Morgunblaðið - 05.10.1980, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980
59
síðar, — eða 1977. Þá má geta, að
íslandsmet Jóels Sigurðssonar í
spjótinu — 66,99 stóð í 25 ár, að
Óskar Jakobsson bætti það.
Afrek þessara kappa verða lengi
í minnum höfð — og sannarlega
voru þessi ár gullöld íslenzkra
frjálsíþrótta. í samtali við Mbl.
sagði Garðar S. Gíslason, að það
hefði verið mikil óheppni að þeir
Skúli Guðmundsson og Hörður
Haraldsson gátu ekki verið með í
Brussel. „En ég tel fullvíst, að
ísland hefði þá orðið í 4.-5. sæti
hvað heildarstig snerti," sagði
Garðar. Og var furða — Hörður
var einn alfremsti spretthlaupari
okkar á þessum árum og Skúli
hafði stokkið 1,97 í hástökki en
komst ekki til Brussel — hástökk-
ið vannst á 1,96 og þriðji maður
stökk 1,90.
Morgunblaðið skrifaði leiðara
um Evrópumótið í Brussel og þar
gætti stolts og ánægju af hinni
ágætu frammistöðu íslenzku
íþróttamannanna. Mbl. skrifaði
m.a.:
„A stórmóti sem þessu er ekki
búist við miklu af keppendum
fámennustu þjóðanna, þar sem
úrvalið hlýtur að vera lítið. En á
þessu móti er vafamál að keppend-
um nokkurrar þjóðar hafi í raun-
inni verið veitt meiri athygli en
einmitt þeirrar fámennustu, Is-
land, smáeyja lengst norður í
Atlantshafi sendi á þetta mót,
harðsnúinn flokk æskumanna,
sem hvað eftir annað vakti undrun
áhorfenda á Heysel-leikvanginum
í Brussel, og útvarpsþulanna, sem
á ólíkustu tungumálum skýrðu
löndum sínum frá því, sem þar
gerðist.
Islendingar áttu menn í úrslit-
um í sjö íþróttagreinum og þetta
litla land fékk tvo Evrópumeistara
á meðan milljónaþjóðir urðu að
láta sér lynda að fá einn eða
engan. Tvisvar sinnum stóð ís-
lendingur á efsta verðlaunapallin-
um. Tvisvar var íslenzki þjóðsöng-
urinn leikinn. Og þrisvar var
íslenzki fáninn dreginn að húni á
verðlaunastöngum leikvangsins í
Brussel.
Það fór ekki fram hjá neinum,
að þetta litla land átti menn í
úrslitum í 100, 200 og 400 metra
hiaupi. I kúluvarpi þekktu margir
Huseby, en að hann skyldi bæta
hið staðfesta Evrópumet og vera
rúmlega einum og hálfum metra á
undan næsta manni, mun engum
hafa dottið í hug. — Torfi Bryn-
geirsson kom öllum á óvart með
sigri sínum í langstökki. Þar var
öðrum en þessum reykvíska lög-
regluþjóni ætlaður sigur. Þá var
íslandi og mjög veitt athygli í
hinum umdeilda riðli 4x100 metra
boðhlaupsins. í útvarpssendingum
og blöðum var mikið um hann
rætt. Mátti oft heyra nafn íslands
nefnt í fréttum á hinum annar-
legustu tungumálum.
Tvo daga beindist svo loks
athyglin að miklu leyti að ungum
íslendingi, Erni Clausen. Tug-
þraut er sú grein, sem mest mun
fylgst með á hverju móti, ekki síst,
þegar keppnin er jafn tvísýn fram
til síðustu stundar og hún var að
þessu sinni. — Spurningin var:
Tekst Frakkanum Heinrich að
sigra Islendinginn? — Allt fram
til síðustu stundar var það á
huldu. I síðustu grein keppninnar,
1500 metra hlaupinu, tók Örn
þegar forustuna, albúinn þess að
vinna upp stigin sem Frakkinn
hafði fram yfir hann. Þegar svo
líða tók á hlaupið og aðal-keppi-
nautur Arnar var kominn að hlið
hans, vissi Örn að hann hafði ekki
krafta til þess. Þá rétti Örn
Frakkanum hendina og óskaði
honum til hamingju með sigurinn.
Hlið við hlið hlupu þeir svo í
mark, en áhorfendur hylltu þá
ákaft. — Skyldu Frakkar strax
gleyma íslendingnum, sem hafði
nær komið í veg fyrir sigur þeirra
í þessari sígildu íþróttagrein og
lauk keppninni sem sönnum
íþróttamanni sæmdi ...?
Iþróttamennirnir geta verið
þess fullvissir, að islenzka þjóðin
þakkar þeim af heilum hug sigur-
inn í Brussel.“
H.Halls.
Til leigu
er raöhús í Breiöholti.
Tilboö er greini fjölskyldustærö og hugsanlega leigufjár-
hæö sendist Mbl. merkt: „Endaraðhús — 4313“.
Auglýsing
Garöyrkjustöö í fullum rekstri er til leigu frá 1. nóv.
íbúöarhús fylgir. Uppl. gefur Óli Valur Hansson,
ráöunautur Búnaöarfélags íslands, og Grímur Ög-
mundsson, sími 99-6895.
Skapa fötin
manninn?
Það er nú kannske heldur mikið sagt.
Hins vegar breyta Terra fötin honum verulega.
Terra fötin eru í tískusniðum. Þau fást
með eða án vestis og ef óskað er, fóðruðum
buxum. Stærðirnar eru 50 og ef engin þeirra
passar, saumum við fötin sérstaklega.
SNORRABRAUT 56 - SiMI 13505
ÞurrkuÖblóm
-lýjungískivytilkt
í tilefni 10 ára afmælis Blómavals efnum viö til
sýningar á allskonar þurrkuðum blómum og blóma-
skreytingum.
Komiö og sjáiö heilu listaverkin verða til í höndum
fagmanna. Eigum fyrirliggjandi þurrkuð blóm og allar
vörur til blómaskreytinga.
Opið alla daga frá kl. 9 til 21.
yéffiiotfoll
Gróðurhúsinu við Sigtún: Símar36770-86340