Morgunblaðið - 26.11.1980, Síða 1
36 SÍÐUR
264. tbl. 68. árg.
Garbo aftur á
hvíta tjaldið?
Stokkhólmi. 25. nóvember. — AP.
VERIÐ getur. að kvikmynda-
unnendur eigi eftir að fá að sjá
Gretu Garbo á hvitg tjaldinu á
ný, samkvæmt fregnum i
sænska vikublaðinu Áret runt.
Segir í blaðinu, að Garbo, sem
nú er 75 ára, hafi nýlega skrifað
undir samning við bandaríska
kvikmyndaframleiðendur um að
leika í nýrri útgáfu myndarinnar
„Sagan af Gösta Berling", sem
byggir á skáldsögu eftir sænska
Nóbelsverðlaunahafann Selmu
Lagerlöf. Hún færi þó ekki með
aðalhlutverkið, en á sínum tíma
olli samnefnd kvikmynd þátta-
skilum á kvikmyndaferli Garbo.
Ritstjóri blaðsins er meðhöf-
undur bókar um Gretu Garbo, og
sagðist hann hafa mjög áreiðan-
legar heimildir fyrir frétt sinni
um endurkomu leikkonunnar á
hvíta tjaldið. Hann sagði að
Garbo hefði þó enn 30 daga frest
til að hafna hlutverkinu, en
þegar samkomulagið var gert var
í því klásúla sem tryggði Garbo
þriggja mánaða umhugsunar-
frest til að taka lokaákvörðun.
Byltíng
Abidjan. Filabeins.ströndinni.
25. nóvcmber. — AP.
SANGOULE Lamizana forseta
Efri-Volta var í dag steypt af
stóli. Hyltingin var gerð að und-
irlagi hersins og forsprakki
hennar var Saye Zerbo. yfirmað-
ur heraflans í höfuðborg lands-
ins, Ougadougou, að sögn diplóm-
ata. Stýrir Zerbo „endurreisnar-
nefnd“, sem tekið hefur við
stjórnartaumunum í Efri-Volta.
Efri-Volta er eitt fátækasta
land Afríku. Þar eru sex milljónir
íbúa, flestir þeirra lifa af landbún-
aði, sem byggist á sjálfsþurftar-
búskap. Víðtækir þurrkar hafa
komið illa við landsmenn.
Allt fjarskiptasamband við
Efri-Volta varrofið í byltingunni í
morgun og flugvelli höfuðborgar-
innar lokað.
Elgur í vínbúð
OhIó. 25. nóvember, frá Jan Erik Laure
fréttaritara Mbl.
TVEIR elgir kjöguðu í róleg-
heitunum inn í bæinn Ilalden í
suðurhluta Noregs í gær. Stað-
næmdist annar þeirra við vín-
búð staðarins. Spegilgler var I
glugga húðarinnar og virðist
sem dýrinu hafi ekki líkað
sjónin sem við hlasti. því það
renndi sér í rúðuna.
Og elgurinn lét sér ekki nægja
að stanga í gegnum rúðuna.
Þegar inn var komið færðist
hann fyrst í aukana, rauk inn í
birgðageymslur búðarinnar og
braut þar og bramlaði. Lét elgur-
inn ekki staðar numið fyrr en
hann hafði mölbrotið um 150,
flöskur af léttum og sterkum
vínum, og var þá vínelgur mikill
á gólfi geymslunnar.
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Talið að yfir 3000 hafi
látið lifið í skjálf tunum
Napólí. 25. nóvember. — AP.
Örvæntingarfullir björgunar-
menn leituðu i dag ákaft i rústum
italskra bæja og þorpa að fólki er
enn kynni að vera á lífi, en talið er
að yfir þrjú þúsund manns hafi týnt
lífi i jarðskjálftunum á sunnudags-
kvöld. Yfirstjórn hcrsins sagði í
dag, að 3.132 hefðu týnt lifi i
skjálftanum. en yfirmaður björgun-
araðgerða sagði, að 1.750 hefðu
farist og að saknað væri 570 er
tæpast gætu verið á lifi.
Björgunarmennirnir urðu að nota
handrekur og haka þar sem ekki var
hægt að koma vélskóflum við, þar eð
ekki var hægt að aka þeim eða
bifreiðum upp fjallavegina mjóu sem
höfðu lokast við grjóthrun.
Af þeim sökum hefur heldur ekki
verið hægt að koma nema takmörk-
uðum vistum til þeirra sem komust
lífs af í fjölmörgum afskekktum
bæjum og þorpum, og björgunarstarf
hefur sumstaðar ekki hafist ennþá.
Flest fjallaþorpanna lögðust svo til
að öllu leyti í rúst í skjálftunum. í
einu þorpi stóðu aðeins þrjú hús og
700 þorpsbúar eru grafnir í rústun-
um. Vart varð nýrra skjálfta um
miðbik dagsins í dag, og hrundu víða
byggingar er löskuðust á sunnudags-
kvöld.
