Morgunblaðið - 21.09.1980, Side 7

Morgunblaðið - 21.09.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1980 7 Fyrr í þessum þáttum var rætt um málsnilld Stephans G. Stephanssonar, stór- skáldsins sem aldrei gekk í skóla. Enn eru til menn meðal okkar, sem lítillar skólagöngu hafa notið og einskis framhaldsskólanáms og eru þó orðsnjallir og málnæmir í besta lagi. Þeir hafa lesið mikið og alist upp við gott málfar. Einn þessara manna er Gunnar Konráðsson verka- maður á Akureyri. Hann hefur óteljandi sinnum kom- ið skeiðríðandi á hjólinu sínu til mín, hress og feimulaus. Alltaf hefur hann haft eitt- hvað af viti fram að færa um íslenskt mál, og mér hefur virst að smekkvísi hans væri harla óskeikul og dómgreind- in hvöss. Þegar við hittumst síðast, sagði hann mér að fleirtöluáráttan væri orðin svo mögnuð, að í viðtali í Vikunni hefði þess verið get- ið um einstæða móður, að hún þyrfti að sækja tvær vinnur til þess að sjá sér og sínum borgið. Þá þóttu hon- um það lítil tíðindi, sem hann las í fréttagrein í Þjóð- viljanum, að unnið hefði ver- ið „að gerð botnvörpu fyrir trollveiðar“ og annað í þeim dúr. Þetta síðasta gefur efni til að rifja upp nýyrðasmíð í sambandi við þess konar veiðar, er þarna var frá sagt. Um Guðmund Björnsson landlækni segir svo í grein eftir prófessor Halldór Hall- dórsson: „Þá gerði hann sögnina toga um það, sem kallað var trolla, og togari um það, sem nefnt var troll- ari eða botnvörpungur. Rétt er að taka það fram, að trolla og trollari heyrist enn, en einkum þó orðið troll um vörpuna. Orðið botnvörp- ungur er nú vart notað í daglegu tali, en botnvörpu- skip helst í eiginnafninu Félag íslenzkra botnvörpu- skipaeigenda.“ (Þættir um ísl. mál, Rvík 1964, bls. 148). í íslendingi 10. þessa mán- aðar er fræðslustjórinn á Norðurlandi eystra tekinn tali. í þessu viðtali segir m.a.: „Þá er þar sérkennari, Kristín Aðalsteinsdóttir, í hálfu starfi og verið að ganga frá ráðningu annars sérkennara, Guðrúnu (auðk. hér) Jónu Ásgrímsdóttur, í hálfa stöðu ...“ Ég geri ráð fyrir því, að kona sú, sem ráða á, heiti Guðrún, ekki Guðrúna, og er þá eignarfallið Guðrúnu að sjálfsögðu rangt, á að vera Guðrúnar, og má nú kalla að skörin sé farin að færast upp í bekkinn, ef menn kunna ekki að beygja langalgeng- asta kvenmannsnafn á ís- landi fyrr og síðar. Ef hér verður ekki brugðist hart við, getum við búist við því að farið verði að segja til Krist- ínu, Elínu, Margrétu, Ingi- björgu o.s. frv. Við skulum þó vona að hin gamla og góða „sterka“ beyging þessara kvenmannsnafna sé ekki í bráðri lífshættu, að vel þurfi að brýna, áður en hún verður skorin niður við trog. Minn- ist ég þá vísunnar sem Jón Friðriksson á Hömrum í Reykjadal orti, þegar honum varð dauðinn hugstæður: Ék er að biða. biða eftir þér. bölvaAur karlinn með stóra, sköróötta Ijáinn. En það skaltu vita, og það skal sannast á mér, að þú þarft að brýna á elstu og seigustu stráin. Vitanlega eiga gælunöfn eins og Rúna, Stína og Ella, svo og stuttnefni eins og Inga, þátt í því að beyging hinna „sterku" kvenmanns- nafna brenglast. En það er lítil afsökun fyrir okkur, og aumasta latmæli, ef við tök- um að segja til Þorbjörgu og Sigrúnu í stað Þorbjargar og Sigrúnar, og annað eftir því. Enn eru menn að rugla saman svo algengum sögnum sem hafa og hefja. Hér í Morgunblaðinu var í frétt fyrir skemmstu komist svo að orði: „Var þess krafizt, að for- ysta ASI hefði þegar viðræð- ur við stjórnvöld um lækkun skatta ...