Morgunblaðið - 11.09.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1980
31
miðjum dalnum stendur bærinn
Snartartunga. Þar bjó Ásmundur
Sturlaugsson um hálfrar aldar
skeið. Það er sumarfallegt og
búsældarlegt í Snartartungu, en
þar getur orðið kalt á vetrum
þegar blæs af Húnaflóa.
Asmundur átti heima í Snart-
artungu alla ævi og hélt mikilli
tryggð við býli sitt og sveit. Þar
var ævistarf hans unnið.
Hér verður ekki rakin ætt eða
æviferill Ásmundar frá Snartar-
tungu. Til þess eru aðrir hæfari og
fróðari.
Ásmundur var fríður maður
sýnum og vörpulegur á velli.
Svipur hans bar vott um innri ró
og góðmennsku. Friðsamari og
hlýrri mann er varla hægt að
hugsa sér. Þótt Ásmundur væri
hægur í framgöngu, var hann
harðduglegur verkamaður og lag-
hentur enda lærður smiður. Hann
var bóndi goður og sinnti mjög vel
búfé sínu.
í einkalífi sínu var Ásmundur
gæfumaður. Hann var kvæntur
hinni ágætustu konu, Svövu Jóns-
dóttur og þau áttu mörg og
mannvænleg börn.
Við áttum sumardvöl í æsku í
Snartartungu hjá þeim Ásmundi
og Svövu. Sá eldri okkar kom
þangað fimm ára gamall, ókunn-
ugur húsbændum og flestu heimil-
isfólki. Með okkur tókst vinátta
sem síðan hefur haldist. Ásmund-
ur gerði aldrei viðmótsmun á eigin
börnum og aðkomubörnum. Hjá
honum leið ungmennum vel. Við
munum minnast Ásmundar þegar
við heyrum góðs manns getið.
Um leið og við kveðjum þennan
vin, færum við Svövu og börnum
þeirra hjóna innilegustu samúð-
arkveðjur okkar allra og þökkum
samveruna.
Stefán Bencdiktsson.
Guðmundur Benediktsson.
Minning:
Atli Baldvinsson
Hveravöllum
Fæddur 31. október 1905.
Dáinn 17. ágúst 1980.
Laugardaginn hinn 23. ágúst sl.
var Atli Baldvinsson fv. fram-
kvæmdastjóri, Hveravöllum, S-
Þing til moldar borinn frá Húsa-
víkurkirkju að viðstöddu fjöl-
menni. Ýmsir voru þar langt að
komnir og töldu ekki eftir lang-
ræði til að kveðja hann hinstu
kveðju og votta aðstandendum
hans samúð sína. Veðrið þennan
dag var svo gott sem á verður
kosið og kveðjuathöfnin hlýleg svo
hvorutveggja minnti á þann, sem
kvaddur var.
Atli var fæddur á Húsavík 31.
okt. 1905, sonur hjónanna Sigríðar
Stefánsdóttur og Baldvíns Frið-
laugssonar. Bæði voru þau af góðu
þingeysku bergi brotin en ég læt
ógert að rekja ættir þeirra hér.
Þau voru vel menntuð að sinnar
tíðar hætti og ágætir fulltrúar
aldamótakynslóðarinnar. Sigríður
var kona skáldmælt og listfeng
svo af bar. Baldvin var einnig
skáldmæltur og óumdeildur for-
ystumaður í héraði.
Guðsgjafir Atla voru góðar
bæði til sálar og líkama auk þess
sem hann hlaut vegarnesti gott úr
heimahúsum, þótt lítinn fengi
hann þar veraldarauð, enda var
honum ekki safnað þar á bæ því
hugsjónirnar sátu í fyrirrúmi.
Honum mátti því vel farnast enda
varð svo. Hann var námsmaður
góður og stóð hugur hans til
mennta. Búfræðinámi lauk hann
Minning:
Fædd 26. ágúst 1907.
Dáin 1. ágúst 1980.
Stefanía Guðmundsdóttir varð
bráðkvödd 1. ágúst síðastiðinn á
heimili sínu Tröllanesi, Neskaup-
stað. Hún hafði ekki gengið heil til
skógar hin síðari ár þótt hún
flíkaði því ekki. Það er hins vegar
mikil guðsblessun að fá að kveðja
með þessum hætti þótt nokkuð séu
það snögg umskipti fyrir aðstand-
endur.
