Morgunblaðið - 05.10.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980
Hálfrar
starf
tímabilinu: Píanónemendur eru
um það bil helmingi fleiri en
nemendur á strengjahljóðfæri.
Á árunum 1945—60, sem kalla
mætti annað tímabilið í starfs-
sögu skólans, verður nokkur
breyting á þessu. Píanónemendum
fjölgar hlutfallslega, og er ástæð-
an ef til vill bættur efnahagur og
aukin hljóðfæraeign almennings.
Jafnframt eykst fjölbreytni náms-
greinanna: Tekin er upp kennsla á
blásturshljóðfæri og söngkennsla,
og aukin áherzla er lögð á tón-
fræðigreinar og tónsmíðar. Á
þessu tímabili eru brautskráðir
alls 47 nemendur, þar af 24
píanóleikarar, 7 fiðluleikarar, 2
knéfiðluleikarar, 5 organleikarar,
5 nemendur sem hafa tónfræði eða
tónsmíðar að aðalnámsgrein, 1
flautuleikari, 2 klarínettleikarar,
og einn nemandi lýkur „lokaprófi
kennaraefna" á píanó.
Þessi fyrstu tvö tímabil er
skólinn að meginhluta eins konar
„áhugamannaskóli", en með því er
átt við það, að meginhluti nem-
enda stundar tónlist og tónlistar-
nám aðeins sér til ánægju en
ætlar ekki að leggja fyrir sig
tónlistarstörf. Þó voru þar alltaf
innan um nemendur sem sóttu
námið af fullri alvöru og kappi,
svo sem marka má áf tölu þeirra,
sem burtfararprófi luku.
Um 1960 verða greinileg þátta-
skil að þessu leyti. Um það bil og
upp úr því taka kennaradeildirnar
til starfa hver af annarri, og
þangað sækja nemendur sem vilja
helga sig tónlistarstörfum, án
þess að stefna að því að verða
einleikarar eða tónskáld, enda er
þar um hagnýtt nám að ræða, sem
veitir ákveðin réttindi. Jafnframt
fær skólahaldið á sig fastara form
og líkara öðrum skólum. Á þessu
þriðja tímabili frá 1961—1980
hafa verið brautskráðir 101 söng-
og tónmenntakennari, 34 píanó-
kennarar, 13 fiðlukennarar og 18
kennarar á blásturshljóðfæri. Á
þessu tuttugu ára tímabili hafa
hins vegar aðeins 17 nemendur
lokið burtfararprófi, sem síðustu
árin hefur verið nefnt einleikara-
próf, í píanóleik, 11 í fiðluleik, 6 í
knéfiðluleik, 9 hafa lokið námi í
Ieik á blásturshljóðfæri (flautu,
óbó, klarínett, fagott og trompett)
og einn í hverri greininni: söng,
semballeik og tónsmíðum. Á síð-
ustu 5 árum hafa sex nemendur
lokið eins konar „minna prófi"
(stundum nefnt B-próf) í hljóð-
færaleik.
Alls hafa verið gefin út 293
burtfararprófsskírteini frá Tón-
listarskólanum frá upphafi, en
þeir sem prófunum hafa lokið eru
nokkru færri, því að ýmsir nem-
endur hafa lokið burtfararprófi í
tveimur greinum.
Ekki hefur verið kannað hve
margt af þessu fólki starfar eða
hefur starfað að tónlistarmálum,
en ætla má að mikill meirihluti
láti þau mál til sín taka með
einhverjum hætti. Lausleg athug-
un sýnir að af þeim 73 nemendum
sem luku burtfararprófi fyrstu 30
árin (til og með 1960) mun láta
nærri að fjórir af hverjum fimm
hafi helgað sig tónlistarstörfum
að einhverju eða öllu leyti, ýmist
sem einleikarar, hljóðfæraleikar-
ar í Sinfóníuhljómsveitinni, kenn-
arar eða tónskáld. Margt af þessu
fólki er þjóðkunnugt fyrir þau
störf.
