Morgunblaðið - 21.09.1980, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1980
Ur
myndasafni
Olafs K.
Magnússonar
elsku var Ben-Gurion enn aö upp-
fræða þá íslensku um land sitt og
þjóð. Ólafur vatt sér í hópinn og sagöi
viö Ben-Gurion: „Á meðan þér hvílduð
yður, herra forsætisráðherra, senduð
þér hersveitir yðar á mig.“ „Hvaða
hersveitir?“ spurði Ben-Gurion undr-
andi. „Allar mínar hersveitir eru heima
í ísrael.” „Nei, ég á viö þessar
hersveitir þarna,“ sagði Ólafur Thors
og benti á ísraelsku blaðamennina, og
þeir eru líka reiðubúnir að berjast
með yður." Ben-Gurion, sem augsýni-
lega misskildi íslenzka forsætisráö-
herrann hristi höfuðið og sagði, „Mér
er alveg sarna." Ólafur Thors útskýrði
fyrir honum hvað hann hefði átt við og
lét Ben-Gurion þá í Ijós efa um, að allir
blaðamenn stjórnarandstöðunnar í
ísrael myndu berjast með sér. Þá
sagöi Ólafur Thors: „Stjórnarandstað-
an héðan er verri en í ísrael. Hún er
verri en arabar." En Ben-Gurion
fórnaði höndum, hló og sagði, „Herra
forsætisráðherra, ég skal með glöðu
geði skipta við yður á aröbum og
íslenzku stjórnarandstöðunni." Allir
viðstaddir höfðu hina mestu skemmt-
un af þessum orðahnippingum for-
sætisráöherranna, ekki sízt þeir sjálf-
ir. Þeir hlógu og skemmtu sér án tillits
til þess sem í venjulegu tali er kallað
„diplomatí".
— HL.
„VIÐ HÖFUM GÓÐ SAMBÖND
áá
DAVID BEN-GURION, fyrsti forsætis-
ráöherra ísraelsríkis, kom í opinbera
heimsókn til íslands í september
1962. Ólafur Thors, þáverandi forsæt-
isráðherra, var gestgjafi hans hér á
landi og þar hittust tveir góöir. Þeir
áttu með sér langan fund í stjórnar-
ráðinu daginn eftir komu Ben-Gurions
og aö þeim fundi loknum sagði Ólafur:
„Eins og menn vita lætur mér betur að
tala en þegja, en í þetta skipti langaöi
mig ekki til aö segja orð. Ben-Gurion
er stórfróður á öllum sviðum og með
eindæmum geðfelldur maður. Ég
hafði jafn gaman af að hlusta á hann
og horfa á hann.“
Báðir voru þeir Ólafur og Ben-
Gurion með skemmtilega lifandi hár
og það var tilefni gamanmála milli
þeirra. Sagt er að Ben-Gurion hafi eitt
sinn sagt við Ólaf og bent á hár hans:
„You have a very lively hair, mr.
Thors.“ „Yes,“ svaraði Ólafur um hæl
og bætti síðan við: „It's the most
independent hair in lceland!"
Eins og venja er við hingaðkomur
erlendra stórmenna var farið með
David Ben-Gurion og fylgdarlið hans í
skoðunarferö til Þingvalla og fleiri
staðá á Suöurlandi. Athygli vakti hve
bílalest þeirra ók hratt, en það stafaði
af öryggisástæöum. Ekið var á þeim
hraða sem tryggöi, að hugsanlegur
tilræðismaöur gæti ekki undir neinum
kringumstæðum hæft forsætisráð-
herrann. í fylgd með honum var jafnan
vopnaður öryggisvörður og ýtrustu
varkárni var gætt. Þó tókst svo illa til í
ferðinni að bíll Ben-Gurions bilaði úti í
miðri á í Ölfusdal og öryggisverðirnir
sem voru í bílnum á undan áttuðu sig
ekki á því fyrr en þeir voru komnir
töluverðan spöl þar frá, en komu svo í
loftköstum til baka.
Þótti íslendingunum nýstárlegt aö
sjá allar þær varúðarráðstafanir sem
gerðar voru vegna komu Ben-Guri-
ons.
Eitt af því sem vakti mesta aödáun
og forvitni ísraelska forsætisráðherr-
ans var gufuafliö í iðrum landsins. í
Ölfusdal var hola látin blása honum til
heiöurs og hann varð agndofa þegar
krafturinn í holunni var leystur úr
læöingi og gufan látin streyma út í
loftið. Ben-Gurion tók um eyrun
vegna hávaðans og úr svip hans mátti
lesa mikla aödáun. Þegar lokað haföi
verið fyrir gufuna sneri hann sér að
Ólafi Thors og spuröi: „Hvaðan í
ósköpunum kemur þetta?" Ólafur
horfði sposkur á Ben-Gurion, benti
með þumalfingri til jarðar og sagöi:
„Viö höfum góð sambönd þar neðra!"
Ben-Gurion kunni vel að meta þessa
gamansemi og sagðist myndu vilja
hafa þessa orku með sér heim. „Ef þér
treystið yður til að taka þessa orku
með yður heim, tek ég mér það
bessaleyfi og lýsi því yfir, að yður er
það heimilt," sagði Ólafur Thors og
Ben-Gurion svaraði: „Ef ég gæti fariö
með þessa orku heim mundi ég ekki
skila henni aftur!" Síðan bætti hann
viö um leiö og hann benti á gufustrók-
inn: „Nú hafið þér loksins sigrað mig,
ég gefst upp.“
A Þingvöllum áttu sér einnig staö
skemmtileg orðaskipti milli þeirra
Ólafs og Ben-Gurions.
Blaðamenn höfðu þyrpst kringum
forsætisráðherrana, þeir íslensku um-
hverfis Ben-Gurion og þeir ísraéisku
umhverfis Ólaf Thors. Þegar ólafur
haföi svarað spurningum þeir.a ísra-
Ben-Gurion hreifst mjög af gufukraffinum úr borholunni sem látin var blása honum til
heiöurs. Hann haffti viö orft að rétt vssri nú aft taka eitthvaft meft sér heim af allri
þessari orkul Á þessari mynd er Sveinn Einarsson aö lýsa leyndardómum gufunnar
fyrir ísraelska forsætisráftherranum.
Vift gufugosið í Ölfusdal. Auk Ólafs Thors og Ben-Gurions má
þekkja meftal annarra verkfræftingana Gunnar Böðvarsson og
Svein Einarsson.
Úr móttöku fyrir ísraelsku forssstisráftherrahjónin í Háskóla
íslands. Sitjandi frá vinstri aru frú Paula Ben-Gurion, David
Ben-Gurion og Ármann Snnvarr. Standandi eru, talift frá vinstri,
Halldór Halldórsson, Kristinn Stefánsson, Ólafur Björnsson og
Þórir Kr. Þórftarson.
Ólafur Thors fylgir Ben-Gurion aö bílalestinni. Aft baki þeirra stendur Haukur
Hauksson, blaðamaöur Morgunblaösins.
Myndin var tekin ( Valhöll á Þingvöllum þar sem áft var og snæddur hádegisverður.
Ben-Gurion les Morgunblaöift af íhygli, lengst til vinstri er eiginkona hans, þá Ólafur
Thors og Ingibjörg Thors situr viö hlift Ben-Gurions.