Morgunblaðið - 05.10.1980, Blaðsíða 30
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980
Leita flugvéla á
Grænlandsjökli
„1>AÐ snjóaði óvenjulpKa mikið á
Grænlandi i fyrravetur ok vél-
arnar því á kafi i fönn. Við
urðum cinskis varir i þessari
ferð, en eÍKum eftir að koma
aftur og reyna til þrautar að
finna þær,“ sagði Timothy Ock-
enden, kanadiskur fluggarpur og
ævintýramaður i spjalli við
Flugsiðuna, en hann reyndi ný-
verið að finna sveit orrustuflug-
véla er urðu að nauðlenda á
Grænlandsjökli undir lok heims-
styrjaldarinnar síðari. Timothy
varð fyrir þvi i fyrra að nauð-
lenda Islander-fluKvél. sem hann
(>K félagar hans voru á, <>k fundu
þeir hana ekki heldur nú, en úr
henni ætluðu þeir að hjarga öllu
heilleKU.
„Við gerum okkur vonir um, að
haustvindarnir skafi snjóinn ofan
af vélunum, en þá er hugmyndin
að fljúga yfir staðinn og varpa
sendi niður, svo að hægt verði að
baka til þátttöku í bardögum gegn
Japönum á Kyrrahafi.
Flugsveitin átti að hafa við-
komu á Islandi og taka hér
eldsneyti, en vélarnar fóru fram-
hjá landinu fyrir slysni, og var um
seinan að snúa til íslands þegar
flugmennirnir uppgötvuðu hvar
þeir voru staddir, þar sem elds-
neytisbirgðir hefðu ekki dugað.
Var þá ein vélin látin lenda á
Grænlandsjökli til að kanna að-
stæður áður en hinar skelltu sér
niður. Voru hjólin höfð niðri og
tókst lendingin vel á spegilsléttu
hjarninu, og gat hún athafnað sig
FIU9
Umsjón
Ágúst Ásgeirsson,
Jón Grímsson og
Ragnar Axelsson
Lockheed P38E Lightning flugvél eins og leitað er í Grænlandsj-
ökli. Tólf vélar af þessari tegund og eitt „flugvirki“ lentu á
jöklinum eftir að hafa villst framhjá fslandi. Talið er, að þær séu
litt eða ekkert skemmdar og að hægt verði að fljúga þeim af
jöklinum, þegar þær finnast.
ganga beint að vélunum næsta
sumar," sagði Tim. Hann sagði, að
vélarnar hefðu sézt nokkrum sinn-
um síðustu árin, en hingað til
hefði engin haft áhuga á að bjarga
þeim. „Við ræddum við danska
herflugmenn í Kulusuk um dag-
inn, er séð hafa flugvélarnar, og
þeir ætla að gera okkur viðvart ef
til þeirra sést aftur."
Tim sagði, að vélarnar hefðu
lent heilu og höldnu á jöklinum í
um 150 kílómetra fjarlægð frá
Kulusuk. í sveitinni voru 12 orr-
ustuvélar af gerðinni Lockheed
P-38 Lightning og eitt „flugvirki"
svokallað, Boeing B-17. Þær voru á
sínum tíma sendar frá Bandaríkj-
unum til Bretlands til þátttöku i
aðgerðum gegn Þjóðverjum, en
Hitler gafst upp um þær mundir
sem vélarnar komu til Bretlands.
Ákveðið var þá að senda þær til
Skemmd-
ir á vél
í gosflugi
ÞOTA af gerðinni DC-9 frá Ilugh-
es Airwest flugfélaginu skemmd-
ist talsvert er henni var í ógáti
flogið inn í öskuský í grennd við
eldfjallið St. Helenu i einni gos-
hrinunni er stóð i sumar.
Þrátt fyrir að þotan væri aðeins
tæpar fjórar mínútur á gossvæð-
inu særðust þjöppublöð í hreyflum
þotunnar vegna núnings við ösk-
una og frambrúnir vængjanna
voru á að líta eins og þær hefðu
verið sandblásnar. En það sem
tilfinnanlegast var fyrir flug-
mennina var að allir gluggar
stjórnklefans rispuðust svo mikið
að þeir urðu algjörlega ógagnsæir
og varð að skipta um þá alla er
niður var komið.