Stefanía var fædd í Vaðlavík,
Helgustaðahreppi, 26. ágúst 1907.
Foreldrar hennar voru Guðmund-
ur Magnússon og kona hans Sól-
veig Benjamínsdóttir. Stefanía
ólst upp í Vaðlavík til sjö ára
aldurs. Hún var yngst sex systk-
ina.
Árið 1912 fluttist fjölskyldan
búferlum til Neskaupstaðar. Þar
tok Stefanía þátt í hinum marg-
víslegu störfum við sjávarsíðuna.
Veturinn 1931 fór hún á hús-
stjórnarnámskeið Kvennaskóla
Reykjavíkur. Minntist hún þeirrar
dvalar með ánægju.
Eftirlifandi manni sínum, Jó-
hanni Jónssyni, kennara á Nes-
kaupstað, giftist hún árið 1932.
Heimili þeirra hjóna á Tröllanesi
var annálað fyrir gestrisni og
rausnarskap. I blómagarðinum á
Tröllanesi undi hún sér vel á
góðviðrisdögum til hinztu stundar.
Þegar tími vannst til greip hún oft
í handavinnu og bar heimili þeirra
hjóna þess glöggt vitni.
Stefaníu og Jóhanni varð
þriggja barna auðið og eru þau
talin upp hér í aldursröð: Halldór
dr. med., læknir við Landspítalann
í Reykjavík, giftur Ingibjörgu
Ingvarsdóttur; Lilja, húsmóðir og
sjúkraliði, gift Tryggva Vilmund-
arsyni, stýrimanni, Neskaupstað;
Sólveig, húsmóðir, gift Sævari
Guðmundssyni, starfsmanni hjá
Kaupfélaginu Fram, Neskaupstað.
Þau systkin hafa fengið í arf frá
foreldrum sínum manndóm og
drengskap.
Ég og eiginmaður minn, Sveinn
Stefanía Guðmunds-
dóttir Neskaupstað
Jónsson, vorum í sambúð við
Stefaníu og Jóhann í tíu ár á
Tröllanesi. Varð ég þeirrar gæfu
aðnjótandi að kynnast henni mjög
vel þennan áratug. Hún átti þá
auðlegð, sem felst í hlýju og
göfugu viðmóti.
Stefanía var félagslynd og tók
þátt í þróttmiklu félagsstarfi á
Neskaupstað. Þegar kvennadeild
Slysavarnafélagsins á Norðfirði
var stofnuð fyrir 45 árum, var hún
ein af stofnendum hennar og ætíð
virkur félagi síðan. Einnig starf-
aði hún í Leikfélagi Neskaupstað-
ar og fleiri félögum. Hún hafði
yndi af söng og sígildri tónlist og
söng í nokkrum kórum á yngri
árum, meðal annars í kirkjukór
Norðfj arðarkirkj u.
Ég á margar góðar endurminn-
ingar frá samstarfi okkar frá
liðnum áratugum. Varðveiti ég
þær dýrmætu perlur í djúpi minn-
inganna.
Við hjónin þökkum Stefaníu
ánægjulegar samverustundir frá
liðnum árum og sendum eigin-
manni, börnum og fjölskyldum
þeirra og systrum þínum innilegar
samúðarkveðjur.
Þórunn Jakobsdóttir
frá Neskaupstað.
frá Hvanneyri vorið 1928 og
stundaði síðan nám í tvo vetur á
Statens hagebruksskole á Stop í
Noregi og útskrifaðist þaðan vorið
1930.
Árið 1938 tók Atli við fram-
kvæmdastjórastöðunni af föður
sínum hjá Garðræktarfélagi
Reykhverfinga og gegndi hann
henni við góðan orðstír allt til
þess að heilsu hans þraut fyrir
rúmum þrem árum. En fleiri
trúnaðarstörf féllu honum í fang
er tímar liðu. Hann var um langt
árabil oddviti sveitar sinnar,
hreppsstjóri og sýslunefndarmað-
ur, auk þess sem hann var formað-
ur ýmissa félaga og í stjórnum og
nefndum.
