Morgunblaðið - 05.10.1980, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980
54
Matarafgangar
2
rifnum osti. Einnig er tilvalið
að nota fiskinn í pæa. Þið
setjið þá bita í hálfbakaðan
pæabotn, gjarnan með grænmeti,
t.d. papriku, lauk og tómötum,
sem e.t.v. eru fyrst soðin í
olíu, og látið allt hitna í
ofninum. Einnig getið þið hrært
fiskinn með rjóma og eggjum,
ekki miklu, en svo þetta
verði mjúkt, og baka á sama
hátt og pæa. Fiskur er einnig
tilvalinn í eggjaköku gjarnan
ásamt kryddi, sbr. hér að
ofan. Og svo er kaldur fiskur
ljómandi á ristað baruð, e.t.v.
ásamt nýju grænmeti og góðri
sósu úr sýrðum rjóma með.
Þetta er reyndar fyrirtaks for-
réttur. Einnig er gott að þeyta
fiskinn með rjóma og nota
þannig á brauð. Hvítlaukur
er alltaf góður með fiski, og
ólífur einnig, ekki sízt með köldum
fiski.
Pottarim
Umsjón: SIGRÚN
DAVÍÐSDÓTTIR
Grænmeti
Soðið grænmeti er ljóm-
andi í kremsúpu, því það er
hætt við að það soðni um of, ef það
er eingöngu hitað, Þið hitið það
þá í soði, t.d. kjúklingasoði
úr tening, og setjið það síðan í
gegnum sigti, eða í kvörn. Kalt,
soðið grænmeti er tilvalið að
bera fram með edikssósu,
eða nota í gott salat. Og ekki
má gleyma eggjakökum, sem batna
við grænmetisviðbót.
Hrisgrjón, spaghetti og
kartöflur
Allt þetta er gott soðið og
kælt í salöt, sbr. hér að ofan.
Allt þetta er gott að steikja eftir
að það hefur verið soðið. Hrís-
grjón er auðvelt að hita í
ofni, e.t.v. ásamt góðri viðbót
og svo rifnum osti. Kartöflur eru
ljómandi í eggjakökur.
Hérna hafið þið smá yfir-
lit, sem vonandi hjálpar eitt-
hvað, næst þegar þið eigið skál af
matarafgöngum, og eruð óviss
hvað hægt er að gera við þá.
Viðbót
Ágæt kona hringdi um
daginn og minnti mig á Nátt-
úrulækningafélagsbúðirnar í sam-
bandi við heilhveiti og aðra
kornvöru. Búðirnar eiga
eigin kvörn. I annarri búðinni
var mér sagt að þeir ættu stein-
kvörn, en gætu ekki enn notað
hana vegna plássleysis. Það
stendur þó allt til bóta og
væntanlega getum við bráðum
keypt þar korn úr steinkvörn.
En annars er margt girni-
legt að sjá í Laugavegsbúðinni
núna. Þar fást nú rúg- og hveiti-
flögur, sem ég hef oft minnzt á
og eru frábærar í brauð.
Einnig fást þar mjög girnilegir
þurrkaðir ávextir, t.d. ferskjur,
nektarínur og svo venjulegri
ávextir. Ef þið eruð að
hugsa um að baka ávaxtakökur
til jólanna, er þetta ekki amalegt
þegar þar að kemur. Og svo
fæst girnilegt te, bæði
venjulegt te og svo ávaxtate,
sem er tilvalið að kenna börnum að
drekka, nú þegar veturinn
nálgast og nauðsynlegt
verður að fá eitthvað heitt að
drekka. Ef þið hafið áhuga á
austurlenzkum mat, fæst þarna
mikið af sjaldséðu kryddi,
sem er forvitnilegt að bragða á
og lykta af. Það er vissulega
ánægjulegt að nú skuli æ fleiri
huga að heilsusamlegri mat
og ljómandi að hafa sérverzlan-
ir eins og Náttúrulækningafélags-
búðirnar og Kornmarkaðinn.
En það er einnig óskandi að
venjulegar búðir efli heilsu-
horn sín og hafi á boðstólum gott
úrval af algengari vörum
eins og t.d. kornvöru.
Láttu ekki tilviljun
ráða þegar þú
kaupir kassettu,
spuröu um AMPEX.
^PÁMPEX
W STUDIO OUALITV CASSETTE
Það er ekki tilviljun að f
við hljóðritun nota \
flestir fagmenn ampex I
tónbönd. Tóngæði við '
hljóðblöndun og afspil-
un eru helstu yfirburð-
ir AMPEX tönbanda í
samanburði við önnur
tónbönd.
Leggöu við eyrun,
heyrðu muninn,
reyndu ampex.
GÆÐA TÓNLIST KREFST
GÆÐA TÓNBANDS
Dreifing:
•KÍB&ia
VWVVHI
Reykjavík sími 29575
\ SINFÓNlUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS~
Tónleikar
í Háskólabíói fimmtudaginn 9. október
1980, kl. 20.30.
Efnisskrá:
J.C. Bach & Sinfónía í D-dúr.
Haydn — Cellokonsert í D-dúr.
Brahms — Sinfónía nr. 2.
Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat.
Einleikari: Erling Blöndal Bengtsson.
Aögöngumiöar í bókaverzlunum Sigfúsar
Eymundssonar oq Lárusar Blöndal og viö
innganginn.
Sinfóníuhljómsveit íslands.
fFélagsstarf eldri
borgara í Reykjavík.
Vetrarstarfiö er hafiö og fer fram á fjórum stöðum í
borginni, þ.e.
Noröurbrún 1
Alla virka daga, sími 86960, frá 9.00 til 11.00 og eftir
kl. 13.00.
Hallveigarstööum
Mánudaga og miövikudaga, sími 22013 e.h. sömu
daga.
Furugeröi 1.
Þriðjudaga og fimmtudaga, sími 36040, e.h. sömu
daga.
Lönguhlíð 3.
Mánudaga, fimmtudaga og föstudaga, sími 25787
e.h. sömu daga.
Mjög fjölbreytt dagskrá, auk þess hársnyrting, fótaaögerð-
ir og aðstoð við bað, fyrir þá sem þess óska.
Vænganlegir þátttakendur, vinsamlegast kynnið ykkur
fjölritaöa dagskrá og fréttatilkynningu í dagblöðunum.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Vinsamlegast geymiö auglýsinguna.
J KAUPMENN - VERSLUNARSTJORAR
AVEXTIR
IKUKKAR
Epli rauo — Epli grœn — Appeisin-
ur — Sítrónur — Greipaldin — Vínber
græn — Vínber blá — Perur —
Melónur — Bananar — Greipaldin
Honduras — Kókoshnetur.
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, sími 85300