Morgunblaðið - 05.10.1980, Side 31
67
________________i-----------------------
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980
Loftárekstri
forðað tvisvar
yfir Júgóslavíu
BREZKUM flugmönnum hefur
ekki verið alltof vel við að þurfa
að fljúga i jógósiavnesku flug-
stjórnarsvæði frá því er þota frá
British Airways lenti i árekstri
við júgóslavneska þotu yfir Zagr-
eb árið 1976, en þá fórust 176
manns.
Beygur flugmannanna hefur
sízt minnkað, því með stuttu
millibili í sumar lá við tveimur
árekstrum yfir Júgóslavíu.
í fyrra tilvikinu stefndu VC10
þota frá BA á leiðinni frá Kairó til
Lundúna og Boeing 707 þota frá
Air France hvor á aðra og skildu
aðeins tæpir 150 metrar vélarnar
að er ferlar þeirra skárust.
Tíu dögum seinna var Trident 2,
þota BA, á flugi frá Istanbul til
Lundúna, er flugmennirnir sáu
DC-10 þotu júgóslavneska flugfé-
lagsins JAT hætta klifri og hefja
lárétt flug í sömu hæð og þota
þeirra var í. Flugstjóri Tridents-
ins skýrði júgóslavneskum flug-
umferðarstjórum hvernig komið
væri. Fékk hann þá skipanir um
að breyta flugi sínu, er leitt hefði
til árekstrar vélanna tveggja,
hefði hann farið möglunarlaust
eftir þeim.
Lars Hofsjö er fæddur í Stokk-
hóimi 1931. Hann stundaði nám
við Konstfack-skólann og síðan
við Konunglega listaháskólann í
Stokkhólmi. Hann hefur fengist
mikið við skreytingar á opinberum
byggingum og hefur fengið til þess
styrki. Á sýningunni eru teikn-
ingar af tillögum varðandi skreyt-
ingar hans frá seinni árum.
Lars Hofsjö hefur haldið fjölda
einkasýninga í heimalandi sínu og
víðar. Hann var formaður Nor-
ræna myndlistarbandalagsins um
árabil, allt til ársins 1979. Hofsjö
hefur umsjón með listaverkasöfn-
unum skólanna í Stokkhólmi og
sér um upplýsingar og fræðslu þar
að lútandi.
Á sýningunni eru auk teikninga
af stórum veggskreytingum,
vatnslitamyndir, grafik og vegg-
teppi sem eiginkona listamanns-
ins hefur saumað eftir uppdrátt-
um hans. Lárs hefur dvalið nokkr-
um sinnum hér á íslandi og eru
nokkrar af myndum hans héðan.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 12.
október.
Lars Hofsjö heldur tvo fyrir-
lestra meðan hann dvelur hér.
Hinn fyrri verður í Norræna
húsinu þ. 6. okt. nk. kl. 20.30 og ber
yfirskriftina: Svensk konst-
konstnár, byrákrati, brukade.
Verður hann fluttur með lit-
skyggnum úr sænskri listasögu.
Seinni fyrirlesturinn verður í
Ásmundarsal (Arkitektafélag ís-
lands) þ. 7. okt. kl. 20.30 og er
einkum ætlaður listamönnum og
arkitektum. Fjallar fyrirlesturinn
um skreytingar opinberra bygg-
inga í Svíþjóð.
Geta þyrlur farið
í bakfallslykkju?
ERU TIL þyrlur, sem farið geta
i bakfallslykkju, spurði einn af
lesendum dansks blaðs i les-
endadálki blaðsins fyrir
skömmu. Ekki stóð á svörum,
og upplýsti blaðið, að árið 1967
hefðu Lockheed-verksmiðjurn-
ar kynnt fyrir almenningi
þyrlu, sem nefnd var „Lockheed
Rigid Rotor“ og gat farið bak-
fallslykkju og flogið á hvolfi.
Einnig gat þyrlan farið hring-
veltur um eigin iangöxul.
Þyrlan var fyrst og fremst
frábrugðin öðrum þyrlum í því,
að þyrilblöð hennar voru fest
með öðrum hætti á driföxulinn
en gengur og gerist, þ.e. voru
fasttengd en ekki fjaðurtengd
við hann. Þyrlan var fyrst og
fremst framleidd með það í
huga, að leika mætti á henni
loftfimleika. Hún var níu metrar
að lengd og þvermál þyriisins
var 10,7 metrar. Hreyfillinn var
þrýstiloftshverfill af Pratt &
Whitney-gerð. Á meðfylgjandi
mynd gefur að líta umrædda
þyrlu í bakfallslykkju.
SÆNSKI myndlistarmaðurinn Lars Hoísjö sýnir nú í
FÍM-salnum að Laugarnesvegi 112 í boði Félags
íslenskra myndlistarmanna. Sýning Lars Hofsjö er opin
frá kl. 17—22 virka daga og frá kl. 14—22 um helgar.
Lars Hofsjö við nokkur verka sinna á sýningunni.
Sýning Lars Hofsjö í FÍM-salnum
Arveknin getur
leikið menn grátt
Sérkennilegt atvik kom fyrir nýlega á Raleigh-Durham-flugvellinum í
Norður-Karólínu. Árvakur hlaðmaður tók eftir því að fragt hafði ekki
verið komið haganlega fyrir í lest Boeing-727-þotu, sem var i þann mund
að leggja af stað til Dallas. Hann vatt sér inn í lestina til að ganga betur
írá fragtinni, en rétt á eftir kom annar vökull hlaðmaður að og tók eftir
að hurðin á iestinni var ekki nema hálflokuð. en hann var á því að betur
ætti að ioka henni fyrir flugið og bætti úr þvi.
Nú voru góð ráð dýr. Hlaðmaðurinn, sem var inni í lestinni, gat ekki
opnað hurðina innan frá. Hann bankaði því án afláts upp undir gólf
farþegarýmisins, en allt kom fyrir ekki, þar sem flugfreyjurnar og
farþegarnar, sem heyrðu höggin, héldu að hér væri um „eðlilega" dynki að
ræða, eins og oft vill verða er flugvélar aka út á flugbraut af stæði.
En „dynkirnir" byrjuðu aftur skömmu eftir að þotan lyfti sér. Flugfreyja
ein tók sér þá gjallarhorn í hönd, brýndi raustina og kallaði niður undir
gólfi: „Ef einhver er þarna, viltu þá gjöra svo vel og banka tvisvar." Hún
hafði vart lokið máli sinu er tvö högg heyrðust, og minnir þetta í ýmsu á
Búkolluævintýrið.
Flugstjórinn ákvað að snúa þegar við og lenda, en áður varð hann að
sleppa rúmlega 3,6 smálestum af eldsneyti út í andrúmsloftið.
Þegar þotan lenti var hlaðmaðurinn þorrinn að kröftum eftir alla
barsmíðina, en þó heill á húfi og frelsinu feginn.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
I»l \l (.LYSIK t'M ALLT LAND ÞEGAR
Þl' Al'’GLYSIR I MORGINBLAÐÍNL
Geíjunar
úrl00%ull.
Við kynnum ný gluggatjaldaefni. Fjöldi lita sem eru sam
ræmdir hinum velþekktu húsgagnaáklæ(5um frá Gefjun.
Við leggjum áherstu á vandaðar og vel hannaðar vörur.
Líttu vid, — sjón er sögu ríhati. •.
Sérverslun
með húsbúnað
Síðumúli 20,105 Reykjavík, s. 91-30677
Strandgata 19, 600 Akureyri, s. 96-24069
/