á jöklinum eins og um fínasta
flugvöll væri að ræða. Lentu hinar
vélarnar ein af annarri og var
þeim raðað upp í fylkingu.
Dæmi er um, að þýzkur kafbát-
ur í norðurhöfum hafi eitt sinn
sent frá sér sterkt útvarpsmerki,
og þannig leitt flugvélar af leið
svo að þær urðu að lenda á
Grænlandsjökli, en ekki veit
Flugsíðan hvort hér sé um um-
rædda flugsveit að ræða.
„Við erum þess fullvissir að
flugvélarnar séu í góðu ásigkomu-
lagi á jöklinum," sagði Tim. „Þær
voru svo til splunkunýjar er þær
lentu þarna, hafði aðeins verið
flogið í 55 klukkustundir frá því
þær voru smíðaðar. Og við gerum
okkur vonir um að fljúga þeim af
jöklinum er við höfum fundið
þær,“ bætti hann við.
Sagði Tim, að ákveðið væri að
Hercules-flugvél lenti hjá vélun-
um með jarðýtur og skála. Hug-
myndin væri að ryðja snjónum frá
flugvélunum og gera flugbraut þar
nærri. Flugvirkjar er á sínum
tíma tóku þátt í smíði vélanna
ætla að koma á staðinn og yfirfara
þær og gera við það sem þarfnast
lagfæringar. Ekki væri búist við
að vélarnar j>örfnuðust mikilla
lagfæringa, því dæmi væri um
nýlega björgun Mustang flugvélar
(P-51) í Alaska er var svo til
óskemmd eftir áratuga dvöl í
fönn, aðeins hefði þurft að fram-
kvæma smávægilegar lagfæringar
til að gera hana flughæfa.
„En fyrst verðum við þó að
finna nákvæmlega hvar vélarnar
eru, helzt í haust, og varpa sendi
þar niður. Beinn kostnaður við
leiðangurinn að þessu sinni er um
200,000 dollarar, og er þristurinn
(DC-3) sem við keyptum til farar-
innar meðtalinn. Við borgum
þetta allt úr eigin vasa, og þess
vegna verður konan að vinna úti,“
sagði Tim hlæjandi. Finni þeir
félagar vélarnar og nái þeim
heilum burtu, má búast við að þeir
geti selt þær fyrir stórfé, sökum
þess hve þær eru sjaldgæfar.
Þeir félagar höfðu meðferðis
skíðaútbúnað til að skella undir
þristinn, og ætluðu að lenda á
Grænlandsjökli hefðu þeir fundið
vélarnar, en ekkert varð úr því,
þar sem þeir komu ekki auga á
þær, eins og fyrr segir.
Tim Ockenden leiðangursstjóri
er tæplega þrítugur Kanadamaður
og flugmaður á Boeing-727 far-
þegaþotum hjá Air Canada. Hann
hlaut flugþjálfun sína í lofther
Kanada og er þrautreyndur flug-
maður. Með honum voru í leið-
angrinum landar hans Brian Bris-
bin, er nýlokið hefur einkaflug-
mannsprófi og hefur réttindi til að
fljúga þristi, og flugvirkinn Fred
Chan. Einnig brezkur flugmaður
að nafni Nigel Brendish, er á
flugfélagið Harvest Air Ltd. þar í
landi, sem hefur einni þyrlu og
átta flugvélum á að skipa. Þrist-
inn, sem Tim og félagar hans
keyptu til leiðangursins, mun Nig-
el reka í vetur. Þess má geta, að í
fyrra slóst íslenzkur flugmaður í
hópinn, Sigurður Karlsson, og var
aðstoðarflugmaður Tims á einni
leitarvélinni.