Jón Þórarinsson
r yrsn nopunnn, sem brautskráður var úr söngkennaradeild
Tónlistarskólans vorið 1961. ásamt aðalkennurum sínum og
skólastjóra. Myndin er tekin á tröppunum i brúðvangi,
Laufásvegi 7, en i því húsi starfaði Tónlistarskólinn frá 1948 til
1962. Á myndinni er einnig húsvörðurinn i Þrúðvangi,
Guðmundur óiafsson, sem naut mikilia vinsælda, bæði meðal
nemenda og kennara.
Burtfararprófsnemendur 1978. Það vor brautskráðust fieiri
nemendur en nokkru sinni fyrr eða siðar: 3 einleikarar. 1
hljóðfæraleikari, 8 hljóðfærakennarar og 11 tónmenntakennarar.
Félagsstarf eldri borgara:
Fjölbreytt vetrarstarf
Félagsstarf eldri borg-
ara í Reykjavík — þ.e.
vetrarstarfið — er hafið.
en þetta er ellefta starfsár-
ið. Er það nú á fjórum
stöðum í borginni, þ.e. að
Norðurbrún 1, Furugerði
1, Lönguhlíð 3 og til ára-
móta að Hallveigarstöðum
við Túngötu. Starfið er
mjög fjölbreytt og fer sí-
fellt vaxandi, ættu því all-
ir að geta fundið þar
eitthvað við sitt hæfi.
Þar er veitt tilsögn í allskonar
handavinnu, svo sem útprjóni,
rya, smyrna, hnýtingu, vefnaði
o.s.frv. Einnig smíðaföndri og út-
skurði í bein og tré, leirmunagerð,
smeltivinnu, ýmiskonar leður-
vinnu, skermagerð, teiknun og
málun, enskukennslu, skák-
kennslu, léttri leikfimi o.fl. Spiluð
er félagsvist, en auk þess bridge og
önnur spil. Dagblöð, vikublöð,
tímarit, spil og töfl eru á hverjum
stað, gestum til afnota. Bókaútlán
á vegum Borgarbókasafns Reykja-
víkur er vikulega, og dansaðir eru
„gömlu dansarnir" einu sinni í
mánuði.
Hársnyrting og fótaaðgerða-
þjónusta er þáttur félagsstarfsins
á hverjum stað og aðstoð við bað
fyrir þá, sem þess óska.
Væntanlegar hópferðir í leik-
hús, stuttir fyrirlestrar, er varða
hag aldraðra, og ýmis skemmti-
atriði verða auglýst hverju sinni
með fyrirvara.
Selt er föndurefni og strætis-
vagnafarkort aldraðra. í félags-
starfinu eru kaffiveitingar dag-
lega. — í undirbúningi eru stutt
námskeið í matreiðslu fyrir eldri
herra, og verða þau nánar auglýst
innan skamms. Slik námskeið
hafa verið haldin á hinum Norður-
löndunum við mjög góðan orðstír,
enda hafa þau gjörbreytt lífi
margra þeirra, sem einir búa.
Ennfremur er sundnámskeið í
undirbúningi í Sundhöll Reykja-
víkur. Verður það þrisvar í viku,
þ.e. mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga, alls 18 til 20 kennslu-
stundir.
Fjölritaða dagskrá fyrir hvern
stað geta allir fengið, sem þess
óska.
Nánari upplýsingar eru veittar
á skrifstofu Félagsstarfs eldri
borgara að Norðurbrún 1 frá kl.
9.00 til 11.00 og 13.00 til 17.00, sími
86960.
VANTAR ÞIG VINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK {
Þl AIGLYSIR l \l AI.LT
LAND ÞEGAR Þl AIG
l.YSIR í MORGl NBLADIM
BJOÐUM ST0LTIR
PENTAX
MYNDAVELAR
MIKLU ÚRVALI
PENTAX MV — ME — ME SUPER
Góö
greiðslu-
kjör
Landsins
mesta
úrval
aff
Ijósmyndavörum
imus super
PENTAX
Verslið hjá
fagmanninum
\ A
LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F.
LAUGAVEG1178 REYKJAVfK SfMI 85811