Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 31
HVAD ER AD GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980 31 BOKASAFNIÐ A ISAFIRÐI: Sýrúng á málverkum úr eigu Listasafns Alþýðu í BÓKASAFNINU á Ísaíirði hef- ur verið opnuð sýning á málverk- um úr eigu Listasafns aiþýðu. Að sýningunni standa Menning- arráð ísafjarðar og verkalýðsfé- lagið Baldur. Á sýningunni eru 14 verk, flest olíumálverk og eru þau eftir 12 íslenska listamenn, m.a. Ásgrím Jónsson, Júlíönu Sveinsdóttir, Sverri Haraldsson og Þorvald Skúlason. Sýningin verður opin á venju- legum afgreiðslutíma bókasafns- ins, virka daga kl. 2—7 nema fimmtud. kl. 2—9 og laugardaga kl. 2—4 og er aðgangur ókeypis. Sýningunni lýkur hinn 15. þ.m. Frá sýningu Menningarráðs ísafjarðar og verkalýðsfélagsins Baldurs i bókasafninu á ísafirði. ALÞYÐULEIKIIUSIÐ: ,Jíóngsdóttinn sem kunni ekki að tala“ í DAG OG á morgun verða 2. og 3. sýning á harnaieikritinu „Kóngsdóttirin sem kunni ekki að tala“, sem Alþýðuleikhúsið frumsýndi sl. sunnudag. Sýn- ingarnar verða í Lindarbæ og hefjast kl. 15. Alþýðuleikhúsið fékk styrk frá „framkvæmdanefnd árs fatlaðra" til að setja upp þessa sýningu en við uppfærsiu á þessu ævintýri er notað táknmál jafnframt talmáli þannig að heyrnarlausir og heyrn- arskertir geta notið sýningarinnar til fulls til jafns við aðra. En sýningin byggir mest á látbragði þannig að jafnvel yngstu börnin eiga auðvelt með að skilja at- burðarásina. Fyrir frumsýninguna var sett upp í Lindarbæ svokallaður „tón- möskvi“ en það er tæki sem magnar upp hljóð og kemur fólki með heyrnartæki að sérstöku gagni. Var þetta gert til reynslu en ekki er útséð með hvort Al- þýðuleikhúsið getur fjármagnað þessi kaup eða hvort aðrir fást til þess. Öllum heyrnarlausum verður boðið á sýningarnar en miðum er dreift af Heyrnleysingjaskólan- um. Þannig fæst blandaður áhorf- endahópur, af þeim sem heyra og heyra ekki. Leiðbeinendur frá Heyrnleysingjaskólanum leið- beindu leikurunum við notkun á táknmáli heyrnarlausra en það voru þau Vilhjálmur G. Vil- hjálmsson og Berglind Stefáns- dóttir, en þau flytja nú einmitt fréttir á táknmáli fyrir heyrnar- lausa í sjónvarpinu. Leikendur eru fjórir: Kóngs- dótturina leikur Sólveig Halldórs- dóttir. Sögukona er Ragnheiður E. Arnardóttir. Alfreð og Vilfreð, vonbiðlana tvo sem fara að leita að máli fyrir kóngsdóttur leika þær Anna S. Einarsdóttir og Helga Thorberg. Að auki eru brúður, dreki, álfkona, héri o.fl. sem nauðsynlegt þykir í hverju ævintýri. Leikstjóri: Þórunn Sig- urðardóttir. Leikmynd og bún- ingar: Guðrún Auðunsdóttir. GALLERI LANDLYST: Tryggvi Olafsson með akril- og klippimyndir ÞESSA dagana stendur yfir sýning Tryggva Ólafssonar í Gallerí Landlyst í Vestmanna- eyjum. Þar sýnir hann 10 akrílmyndir og klippimyndir. Sýningin er opin frá kl. 14—22 og lýkur annað kvöld. Hér skýlir Jónas Sigurðsson, fé- lagi í Gallerí Landlyst, sér á bak við eina af myndum Tryggva Ólafssonar. Tónleikar í Félagsbíói í KVÖLD halda Magnús og Jó- hann tónleika i Félagsbíói í Keflavik. Einnig kemur fram fiðluleikarinn Graham Smith. Leikin verða lög af nýútkominni plötu þeirra félaga, svo og nýrri og eldri lög. Þetta er í fyrsta skipti sem þeir Magnús og Jóhann halda sjálf- stæða tónleika í heimabæ sínum, Keflavík. Tónleikarnir hefjast kl. 21. ASMUNDARSALUR: ívar sýnir skúlp- túra og málverk t DAG opnar ívar Valgarðsson sýningu á verkum sínum í Ás- mundarsal á Skólavörðuholti. ívar lauk prófi frá Myndlista- og handíöaskóla íslands 1975 en stundaði síðan framhaldsnám við Stiching de Vrij Academi í Haag í Hollandi. Þetta er fyrsta einkasýn- ing ívars Valgarðssonar, en hann hefur tekið þátt í mörgum samsýn- ingum frá því 1974, nú síðast