Morgunblaðið - 21.09.1980, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBF" i»80
A NÆSTUNNI:
Nýja bíó: Fatso
Senn rennur myndin um hana NORMU RAE, skeið sitt
á enda, eftir athyglisverða aðsókn, en Norma hefur
áunnið sér mikla hylli borgarbúa. í fótspor hennar mun
feta góðkunningi okkar, Dom DeLouise, í titilhlutverki í
myndinni um fitukeppinn FATSO. Þetta er gamanmynd
um okkur, „hina vel öldu“, sem ekkert megum borða af því
sem okkur þykir gott, en allt étum ...
Leikstjóri er hin fagra frú Mel Brooks, Ann Bancroft.
VITT OG BREITT...
Laugarásbíó hefur nú
um nokkra hríð sýnt
myndina um teikni-
myndahetjuna heims-
frægu, „The Incredible
Hulk“, sem í Myndasög-
um Moggans, hefur út-
lagst JÖTUNINN
ÓGURLEGI.
Hetjur teiknimynda-
sagnanna, (comic
strips), hafa upp á síð-
kastið notið mikillar
náðar í aug”m
kvikmyndafram-
leiðenda, og það er búið
að filma marga fleiri
kappa en Hulk vin
okkar, upp á síðkastið.
M.a. gleymdi undirr. að
geta einnar slíkrar
myndar um síðustu
helgi, í kynningu vænt-
anlegra mynda í Tóna-
bíó. Leikinnar myndar
um garpinn FLASH
GORDON, sem lesendur
Tímans, a.m.k., þekkja
að góðu, undir nafninu
HVELL GEIRI. Hér er á
ferðinni hvorki meira né
minna en 40 millj. $
afkvæmi hins ítalska
framleiðanda Dino De-
Laurentis ...
Ein mest freistandi
kvikmyndahátíð jarðar-
búa er New York Film
Festival, sem sett verður
í átjánda skipti núna í
vikunni, nánar tiltekið
26. sept. Meðal hinna
fjölmörgu, athyglisverðu
mynda sem sýndar
verða, er nýjasta verk
Jean-Luc Godard, sem
frekar hljótt hefur verið
um upp á síðkastið, og
nefnist EVERY MAN
FOR HIMSELF. Annar,
heimskunnur fransmað-
ur, sem átt hefur fjöl-
margar myndir á undan-
förnum árum á NYFF,
er Truffaut, en hann
kemur með THE LAST
METRO í farangrinum.
Pólverjar hafa löngum
átt upp á pallborðið í
þessar veislu, í fimmta
skipti verður sýnd mynd
eftir Krzysztof Zanussi,
THE CONSTANT
FACTOR, og THE
ORCHESTRA COND-
UCTOR verður fjórða
mynd Wajda sem sýnd
verður er á hátíðinni. Þá
verður og frumsýnt nýj-
asta verk meistara
Kurosawa, KAGE-
MUSHA, (þ.e. í Banda-
ríkjunum).
Áf öðrum athyglis-
verður myndum er vert
að nefna LOULOU, e.
Maurice Pialat; CONFI-
DENCE, e. Istvan Szabo;
SAYAT NOVA, e. Sergei
Paradjanov; MELVIN
AND HOWARD, e.
Jonathan Demme og
nýjasta mynd Ken Lo-
ach, THE GAME KEEP-
ER, verður sýnd þar
vestra.
Þar kom að því: fyrsta
Dolby tækið til notkunar
í kvikmyndahúsi, er á
leiðinni til landsins, eig-
andinn er Laugarásbíó.
Dolbyið er mesta tækni-
byltingin í kvikmynda-
iðnaðinum síðan Skour-
as kynnti Cinema Scope,
enda er þessi tækni not-
uð við gerð allra meiri
háttar mynda í dag.
Og ekki má gleyma
spínatætunni STJANA
BLÁA, - POPEYE,
þegar minnst er á upp-
rennandi kvikmynda-
stjörnur af síðum hasar-
Isabelle
Huppert
og
Kris
Kristofferson
í
fyrsta
risavestran-
um
um
árabil,
HEAVENS
GATE,
sem
gerð
er
af
Cimino.
blaða, en Robert Altman
vinnur einmitt þessa
dagana að mynd um
sjóarann fræga. Með að-
alhlutverk fara Paul
Dooley og Shelley Du-
vall. Handritið skrifaði
leikritahöfundurinn og
háðfuglinn Jules Feiffer.
Fjölmargir aðdáendur
Paul Simon biðu með
öndina í hálsinum eftir
fyrstu LP plötu meistar-
ans um langt skeið, ONE
- TRICK PONY, en
platan er í rauninni
tónlist úr samnefndri
mynd sem hann einnig
skrifaði og leikur í aðal-
hlutverk. Leikstjórn
annast Robert Young.
Myndin verður frum-
sýnd með haustinu.
Woody Allen hefur nú
misst taumhaldið á sinni
heittelskuðu Diane Kea-
ton, þar sem hún gerðist
brokkgeng og hvarf á
braut með pilsajagaran-
um alræmda, Warren
Beatty. í hennar stað
kemur hin enska Char-
lotte Rampling, í nýj-
ustu mynd snillingsins,
I sem enn er óskýrð, að
venju.
