Morgunblaðið - 05.10.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980
57
umferð undankeppninnar og var
þar langfyrstur. Bretinn Savige
var næstur með 15,54 en í úrslita-
keppninni varð hann í 7. sæti.
I úrslitakeppninni var Huseby
algerlega í sérflokki. Fyrsta kast
hans var 16,18 m, en í öðru kasti
náði hann 16,74 m og var það
lengsta kast hans í keppninni. Öll
köst Huseby voru mjög góð. Fimm
þeirra voru yfir 16 m. Næstur
Huseby var Italinn Profeti með
15,16.“
Torfi Bryngeirs-
son Evrópumeistari í
langstökki
Um Evrópumeistaratitil Torfa
Bryngeirssonar sagði Mbl.: „ís-
lendingarnir komu enn mjög við
sögu. í dag fengu þeir annan
Evrópumeistara sinn á þessu
móti. Torfi Bryngeirsson, sem
komist hafði í úrslit bæði í
stangarstökki og langstökki,
sleppti stangarstökkinu, sem fór
fram rétt á undan langstökkinu.
Torfi náði fyrsta sæti og varð
annar Evrópumeistarinn, sem Is-
lendingar fengu á þessu móti.
Hann stökk 7,32 m og bætti fyrra
íslandsmet sitt um 8 cm.“
Annar í langstökkinu varð
Wessels frá Hollandi en hann
stökk 7,22 m.
Torfi Bryngeirsson stökk 7,20 í
undankeppninni, — stökk það kom
þegar í 2. umferð. Lengst stökk í
undankeppninni átti Portúgali,
hann stökk 7,32 m en annar stökk
7,22.
Röð efstu manna í langstökk-
inu varð:
1. Torfi Bryngeirsson, íslandi 7,32
2. Wessels, Hollandi 7,22
3. Finjez, Tékkóslóvakíu 7,20
4. Dais, Portúgal 7,00
5. Nielsen, Noregi 6,96
Örn fyrstur eft-
ir fyrri dag
tugþrautarinnar
Og snúum okkur að tugþraut-
inni. Mbl. skrifaði: „Örn Clausen
byrjaði mjög vel í tugþrautinni í
gaer. Hann vann tvær fyrstu
greinarnar, 100 m hlaup og lang-
stökk með yfirburðum. í þriðju
greininni, kúluvarpinu, varð hann
í öðru sæti á eftir Svíanum
Tannander og í hástökki í 4. sæti.
Fimmtu og síðustu grein dagsins,
400 m hlaupið vann Clausen.
Örn hljóp 100 metrana á 10,9
sem er bezti tími sem hann hefur
náð r tugþrautarkeppni og mjög
góður tími með tilliti til 100 metra
hlauparanna. í langstökki stökk
Örn 6,86 í fyrsta stökki. Annað
stökk hans var yfir 7 m en ógilt.
Þriðja stökkið var 7,09.
I kúluvarpinu var Örn næstur á
eftir Svíanum Tannader með 13,17
en 400 m vann hann með miklum
yfirburðum. Tími hans þar var
49,8, sem er bezti tími sem hann
hefir nokkru sinni hlaupið þessa
vegalengd á. Var hann heilli
sekúndu á undan næsta manni.
Örn hlaut 4104 stig eftir fyrri
daginn, en til samanburðar skal
þess getið, að hann hlaut 4147 stig
er hann vann Norðurlandatitilinn
í Stokkhólmi. Árangur hans er því
líkur og þá. Örn hefir bersýnilega
sigurmöguleika í tugþrautinni en
næstu keppinautar hans eru hver
öðrum harðari í horn að taka.“
Og röð efstu manna eftir fyrri
dag var:
1. Örn Clausen, íslandi 4104
2. Tannander, Svíþjóð 3869
3. Heinrich, Frakklandi 3792
4. Widenfeldt, Svíþjóð 3778
5. Moravec, Tékkóslóvakíu 3672
Þá var komið að síðari degi
tugþrautarinnar og ljóst að hart
yrði barist og hvergi gefið eftir.
