Morgunblaðið - 21.12.1980, Qupperneq 6
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980
Herraskór í sérflokki
frá SALAMANDER
ÞÝSKALANDI
Litur: Svart.
Verö 35.400
Litur: Rauöbrún
Verö 47.900
Litur: Svart.
Verö 49.700
Skóbúðin Suðurverí,
Stigahlíd 45, sími 83225.
VERKSMIÐJU
SALA
IÓLAFATAMARKAÐUR
Úrvalsfatnaður úr
fyrsta flokks efn-
um á verksmiðju-
veröi.
frá g.kr. nýkr.
Dömukápur 46.000 460
Drengjaföt 17.900 179
Herrafrakkar 56.000 560
Barnabuxur 8.900 89
Dömupils 12.000 120
Barnaúlpur 17.900 179
Herrabuxur 14.900 149
Dömubuxur 14.900 149
Opið á venjulegum
verslunartímum.
Elgurhf
Skipholti 7
Siml28720
2ja laga
jólaplata
frá
Björgvini
Björgvin Halldórsson lét verða
af því að gefa út jólaplötu í ár, og
er hún því sú þriðja af slíkum
piötum í ár.
Á þessari plötu eru tvö ný lög,
„Ný jól“ eftir Jóhann G. Jóhanns-
son, og „Ég vaki hjá þér“ eftir
Björgvin sjálfan.
Aðallagið er lag Jóhanns G.,
sem er að vanda, grípandi og
ágætt lag þó mörg betri lög hafi
heyrst frá Jóhanni á þessu ári.
Lagið er meðalhratt beatlag með
undirspili frá Sigurði Karlssyni,
Haraldi Þorsteinssyni og Magnúsi
Kjartanssyni auk Björgvins. Og
það sem ljær laginu „jólalaga-
blæ“, hörpuleikur Moniku Aben-
dorp, er sparlegt og smekklegt, og
eins er söngur Björgvins. Á bak-
hliðinni er svo rólegt, lítið fallegt
lag.
En hulstrið er eitt það ósmekk-
legata sem sést hefur í seinni tíð,
og síst við hæfi Björgvins sem
hefur upp á síðkastið vandað allt
sitt og passað að ósmekkvísi færi
ekki framhjá honum.
Gatan
og
sólin ...
Á meðan allir þeir sem hafa
verið jafn lengi og hann að l'.j.
og semja dægurtónlist á Islandi,
fylgja tískufyrirbærum og stefn-
um, heldur Magnús Þór ótrauður
sinni stefnu og hefur með þessari
plötu náð mun lengra heldur en ég
gerði mér grein fyrir að hann gæti
náð. „Gatan og sólin“ er tvímæla-
laust „toppur" á hans ferli. Plöt-
unni er skipti niður í tvö efni,
annað er „Gatan" og hitt er
„Sólin".
Með því að setja upp svona
efnivið er hægt að tengja meira
saman og gera hvora hlið að heild
og tekst þeim Magnúsi, Graham
Smith, fiðluleikara, Richard Corn,
bassaleikara, Gesti Guðnasyni gít-
arleikara og Jónasi Björnssyni
trommuleikara að snilld með
hjálp Gunnars Reynis Sveinsson-
ar sem séð hefur um það sem
kallað er „rafeinda- og náttúru-
tónlist".
Það fer ekki á milli mála að
hljómsveitin sem heitir reyndar
Steini blundur, er ein af þeim
betri sem fram hafa komið og er
hlutur Graham gífurlega stór, og
hefur hann hjálpað Magnúsi inn í
nýja hluti í tónlist geri ég ráð
fyrir.
„Gatan" hefst á því að Helgi
Skúlason, leikari, les ljóð Krist-
jáns frá Djúpalæk, „Borgin" en
dætur Magnúsar leika lagstúf
eftir Magnús á blokkflautur, rétt á
eftir fáum við að heyra fyrstu
hljómana í fiðlu Grahams sem á
eftir að eiga athyglina út alla
plötuna.
„Dordingull" tekur síðan við.
Þetta lag Magnúsar er við ljóð
Kristjáns eins og rúmlega helm-
ingurinn á plötunni. Lágið er
sérlega sterkt og fiðluleikur Gra-
hams góður, en Magnús syngur
lagið af miklum krafti eins og
hann gerir reyndar á allri plöt-
unni.
Á eftir laginu kemur Gunnar
Reynir með „hljóðin" sem og
byggir upp stór árekstur og slys,
en á eftir því kemur Magnús og
syngur lítið vers, „Ryk“.
„Þjófapakk" er þungt rímnalag,
þar sem Graham leikur sér að
þjóðlagastefi á enskan máta, lagið
er eitt af þeim sterku á plötunni.
„Útvarp" fylgir á eftir með
„Geltinn hundur" samtvinnað, en
það er lítil þula eftir Kristján.
„Hljómarnir í fiðlunni og öðrum
hljóðfæraleik í „Verðbólga" minn-
ir mjög á „Hurricane" Bob Dylans,
með sígaunafiðlu í forgrunni.
„Gatan“ er gott lag, þar sem
Graham leikur taktinn á fiðluna
sem kemur vel út, lagið byggist
upp í hápunkt sem leysist upp og
síðan kemur smá vögguvísa sem
dætur Magnúsar syngja.
„Sólarhliðin" er ekki jafn ævin-
týraleg og „Götuhliðin" en hún
byrjar á sama hátt á næmnum
upplestri Helga Skúlasonar á ljóði
Kristjáns frá Djúpalæk, „Sólin og
ég“ sem rennur út í orðaleik
Magnúsar í „Sælt er að lifa“.
„Lítil saga“ er lítil ljúf barna-
gæla, jafnvel undir áhrifum frá
Gylfa Ægissyni! Fiðlan skreytir
þetta lag eins og önnur á plötunni.
„Ástin mín“ er klassískt popp-
lag, en „Norðankaldinn" er nokkuð
sérstakur dans. Jóhann Helgason
syngur lagið með Magnúsi og er
það nokkuð ólíkt því sem við
höfum vanist frá þeim saman
nokkru áður en síðasta lagið og
líklega mest grípandi lagið, byrjar
líkur Gunnar Reynir „Norðan-
kaldanum" með „dropatónlist"!
„Sólin" er sterkt lag þar sem allir
meðlimir fá að njóta sín, því enda
þótt Graham Smith sé í sérflokki,
eru hinir hljóðfæraleikararnir
mjög góðir.
Magnús Þór er þó engu að síður
þungamiðjan í tónlistinni, sem er
hans vogaðasta til þessa.
Aðeins eitt hefði mátt vera til
viðbótar, meiri fjölbreytni í söng
Magnúsar, þar sem hann hefur
hæfileika til þess. Ein af bestu
plötum ársins.
Jóla-
plötur
Tvær nýjar íslenskar jólaplötur
koma út nú fyrir jólin. Eru það
sLaýjBRciríoaR