Morgunblaðið - 21.09.1980, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 21.09.1980, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1980 Keflvíkingar Hef opnaö hársnyrtistofu á Framnesvegi 18. Opiö alla daga nema mánudaga frá 9—5, og laugardaga frá 9—12. Sveinbjörg Haraldsdóttir. hárgreiðslumeistari, sími 3507. Snjólausar gangs téttir Gangstéttir, innkeyrslur og götur meö POLYBUTEN-plattrörlögnum Nýtiö frárennslivatniö frá hitaveitunni. 25. mm POLYBUTEN rör eru fyrirliggjandi. Pantanir óskast sóttar strax » r^unnai Sfygeítóóon k.f. Suöurlandsbraut 16. R. S: 35200 TTfBlað- AJ burðarfólk óskast Austurbær Lindargata Ármúli Bergstaöastræti Vesturbær Skerjafjöröur fyrir sunnan flugvöll Hringið í síma 35408 Chanel-dragtin heldur velli Fyrir mörgum áratugum kom franski tískufrömuðurinn Coco Chanel fram með dragt. sem siðan hefur verið við hana kennd, Chanel-dragt, og aflaði henni álits í tískuheiminum. Sú dragt hefur aldrei farið úr móð síðan. þrátt fyrir ýmsa strauma í þessum efnum. Dragtin er einföld í sniði, jakkinn stuttur, bryddaður með einlitu, hnapp- arnir gylltir eða silfurlitir. Fóðrið í jakkanum og blússan eru úr sama efni, aísilki. og auðvitað í sama lit. Pilsið er siétt en hefur tekið smábreyt- ingum með síddina. sem einatt er árlegum sveifium háð. Það er nú nær áratugur síðan að Coco Chanel lést, en dragtirn- ar hennar eru síður en svo á undanhaldi. í byrjun næsta mánaðar verð- ur opnuð ný Chanel-verslun í Bond Street „The Chanel Bout- ique“, þar sem eingöngu verða seldar vörur með Chanel vöru- merkinu, þar verða dragtirnar seldar á 765£ samkvæmt auglýs- ingu. En það eru fleiri, sem lagt hafa út í framleiðslu dragta, sem kalla má eftirlíkingar af hinum raunverulegu Chanel drögtum, og verða seldar fyrir mun lægra verð. Hjá Marks & Spencer í Oxford stræti verða til sölu dragtir á £25, og fataframleið- endurnir „Alexon" selja sínar dragtir í nokkrum verslunum og verðið er um £90. Ennfremur er hægt að kaupa prjónagarn og fyrirmynd eða uppskrift af Chanel dragt í Betlandi fyrir um £20, sjálfsagt vel þegið af mörg- um. Það er greinilega hægt að koma sér upp siíkri dragt fyrir mismunandi mikið fé, allt eftir efnahag, og svo mikið er víst, að þær konur sem eignast Chanel dragt, eða bara eftirlíkingu, geta verið vissar um að hún verður lengi nothæf og passandi við flest tækifæri. Það er engin ástæða til að ætla annað, en að flík, sem búin er að standa af sér breytingar tískunnar síðustu tvo til þrjá áratugi muni halda velli þá næstu einnig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.