Morgunblaðið skýrði svo frá þann
26. ágúst 1950: „Keppnin á síðari
degi tugþrautarinnar var ákaflega
hörð og tvísýn fram til síðustu
stundar. Örn Clausen hafði tekið
forustuna eftir fyrri daginn og jók
hana enn í fyrstu grein síðari
dagsins, 110 metra grindahlaup-
inu. Hann var þar fyrstur með
15,1 sek., en Frakkinn Heinrich
varð annar með 5,3 sek. Clausen
hafði eftir þessa grein 5016 stig,
Heinrich 4671 og Tannander frá
Svíþjóð 4645.
En nú fór blaðið að snúast við.
Örn átti lélegustu greinar sínar
eftir og Frakkinn fór að draga
mjög á hann. Heinrich vann
kringlukastið með 41,44 m, sem
gefur 754 stig en Clausen var þar í
10. sæti með 36,20 m, sem gefur
502 stig. Tannander dró einnig á
Örn í þessari grein, þar sem hann
kastaði 41,00 m. Clausen var með
5618 stig, Heinrich 5425 og Tann-
ander 5326.
Stangarstökkið var næst, en þar
hefur Erni aldrei tekist að stökkva
hærra en 3,40 m. Á þeirri hæð
stansaði hann einnig og varð 11. í
röðintii. Fyrir það hlaut hann 652
stig. Heinrich varð aftur á móti 3
með 3,80 m, sem gefur 818 stig en
Tannander varð 5 með 3,70 m. Enn
höfðu þessir hættulegustu keppi-
nautar Arnar dregið mjög á hann.
Örn var samt ennþá fyrstur með
6270 stig — Heinrich var með 6243
og Tannander 6101 stig. Sigurveg-
arinn í stangarstökki var Scheur-
er frá Sviss. Hann stökk 4,30, sem
er nýtt svissneskt met og annar
besti árangur í Evrópu í ár í þeirri
grein.
Heinrich tók
forystuna
Spjótkastið var næst og nú var
röðin komin að Heinrich. — Hann
kastaði 53,31 m og var í 4. sæti en
Clausen varð 11 — kastaði 47,96.
— Tannander varð 9. með 50,00 m.
Heinrich var nú orðinn fyrstur.
Hann hafði 6891 stig en Clausen
var annar með 6820 stig. Tannand-
er þriðji með 6688 stig.
Áðeins ein grein, 1500 m hlaup-
ið, var eftir. Það voru ekki miklar
líkur til þess að Erni tækist að
vinna upp bilið, sem og ekki varð.
Heinrich fylgdi honum fast eftir
og kom næstur á eftir honum í
mark: Örn varð 6. með 4.49,0 mín.
en Heinrich varð 7. með 4.50,6
mín. Tannander varð í 11. sæti
með 4.57,8 mín.
Frakkinn vann eftir þessa mjög
tvísýnu og erfiðu keppni, en ís-
lendingurinn varð annar. Báðir
bættu þeir met landa sinna. —
Þetta einvigi vakti geysiathygli á
EM. íslendingurinn tapaði, en hélt
samt velli. Fyrra met Arnar í
tugþraut án þess að setja met. —
Hvernig líta tölurnar út næst?“
Endanleg úrslit í tugþrautinni
urðu:
1. Heinrich, Frakklandi 7346
2. Clausen, íslandi 7297
3. Tannander, Svíþjóð 7175
4. Widenfelt, Svíþjóð 7005
5. Schaurer, Sviss 6944
6. Volkov, Rússlandi 6869
Þess má raunar geta, að keppt
var samkvæmt gömlu stigatöfl-
unni og fengu Frakkar því fram-
gengt á þingi Alþjóða frjáls-
íþróttasambandsins, að sú gilti á
EM i Brussel. Samkvæmt nýju
töflunni hefði Örn borið sigur úr
býtum í Brussel. Örn sigraði
Heinrich í sex greinum, jafnt varð
í einni og Heinrich sigraði í
þremur greinum.