“ Hér á að standa hæfi í stað hefði. Þetta er viðtengingar- háttur þátíðar af sögninni hefja, en hún beygist sterkt: hefja, hóf, hófum, hafið. Þá myndast viðtengingarháttur þessi af 3. kennimynd með hljóðvarpi, ef hægt er, í þessu dæmi hófum — hæfi. Ekki hef ég ætlað mér að fjalla um stafsetningu í þess- um þáttum. Slíkt eru undan- tekningar. Kvenmannsnafn- ið Oddný Jensdóttir hef ég séð ritað Oní Énsdóttir. Þetta rifjaðist upp fyrir mér, þegar hringt var til mín og spurt, hvort rita mætti Jens með é-i. Ja, hvað má, og hvað má ekki? Auðvitað er það venja að skrifa Jens og önnur þvílík nöfn af erlend- um uppruna með je, en ekki é. Frægt er að sr. Þorleifur Jónsson á Skinnastað, mikill lærdómsmaður í málfræði og málhreinsunarmaður (púr- isti), hélt mjög fram rithætt- inum é í stað je. Hann var þá spurður, presturinn, hvort rita skyldi Jesú með é-i. Þá svaraði sr. Þorleifur hvat- skeytslega, svo að menn hafa jafnvel híað sér við að hafa það eftir: „Það veit ég ekki. Þetta er útlendur andskoti." eins og tónlist í litum Kassettusegulbandstæki CR-4110 Ljósadlóðumælir — framhlaöiö Nú þarf enginn að fara / hurðalaust... Inrti- og útihurðir i úrvaii, frá kr. 64.900.- fullbúnar dyr með karmalistum og handföngum Vönduð vara við vægu verði. H BÚSTOFN Aðalstræti 9 (Miðbæjarmarkaðí) Simar 29977 og 29979 Skipulag skjalavistunar- kerfa Dagana 2. október kl. 09—17 og 3. október kl. 09—12 heldur Stjórnunarfélag íslands námskeió um Skipulag skjalavistunarkerfa. Námskeiðió verður haldið aö Hótel Esju 2. hœö. Leiöbeinendur á námskeiöinu veröa ráögjaf- arnir Michael S. Preston og Kevin Batchelor hjá bandaríska fyrirtækinu Alexander Grant Mlchael S. Preston & Co. — Fjallaö verður um grundvallaratriöi við skipulagningu og stjórn skjalavistunar. — Gerö veröur grein fyrir hinum ýmsu tækjum til skjaiavistunar. m.a. kostum og göllum míkrófilma og örskyggna. — Kynnt veröur hvernig nýta má ritvinnslu- tæki viö skjalavistun og almenn skrifstof- ustörf og sýndar kvikmyndir um notkun slíkra tækja. — Fjallað veröur stuttlega um tímastjórnun og sýnd kvikmynd sem fjallar um tfma- stjórnun. Námskeiöiö er ætlaö skrifstofustjórum, deildarstjórum, framkvæmdastjórum og öör- um þeim sem skipuleggja skjalavistun og annast innkaup á tækjum og öörum útbún- aöi fyrir skjalavistun. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins, sími 82930. M| STJÓRNUNARFÉLAG fSLANDS SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930 anœsfunni Odýru jólafargjöldin Verð báöar leiðir: Kaupmannahöfn Glasgow London Luxemborg Ósló Stokkhólmur kr. 125.000,- kr. 93.100,- kr. 107.700,- kr. 132.700,- kr. 113.900,- kr. 142.600.- (Brottfararskattur kr. 8.800,- ekki innifalinn). Vinsamlegast bókiö sem fyrst. Athugiö: Kynniö ykkur vandlega alla skilmála áöur en bókun fer fram. Cartridge loading: Front Nr. of heads: 2 (Hard permalloy rec./playback, ferrite erase) > Wow & flutter: Less than 0.1% WRMS RMgnal-to-noíse ratio: 60dB (Dolby on) Frequency response: 30-15.000Hz (Cr02 30-12.500Hz (normal) Fast forward / rewind tíme: 90 sec. (C-60 tape) BORGARTÚNI 18 REYKJAVlK SiMI 27099 SJÓNVARPSBÚDIN FERDASKRIFSTOFAN URVAL VIÐ AUSTURVOLL SÍMI 26900

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.