Morgunblaðið - 21.12.1980, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980
53
Séra Magnús Bl. Jónsson
Bókaútgáfan Ljóðhús:
Gefur út endur-
minningar séra
Magnúsar Bl.
Jónssonar
ÚT ERU komnar hjá Bókaútgáf-
unni Ljóðhúsi hf. í Reykjavik,
endurminninKar séra Magnúsar
Bl. Jónssonar. lengi prests á
Fijótsdalshéraði. Endurminn-
ingar Magnúsar eru i tveimur
stórum bindum, er nú koma út
samtímis. í forlagskynningu seg-
ir svo um endurminningar Magn-
úsar:
„Höfundur þeirra endurminn-
inga sem hér eru gefnar út á prent
fæddist árið 1861. Faðir hans, sr.
Jón Bjarnason, var fyrst prestur í
Meðallandsþingum en síðast og
lengst í Skarðsþingum (frá 1873 til
1893).
Furðuskýrar eru fyrstu minn-
ingar Magnúsar, frá Suðurlandi,
en það er þó varla fyrr en eftir
flutning fjölskyldunnar þaðan
norður að Prestbakka í Hrútafirði
og skilnað foreldra hans upp úr
því, að lífsreynsla hans byrjar.
Mestan hluta bernsku- og ungl-
ingsáranna dvaldist Magnús með
föður sínum og systkinum á
Skarðströnd, og er lýsingin á lífi
hans, umhverfi og lifnaðarháttum
alþýðu og höfðingja í þeirri sögu-
frægu sveit annar höfuðþáttur
þessa rits.
Það má heita að hending hafi
ráðið því að Magnús fór í skóla, en
dugnaður hans, þrek og útsjónar-
semi gert honum fært að ljúka
námi. Um námsárin í Reykjavík-
urskóla og í prestaskólanum er
fjallað í miðhluta ritsins, en
mestur hluti síðara bindis segir
frá dvöl séra Magnúsar á Fljóts-
dalshéraði, kynnum hans af
mönnum og aldaranda og stað-
háttum sem að ýmsu leyti voru
ólíkir umhverfi æsku hans.
Frásögn séra Magnúsar Bl.
Jónssonar er bæði nákvæm og
fjörug, svo að engu er líkara en
lesandinn hafi sögusviðið og per-
sónurnar ljóslifandi fyrir augun-
um.“
Kynningarbækling-
ar um Blöndu- og
Fljótsdalsvirkjun
RAFMAGNSVEITUR ríkislns
hafa gefið út kynningarbæklinga
um BÍönduvirkjun og Fljótsdals-
virkjun.
Fyrr á þessu ári fól iðnaðar-
ráðuneytið Rafmagnsveitum ríkis-
ins að gegna hlutverki virkjunar-
aðila við báðar þessar virkjanir.
Tóku Rafmagnsveiturnar þar við
af Orkustofnun.
Á sl. sumri beittu Rafmagns-
veiturnar sér í samvinnu við
iðnaðarráðuneytið, fyrir fundum
með forsvarsmönnum þeirra
hreppsfélaga sem beinan hlut eiga
að máli og nýlega voru haldnir
kynningarfundir á heimavett-
vangi beggja þessara virkjana.
Var kynningarbæklingunum
dreift fyrir fundina á alla bæi í
þeim hreppum sem hlut eiga að
máli og einnig hafa þeir verið
sendir sveitarstjórnum í viðkom-
andi landshlutum.
CANON
METSÖLUVÉLAR
CANON A-1 AT-1,
AV-1. AE-1 og F-1
VERÐ FRA
KR 302.000 —
3.020 NÝKR.
POLAROID og
KODAK INSTANT
AUGN ABLIKSM YNDAVÉLAR —
TILVALIÐ FYRIR HATfÐARMYNDATÖKURNAR
8 GEROIR
VERÐ FRA KR 26.250,- 262,50 NÝKR.
GJAFAKORT
FYRIR MYNDATÖKUR I STUDIOI
VERSLUNARÚTTEKT AHUGALJÓSMYNDARANS
EÐA OKKAR VINSÆLU LJOSMYNDANÁMSKEIÐ.
ALdUM 20 GERÐIR
VERÐ FRA KR 1.250 — 12.50 NYKR
TIL KR 14.850—148.50 NYKR.
NIKON
MERKI FAGMANNSINS
NIKON EM, FM OG FE MYNDAVÉLAR
VERÐFRÁ KR 275.100 — 2.751 NÝKR
ÚR Ali, leðri og LEÐURLÍKI
YFIR 20 GERÐIR
VERÐ FRA KR 14.900 —
149NÝKR.
MYNDAVELA
TÖSKUR
HOYA og COKIN
HAMA
FYLGIHLUTIR
AVALLT VINSÆLIR
FILTERAR —
GERA GÖÐA MYND BETRI
ÆÐISLEGT ÚRVAL!
SUNPAK
LEIFTURLJÓS
6GERÐIR
VERÐ FRA KR 19.800-
198NÝKR
STÆKKARAR 9 GERÐIR í
VERÐ FRA KR 105.785 — 1.057.90 NÝKR.
MIKIÐ ÚRVAL MYRKRAHERBERGISAHALDA
OG EFNI FYRIR S/H OG LIT.
RAMMAR r
í FJÖLBREYTTU URVALI
LÁTIÐ OKKUR SETJA MYNDIRNAR í
A MEÐAN BEÐIÐ ER!,
LINSUR
YFIR 30 GERÐIR
A FLEST ALLAR MYNDAVÉLAR
INNRÖMMUN
RAMMAGERÐ OKKAR BÝÐUR
FLJÓTA OG VANQAÐA ÞJÓNUSTU
NÁLÆGT 100 GERÐIR FALLEGRA
RAMMALISTA FYRIRLIGGJANDI.
35 mm „COMPACT”
MYNDAVÉLAR
VERÐ FRÁ KR 127.500 — 1.275 NÝKR
SLÆR f GEGN!
PENTAX MV, ME OG ME SUPER MYNDAVÉLAR
FRAMTÍÐAREIGN A HÖFLEGU VEROI —
VERÐ FRÁ KR 238.000 — 2.380 NÝKR. MM
GOÐ GREIÐSLUKJOR!
Verslið hjá
fagmanninum
MYNDARLEGAR
JÓLAGJAFIR
LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F
LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMISS811