Morgunblaðið - 21.09.1980, Side 44
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
JMvrgunblnbitt
SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1980
Síminn á afgreiðslunni er
83033
2M«rgun!>1«t>ife
Stranda viðræður
á kröfum prentara?
Vinnuveitendasamband ís-
lands hefur sett það skil-
yrði, að það muni ekki
ræða kauplið kjara-
samninga við Alþýðusam-
band Islands, nema því
aðeins, að lausn fáist á
kröfu bókagerðarmanna
um nýja tækni, þ.e. að
aðeins félögum í bókagerð-
arfélögum verði heimilt að
vinna á setningartölvur,
en samkvæmt samkomu-
lagi frá 1977, er blaða-
mönnum heimilt að setja á
slík tæki lesefni, sem þeir
semja sjálfir. Þá var í
gærmorgun mikill kurr í
fulltrúum Verkamanna-
sambands íslands vegna
röðunar starfsheita í
launaflokka, en VMSÍ var
fyrsta landssambandið,
sem gekk frá flokkaröðun-
inni.
í gærmorgun voru fundir milli
bókagerðarmanna og viðsemj-
enda þeirra, en auk þess sátu á
rökstólum viðræðunefndir ASI
og VSÍ, hvor í sínu lagi. Rétt um
hádegisbil var svo gefið matarhlé
og boðaður var viðræðufundur
milli aðila og átti hann að
hefjast klukkan 14. Þar átti að
taka fyrir sérkröfur landssam-
banda innan ASÍ.
Á fundinum klukkan 14 var
gert ráð fyrir að upp á yfirborðið
Kurr í VMSI
vegna launa-
flokkaröðunar
kæmi óánægja VMSÍ vegna
launaflokkaröðunarinnar. Einn
fulltrúa sagði, að svo virtist sem
allur efnahagsvandi hafi verið úr
sögunni, er samkomulag hafi
„ÞAÐ er mjög aðkallandi að fá
rikisábyrgð fyrir þessari fyrir-
greiðslu, en það er ekkert nýtt að
beðið sé um slíkt og á árunum
1973 og 1974 fengu Loftleiðir
slíka fyrirgreiðslu hjá ríkisvald-
inu upp á 7 miiljónir dollara, sem
var allt greitt samkvæmt samn-
ingum, en þessi tala nú er ekkert
meiri en þá,“ sagði Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða í
samtali við Mbl. í gær þegar
hann var spurður um beiðni
flugleiða til rikisstjórnarinnar
um ríkisábyrgð á 12 milljónum
dollara. eða 6 milljörðum is-
lenzkra króna þar sem þrír
milljarðar fari í það að breyta
skammtimalánum í föst lengri
lán og 3 milljarðar verði netaðir
vegna árstiðabundins rekstrar-
náðst milli VSÍ og VMSÍ, svo
miklu lengra hefðu þau lands-
sambönd náð, sem síðar var
samið við. Ef tekst að leysa
þennan hnút nú um helgina,
verður komið að hinum hnútn-
um, sem í gær var farinn að hafa
áhrif á viðræðurnar, tæknikröfu
bókagerðarmanna. Forystumenn
ASÍ könnuðu í gærmorgun,
vegna tæknikröfunnar, kjara-
samninga, sem í gildi eru á
„Aðeins um
tryggingu að
ræða“ segir Sig-
urður Helgason
fjárvanda, en samkvæmt beiðni
Flugleiða er það lán aðeins til
6—9 mánaða timabils.
„Nú er það viðurkennt," sagði
Sigurður, „að ef miðað er við
Norður-Atlantshafsflugið er þessi
beiðni um lánafyrirgreiðslu fjór-
um sinnum hærri en þeir 1,5
milljarðar króna sem ríkisvaldið
hefur nú viðurkennt sem okkar
framlag í Norður-Atlantshafs-
fluginu, en hér er aðeins um
tryggingu að ræða og er miðað við
Norðurlöndum og báru þá saman
við samkomulag Félags íslenzka
prentiðnaðarins og Hins íslenzka
prentarafélags, sem undirritað
var 22. júní 1977.