Allt að 200.000 manns misstu
heimili sín í 109 borgum og bæjum í
skjálftunum. Er nú unnið að því að
reisa tjaldborgir til bráðabirgða en
lagt hefur verið til að sem flestum
hinna heimilislausu verði komið fyrir
í hótelum sem standa auð í ferða-
mannabæjum yfir vetrartímann.
Jóhannes Páll páfi ferðaðist í dag
um jarðskjálftasvæðin á þyrlu og
heimsótti m.a. sjúkrahús í þorpinu
Balvano, en þorpskirkjan hrundi
meðan þorpsbúar sóttu þangað aft-
anmessu. Bandaríkjamenn lögðu
ítölsku björgunarmönnunum til sér-
stakar björgunarþyrlur og banda-
ríski sendiherrann í Róm hvatti
leiðtoga Bandaríkjaþings til að veita
ítölum sérstaka fjárhagsaðstoð
vegna endurreisnarstarfs. Þá voru
aðildarfélög Alþjóða Rauða krossins
hvött til þess í dag að hrinda af stað
söfnun, hvert í sínu landi, vegna
jarðskjálftanna.
m
Jóhannes Páll páfi ferðaðist um jarðskjálftasvæðin i gar. og hér ávarpar hann mannfjölda í einu
þorpanna. í baksýn sjást hús, sem hrunin eru að hálfu eða öllu leyti. Símamynd - AP
Spenna eykst í Póllandi
við nýjar verkfallshótanir
Varsjá. WashinKton. 25. nóvember. — AP.
BANDARÍSKIR embættismenn sögðu í kvöld, að Rússar
hefðu verið að styrkja heri sína í námunda við Pólland
og bæta viðbúnað þeirra, en ekki væri hægt að segja að
neinar vísbendingar væru fyrir hendi um innrás í
Pólland. Sögðust þeir gera sér í hugarlund að þróun
mála í Póllandi væri mikið áhyggjuefni valdamanna í
Kreml, en gera yrði ráð fyrir að þeir vildu forðast
hernaðaríhlutun.
Spenna jókst talsvert í Pól-
landi í dag er verkalýðsleiðtogar
hótuðu nýjum víðtækum verk-
föllum ef Jan Narozniak, starfs-
maður verkalýðsfélags, er tek-
inn var fastur í síðustu viku,
yrði ekki látinn laus úr haldi, og
ef ekki yrði orðið við ýmsum
öðrum kröfum samtakanna er
kynntar voru í dag.
Kröfurnar eru í sjö liðum.
Þess er m.a. krafist að allir er
ákærðir hafa verið fyrir and-
sósíalíska starfsemi verði látnir
lausir úr haldi. Einnig að sett
verði á laggirnar sérstök nefnd
til að kanna umsvif og lögmæti
aðgerða lögreglu, öryggissveita
og ríkissaksóknara, og að fjár-
framlög til innanríkisráðuneyt-
isins og til embættis ríkissak-
sóknara verði skorin niður.
Ennfremur að birt verði leyni-
skýrsla miðnefndar kommún-
istaflokks Póllands um uppþotin
í Gdansk 1970.
Þá er þess krafist að birt verði
nöfn höfunda skýrslu sem Nar-
ozniak er sagður hafa hjálpað til
við að stela úr skrifstofu ríkis-
saksóknara, en skýrslan hafði
að geyma áætlanir um refsiað-
gerðir gegn „andsósíalískum öfl-
um“.
Lýst var yfir, að ef pólska
stjórnin hefði ekki sent nefnd í
Ursus-dráttarvélaverksmiðjuna
á hádegi á fimmtudag til að
semja við verkalýðsleiðtoga um
kröfurnar, myndi Samstaða lýsa
yfir verkföllum á ýmsum
stöðum, einkum í verksmiðjum
og stofnunum við Varsjá.
Ríkismálafærslumaðurinn í
Varsjá og þrír fulltrúar flugu
síðdegis í dag til Gdansk til
viðræðna við Lech Walesa og
aðra verkalýðsleiðtoga og ræddu
m.a. við þá um mál Jan Narozni-
aks og fleiri. Litu fréttaskýrend-
ur svo á, að fjórmenningarnir
hefðu verið sendir til Gdansk til
þess að reyna að milda verka-
menn og afstýra átökum.
Þá hélt miðnefnd Kommún-
istaflokksins skyndilega fund
með Jerzy Majewski borgar-
stjóra í Varsjá og ræddar voru
þar leiðir til að koma í veg fyrir
öngþveiti. Járnbrautastarfs-
menn í Varsjá og Gdansk lögðu
niður vinnu í dag í fjórar
klukkustundir til að undirstrika
launakröfur og samningsrétt.
Zajfryd samgönguráðherra hóf
síðdegis viðræður við fulltrúa
járnbrautastarfsmannanna, en
reiknað er með erfiðum viðræð-
um, þar sem „margar hindranír
eru í veginum", eins og einn
formælenda starfsmannanna
sagði í kvöld.