Því má bæta hér við í lokin, að
Lockheed Lightning var langfleyg
orrustuflugvél og til margra hluta
nytsamleg, einkum sem fylgdarvél
með sprengjuflugsveitum og sem
árásarvél. Þær skutu t.d. niður
fleiri japanskar flugvélar en nokk-
ur önnur tegund, en var beitt á
öllum vígstöðvum. Þjóðverjar
höfðu beyg af henni og kölluðu
hana Gaffalskottu eftir ákveðinni
fiðrildistegund. Framleiðsla hófst
1940 og smíðaðar voru 9923 vélar
til stríðsloka. Árið 1943 skaut ein
niður japanska flugvél yfir Gua-
dalcanal og með henni Yamamoto,
sem á sínum tíma skipulagði
árásina á Pearl Harbour. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
Mbl. hefur aflað sér eru líklega
ekki nema þrjár Lightningvélar „í
heilu lagi“ til í heiminum, og
aðeins ein þeirra mun vera í
flughæfu ástandi.
Ævintýramennirnir, sem freista þess að finna sveit orrustuflugvéla á
Grænlandsjökli. Á myndinni, sem er tekin við flugvél þeirra á
Reykjavíkurflugvelli, eru (f.v.) Nigel Brendish, Timothy Ockendne
leiðangursstjóri, Fred Chan flugvirki og Brian Brisbin.
Hnekktu metinu
frá Goose Bay
til Reykjavíkur
„JÁ, VIÐ lögðum upp í þetta flug
með það I huga að hnekkja metinu
á flugleiðinni frá Goose Bay til
Reykjavíkur,“ sagði Field Pendle-
ton Morey flugmaður 1 örstuttu
spjalli við Mbl. á Reykjavíkur-
flugvelli nýverið, en kvöldið áður
settu hann <>g félagi hans, Oliver
Smithies, nýtt hraðamet í flokki
eins hreyfils flugvéla á flugleið-
inni frá Goose Bay á Nýfundna-
landi til Reykjavikur, voru 8
klukkustundir og 16 mínútur á
milli.
„Við höfðum 20 hnúta mótvind
alla leiðina. Fátt bar til tíðinda á
fluginu, og vandamál áttum við
ekki við að stríða, nema að seinni
hluta flugsins var maður stöðugt
Brezka flugfélagið British Airways ákvað í sumar að afmá seinni hluta íélaKsheitisins af skrokkum
flugflotans og voru ýmsar ástæður fyrir þvi gefnar. Alls á flugfélagið tæpar 200 flugvélar ok um 60
nýjar í pöntun og kostnaður við breytinguna er áætlaður um ein milljón sterlingspunda. eða um 1,2
milljarðar islenzkra króna. Inn i dæmið er þó aðeins reiknaður vinnuaflskostnaður og málning, en
ekki tekjutap vegna stöðvunar vélanna á meðan breytingarnar eru gerðar. Starfsfólk BA hefur tekið
þessari ákvörðun félagsins með litilli hrifningu og sagt að verja mætti þessum fjármunum á betri
vegu.
Field Pendleton Morey (tv.) og Oliver Smithies við farkost sinn á
Reykjavíkurflugvelli. Þeir bættu metið í flokki smáflugvéla á flugleið-
inni frá Goose Bay til Reykjavikur.
starandi á benzínmælana og spyrj-
andi sjálfan sig þeirrar spurningar
hvort droparnir myndu ekki duga,"
sagði Field.
Field, sem er prófdómari og
eftirlitsflugmaður hjá bandarísku
flugmálastjórninni, flaug eigin vél,
sem er af gerðinni Cessna 210
árgerð 1969. Hreyfillinn er með
svokölluðum hverfilblásara og er
farflughraði vélarinnar 180 hnútar.
Flugþol vélarinnar er níu klukku-
stundir. Með Field var miðaldra
maður, Oliver Smithies, en hann er
nemandi Fields í fluginu. Þeir eru
frá New York, og voru á skemmti-
ferð til Lundúna, en hafa aftur
viðkomu á Reykjavíkurflugvelli á
heimleiðinni. Er örstuttu spjalli
okkar lauk, hoppuðu þeir félagar
um borð í farkost sinn, ræstu
hreyfilinn, og skömmu seinna hófu
þeir sig til lofts og tóku stefnuna á
Prestwick í Skotlandi.