Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980
57
Conrad Bukes:
„Margir
Islendingar
búa yfir miklum
danshæfileikum“
„Mér skilst að þetta sé fyrsti
íslenski ballettinn i fullri lengd
sem sýndur er hér. Ég er mjög
ánægður yfir því að hafa fengið
tækifæri til að taka þátt í þeim
atburði,“ sagði Conrad Bukes
sem dansar hlutverk Búa. Hann
er fæddur í Suður-Afríku en
árið 1972 fór hann þaðan og
dansaði með The Royal Ballett i
1 ár. Siðan var hann aðaldans-
ari við hallettinn i Munchen í 7
ár. Conrad er nú ósamnings-
hundinn. ferðast um og dansar
með hinum ýmsu hallettflokk-
um og hefur einnig sett upp 3
balletta sem hann segir að hafi
fengið g(')ðar viðtökur.
Conrad var spurður um álit
hans á þeim manni sem hann
túlkar í Blindisleik, Búa, og
verkinu í heild.
„Við höfum ekki lokið við að
setja ballettinn upp svo ég hef
ennþá ekki gert mér ákveðna
hugmynd um hvaða persónu Búi
geymir. Ég hef hingað til verið
að læra danssporin og er ekki
enn farinn að setja mig inn í
sjálfa persónuna.
Það sama er að segja um
verkið. Ég veit ekki hvort þetta
er gott eða vont verk. Það hefur
enn ekki verið æft í heild sinni,
heldur lið fyrir lið.
En gæði verksins fara að miklu i
leyti eftir því hvernig íslend-
ingar taka því. Það er fyrir þá
sem við setjum ballettinn upp.
Það verður að koma í ljós
hvernig þeim finnst við hafa
meðhöndlað gömlu þjóðsöguna
þeirra."
— Conrad sagði að ástæðan
fyrir því að hann er hingað
kominn væri sú að hann hefði
unnið með Sveinbjörgu og hún
hefði spurt sig hvort hann vildi
koma hingað.
„Ég sló til. Mér fannst þetta
spennandi. Ég vissi í raun og
veru ekki hverju ég átti von á
hér. En ísland kom mér á óvart."
— Hvers vegna?
„Mér geðjast svo vel að fólkinu.
Islendingar eru skemmtileg þjóð,
skemmtileg samsetning. Mér er
sagt að þið séuð mjög blandaðir,
bæði Evrópubúum og Skandinöv-
um.
Þegar maður ferðast mikið,
eins og ég, lærist manni að
þekkja fólk með því að horfa á
það. Þegar ég beið í flugstöðinni í
London á leiðinni hingað virti ég
fyrir mér fólkið. Mér fannst það
svo íhaldssamt. Það sá ég á
klæðaburðinum og framkom-
unni.
En þegar ég kom hingað var
annað uppi á teningnum. Fyrir
það fyrsta er fólkið hér mjög
áðlaðandi og það er líka líflegt og
mjög áhugavert.
Tækifæri fyrir dansara eru
ekki mörg hérlendis. En ef hér
væru tækifæri væri mikil gróska
í danslistinni. Margir Islend-
ingar hafa mikla danshæfileika.
Það er þess vegna sem ég hef
ákveðið að verða hér um kyrrt til
3. febrúar nk. Ég ætla að taka að
mér að þjálfa dansarana og
kenna byrjendum klassískan
ballett, jassdans og nútímadans.
Ég ætla að reyna að halda áfram
því starfi sem Jochen Ulrich
hefur hafið.“
— Hefur þú kannski hugsað
þér að setja ballett á svið?
„Það er mögulegt ef til mín
verður ieitað um slíkt. Ég hef
líka hug á því að verða hér
lengur, koma aftur eða senda
hingað aðra dansara. Ég mun
ræða um það við Örn Guð-
mundsson stjórnanda íslenska
dansflokksins.
Ég hef dansað lengi með mörg-
um dansflokkum, bæði litlum og
stórum. Þegar dansinn er orðinn
partur af lífi manns þá er það
hans ósk að gera veg dansins sem
mestan um heim allan. Að hjálpa
þeim sem hafa hæfileika en ekki
sömu tækifæri og aðrir til að
öðlast þau.
Það er öruggt að margir ís-
lendingar búa yfir miklum hæfi-
leikum til að dansa. Það sést best
á árangri þeirra karlmanna sem
taka þátt í Blindisleik og hafa
lítið sem ekkert dansað fyrr.
Dansinn er ekki þeirra svið og
þeir ætla sér ekki að leggja hann
fyrir sig. En það er stórkostlegt
hvað þeir geta og þeir eru svo
áhugasamir og opnir fyrir þessu
sem er þeim algjörlega nýtt. Ég
vona að aðrir Islendingar reynist
líka opnir fyrir nýjungum því
það er jú nýjung sem við bjóðum
þeim upp á,“ sagði Conrad Bukes
að lokum.
