Morgunblaðið - 11.09.1980, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1980
+
Jaröarför
GUOMUNDARJÓNSSONAR,
frá Dýrafiröi,
er lést 5. september, hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna.
F.h. vandamanna.
Sígriöur Jónsdóttir.
t
Móöir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT TH. INGVARSDÓTTIR,
Freyjugötu 7,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 12. september
kl. 13.30.
Gunnar Símonarson,
Svava S. Guttadaro, Louis Guttadaro,
Njáll Símonarson, Svava S. Vilbergsdóttir
og barnabörn
t
Hjartkær eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir, tengdasonur og afi,
GUNNAR SMITH,
veröur jarösunginn frá Bústaöakirkju föstudaginn 12. september
kl. 10.30.
Soffía Smith,
Karl G. Smith, Margrát Guömundsdóttir,
Örn Smith, Elsa L. Smith,
Gunnar Smith, Edda E. Smith,
Hilmar Smith, Anna Ottadóttir,
Soffía Siguröardóttir
og barnabörn.
Minning:
^ ■
Asmundur Sturlaugs-
son frá Snartartungu
Fæddur 5. ágúst 1896.
Dáinn 1. september 1980.
Aðeins örfá kveðju- og þakkar-
orð til Ásmundar tengdaföður
míns, sem var mér afar hugljúfur
persónuleiki. Við fráfall hans rifj-
ast upp ýmis atvik sl. rúm 20 ár.
Mér er í afar fersku minni,
þegar ég kom í fyrsta sinn norður,
nýgift einum af fimm sonum
þeirra Snartartunguhjóna, að
sjálfsögðu lítið eitt kvíðin að koma
á æskuheimili eiginmanns míns,
sá kvíði var alveg ástæðulaus.
Þegar á hlaðvarpann kom voru
þau hjón komin út úr bæ sínum,
ég sat enn inni í ökutækinu, kom
þá Ásmundur til mín með bros á
vör, svo hlýr og mildur á svip,
opnaði faðm sinn á móti mér, var
þá sem allur kvíði væri á bak og
burt. Síðan kom húsfreyjan og tók
mér á sömu leið, bauð okkur að
ganga inn í bæinn. Var boðið
fljótlega tii matar, kynntist ég þá
vel þessari rómuðu íslenzku gest-
risni.
Stuttu síðar fórum við út að
skoða okkur um ásamt tengdaföð-
ur mínum, varð ég þá áþreifanlega
vör við, hversu vel hann unni
sínum heimahögum. Þetta var
fyrri part júlímánaðar, þegar ísl.
sumarið skartar sínu fegursta.
Hafði ég þá orð á því, að hér
væri unaðslegt á sumrin, en vet-
urnir hlytu að vera langir og
strangir fyrir búandi, þá svaraði
hann á sinn hógværa hátt, „Það er
engin þörf að kvarta þegar blessuð
sólin skín.“ Árin liðu, og á meðan
Snartartunguhjónin buggu þar,
nutu barnabörnin oft í ríkum
mæli sumardvalar hjá afa og
ömmu, fannst lítið sumar nema
komast norður.
Ásmundur var fyrst og fremst
bóndi, fylgdist vel með öllu, sem
hann áleit til úrbóta fyrir land-
búnaðinn.
Það mun hafa verið sonum hans
eftirminnilegt, þegar pabbi þeirra
keypti fyrsta jeppann sem í sveit-
ina kom; hef ég óljósan grun um
að þeir hafi farið nokkuð margar
ferðir út til að virða fyrir sér
„undrið", jafnvel komið sér vel
fyrir í sæti ökumanns og látið
hugann reika og aðeins snert
stýrið, en systurnar tvær horft
öfundaraugum á, úr hæfilegri
fjarlægð, vegna þess að svona tæki
í þá daga var aðeins ætlað karl-
kyninu.
Oft hefur verið langur og
strangur vinnudagur hjá þeim
hjónum. Auk starfa sem bóndi,
var Ásmundur lærður trésmiður
og vann jafnframt við smíðar, þar
fylgdust að hugur og hönd, í ríkum
mæli. Skýr er sú mynd í huga mér
hve barngóður hann var, aldrei
átti hann svo annríkt að hann
t
Móöir mín og tengdamóöir,
ÞORGEROUR EYJA KRISTJANSDÓTTIR,
Laugarnesvegi 118,
lést á Borgarspítalanum 3. sept. Útför hennar hefur fariö fram í
kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Þökkum innilega auösýnda vináttu og hluttekningu.
Ásg eröur Jónasdóttir, Einar Pétursson.
t
Útför mannsins míns, föður og tengdafööur, .
ÞÓRIS H. BERGSTEINSSONAR,
múrarameistara,
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 11. seþtember kl. 1.30.
Þuríöur Sigmundsdóttir,
Svava Þórisdóttir, Norman Eatough,
Sigmundur Þóriason, Minnie Eggertsdóttir,
örn Þórisson.
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem vottuöu okkur samúö
og vinarhug viö fráfall og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
SKÚLU ÞÓRARINSDÓTTUR,
Kolsholti.
Siguröur Gíslason, Gísli Guöjónsson,
Sigríöur Magnúsdóttir, Skúli Guöjónsson,
Ásrún Magnúsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem vottuöu okkur samúö
og vinarhug við fráfall og útför eiginkonu minnar. móður okkar,
tengdamóöur, systur, mágkonu, ömmu og langömmu,
HELGU GUÐJÓNSDÓTTUR,
Kolsholti.