í nóvembermánuði
verður frumsýnd nýj-
asta myndin með hinum
vinsæla, úrvalsleikara
Robert DeNiro. Nefnist
hún RAGING BULL, og
fjallar um æfi hnefa-
leikameistarans Jake La
Motta. Leikstjórn ann:
ast Martin Scorsese. í
sama mánuði verður
frumsýnd sú mynd sem
hvað umtöluðust hefur
verið á árinu,
HEAVENS GATE, stór-
vestri Michael Cimþios,
og hans fyrsta mynd
eftir snilldarverkið THE
DEER HUNTER. Cim-
ino hefur eytt geysifé í
myndina, sem sögð er
orðin jafndýr APOCA-
LYPSE NOW, í fram-
leiðslu. Með aðalhlut-
verkin fara Kris Krist-
offerson, Christopher
Walken og Isabelle
Huppert.
Og að endingu:
FJALAKÖTTURINN
hóf starfsemi sína í vik-
unni, með sýningu á
Paul Simon kemur talsvert
við sögu ONE-TRICK
PONY.
BLANKHEIT
Stjörnubíó: Þrælasalan (,,Ashanti“)
Sú staðreynd, að
þrælasala blómgast enn
þann dag í dag, víðsveg-
ar í „þriðja heiminum",
er óhugnanlegur blettur
á samtíðinni, og hann er
jafnframt féþúfa fram-
leiðenda hinnar ómerki-
legu myndar ÞRÆLA-
SÓLUNNAR, (AS-
HANTI), þar sem að
krafsað er utaní þetta
alvörumál af ærnum
glaumgosaskap.
Michael Caine og Bev-
erly Johnson, kona hans,
eru bæði starfandi
læknar á vegum W.H.O.,
í svörtustu Afríku. Eigi
er þeim hjónakornunum
þó samvinnan auðin til
langframa, þar sem
frúnni er rænt af illum,
að sjálfsögðu arabísk-
um, þrælasölum, strax á
upphafsmínútum mynd-
arinnar. Upphefst þá
einhver hinn fárán-
legasti og hallæris-
legasti eltingarleikur
sem um getur í síðustu
kapítulum kvikmynda-
sögunnar. Á milli hins
harmislegna læknis
annars vegar en hinna
arabísku dusilmenna
hins vegar. (Minnugur
þvingananna sem urðu
þess valdandi að hin
athyglisverða og að
flestra dómi velgerða
mynd DAUÐI PRINS-
ESSU, fékkst ekki sýnd
víða í olíusnauðum lönd-
um, þá spyr maður sjálf-
an sig, hvar var almátt-
ugur rannsóknarréttur
araba þegar sýningar á
þessum ósköpum hóf-
ust?)
Þekktum leikurum
bregður fyrir á stangli,
svona til uppfyllingar,
til að fá áhorfendur til
að hugsa um eitthvað
annað en vatnsblandað-
an efnisþráðinn, og ekki
síst til að trekkja að og
gefa auglýsingaplakat-
inu nokkuð dignity og
glæða það dulitlum
stórmyndarsjarma.
Þessi efnisþráður býður
óneitanlega uppá tals-
verða spennu og átök, en
handritshöfundar hafa
bersýnilega talið sér það
ofviða að gera eithvern
mat úr sögunni. Að auki
eru samtölin oftast viðs-
fjarri raunveruleikanum
og það afkáraleg, að
maður hreinlega vor-
kennir ágætisleikaran-
um Michael Caine að
láta þvílíkt og annað
eins sér um munn fara
(sbr. samtalið er fylgir í
kjölfar dráps Caine á
Peter Ustinov).
ÞRÆLASALAN nálg-
ast það aldrei að teljast
miðlungs afþreying
fjarri því. Eini kostur
myndarinnar er að hún
er tekin á söguslóðun-
um, í Afríku, og um-
hverfið er því oftast
fagurt og framandi. En
umbúðirnar einar sam-
an duga ekki til, frekar
en nöfn þekktra og
sumra hverja afdank-
aðra leikara. Reyndar
hélt ég að svo innantóm-
ar ævintýradrömur sem
þessar tilheyrðu fortíð-
inni, blessunarlega. Og
hvað framtíðina varðar,
þá vonast ég til að jafn
góðir leikarar og þeir
Caine, Holden, Harrison
og Ustinov, fái betri
tilboð og þurfi ekki að
taka hverju sem er sök-
um fjárþurrðar — en
það er eina afsakanlega
útskýringin á þátttöku
þeirra í myndum á borð
til ÞRÆLASÖLUNA.
Hér er aftur á móti
mynd velsniðin að hæfi-
leikum herra Sharifs.
úrvalsmyndinni 1900, e.
BERTOLUCCI, með
Robert De Niro og fleiri
góðum. í vetur verða
sýningarnar í A sal
Regnbogans, og er þar
nánast um byltingu að
ræða frá aðstöðunni í
Tjarnarbíói. Lang
skynsamlegast er að
kaupa áskriftarkort á
allar myndirnar 40, fyrir
litlar þrettán þúsund
krónur. Maður tali ekki
um þar sem langflestar
eru myndirnar kunn
meistaraverk sem unn-
endur kvikmyndalistar-
innar láta ekki fram hjá
sér fara. En nánar um
vetrarstarfsemi klúbbs-
ins síðar.