Morgunblaðið - 04.12.1980, Page 21

Morgunblaðið - 04.12.1980, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980 21 Aðventukvöld á Bolungarvík „Leggja ber áherzlu á að sel verði fækkað“ Fiskiþing telur að selur valdi milljarða tjóni á hverju ári Á NÝLOKNU Fiskiþinjíi var m.a. talsvert rætt um selastofn- inn við landid ok telur þinsið sannað, að hringormur, sem er í auknum mæli i fiski og valdi milljarða tjóni. eigi rætur að rekja til selsins. t ályktun þingsins kemur fram. að mark- aðir kunni að vera í hættu af þessum sökum og beri að leggja áherzlu á að sel verði fækkað. Fiskiþing leggur til að samið verði við bændur, sem eiga sel- látur, að þeir veiði sel og eyði eftir því sem þeir frekast geti. Gjald komi fyrir þessar selveiðar. Leitað verði ráða hjá mönnum, sem kunnir eru staðháttum, hvaða aðferðir séu líklegastar til fækk- unar á sel. Sölufélög fisk- eða sjávarafurða leggi fram fé til eðyingar sels, enda verði þau ásamt fulltrúum Búnaðarfélags Islands höfð með í ráðum um aðgerðir. Magnús Magnússon frá Eyrar- bakka hafði framsögu um þetta mál og ræddi Morgunblaðið við hann undir lok Fiskiþings. Hann var fyrst spurður hvers vegna sel hefði fjölgað svo mjög við landið á síðustu árum. „Ástæðurnar eru ýmsar, en helztar eru þær, að vegna mannfæðar hefur ekki verið hægt að stunda þessar veiðar sem skyldi. Þá hefur skinnaverð verið lágt og á það rætur að rekja til baráttu ákveðins hóps fólks gegn Magnús Magnússon frá Eyrar- bakka. (LiAsm.: Kristján.) selveiðum, en hið lága verð hefur minnkað áhuga manna fyrir veið- unum. Nú er svo komið, að selur- inn veldur milljarða tjóni á hverju ári og það gerist á sama tíma og kröfur um gæði fiskjar á helztu mörkuðum eru auknar. Þetta er vandi sem við verður að bregðast með einhverjum hætti og í fljótu bragði tel ég að hvetja eigi bændur sem eiga selalátur til að nýta þau betur en verið hefur. Jafnframt þessu yrði leitað samn- inga við þá um að þeir tækju þátt í eyðingu selsins enda yrði þeim bættur skaðinn. Það má ræða um framkvæmd þessa og hvaða leiðir eru heppilegastar, en þá þróun, sem verið hefur undanfarin ár hvað varðar fjölgun sela við land- ið, verður að stöðva,“ sagði Magn- ús Magnússon. Á Fiskiþingi í fyrra hafði Magn- ús Magnússon einnig framsögu um selveiðar og í ræðu hans þá kom m.a. fram, að talið var að í selastofninum hér við land væru 40 þúsund dýr. Talið er að þessi selafjöldi éti allt að 50 þúsund tonn af fiski á ári og þar af er talið að 30—40 þúsund tonn séu dýr- mætur fiskur. Magnús segir að gera megi ráð fyrir að á verði síðasta árs hafi verðmæti þess fiskjar, sem selurinn hafi étið verið 4—5 milljarðar og enn meira á þessu ári. I frystihúsum er gífurlega mikil vinna við að tína orma úr fiskflök- um. Á verðlagi síðasta árs má ætla kostnað við það verk 300— 400 milljónir króna í fyrra. Þá er ótalinn sá fiskur, sem ekki er orðinn ormalaus, en fer eigi að síður í gegnum allt eftirlit. Það hefur oft haft verðfall í för með sér eða þá að þurft hefur að gefa afslátt á vörunni, auk þess sem það grefur undan trausti kaup- enda á íslenzkum fiski. Magnús vitnaði í rannsóknir skozkra vísindamanna, en þeir hafa komist að því, að ef selur er ekki veiddur er talið að honum fjölgi um 6—7% á ári. I riti Hafrannsóknastofnunar um „Ástand nytjastofna á ís- lándsmiðum og horfur 1979“ var landsselsstofninn hér við land áætlaður 45 þúsund dýr, en þá var talið, að um 10 þúsund dýr væru í útselsstofninum. Á árunum 1962- 1978 var meðalselveiðin hér við land 6.323 dýr, þar af 5.599 landselskópar, 413 útselskópar og 255 fullorðin dýr. Mikill aftur- kippur kom síðan í kópaveiðarnar 1978 vegna verðfalls á skinnum erlendis. Það ár voru veiddir 4.030 landselskópar á móti 5.705 árið 1977. í fyrra voru veiddir 4.278 landselskópar og samtals 4.978 dýr árið 1979, samkvæmt skýrsl- um Hafrannsóknastofnunarinnar. Þýzki rithöfundurinn Ingeborg Drewitz les úr verkum sínum Dregið í happ- drætti Fóstbræðra DREGIÐ hefur verið í happdraúti því, sem Karlakórinn Fóstbræður efndi til á haustskemmtunum sín- um. sem nýlega voru haldnar. Aðalvinningurinn, sólarlandaferð fyrir einn með Samvinnuferðum- Landsýn sumarið 1981 í leiguflugi GKr. 500.000, kom á miða nr. 1070. Enn eru ósóttir nokkrir vinningar, sem dregnir voru út á skemmti- kvöldunum og komu á miða nr. 556, 567, 1200 og 1358. Handhafar vinningsmiða geri vart við sig í síma 85206 