Aðalsteinn Bergdal:
„Ætli það megi
ekki segja að
ég sé styðjari
og lyftari“
Nokkrir karldansararnir í
Blindisleik hafa litið sem ekkert
komið nálægt ballett áður. Með-
al þeirra cr Aðalsteinn Bergdal
leikari.
„Ég veit eiginlega ekki af
hverju ég hafnaði hér, ætli það sé
ekki af því að ég er ekkert mjög
stirður," sagði hann og hló. „Það
mun víst einhver hafa bent á mig
eftir að ég lék í söngleiknum
Gretti."
— Aðalsteinn sagði að það
væri gaman að fást við dansinn.
„Þetta er ólíkt því sem maður
gerir daglega. Og þó ekki, ég er
leikari og dans er viss tegund
tjáningar, tjáning með líkaman-
um.
— Hvert er hans hlutverk í
ballettnum.
„Ætli það megi ekki segja að
ég sé styðjari og lyftari í hóp-
dönsum," sagði hann.
„Annars heyri ég á hópnum að
þetta er erfiður ballett. Það er
meira um hopp og stökk og lyftur
en í mörgum öðrum verkum. Ég
fékk mjög slæma strengi fyrstu 2
dagana.
Er þetta skemmtilegt verk?
„Mér finnst það og tónlistin er
mjög fjölbreytt. Ég hef nú ekki
mikið vit á ballett en ég held að
fólk geti mjög auðveldlega fylgst
með atburðarásinni. Það þarf
ekki glöggan mann til þess að
finna það út sem er að gerast á
sviðinu."
— Ekki var Aðalsteinn í nein-
um vafa um það hvort væri
skemmtilegra viðfangs, leiklistin
eða dansinn:
„Leiklistin er nú skemmti-
legri."
— Þú ætlar þá ekki að leggja
dansinn fyrir þig í framtíðinni?
„Nei, það ætla ég ekki að gera.
En ég held að ég myndi ekki slá
hendinni á móti ef leitað yrði til
mín aftur með verkefni sem
þetta," sagði Aðalsteinn að lok-
um.
Michael Molnar:
„Ekki aðeins
þjóðsaga,
gæti gerst
hvenær
Ungverjinn Michael Moln-
ar dansar hlutverk „vonda
mannsins“ Kols. Hann er
aðaldansari við Tansforum-
ballettinn í Köln, mótdans-
ari Sveinbjargar Alexand-
ers.
sem er“
„Blindisleikur er skemmti-
legt verk,“ sagði Michael,
„Við erum nú að leggja síð-
ustu hönd á undirbúninginn.
Efnið sem ballettinn bygg-
ist á er ekki aðeins þjóðsaga,
\ 'W ■ rm
þetta er nokkuð sem gæti
gerst hvenær sem er.
Ég er ekki góð persóna í
verkinu en hlutverkið er
skemmtilegt viðfangs. Kolur
er maður sem allir gætu verið
stundum, þegar hið illa kem-
ur fram í manninum."
— Michael lærði við ball-
ett-akademíuna í Ungverja-
landi og voru margir kennar-
ar hans rússneskir. Eftir 8
ára nám þar var hann við
nám í Sovétríkjunum í
nokkra mánuði. Eftir það
dansaði hann í klassískum
ballettum í heimalandi sínu.
Síðan lá leiðin til UúSScl-
dorf en sl. 7 ár hefur hann
dansað nútímaballett við
Tansforum í Köln.
„Ég hef meiri möguleika
sem dansari í Þýskalandi en í
Ungverjalandi. Ég á þess kost
að sjá dansara víðsvegar að
úr heiminum auk þess sem ég
hef haft tækifæri til að vinna
með ýmsum balletthöfundum
og ferðast með hópnum víða
um heim.
Um ástæðuna fyrir komu
sinni hingað sagði hann:
„Ég hef dansað með Svein-
björgu Alexanders í 7 ár. Við
erum bæði vinir og dansfé-
lagar. Þrisvar sinnum hefur
mig langað til að koma
hingað en þetta er í fyrsta
skipti sem ég hef komið því
við.“
— Hann var mjög ánægð-
ur með dvölina hér.
»DanSarárnir eru mjög
góðir og skemmtilegt fólk.
Mér líkar einnig vel við
landið en ég hef bara séð svo
lítið af því. Það er myrkur á
morgnana, á daginn vinnum
við og á kvöldin er aftur orðið
myrkt. Ég get kannski séð
eitthvað meira af landinu um
jólin, ef við fáum eitthvað
frí,“ sagði Michael að lokum.
rmn.