New York, 10. september. AP.
BANDARÍSKIR embættismenn
fögnuðu i dag tillögu utanrikis-
ráðherra Norðurlanda um um-
ræður á Allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna um öryggi sendi-
ráðsstarfsmanna.
68% Norðmanna telja
varnirnar of veikar
Ósló. 10. september — AP
STAÐSETNING handarískra
vopna á norskri grund virðist
geta valdið alvarlegum klofningi
í norska Verkamannaflokknum.
I>CKar hafa átt sér stað harðar
deilur innan flokksins. Norð-
menn ok Bandaríkjamenn ræddu
um það á sinum tíma, að koma
fyrir vopnaKeymslum í Norður-
Noregi. sem grípa mætti til ef til
innrásar ka-mi í landið. Nú virð-
ist hins vegar sem stjórnin sé að
gefa eftir í þessu máii af ótta við
andstæðinga NATO í flokknum
og til að koma i veg fyrir deilur
— jafnvel klofning innan flokks-
ins.
John Jörgen Holst aðstoðarut-
anríkisráðherra og Björn Bruland,
aðstoðarvarnarmálaráðherra fóru
í síðustu viku til Washington og
meðferðis höfðu þeir tillögur
Norðinanna um hergagnageymsl-
ur í Þrændalögum — um 1000
kílómetra frá sovésku landamær-
unum.
Að sögn Knut Frydenlunds,
utanríkisráðherra væri þá ekki
hægt að ásaka Norðmenn um
ögrun við einn eða neinn, með
hergagnageymslum í Þrændalög-
um. Formaður flokksins, Reiulf
Steen hefur nýlega sagt, að um-
Knut Frydenlund — utanríkis-
ráðherra Noregs.
ræður um hergagnageymslur í
Noregi hafi ekki farið fram í
stofnunum flokksins utan stjórn-
ar. Tveir ráðherrar, menntamála-
ráðherrann, Einar Förde og neyt-
endamálaráðherrann, Sissel Rön-
back, gengu af fundi áður en
gengið v&r til atkvæða um áfram-
haldandi samningaviðræður við
Bandaríkjamenn.
Áhrifamenn innan flokksins,
með þá Einar Gerhardsen og Jens
Einar Gerhardsen.
Evensen í broddi fylkingar, hafa
hvatt til þess, að utanríkis- og
öryggismálastefna Norðmanna
verði tekin til gagngerrar endur-
skoðunar. I hópi með þeim eru
nokkrir þekktir andstæðingar að-
ildar að Atlantshafsbandalaginu.
Yfirmaður herafla Norðmanna,
Sverre Hamre hershöfðingi lét
hafa eftir sér, að besti kostur
Norðmanna væri, að koma her-
gagnageymslum upp í N-Noregi.
Hann sagðist geta sætt sig við
vopnageymslur í Þrændalögum en
aðeins gegn því skilyrði að Norð-
menn ykju viðbúnað sinn í N-Nor-
egi.
Almennar umræður hafa farið
fram í Noregi um varnarmálin.
Talsmenn borgaraflokkanna hafa
kallað málamiðlun Frydenlunds
og félaga um vopnabúr í Þrænda-
lögum „merki um veikleika". Aft-
enposten hefur tekið í sama streng
og sagt í leiðara, að bygging
vopnageymslna í Þrændalögum
gæti verið tekin sem vísbending
um, að Norðmenn væru að láta
undan þrýstingi frá Sovét-
mönnum. Sú skoðun hefur verið
látin í ljósi, að með því að
staðsetja vopnageymslurnar í
Þrændalögum sé ve'rið að veikja
varnir Noregs.
Norska blaðið Morgenbladet lét
framkvæma skoðanakönnun með-
al almennings. Spurt var hvort
fólk áliti varnir Noregs nægilega
öflugar: 68% spurðra sögðu að
varnir Noregs væru of veikar til
að standast utanaðkomandi árás
þar til hjálp bærist. 27% sögðu
varnir Norðmanna nægilega öfl-
ugar til að standast utanaðkom-
andi árás. 5% höfðu enga skoðun á
inálinu.
Utanrikisráðherrarnir, Ólafur
Jóhannesson, íslandi. Knut Fryd-
enlund, Noregi, Kjeld Olesen,
Danmörku, Ola Ullsten, Sviþjóð
og Matti Tuovinan, Finnlandi,
funduðu i siðustu viku i Osló.
Þeir sögðu í yfirlýsingu, að von-
andi yrði frumkvaéði Norðurland-
anna á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna undir heitinu: „Umræð-
ur um virkari reglur vegna
verndunar, öryggis og sjálfstæðis
sendiráða og starfsfólks þeirra“
til þess að auka virðingu fyrir
sendiráðum og málum sem snerta
sendiráð.
Það var lögð áherzla á meðal
norrænna embættismanna, að
gíslatakan í íran yrði ekki í
brennidepli þessara umræðna, —
heldur yrði rætt um ráðstafanir
til að auka öryggi sendiráðsstarfs-
manna. Undanfarin ár hafa
nokkrir bandarískir sendiráðs-
menn verið myrtir. Má þar nefna í
Súdan, Afganistan, Líbanon og á
Kýpur, — utan gíslatakan í Teher-
an.
Flóðá
Indlandi
A.M.K. 181 maður týndi lífi um
helgina á Norður- og Austur-
Indlandi í miklum flóðum og
rigningum. Ár hafa flætt yfir
bakka sína og mikið hefur verið
um skriðuföll. Alls hafa 1450
manns farist í flóðahéruðunum.
Búist er við að ástandið eigi eftir
að versna enn.
ERLENT