Siguröur Gislason,
Sævar Sigurösson,
Guöjón Sigurösson,
Bára Siguröardóttir,
Magnús Sigurösson,
Sigrún Siguröardóttir,
Gísli Guöjónsson,
Skúli Guöjónsson,
barnabörn
Valgeröur Fried,
Eydís Eiríksdóttir,
Statén Jónsson,
Aóalheiöur Birgisdóttir,
Jón Þ. Andrésson,
Sigríður Magnúsdóttir,
Ásrún Magnúsdóttir,
og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir til allra, er sýndu okkur samúö og vlnarhug viö
andlát og jarðarför,
VALGERÐAR KR. GUNNARSDÓTTUR,
fyrrum Ijósmóóur í Basjarhreppi, Strandasýslu,
Ægisíöu 113,
Arnkall Ingimundarson,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og
velvild viö fráfall eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og
afa,
INGVARS JÓNSSONAR,
fré Þréndarholti.
Halldóra Hansdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Öllum þeim, sem sýndu okkur samúö og vinarhug vlö andlát og
útför fööur okkar og afa,
ÞORMÓDS SVEINSSONAR,
Rauöumýri 12, Akureyri,
sendum vlö innilegar þakkir og biöjum blessunar.
Rannveig Þormóösdóttir,
Ingólfur Þormóösson,
Eiríkur Þormóösson,
Ómar Svanlaugason.
+
Innilegt þakklæti til allra þeirra er sýndu okkur samúö og vinarhug
viö andlát og útför,
MARGRÉTAR ÁRNADÓTTUR,
fré Klængshóli.
Kristjén Halldórsson,
dætur, tengdasynir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Fyrirtæki okkar verður lokað
föstudaginn 12. september 1980 til kl. 14.00, vegna
jaröarfarar Gunnars Smith.
Smith & Norland H.F.
Nóatúni 4, Reykjavík.
gæfi sér ekki tíma til að tala við
börnin sem voru í nærveru hans.
Síðustu árin sem hann dvaldi fyrir
norðan sást hann oft sitjandi
undir yngstu börnunum, jafnvel
raulandi lagstúf og hampandi
þeim sér á hné, nutu þess báðir
aðilar.
Sumarið 1963 dvaldi undirrituð
ásamt dætrum sínum í Snartar-
tungu um nokkra vikna skeið, kom
að því að leið að slætti og langaði
mig til þess að reyna að vera
liðtæk úti á túni, dreif mig þangað
sem verið var að þurrka hey, stillti
mér upp við hliðina á Ásmundi
gætti þess að fylgja honum eftir,
vegna þess að fyrir tilviljun eina
var ég búin að komast að því að
hann var ljóðelskur mjög, kpnni
mikið af alls konar kvæðum, þar á
meðal tækifærisvísur; notaði hann
þá stundina vel sem verið var að
snúa heyi, að fara með skemmtileg
ljóð t.d. eins og (úr Bréfi til Matth.
Joch.) eftir Hannes Hafstein.
Árin liðu kom að því að Snart-
artunguhjón brugðu búi, fluttust
suður til Reykjavíkur, hef ég
óljósan grun um að það hafi verið
Ásmundi þung sorg, en mikil gleði
fyrir hann að vita að Sigurkarl
sonur hans tók við búinu.
Ásmundur taldi það sína mestu
gæfu í lífinu er hann gekk að eiga
eftirlifandi konu sína, Svövu Jóns-
dóttur, ættaða frá Vatnshömrum í
Borgarfirði, þann 28. febrúar 1930.
Varð þeim 8 barna auðið, misstu
einn son ungan er Snorri hét.
Barnabörnin eru 23, og langafa-
börn 3. Nutu þau samvista í rúm
50 ár, áttu guilbrúðkaupsafmæli
þann 28. febrúar sl., sem þau
héldu upp á ásamt vinum og
vandamönnum með dýrlegum
fagnaði að Álftamýri 8, Reykjavík.
Hann fylgdist mjög vel með
börnum sínum, gladdist að vel-
gengni þeirra, hafði unun að skoða
og fylgjast með, t.d. ef verið var að
byggja hús og rétti fram hjálpar-
hönd á meðan sjónin leyfði.
Hann hlustaði jafnframt afar
mikið á útvarp, var oft afar
skemmtilegt að ræða ýmis mál-
efni við hann.
Fyrir 2 vikum rúmum, fór
Ásmundur ásamt Hrefnu dóttur
sinni og Gissuri tengdasyni sínum
norður í Snartartungu í blíðskap-
arveðri björtu og fögru, gekk þar
um úti og naut þess að dvelja þar
um stund. Hér hefur verið stiklað
á stóru, en ekki get ég hætt
þessum skrifum mínum án þess að
þakka fyrir hönd eiginkonu,
barna, og tengdabarna liðnar
stundir, við söknum hans öll.
Síðast en ekki síst eru kveðjur til
afa frá barnabörnum hans, með
þakklæti fyrir ást og umhyggju
sem hann sýndi þeim, jafnframt
bið ég þau að hafa Ásmund afa
sinn að sínu leiðarljósi, á ókomn-
um árum, þá er vel. Að lokum bið
ég algóðan Guð að blessá rhinn-
ingu tengdaföður míns og vinar.
Guðrún Erna.
Min sál ok hjarta hvíli i þér
en hvil þú. GuA, i brjosti mér,
hvo hver einn morKunn heims um rann
mÍK hitti nýrri hetri mann.
(M.Joch.)
Milli Stikuháls og Skriðinsennis
gengur lítill, en djúpur, fjörður.
Inn af firðinum liggur grösugur
dalur milli hárra fjalla. Eftir
dalnum rennur lygn á, þar sem
silungar vaka á vorkvöldum. í