eða 14926. (Frá Karlakórnum Fóstbræðrum) ÞANN 5. desember nk. er væntan- legur til landsins þýzkur rithöf- undur. Ingeborg Drewitz. Hún er að vísu ekki á meðal þekktustu nafna í þýzkum hókmenntum: þetta stafar þó ekki af því. að ritstörf hennar séu í lakara lagi, heldur hefur hún starfað á fleiri sviðum en á bókmenntasviðinu. og er þvi ekki eins afkastamikil og sumir kollegar hennar. Hún er fædd 1923, stundaði nám í þýzku, heimspeki og sögu, og tók doktorspróf í heimspeki 1945. Hún er gift kona og á þrjú börn. Hún heldur því sjálf fram, að fjölskyld- an hafi aldrei verið „á móti hennar störfum", en kannski hafi tíminn stundum ekki verið nægilegur. Hún byrjaði fyrst á að skrifa útvarpsleikrit, en seinna meir skrifaði hún smásögur og skáldsög- ur, og fékk mörg bókmenntaverð- laun fyrir framlag sitt (m.a. Goethé-verðlaunin). * Auk þess sem áður var nefnt, hefur hún helgað miklu af tíma sínum mikilvægum störfum innan rithöfundasambandsins, m.a. lagt mikla áherzlu á að efla þjóðfélags- gagnrýnar bókmenntir. Frá árinu 1968 hefur hún verið í stjórn þýzku deildar alþjóðlega rithöfunda- sambandsins, PEN. Þar að auki hefur Ingeborg Drewitz fengizt mjög mikið við ýmisleg þjóðfélags- vandamál, til dæmis vandamál fanga. Hún gaf út 2 bækur í ljóðum og óbundnu máli eftir fanga. Hún hefur alltaf verið mjög gagnrýnin HIÐ árlega aðventukvöld verð- ur haldið í Holtskirkju á Bol- ungarvík sunnudaginn 7. des- ember. eða annan sunnudag í aðventu. og hefst það klukkan 21.00. Efnisskrá aðventukvölds- ins er fjölbreytt eins og jafnan áður. Kristinn H. Gunnarsson flytur ræðu, Kirkjukórinn syngur undir stjórn frú Sigríðar J. Norðkvist. Meðal annars syngur kórinn „Sofðu unga ástin mín“, eftir Björgvin Guðmundsson í útsetn- ingu Þorkels Sigurbjörnssonar. Þá syngja þeir einsöng, Hallgrímur Kristjánsson og Örn Jónsson. Unglingakvartett syngur einnig undir stjórn frú Sigríðar. Meðal annarra laga, sem kvartettinn syngur, er hið nýja lag Jóhanns Helgasonar við sálm séra Matthí- asar, „Við freistingum gæt þín“. Þá leikur frú Þuríður Pétursdóttir einleik á flautu lag F. Schuberts, Ave Maria og Finnbogi Svein- björnsson leikur einleik á tromp- ett. Sóknarpresturinn ávarpar samkomuna í upphafi og slítur henni með ritningarorðum og bæn. Allir eru innilega velkomnir á þessa aðventusamkomu, en hún hefur jafnan verið ákaflega fjöl- sótt undanfarin ár. Gunnar og opinská í skoðunum og ekki hikað við að láta til sín heyra, þar sem henni sýndist brýn nauðsyn bera til. Þó gerir hún greinarmun á bókmenntalegu framlagi sínu og öðrum störfum: „Þegar ég skrifa, beiti ég ekki neinum pólitískum áróðri, og því síður legg ég hann persónum mínum í munn. Ég reyni að lýsa mönnum eins og þeir tala, hugsa eða bregðast við í veruleik- anum.“ Það er enginn vafi á .því, að Ingeborg Drewitz er mjög sérstök og óvenjuleg persóna, bæði sem maður og rithöfundur. Hún er jafnframt fyrsti þýzki kvenrithöf- undurinn, sem kemur hingað á vegum Þýzka bókasafnsins. Hún mun lesa úr bókum sínum „Der eine der andere" (smásagnasafn) og „Gestern war heute" (skáld- saga). Upplesturinn fer fram föstu- daginn 5. desember kl. 20.30 í stofu 101, Lögbergi. FréttatilkynninK HÉRERBÓKIN! SYRPA II úr handritum Gísla Konráðssonar er safn skemmtilegra sagnaþátta. Fyrra bindi Syrpu, þjóðsögurnar, sem út kom í fyrra, hlaut hinar beztu móttökur lesenda jafnt sem gagnrýnenda, og var það að vonum. Sagnaþættir Gísla eru ekki síður merkir eða skemmtilegir. FRÁ YSTU NESJUM cftir Gils Guðmundsson er safn vinsælla vestfirzkra þátta og kennir þar margra grasa. Sagt er frá Hans Ellefsen og hvalveiðistöðinni á Sólhakka, þættir eru af afreksmönnum og atkvæðamönnum, sérkennilegu fólki og fornu í lund og víða er slegið á léttari strengi og gamansöm atvik færð í letur, en í öðrum þáttum greinir frá örlagaríkum og válegum tíðindum. Lengsti þáttur bókarinnar er um Holt í Onundarfirði og Holtspresta. ÆVIPÆTTIR AUSTFIRÐINGS eftir Eirík Sigurðsson er ekki ævisaga í venjulegri merkingu þess orðs, en stiklað er á veigamestu athurðum í ævi hins merka skólamanns og bindindisfrömuðar og sagt frá fjölda manna, sem margir hverjir höfðu sterk áhrif á lífsviðhorf hans og lífsstefnu. Hlýhugur og hrifning á æskustöðvunum og samúð og virðing fyrir samferðamönnum mótar alla frásögn. SKUGGSJÁ BÓKABÚÐ OL/VERS STEINS SE BH

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.