Svo sem af þessu má sjá, var
allt í óvissu, er Morgunblaðið fór
í prentun í gær um framhald
viðræðna ASI og VSÍ, og hvort
aðilar í raun kæmust til þess að
ræða kauplið kjarasamninga og
þar með verðbótaþátt þeirra.
að fyrri hlutinn geti komið í
október til breytinga á skamm-
tímalánum í föst lán, en seinni
hlutinn þyrfti ekki að koma fyrr
en síðar.“
Aðspurður sagði Sigurður að
vandi Flugleiða yrði mikill ef þessi
fyrirgreiðsla fengist ekki, „en í
þessu dæmi, „er ekki gert ráð fyrir
sölu á öðrum eigum, hvorki flug-
vélum, fasteignum, hlutabréfum
eða öðru, en slíkt myndi breyta
stöðunni. Við teljum þetta hins
Vegar hina eðlilegu lausn og höf-
um bent á og undirstrikað að ísland
er eina landið í Vesturálfu sem
hefur verið með flugrekstur án
ríkisstyrkja, nema á þann hátt
sem við höfum farið fram á og
alltaf hefur verið staðið við sam-
kvæmt greiðsluskilmálum."
Áætla að
slátra 805
þús. lömbum
GERT er ráð fyrir, að í haust
verði slátrað 65 þúsund fuljorðnu
fé og 805 þúsund dilkum. Áætlað
er að 925 þúsund lömb komi af
fjalli i haust, en það er 123
þúsund lömbum færra en í fyrra.
Fallþungi dilka i haust er talinn
verða 13,8 kíló að meðaltali, en í
fyrra var hann 13,02 kg. Ásetn-
ingur er áætlaður 120 þúsund
lömb á móti 85 þúsund lömbum í
fyrra. Fé á fóðrum í vetur verður
þá um 825 þúsund. en það er 28
þúsund fleira en á síðastliðnum
vetri.
Það er Sveinn Hallgrímsson,
sauðfjárræktarráðunautur Búnað-
arfélags íslands, sem gert hefur
þessa áætlun og hefur slík áætlun
ekki verið gerð áður. Hann áætlar
magn af dilkakjöti 11,109 tonn og
1397 tonn af kjöti af fullorðnu fé
eða samtals 12,506 af kindakjöti.
Er þetta 2,641 tonni minna af
kindakjöti, en kom á markað á
síðastliðnu ári.
Enn lítil
lodnuveiði
NOKKUR skip tilkynntu Loðnu-
nefnd um afla í fyrradag, en þegar
Morgunblaðið hafði síðast fregnir
af í gær hafði ekkert skip bætzt við.
Á föstudag var tilkynnt um samtals
6410 tonn, en sá afli var þó ekki
tekinn á einni nóttu, heldur hafa
skipin verið allt upp í vikutíma að
fá aflann. Straumar á miðunum
gera sjómönnum erfitt fyrir, auk
þess sem torfurnar eru smáar.
Síðustu daga hefur orðið vart við
loðnu nær landinu en áður og
vonast sjómenn til að veiðin glæðist
á næstunni. Síðdegis á föstudag
tilkynntu eftirtalin skip um afla til
Loðnunefndar: Grindvíkingur 900,
Kap II 500, Hákon 430, Pétur
Jónsson 650.
Brúðkaup á
Hveravöllum
Á HVERAVÖLLUM var í gær
haldið brúðkaup þeirra
Bergrúnar Gunnarsdóttur og
Gunnars Pálssonar sem þar
starfa við veðurathuganir
fyrir Veðurstofu íslands.
Prestur kom norðan úr Húna-
vatnssýslu á jeppa sínum, sr.
Iljálmar Jónsson á Bólsstað,
og gaf hann brúðhjónin sam-
an að viðstöddum vinum og
vandamönnum.
Bergrún Gunnarsdóttir og
Gunnar Pálsson hafa tekið að
sér að starfa á Hveravöllum í
eitt ár, en þau hafa þegar
starfað þar í ár. Ráðgert var að
hjónavígslan færi fram milli
kl. 17 og 18 í gærdag og fór
hópur ættingja árdegis inn á
Hveravelli. Hyggjast veislu-
gestir gista í óbyggðum um
helgina. Sem fyrr segir er það
sr. Hjálmar Jónsson prestur á
Bólsstað sem gefur saman og
sögðu þau Bergrún og Gunnar í
samtali við Mbl. að hann hefði
verið fús til að leggja á sig ferð
þessa. Með honum í för er
organisti hans, en þar sem
orgel mun ekki vera fyrir hendi
á Hveravöllum lætur organist-
inn sér nægja tónkvísl sína og
leiðir hann sönginn með aðstoð
hennar.
Flugleiðir óska eftir 12
millj. dollara ríkisábyrgð