í Experimental Environment II að Korpúlfsstöðum. Sýningin í Ásmundarsal sam- anstendur af 5 verkum, skúlptúrum og málverkum, sem mynda heild í landslagsformum og litum. Sýning Ivars Valgarðssonar í Ásmundarsal er opin daglega frá kl. 16—21 og stendur til 17. þ.m. ALÞYÐULEIKIIUSIÐ: ,Pœld’ í ðí“ á Hótel Borg Á morgun kl. 17 og na'stu sunnudaga gefst almcnningi kost- ur á að sjá hið umdeilda unglinga- leikrit Alþýðuleikhússins „Pa'ld’i- ðí“ er leikrit fyrir unglinga. for- eldra þeirra. kennara og aðra vini. Leikritið segir frá fyrstu ást tveggja ungmenna og gleði þeirra og sorgum í þvi sambandi. Ymiss konar fræðsla um kynferðismál er fléttað inn í leikinn. enda er leikritið meðal annars a tlað sem kennsluleikrit um þau mál. Enn sem komið er er aðeins mögulegt að bjóða upp á eina almenna sýningu í viku þar eð alla aðra daga vikunnar er verið að sýna leikritið í skóium. Sýningar eru nú þegar orðnar 14 talsins í félags- miðstöðvunum Fellahelli og Þrótt- heimum og einnig í skólumy bæði grunn- og framhaldsskólum. Hafa nú um 2000 manns séð sýninguna sem allsstaðar hefur hlotið frábær- ar undirtektir. Miðasala hefst klukkan 3, sýningardagana, á Hótel Borg. Safnahúsið á Selfossi: Páll S. Pálsson opn- ar málverkasýningu í dag opnar Páll S. Pálsson málverkasýningu i Safnahúsinu á Selfossi. Á sýningunni eru 30 myndir gerðar á síðustu fimm árum. Myndirnar eru unnar með bland- aðri tækni, olíu, þurrkrít og tússi. Þær eru flestar til sölu'. Sýningin stendur til 16. þ.m. og er opin frá kl. 14—22. Páll S. Pálsson við eina mynda sinna. MYNDLIST: Gunnlaugur Sfefán Gísla- son sýnir í FÍM-salnum Gunnlaugur Stefán Gislason á sýningu sinni i FÍM-salnum, Laugarnesvegi 112. í dag opnar Gunnlaugur Stef- án Gíslason sýningu í FÍM- salnum, Laugarnesvegi 112. Á sýningunni eru 32 vatnslita- myndir sem unnar eru á síðast- liðnum 2 árum. Gunnlaugur Stefán Gíslason er fæddur í Hafnarfirði árið 1944. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands í tvö ár og er nú kennari við skólann. Gunnlaugur hefur tekið þátt í fjölda samsýninga, m.a. á listahátíð 1970, farand- sýningu um Norðurlönd ’70—’71, í Hásselby-höll 1978, í Uppsölum sama ár, í Kreml í Finnlandi 1979, haustsýningu FÍM 1977. Auk þess hefur Gunnlaugur tek- ið þátt í samsýningum víða um land. Þetta er önnur einkasýning hans, en sú fyrri var í Norræna húsinu í apríl 1977. Sýningin er opin frá kl. 14—22 og stendur til 23. þ.m. Undanfarin ár hefur Gunn- laugur eingöngu málað í vatns- litum og þá ósjaldan leitað fanga í þeim forgengileika, sem birtist t.d. í gömlu amboði eða öðrum ummerkjum um það líf, sem lifað var. Ég þykist nú vera svona raunsæiskarl — Þetta myndefni, forgengi- leikinn, orkar svo sterkt á mig, þetta sýsl og basl í mannkind- inni og ægivald eilífðarinnar og eyðingaraflanna, sem við verð- um að beygja okkur undir og sigrar alltaf að lokum. En það eru samt einhver sigurtákn í þessu. Við erum að láta eitthvað af hendi, kannski að gefast upp eða breyta til, breyta um lífs- form í okkar basli, og þá látum við svona minnisvarða eftir okkur. Þetta talar eitthvað svo ákveðið til mín. Kannski eru þetta ljótir hlutir, en ég tefli þeim í sterkt'sólskin, mér finnst það undirstrika þessa óblíðu undiröldu. Suðurbúar segja: Undan sól er sviðin jörð. Ég held að ég hafi öðlast meiri styrk og áræði í lit og framsetn- ingu. Yrkisefnið er nokkuð það sama, þó að ég hafi e:t.v. einfald- að það, lokað meira af. Ég þykist nú vera svona raunsæiskarl eða realisti og vinn með nákvæmni, sérstaklega vissa parta í mynd- um sem mér finnst vera þunga- miðja í því sem ég vil segja og líka myndrænt. Spennan er þarna kannski.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.