Öll þessi trúnaðarstörf féllu
honum í skaut án þess að hann
sæktist eftir þeim og öll rækti
hann þau af stakri trúmennsku og
óeigingirni. Allt bar þess vott að
samferðamennirnir tryðu honum
og treystu.
Atli var maður vel gefinn,
bókhneigður og listrænn, fáskipt-
inn um annarra hagi, en fyrst og
fremst viðkvæmur og svo dulur að
fáir munu hafa þekkt hann að
fullu og öllu. Hitt duldist engum,
að hann hafði sínar skoðanir á
hlutunum og lét ekki undan síga ef
svo bar undir.
Hann var jafnan heils hugar og
bar þar hæst umhyggju hans fyrir
þeim, sem næstir honum stóðu.
Honum var eðlilegt að gefa af
sjálfum sér og safnaði ekki verald-
arauði. Á síðari árum kenndi hann
heilsuleysis, en bar svo hljóðlega
að ýmsum duldist. Svo kom þar að
hann hlaut heilablóðfall og mátti
þar enginn mannlegur máttur bót
á ráða hversu sem eftir var leitað
og var það hans nánustu illt uppá
að horfa.
í rúmlega 3 ár lá hann á
sjúkrahúsum ósjálfbjarga og svo
slitinn úr tengslum við umhverfið
að enginn þekkti hans hugarheim.
Hver þjáning hans var veit
enginn, en þá yfir lauk hygg ég að
dauðinn hafi verið honum líkn-
samur og þakkir flyt ég þeim, sem
önnuðust hann af alúð og ósér-
plægni.
Árið 1931 gekk Atli að eiga
eftirlifandi konu sína, Steinunni
Ólafsdóttur, Davíðssonar, stór-
bónda á Hvítárvöllum í Borgar-
firði. Hjónaband þeirra var jafnan
með ágætum og sýndi Steinunn
manni sínum slíka umönnun allt
til hinstu stundar að til sóma er.
Þeim Steinunni og Atla varð fimm
barna auðið og eru fjögur á lífi,
Sigríður gift undirrituðum, María
gift Unnsteini Jóhannssyni lög-
regluvarðstjóra og búsett í Garða-
bæ, Ólafur framkvæmdastjóri
giftur öldu Pálsdóttur garðyrkju-
fræðingi, búsett að Hveravöllum
og Baldvin garðyrkjufræðingur
búsettur að Hveravöllum.
Þegar ég nú sé Atla Baldvinsson
hverfa fyrir feigðarbrún, þá hef ég
þetta að segja: „Ég þakka þér fyrir
allt Atli.“ Svo hygg ég að margur
mundi mæla vilja og ekki hvað
síst barnabörn hans, sem hann
rækti öðrem fremur.
Vigfús B. Jónsson.
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
CITROÉN
Til sölu
Citroen CX 2000 árg. ’75. Einstaklega fallegur og
vel meö farinn bíll. Til sýnis og sölu aö Lágmúla 5.
GlObUSt
LAGMUU E>. SIMI81555
J
1 \
Pólýfónkórinn
Kórskóli Pólýfónkórsins hefst 29. september. Kennt
veröur í Vöröuskóla (á Skólavöröuholti) á mánudags-
kvöldum kl. 20—22 — 2 stundir í senn í 10 vikur.
Kennslugreinar:
Raddbeiting og öndun
Heyrnarþjálfun
Rytmaæfingar
Nótnalestur.
Kennarar:
Ingólfur Guöbrandsson, söngstjóri
Herdís Oddsdóttir, tónmenntakennari
Siguröur Björnsson, óperusöngvari
Ruth L. Magnússon, óperusöngvari.
Kennslugjald aöeins kr. 15.000 — Notfæriö ykkur
þetta tækifæri til aö taka upp þroskandi tómstunda-
starf og njótiö leiösagnar fyrsta flokks kennara.
Þátttaka tilkynnist í síma 21424 og 26611 á daginn
en 43740 og 72037 á kvöldin.
Austurbær
Freyjugata 1
Lindargata
Ármúli
Samtún.
Vesturbær
Skerjafjöröur fyrir sunnan flugvöll.
Hringið í síma
35408