Morgunblaðið - 11.09.1980, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 11.09.1980, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1980 39 Dunbar leikur með ÍS í kvöld EINS OG flestir körfuknattleiks- unnendur muna lék Bandarikja- maðurinn Dirk Dunbar með liði IS fyrir tveimur Arum. Vegna meiðsla varð hann að halda til síns heima og læknar skipuðu honum að hætta öllu körfubolta- sprikli, að viðlögðum staurfótum og öðrum álíka skemmtilegheit- um. Síðan hefur hann haft hægt um sig en þó stolist í boltaleik við og við. í sumar fór hann í keppnis- ferð til Mexíkó með liði frá heimafylki sínu. Liðið lék átta leiki á jafnmörgum dögum og kappinn Dunbar lét sig ekki muna um að skora 35 stig að meðaltali í leik. Nú er Dirk á förum til Þýska- lands þar sem hann mun þjálfa 1. deildarliðið Darmstadt. Á leiðinni þangað heilsaði hann upp á vini og kunningja hér á landi; og ætlar að leika einn leik með sínum gömlu félögum í ÍS. Ekki er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur því að mótherjarnir verða íslands- og bikarmeistarar Vals. Bæði liðin tefla fram öðrum bandarískum leikmönnum en síðastliðið ár. Með Val leikur Roy Johns, fjallgrimm- ur miðherji, en með stúdentum Mark Coleman, eldsnöggur og skæður framherji. Fuli ástæða er til að hvetja fólk til að sjá allar þessar kempur eigast við. Leikurinn fer fram í íþróttahúsi Kennaraháskólans nk. fimmtudag og hefst kl. 20.00. Volvo-mót á Skarövelli LAUGARDAGINN 13. sept. nk. verður opna VOLVO-golfmótið haldið á Sauðárkróki, og hefst það ki. 10 f.h. Keppt verður í karlaflokki með og án forgjafar. Volvo-umboðið hefur gefið verð- laun og að auki farandbikar, sem verður þó eign þess, sem sigrar án forgjafar í þriðja sinn. Aukaverðlaun hlýtur sá sem verður næst holu eftir teighögg á 5. braut. 10 fara á NM-mót í kraftlyftingum Norðurlandameistaramótið í kraftlyftingum fer fram í Dramm- en í Noregi dagana 12., 13. og 14. september nk. Lið íslands skipa eftirtaldir: Fl. 67,5 kg Kári Elísson IBA Fl. 67,5 kg Daníel Olsen KR Fl. 75,0 kg Skúli óskarsson UÍA Fl. 82,5 kg Sverir Hjaltason KR Fl. 90,0 kg ölafur Sigurgeirss. KR Fl. 100,0 kg Hörður Magnúss. KR Fl. 100,0 kg Halldór E. Sigur- björnsson KR Fl. 110,0 kg Viðar Sigurðsson KR Fl. 125,0 kg Jón Páll Sigmarss. KR Fl. 125,0 kg Víkingur Traustason ÍBA Ársþing BSÍ ÁRSÞING Borðtennissambands Islands verður haldið laugardag- inn 8. nóvember 1980 í félags- heimili Rafmagnsveitu Reykja- vikur og hefst kl. 14:00. Dagskrá samkvæmt lögum. Lagabreytingar og tillögur sem sambandsaðilar vilja leggja fyrir þingið þurfa að hafa borist stjórninni eigi síðar en 18. októ- ber. Stór UTSOLl) MARKAÐUR hefst á morgun í Sýningarhöllinni við Bíldshöfða kl. 1 0PIÐ FRA KL. 1—10 e.h. afsláttur hefur varla verið gef- inn né jafn stórt úrval af vörum sést á jafn stóru svæði. tærstur allra markaða sem nú er haldinn á landinu. Vægast sagt ★ Herrafatnaöur ★ Dömufatnaöur ★ Unglingafatn- aöur ★ Barnafatnaöur ★ Nærfatnaöur — herra — dömu og barna ★ Dömu — herra — barnaskór ★ Efni og bútar — ullar, denim, kakhi, poplín, fóöur, gardínuefni, stórisar o.m.fl. ★ Tilleg (s.s. tölur, rennilásar, tvinni o.fl. þ.h.) ★ Hljómplötur — kassettur’ Pú getur gert stórkostleg innkaup á stórglæsi legum.yörum í stórbrotnum húsakynnum m 12 fyrirtæki verzlanir, saumastofur, heildverzlanir, hljómplötuútgefendur t.d. Saumastofa Karnabæjar, Steinar hf., Skóverzlun Þóröar Péturssonar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.