Morgunblaðið - 18.09.1980, Side 14

Morgunblaðið - 18.09.1980, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980 Boeing 737-2000-vöruflutninga- og farþogavél Air Alaska. Um nokkurt akaié hafa fariö fram athuganir ó vegum Flugleiða um rekstur slíkra véla til að leysa af hólmi eldri Boeing 727-IOOC-vélarnar, sem verið er að selja. Þrjér DC-8-þotur Flugleiða é Luxemborgarflugvelli. Hver þeirra ber 249 farþega og 5 tonn af varningi. Vélunum er hægt að breyta í vöruflutningavélar og bera þsar þé 46 tonn af varningi. Samkeppnin í flugheintinum Flugleiðir tryggja samgöngur íslands við önnur lönd Flugfloti Flugleiða í dag samanstendur af fjórum hafa Flugleiðir framleigt til Air Florida til tveggja Fokker F-27-vélum, tveimur Boeing 727-100C, sem ára. Eignaaukning fyrirtækisins í Tíunni er talin nú er reyndar verið að selja, einni Boeing 727-200 vera einn milljarður íslenskra króna eða um 2 og þremur DC-8-63-þotum. Þá fékk fyrirtækið eina milljónir dollara. Kaupverðið var rúmar 40 DC-10-30 CF-breiðþotu afhenta í desember 1978, milljónir dollara. sem félagið hefur á kaup-leigusamningi. Tíuna Þörfum landsmanna sinnt áfram Til þess að fá nokkurn fróðleik varðandi ýmsa þætti flugrekstrar Flugleiða var rætt við Leif Magn- ússon verkfræðing, framkvæmda- stjóra flugrekstrarsviðs félagsins. í upphafi kvaðst hann vilja geta þess, að það væri mikill misskiln- ingur, sem nú virtist uppi, að Flugleiðir væru að hætta flug- starfsemi sinni, þótt nú ætti að draga úr fluginu milli Luxemborg- ar og Bandaríkjanna. — Félagið hefur fullan hug á að sinna áfram flutningaþorf innanlands og milli landa og það er mikill misskiln- ingur ef almenningur heldur að nú ætli Flugleiðir að leggja niður alla flugstarfsemi, sagði Leifur Magn- ússon. — Fyrir utan flugrekstrar- leyfi félagsins er taka til áætlun- arflugs, sinnir félagið einnig áfram ýmiss konar þjónustuflugi og leiguflugi. Leifur Magnússon var spurður að því hvað framundan væri varðandi flugvélaflota félagsins. Ekki þotur í innanlandsflug — Flugfélög eru sífellt að at- huga og ræða hvað henti þeim best til endurnýjunar og viðhalds flugvélaflota sínum og Flugleiðir sinna því að sjálfsögðu líka. Stöð- ugt þarf að fylgjast með því hvaða flugvélartegund henti best verk- efnum félagsins. Varðandi innan- iandsflugið má segja að enn um sinn virðist hagkvæmast að reka Fokker F-27-vélar miðað við verk- efnin þar, þótt á vissum flugleið- um virðist heppilegra að vera með minni flugvél, t.d. 20—30 sæta, til að viðunandi tíðni ferða fáist. í yfirliti yfir notkun flugvéla fé- lagsins á siðasta ári kemur fram að meðalflugtími ferða í innan- landsflugi er 53 mínútur. Fjöldi árlegra flugferða í innanlands- flugi er mikill, yfir 9 þúsund óg vegalengdir stuttar, 298 km að meðaltali, og í flugi sem þessu hentar því ekki að vera með þotur, eins og stundum hefur verið spurt um. Athygli hefur vakið, að eftir hinar miklu eldsneytishækkanir síðustu ára hefur SAS ákveðið að hætta rekstri DC-9 þotna á styttri flugleiðum sínum og nota þar heldur Fokker-F27. Næstu þotukaup B-737? Millilandaflugið krefst einnig sams konar skoðunar varðandi flugvélakost og seinna á þessu ári verður að taka ákvörðun um næsta skref varðandi þotukaup. Við höfum komist að þeirri niður- stöðu að á Evrópuleiðum verði hér valið á milli Boeing 727 og -73^þotna. Hafa Boeing-verk- smiðjurnar gert ítarlega könnun fyrir félagið á tæknilegum og fjárhagslegum þáttum ýmissa valkosta í rekstri þessara flugvéla á leiðum félagsins. í þessu sam- bandi koma til greina þrír kostir, að hafa eingöngu B-727, eingöngu B-737 eða þotur af báðum þessum tegundum, þ.e. nýju B-727/200C- þotuna og nýja og fullkomna þotu af gerðinni B-737. Hér þarf að hafa í huga bæði farþega- og vöruflutninga, en í flugrekstri okkar koma til ákveðnar forsend- ur, sem liggja til grundvallar við athugun á slíkum flugvélategund- um. Hér má skjóta því inn í að þotur af gerðinni B-737 eru búnar tveim- ur hreyflum og gert ráð fyrir að þeim fljúgi tveir flugmenn, þ.e. ekki er gert ráð fyrir flugvél- stjóra. Af þeim 75 flugfélögum, sem í dag reka Boeing 737, hefur 71 félag tveggja flugmanna áhafnir, en aðeins 4 félög þriggja manna áhafnir. Samtök flug- manna hafa sums staðar mótmælt því að fljúga slíkum vélum nema með þriggja manna áhöfn og sumir flugmenn telja ekki rétt að fljúga þessum þotum á langleiðum ' yfir úthaf með tvo hreyfla. Arnar- flug hefur hins vegar áhuga á að kaupa vél af þessari gerð til að leysa af hólmi núverandi fjögurra hreyfla Boeing 720-vél sína, enda yrði slík flugvél mun betur sam- keppnisfær á alþjóðlegum leigu- flugsmarkaði. Boeing þotur í vetraráætlun Vetraráætlun félagsins hefur nýlega verið kynnt og þar kemur fram að reka á allt millilandaflug- ið með Boeing-þotum, annars veg- ar þeirri nýju og hins vegar annarri gömlu þotunni. Líklegt er Forréöamenn Flugleiða. Á myndinni eru fré vinstri: Leifur Magnússon, Siguröur Helgason, örn Ó. Johnson, Björn Theódórsson, Erling Aspelund og Sveinn Sæmundsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.