Morgunblaðið - 04.12.1980, Page 25

Morgunblaðið - 04.12.1980, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1980 25 Að leiðarlokum þökkum við henni margar ógleymanlegar stundir. Björt minningin um hana mun fylgja okkur. Megi Guð styrkja eiginmann, unga syni, móður, tengdamóður og systkini í þeirra miklu sorg. Auður Torfadóttir Gígja Haraldsdóttir Guðný Þórðardóttir Lovísa Sigurðardóttir Ragnhildur Ilelgadóttir Kveðja frá Gullfossklúbbnum. Þinn hcimilisarinn hritur var, ok hamingjan bjó þar inni, um ástvininn milda birtu bar og börnin i umsjá þinni. I órofa tryKKÓ um árabil við áttum svo huKÍjúf kynni. (EJ.E.) I hugum okkar er sorg og söknuður þessa dagana, þar sem stórt skarð hefur verið höggvið í hópinn okkar við lát okkar hugljúfu vinkonu, Lóu. Okkur langar að minnast henn- ar með nokkrum orðum. Hún var svo björt, fínleg og létt eins og álfamær. Hlýtt viðmót hennar, glaðværð og greind drógu marga að henni, enda var hún vinamörg með afbrigðum. Lóa var trygglynd, hélt líka kunningsskap við skólafélaga og vinnufélaga og bauð þeim til fagnaðar á heimili sitt. Þá má ekki gleyma að minnast á fagran eiginleika, sem hún hafði, en það var hugulsemi í garð aldraðra og einstæðinga, og þar voru þau hjón samhent. Lóa var mikill fagurkeri, enda ber heimili hennar þess vitni. Það er prýtt fögrum munum og listrænni handavinnu hennar. Við handavinnuna var hún iðin og við höfðum oft orð á því, hvað hún kæmi miklu í verk. Þegar við komum saman var meira skrafað en saumað eins og oftast er á slíkum samfundum, en hún var gædd þeim eiginleika að geta hvort tveggja. Það var mikið gæfuspor, þegar Lóa gekk að eiga Sverri Einarsson lögfræðing. Við höfum varla kynnzt samhentari hjónum. Sverrir tók okkur vel og hennar stóra vinahópi. Jafnræði var með þeim hjónum, þau voru bæði fyrir að fegra heimili sitt og taka á móti gestum. Við eigum margar ógleymanlegar minningar frá Ut- hlíð 5, þar sem Lóa bjó af sinni smekkvísi og myndarskap veizlu- borð. Þá var húsbóndinn ræðinn og skemmtilegur og snerist í kringum okkur. Já, þar leið okkur vel. Þeim hjónum varð tveggja sona auðið. Þeir eru Gunnlaugur, 11 ára, og Einar Þór, 7 ára. Fátt er átakanlegra en móðurmissir, en guði sé lof að elsku litlu glókoll- arnir eiga skjól hjá sinni góðu föðurömmu og ástríka föður. Það var mikill kærleikur á milli Lóu og Vilborgar, tengdamóður hennar, enda hafði hún oft orð á því, hve góða tengdamóður hún ætti. Megi algóður guð styrkja föður og ömmu til að leiða bless- aða drengina gæfuveginn. Kæri Sverrir, við biðjum hann, sem öllu ræður, að styrkja þig og drengina í ykkar miklu sorg, og við vonum að með hækkandi sól verði bjartara framundan. Við vottum samúð okkar og biðjum guðsblessunar aldraðri og sjúkri móður Lóu, tengdamóður, systkinum og öðrum ástvinum. í kærleika vinu kveðja ber. þvi konunKur ijóssins friða mun faðminn sinn opna fyrir þér þar fegurstu gí'islar liða. Þvi Drottinn á marKan dýran lund. sem dðKgvotar rósir prýða. (E.J.E.) Dáinn, horfinn! — HarmafreKn! Hvilikt orð mÍK dynur yfir! (J.H:) Síminn hringir og okkur er sagt: Hún Lóa er dáin. Hvílíkt orð og harmafregn, eins og Jónas Hall- grímsson segir. Ung kona í blóma lífsins er horfin af sjónarsviðinu, en eftir lifa ljúfar og góðar minningar. Þau ár, sem við áttum samleið með Lóu, voru ánægjuleg, og ávallt var gott að vera með þeim hjónum, hvort heldur það var heima hjá þeim eða á öðrum stöðum. Samvinna okkar með þeim um byggingu sameiginlegs sumarbústaðar var skemmtileg og þaðan eigum við einnig góðar minningar. Það getur verið erfjtt að skilja skaparann, en við verðum að trúa að tilgangur sé með öllu. Við kveðjum elsku Lóu með söknuði í hjarta og þökkum henni samverustundirnar. Við biðjum þann, sem öllu ræður, um styrk til handa eiginmanni, sonum, móður, tengdamóður og öðrum ættingjum og vinum. Hvíl í friði. Kristín og Benedikt Sumarið 1967 kynnti Sverrir Einarsson okkur, samstarfsfólk sitt, fyrir ungri og glæsilegri konu, Guðlaugu Ólöfu Gunnlaugs- dóttur. Þessi kynni urðu þegar ánægjuleg, og þeim mun dýpri og hugþekkari sem árin liðu. Einstök glaðværð hennar, hreinskiptni og góðvild til annarra áttu mestan þáttinn í því. Þá var Lóa, en svo var hún ávallt nefnd í okkar hópi, sérlega félagslynd og hrókur alls fagnaðar, þegar við komum saman til að létta okkur stund frá amstri hversdagsins. Græskulaus smá- stríðni hennar og kátína ollu því, að öllum leið vel í návist hennar. Tilhlökkunarefni var og að vera boðinn á glæsilegt heimili þeirra Lóu og Sverris. Bæði voru þau veitul vel, og af öllu mátti ráða, að Lóa hafði lagt á sig mikið starf til þess, að gestunum gæti liðið sem bezt. Við þökkum og minnumst þessara ljúfu samverustunda. Hinu verður heldur ekki gleymt að Lóa var ætíð fyrst til að bjóða fram hjálp sína, þegar þannig stóð á, og lét í þeim efnum ekki sitja við orðin ein. Við viljum að lokum votta Sverri, sonunum Gunnlaugi og Einari Þór, Vilborgu móður Sverr- is, sem búið hefur í sambýli með þeim, Elínu aldraðri móður Lóu, systkinum hennar, sem og öðrum vandamönnum, dýpstu samúð okkar. Starfsfólk Sakadóms Afmælis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. T.d. Kjólar, mussur, jakkar, buxur, skyrtur og m.fl. Vesturgötu 3. sími 12880.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.