Morgunblaðið - 13.11.1980, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980
33
Þessir ungu menn efndu til hlutaveltu að Njörvasundi 12, Rvík til
áííóða fyrir Afríkusöfnun Rauða kross íslands ojf komu þar inn 20.000
krónur. Strákarnir heita Guðbrandur Guðgeirsson, I)a«ur Sigurðs-
son, Lárus Sigurðsson oif Höskuidur E. Pálsson.
Þessir strakar héiCu háutaveltu i A.narnesi, Garðabæ. t i styrktar
Skálatúnsheimilinu í Mosfellssveit og söfnuðu þeir kr. 21.000.
Strákarnir eru: Jóhann Jóhannsson. Már Másson, Magnús Sch.
Thorsteinsson. Kagnar Olav Vilbergsson. Árni Geir Ásgeirsson, Pétur
Úlfarsson og Erlingur Erlingsson.
Þessir ungu Ilafnfirðingar héldu hlutaveltu að Öldugotu fi þar í
bænum til ágóða fyrir Afríkuhjálp Rauða krossins. Þar komu inn kr.
17.900. Krakkarnir heita Örvar Már Kristinsson, Heimir Ásgeirsson,
Sólveig Þórarinsdóttir, Bára K. Þorgeirsdóttir, Gerður Þórarinsdóttir
og Kristín Guðmundsdóttir.
Þetta rru þaT Auður Björk Einarsdóttir og Ilanna Bcrglind
Gisladóttir, sem ásamt þeim Ingunni Hrund Einarsdóttur og Iluldu
Steingrímsdóttur efndu til hlutaveltu að Melba- 3 og Melha* 11 til
ágóða fyrir Afríkusöfnun Rauða kross íslands. Telpurnar söfnuðu alls
22.200 krónum.
Þessir krakkar héldu hlutaveltu að Norðurvangi 31 í llafnarfirði, til
ágóða f> rir Afríkusöfnun Rauða krossins. Þau söfnuðu t&plcga 12.800
krónum. Krakkarnir heita: Sigurlaug Ómarsdóttir, Svanhvít Sigurð-
ardóttir, Sigurður Sigurðsson og Lovisa Jónsdóttir.
Er Karl búinn að
festa ráð sitt?
I.ondon 10. nóv. — Al*.
„DROTTNINGIN samþykkir
Díönu" var fyrirsögn í frétt í
breska blaðinu Tahloid Sun í
dag.
í fréttinni, sem er á forsíðu,
segir svo: „Drottningin hefur
veitt blessun sína yfir ástar-
samband Karls prins og lafði
Díönu Spencer. Vinir þeirra
segja að liklega muni prinsinn
halda upp á 32 ára afmæli sitt
nk. föstudag með tilkynningu
varðandi framtíð sína.“
Karl hefur þekkt lafði
Díönu frá barnsaldri og var
einu sinni bendlaður við syst-
ur hennar lafði Söru. Diana er
af aðalsættum og er drottn-
ingin sögð vera hæst ánægð
með hana sem ■ tilvonandi
tengdadóttur. „Hún er yndis-
leg stúlka. Hann Karl hefði
ekki getað fengið betri föru-
naut,“ mun hún hafa sagt.
Talsmaður Buekinham hall-
ar hefur sagt þessa frétt vera
uppspuna frá rótum.
Matvælaverð
stórhækkar í
Bandaríkjunum
SLÆM uppskera í ár mun
leiða til þess, að matvælaverð
stórhækkar, segir bandaríska
vikuritið Time í síðustu viku.
Þar kemur fram, að vegna
uppskerubrests hafi verð á
sojabaunum hækkað úr 5,68
dollurum í 8,57 dollara á
heimsmarkaði. Bendir ritið á
það, að þar sem sojabaunir séu
fóður fyrir kýr, hænur og svín
muni þetta leiða til hærra
verðs á afurðum þessara dýra
á næstu mánuðum. Er því
spáð, að pund af hamhorgur-
um, sem nú er selt fvrir 1,79
dollara muni verða komið í
2,40 dollara næsta sumar. I
þessu samhengi er rett að geta
þess, að verð á íslenskum fiski
á Bandaríkjamarkaði ræðst
mjög af verðlagi á kjúklingum
og hamborgurum.
Þau Anna Maria Guðmundsdóttir og Ingvar Guðmundsson efndu til
hlutaveltu til ágóða fyrir Afrikusöfnun Rauða krossins. Þau söfnuðu
5.600 krónum.
Þessir krakkar, Kári Guðjónsson, Unnur Guðjónsdóttir og Guðmund-
ur Árni Sigfússon efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Afrikusöfnun
Rauða krossins. Þar komu 20.000 krónur inn. Á myndina vantar einn
úr hlutaveltustjórninni. en hann heitir Arnar ólafsson.
Þessar skólastúlkur, Anna María Þorvaldsdóttir. Dagný Ásgeirsdótt-
ir og Ingibjörg Reynisdóttir efndu til hlutaveltu til ágoða fyrir
Afríkuhjálp RKÍ Þær söfnuðu 20.000 krónum.
■Söiigskglinn í Reykjavík
MIÐNÆTURSKEMMTUN
Söngskólans í Reykjavík
Hvað er svo glatt sem
„góóra vina fundur“
í Háskólabíói
föstudagskvöldið 14.11 kl. 23.15.
Einsöngvarar, píanóleikarar og Kór Söngskólans
í Reykjavík ásamt Hljómsveit Björns R. Einars-
sonar.
Sviösetning Sigríður Þorvaldsdóttir.
Kynnir Guðmundur Jónsson.
Midasala frá kl. 4 dagl. í Háskólabíói.