Morgunblaðið - 21.09.1980, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 21.09.1980, Qupperneq 25
Jón Magnússon, formaður SUS MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1980 25 Rangfærslur leiðréttar VEGNA ummæla í grein Ein- ars K. Guðfinnssonar í Mbl. þ. 19.9. sl. leyfi ég mér að benda á eftirfarandi: 1. Einar heldur því fram, að ekkert hafi heyrst frá S.U.S. upp á síðkastið varðandi afstöðu til ríkisstjórnarinn- ar. S.U.S. eru samt einu landssamtök Sjálfstæðis- flokksins, sem tekið hafa ákveðna afstöðu gegn ríkis- stjórninni. Staðhæfingar um annað eru því beinlínis rangar. 2. Í undirbúningi er Sam- bandsráðsfundur, þar sem m.a. verður fjallað um mál- efni atvinnuveganna og hug- myndir ungra Sjálfstæð- ismanna um það hvernig eigi að stöðva landflóttann. Ég veit að við Einar erum sammála í þeim efnum og okkur gefst á þeim fundi tækifæri til að berjast fyrir sjónarmiðum okkar, en staðhæfingar um aðgerðar- leysi í þessum efnum eru því rangar. Jón Magnússon. fundi Sjálfstæðisflokksins og mælst til þess að hún yrði samþykkt. 4. Yfirskrift greinar Éinars og eitt aðalatriði hennar lýtur að því, að með sam- þykkt sinni hafi fram- kvæmdastjórn S.U.S. brotið lög S.U.S. Þessi staðhæfing er einnig röng. Þær takmarkanir, sem lög S.U.S. setja varðandi ályktanir framkvæmda- stjórnar eru tvenns konar. Annarsvegar þær, að verði ágreiningur í fram- kvæmdastjórn skuli máli vísað til stjórnar þ.e. einn framkvæmdastjórnarmað- ur hefur neitunarvald. Hins vegar að framkvæmda- stjórn sé óheimilt að álykta um stjórnmál. Fram- kvæmdastjórn var sam- mála um þá tillögu sem borin var fram og hugtakið stjórnmál verður ekki skýrt það rúmt, að ráðning fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðis- flokksins falli þar undir. Á þessi atriði þykir mér rétt að benda, þar sem rangt er farið með staðreyndir, önnur mætti nefna, en ég læt lesendum Morg- unblaðsins eftir að dæma um gildi þeirra röksemda sem fram komu í grein minni í Mbl. þ. 18. sept. og Einars þ. 19. sept. sl. Jón Magnússon.formaður S.U.S. ÞAU Bryndis Ólafsdóttir. Kristin Gunnsteinsdóttir og Eirikur Gunn- steinsson hafa haldið hlutaveltu tii ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra og söfnuðu þau tæp. 5400 kr. ÞETTA eru þær Rannveig Kramer og Regina Indriðadóttir. Þa>r héldu hlutaveltu til ágóða fyrir Kattavinafélagið, ásamt vinkonu sinni Ástu Grétu, sem var ekki með er myndin var tekin. — Þær söfnuðu rúmlega 700 kr. til félagsins. 3. Því er haldið fram, að ályktun framkvæmda- stjórnar S.U.S. vegna ráðn- ingar framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins hafi byggst á getgátum einum. Þessi staðhæfing er röng. Formaður Sjálfstæðis- flokksins hafði þá þegar haft samband við ýmsa mið- stjórnarmenn og tilkynnt þeim, að hann mundi leggja til þá skipan, sem síðar var samþykkt á miðstjórnar- Þetta geröist 22. september 1975 — Misheppnað banatilræði við Ford forseta í San Francisco. 1974 — Fimm þúsund taldir af í fellibyl í Honduras. 1965 — Vopnahlé í ófriði Indverja og Pakistana. 1960 — Mali fær sjálfstæði. 1955 — Juan Peron steypt í Argentínu. 1949 — Rússar sprengja fyrstu kjarnorkusprengju sína. 1918 — Mótspyrna Tyrkja í Pal- estínu brotin á bak aftur. 1862 — Yfirlýsing Abraham Lin- coln forseta um frelsi þræla — Bismarck verður kanzlari í Prúss- landi. 1830 — Venezúela lýsir yfir sjálf- stæði frá Kólombíu. 1789 — Austurríkismenn og Rúss- ar sigra Tyrki við Rimnik, Val- akíu. 1711 — Frakkar taka Rio de Janeiro — Tuscarora-stríðið í Norður-Karólínu hefst með morð- um Indíána á 200 landnemum. 1609 — Hálf milljón afkomenda Mára rekin frá Spáni. 1586 — Orrustan við Zutphen, Niðurlöndum. 1550 — Floti Þýzkalandskeisara tekur flotastöð sjóræningjans Dragut í Mehedia í Túnis. 1499 — Tyrkir ræna Vicenza. Afmæli. Anna Cleves Englands- drottning (1515—1557) — Chest- erfield lávarður, enskur rithöf- undur (1694—1773) — Michael Farady, brezkur vísindamaður (1791—1867) — Louis Botha, suður-afrískur hermaður og stjórnmálaleiðtogi (1862—1919). Andlát. 1776 Nathan Hale, ætt- jarðarvinur, hengdur. Innlent. 1226 d. Sighvatur Böð- varsson (á leið til Jórsala) — 1093 d. Ólafur konungur kyrri — 1393 d. Einar prestur Hafliðason — 1867 f. Sigurjón Friðjónsson — 1939 „Esja“ kemur til Reykjavíkur — 1952 d. Ágúst H. Bjarna- son.1957 Árbæjarsafn opnað — Orð dagsins. Tilræði er ýktasta mynd ritskoðunar — George Bern- ard Shaw, írskur leikritahöfundur (1856-1950). POLONEZ VERD MEÐ RYÐVÖRN HLBÚINN Á GÖTUNA KR.5.686.465 Vferö miðað við gengisskránmgu 15/9 80 FIAT-UMBOÐIÐI Smiójuvegi 4 - Sími 77200y

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.