Árangur í einstökum greinum.
Fyrri dagur: Örn Heinrich
100 m hlaup 10,9 11,3
Langstökk 7,09 6,84
Kúluvarp 13,17 13,14
Hástökk 1,80 1,80
400 m hlaup Síðari dagur: 49,8 52,2
110 m grind 15,1 15,3
Kringlukast 36,20 41,44
Stangarstökk 3,40 3,80
Spjótkast 47,96 53,31
1500 m hlaup 4:49,0 4:50,6
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Tilkynning frá
Tryggingastofnun ríkisins
Á fundi Tryggingaráös þann 25. júní 1980 var sú ákvöröun tekin, aö allar
mánaöarlegar bótagreiöslur Tryggingastofnunar ríkisins veröi frá næstu
áramótum afgreiddar inn á reikning hinna tryggöu í lánastofnunum.
Fyrirkomulag þetta mun gilda í Reykjavík svo og í öörum þeim umdæmum,
þar sem því veröur viö komið.
Meö hliösjón af ákvöröun þessari éru allir þeir, sem fá greiddar
mánaöarlegar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins, hverrar tegundar sem
þær eru, eindregiö hvattir til þess að opna viö fyrstu hentugleika
bankareikning, (sparisjóösbók, ávísanareikning eöa gíró) í lánastofnun, svo
framarlega sem þeir hafa ekki gert þaö nú þegar. Um leiö skal
Tryggingastofnun ríkisins tilkynnt númer bankareiknings, nafn og nafnnúm-
er hlutaöeigandi svo og nafn lánastofnunar. í þessu skyni eru fáanleg
sérstök einföld eyöublöö hjá Tryggingastofnun ríkisins og lánastofnunum.
Athygli skal vakin á því, aö jafnframt því sem viöskiptamenn Trygginga-
stofnunar ríkisins fá þannig greiöslur sínar lagöar inn á reikning sinn
fyrirhafnarlaust og sér aö kostnaöarlausu, hljóta þeir meö hinu nýja
fyrirkomulagi greiöslur sínar þann 10. hvers mánaöar, í staö 15. hvers
mánaöar.
Tekiö skal skýrt fram, aö þeir viöskiptamenn Tryggingastofnunar ríkisins,
sem þegar hafa opnaö reikning og tilkynnt þaö Tryggingastofnun ríkisins,
þurfa ekki neinu aö breyta.
Tilkynningu þessari er aöeins beint til þeirra viöskiptamanna Trygginga-
stofnunar ríkisins sem ekki hafa þegar fengiö sér bankareikning og tilkynnt
þaö Tryggingastofnun ríksins.
Tryggingastofnun ríkisins.
Samkvæmt rannsóknum sem Rannsóknastofnun byggingariónaóarins hefur gert á
steypuskemmdum og sprungumyndunum á húsum, hefur komiö i Ijós aó eina varanlega lausnin,
til aó koma i veg fyrir leka og áframhaldandi skemmdir, er aö klsöa þau alveg til dæmis
meó álklæóningu.
A/klæöning er seltuvarln, hrindir frá sér óhreinindum, og þolir vel islenska veöráttu.
A/klæöning er fáanleg i mörgum litum sem eru innbrenndir og þart aldrei aó mála.
Leltiö nánari upplýsinga og kynnist möguleikum A/klæöningar. ___
Sendlö teikningar og vió munum reikna út etnisþörf og gera verötilboö
yöur aö kostnaöarlausu
FULLKOMIÐ KERFI TIL SÍÐASTA NAGLA
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012.
TELEX 2025 - SÖLUSTJÓRI: HEIMASÍMI 71400.